Morgunblaðið - 14.02.1993, Side 1

Morgunblaðið - 14.02.1993, Side 1
72 SIÐUR B 37. tbl. 81. árg. SUNNUDAGUR 14. FEBRÚAR 1993 ______PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Morgunblaðið/Kristinn GEFIÐ t GOGGINN Samkomulag ríkisstjórnar Suður-Afríku og ANC umdeilt Buthelezi segist óttast blóðbað í Suður-Afríku Jóhannesarborg. Reuter. Daily Telegraph. Bætir Mossad magasárið? FYRRVERANDI njósnari ísraelsku leyniþjónustunnar Mossad hefur höfðað mál á hendur fyrrum vinnuveitendum sínum og krafist skaðabóta fyrir maga- sár. Hann segir það beina afleiðingu þeirrar spennu sem starfinu fylgdi er hann stundaði njósnir fyrir Mossad utan heimalandsins á árunum 1975-83. Þvottavél fær nýtt hlutverk NÚ FER sá tími í hönd er ferðasalar bjóða þjónustu sína og kennir margra grasa þegar valkostirnir eru annars vegar. í nýjum bæklingi yfir frönsk sveitasmáhýsi sem gisting er boðin í segir: „Sainte Barbe. Þvottavél í bíl- skúrnum, tekur sjö manns.“ Kostnaðarsöm umferðartöf REIKNAÐ hefur verið út að það bensín sem fer forgörðum vegna umferðartafa í Tókíó kosti jafnvirði 135 miHjarða ís- lenskra króna. Reiknimeistarar lögregl- unnar hafa ennfremur fundið út að samanlagt glatist 2.000 vinnustundir á dag í umferðinni í borginni. Hollendingar í landvinningnm E.M.H. Hirsch Ballin, dómsmálaráð- herra Hollands, hefur lagt til að sá vandi sem Kulborðaeyjar, þijár smáeyjar í hópi Hollensku Antillaeyja í Vestur-Ind- íum, hefur skapað Hollendingum verði leystur með því að innlima þær. Eyjarn- ar eru ekki taldar geta staðið á eigin fótum og yrðu 13. hérað Hollands. Bresk herstöð boðin til sölu HERSTÖÐ breska flughersins á Green- ham Common vestur af London verður seld. Hún var mikið í fréttum á siðasta áratug er kjarnavopnum var komið þar fyrir. Þar var miðstöð baráttu friðar- samtaka kvenna sem slógu upp tjöldum meðfram girðingunni sem umlykur stöðina. Stýriflaugar voru fluttar þaðan fyrir rúmu ári. Konurnar láta þó ekki segjast og reka þar enn þrennar tjald- búðir. íbúum þeirra hefur þó fækkað en 15 konur búa þar nú. MANGOSUTHU Buthelezi leiðtogi Zulumanna í Suður-Afríku sagði í gær að búast mætti við blóðbaði í landinu ef stjórn hvíta minnihlutans og Afríska þjóðarráðið (ANC) reyndu að hrinda í framkvæmd samkomulagi sem tókst með þeim í fyrradag um framtíðarsljórn landsins. Buthelezi sagði að beita þyrfti hervaldi ef þvinga ætti samkomulagið upp á íbúa heimalanda Zulumanna, KwaZulu og Natal. Cyril Ramaphosa framkvæmdastjóri Af- ríska þjóðarráðsins skýrði frá sámkomulagi sem tókst á föstudag milli samningamanna ríkisstjómarinnar og ANC um stjóm lands- ins til aldamóta. Samkvæmt því verður efnt til fijálsra kosninga á næsta ári þar sem allir kynþættir verða jafn réttháir og þingið sem þar verður kosið fær það hlut- verk að ákvarða um skiptingu landsins í stjórnsýslusvæði og sjálfsforræði þeirra. í framhaldi af kosningunum tekur þjóðstjórn svartra og hvítra við völdum til aldamóta. Samþykki ríkisstjómin og framkvæmda- stjóm ANC þessa niðurstöðu jafngildir það því að meirihlutastjóm svartra manna kemst ekki á í Suður-Afríku fyrr en í byrj- un næstu aldar. Með þessu samkomulagi er mtt úr vegi helstu hindranum sem tafið hafa viðræður um lýðræðisumbætur í Suður-Afríku sem á endanum eiga að tryggja öllum þjóðabrot- um jafnan rétt. Með samkomulaginu hefur Buthelezi einangrast enn frekar, en hann hefur viljað fara aðrar leiðir við að koma á lýðræðisum- bótum. Hann sagðist mótfallinn því að þing sem kosið yrði í ólýðræðislegum og óréttlát- um kosningum, í andrúmslofti ofbeldis og ógnana, myndi ákveða landamæri og fram- tíðarstjómskipan landsins. Allar tilraunir til að virða að vettugi réttmætar óskir íbú- anna og þvinga upp á þá stjómarfari og skipulagi sem væri andstætt vilja þeirra væra dæmdar til að mistakast. Myndu enda í harmleik og blóðbaði, eins og nýleg dæmi á alþjóðavettvangi sönnuðu, að hans sögn, en þar skírskotaði hann til þróunar- innar í Júgóslavíu. UNDUR EÐA UPPSVEIFLA FRAMTIÐIN ARA Þjálfunarmiðstöð forystumanna Saknar ekki sviösljóssins Guðmundur Guð- mundsson fór í vík- ing til Mosfellsbæjar 38

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.