Morgunblaðið - 14.02.1993, Qupperneq 2
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUK 14. FEBRÚAR 1993
EFNI
2 FRETTIR/IIMNLENT
Debetkort
Kaupmenn
greiða ekki
kostnaðinn
BJARNI Finnsson, formaður
Kaupmannasamtakanna, segir
að verzlanir muni ekki taka við
debetkortum, sem bankar og
greiðslukortafyrirtæki hyggjast
taka í notkun með vorinu, fyrr
en formlegar viðræður hafa far-
ið fram við kaupmenn. Bjarni
segir að kaupmenn hafi ástæðu
til að ætla að verzlunin eigi að
greiða hluta kostnaðar af kort-
unum og við það muni þeir ekki
sætta sig.
Magnús E. Finnsson, fram-
kvæmdastjóri Kaupmannasamtak-
anna, sagði að forstjóri Visa ís-
lands hefði rætt um að vegna de-
betkortanna yrði innheimtur helm-
ingurinn af því gjaldi, sem verzlan-
ir greiða vegna kreditkorta. Það
þýddi '/2% í matvöru og rúmlega
1% í öðrum greinum. „Ef verzlunin
er látin greiða kostnaðinn mun það
hækka vöruverð og þá greiða þeir,
sem ekki nota kortin, fýrir hina,
sem nota þau. Því er eðlilegast að
notendur greiði kostnaðinn," sagði
Magnús.
Grundarfjörður
Skemman
söðulbaka
RÚÐUR brotnuðu I um tutt-
ugu húsum í Grundarfírði i
óveðrinu á föstudagskvöld
og járnplötur fuku af hluta
þaka á þremur húsum. í sum-
um húsanna brotnuðu fleiri
en ein rúða og tvö hús varð
að yfírgefa vegna rúðubrota.
Kona skarst af glerbrotum.
Mesta einstaka tjónið í
Grundarfirði varð á gamalli
bárujárnsskemmu sem stendur
austast í bænum. Skemman
var að leggjast saman undan
vindinum og voru þá fengnir
menn á þungavinnuvélum til
að ýta að og styðja við hana
því óttast var að járnið af henni
myndi valda skemmdum á öðr-
um húsum og slysum á fólki.
Skemman er talin nánast ónýt,
hún er sliguð í miðju, er nú
eins og söðulbaka hestur, að
sögn lögreglumanns.
Morgunblaðið/Björn Blöndal
Tvær veggplötur losnuðu af
flugskýlinu á Keflavíkurflugvelli
TVÆR eins metra breiðar veggplötur losnuðu af veggklæðningu hins
nýja flugskýlis Flugleiða í óveðrinu á föstudag. Að sögn Einars Sigurðsson-
ar blaðafulltrúa Flugleiða var þetta tjón ekki mikið, efni til viðgerða er til
og hófust þær strax í gærmorgun. Sem kunnugt er af fréttum fuku þak-
plötur af skýlinu í óveðri fyrr í vetur en Einar segir að viðgerð á því tjóni
sé lokið og að þakið hafi alveg sloppið í óveðrinu nú. „Húsið er enn á
byggingarstigi og þessi endurteknu tjón á því valda okkur áhyggjum,"
segir Einar. „Hinsvegar er tíu ára ábyrgð á fráganginum við skýlið þann-
ig að við erum vel varðir fyrir þessum tjónurn." A myndinni sjást fjúk-
andi plötur við flugskýlið og á þeirri innfelldu sést skemmda hornið.
Á milli 70 og 80 manns í leit að ungum manni á Völlum
Fannst kaldur við
Einarsstaðaskóg
SJÖTÍU til áttatíu manns tóku
Völlum á Fljótsdalshéraði í fyrri
fannst á lífi en nokkuð kaldur
Maðurinn sem leitað var að er
innan við tvítugt, búsettur á Egils-
stöðum. Hann tók þátt í þorra-
blóti í samkomuhúsinu Iðavöllum
á Völlum, skammt sunnan Egils-
staða, aðfaranótt laugardags. Fólk
á bæjum og í sumarbústöðum í
nágrenninu varð vart við manninn
gangandi um nóttina og var farið
að óttast um hann. Um klukkan
fjögur hófst leit sem björgunar-
þátt í ieit að ungum manni á
lótt og í gærmorgun. Maðurinn
im hádegisbilið í gær.
sveitin Gró og Hjálparsveit skáta
skipulögðu. Auk björgunarsveitar-
manna tók fólk úr nágrenninu
þátt í henni og þrír menn frá
Norðfirði komu til aðstoðar með
sérþjálfaða leitarhunda.
í gærmorgun fjölgaði leitar-
mönnum og til stóð að hefja leit
úr lofti vegna þess hvað aðstæður
til leitar á landi voru erfiðar í
Hjalla- og Einarsstaðaskógi. Þar
var djúpur, jafnfallinn snjór.
Leitarhundur fann manninn
Leitarhundur fann manninn á
lífi ofan við Einarsstaðaskóg um
hádegisbilið í gær. Var hann orð-
inn nokkuð kaldur og var farið
með hann á heilsugæslustöðina á
Egilsstöðum til aðhlynningar.
Ekki var búið að taka skýrslu af
honum þegar Morgunblaðið hafði
síðast spumir af málinu eftir há-
degið í gær.
Erfitt að afla upplýsinga
um laun til bótaþeganna
EKKERT reglubundið eftirlit er með því að
fólk á atvinnuleysisbótum starfi ekki á svæði
annars verkalýðsfélags en það tilþeyrir, eða
í annarri starfsgrein. Mikið skortir á að hægt
sé að samræma upplýsingar sem gætu hindr-
að svik.
Nýlega varð einstaklingur uppvís að því að
þiggja atvinnuleysisbætur hjá einu stéttarfélagi
og stunda fulla vinnu í sama sveitarfélagi. Hér
var ekki um „svarta“ vinnu að ræða heldur at-
vinnu þar sem greiddir voru skattar og stéttar-
félagsgjöld til annars stéttarfélags en einstakl-
ingurinn þáði bæturnar hjá. Þetta mál upplýstist
fyrir tilviljun eftir margra mánaða svindl. Annar
einstaklingur mætti reglulega til atvinnuleysis-
skráningar og sótti sínar vikulegu bætur allt þar
til birtist viðtal og mynd í dagblaði af hinum
„atvinnulausa" vegna starfs hans. Þessi tilfelli
eru ekki einsdæmi.
Erfitt að afla upplýsinga
Margrét Tómasdóttur, framkvæmdastjóri At-
vinnuleysistryggingasjóðs, segir erfitt að afla
upplýsinga um launagreiðslur til bótaþega. Tölvu-
upplýsingar um félagsgjöld til verkalýðsfélag-
anna eru ekki samtengdar. Allar færslur Atvinnu-
leysistryggingasjóðs eru unnar með handvirkum
hætti og því ekki tök á að samkeyra upplýsingar
um bótaþega og upplýsingar úr tölvukerfum.
Eftir að sjóðurinn hefur verið tölvuvæddur kem-
ur til greina að óska eftir aðgangi að upplýsing-
um um staðgreiðslu skatta, að sögn Margrétar.
Þannig fengjust upplýsingar um hveijir væru á
launaskrám fyrirtækja í Iandinu.
Viðurlög við bótasvikum eru tafarlaus bóta-
missir. Ef sá sem sveik út bætur verður raunveru-
lega atvinnulaus fær hann engar bætur fyrstu
tvo mánuðina. Ef um ítrekað brot er að ræða
gildir missir bóta allt að einu ári. Reyndin hefur
orðið sú að fólk missir bætur jafn marga mán-
uði og það sveik út bætur, auk fyrstu tveggja
refsimánaðanna. Svik af þessu tagi fyrnast ekki
þannig að ef maðurinn fær atvinnu áður en refsi-
tíminn er liðinn, missir hann af bótum ef hann
verður seinna atvinnulaus. í undirbúningi eru
ný lög um Atvinnuleysistryggingasjóð og má
vænta þess að viðurlög við svikum verði hert
verulega.
Of lítil félagssvæði
Óskar Hallgrímsson hjá Vinnumálaskrifstofu
félagsmálaráðuneytisins, sagði eina aðhaldið
gegn svikum í atvinnuleysisbótakerfinu felast í
vikulegri atvinnuleysisskráningu og forgangsrétti
félagsmanna verkalýðsfélaga að atvinnu á sínu
félagssvæði. Hann telur svik af þessu tagi mjög
erfið í minni sveitarfélögum, þar sem allir þekkja
alla. Hann segir menn lengi hafa haft grun um
að einstaka menn á atvinnuleysisbótum hafi unn-
ið „gráa“ eða „svarta“ vinnu. „Menn gera það
hvort sem er atvinnuleysi eða ekki,“ sagði Ósk-
ar. Hann telur hluta vandans felast í of litlum
félagssvæðum verkalýðsfélaganna þannig að
menn komist upp með svik í skjóli þess að upplýs-
ingar berist ekki á milli félagssvæða.
Undur eða uppsveif la?
►Bandarískt efnahagslíf er í upp-
gangi um þessar mundir án þess
að Clinton hafi gert handtak. En
er þetta efnahagsundur eða er ein-
ungis tjaldað til einnar nætur?/10
Þjálfunarmiðstöð for-
ystumanna
►Framtíðin, félag nemenda í
Menntaskólanum í Reykjavík verð-
ur 110 ára á morgun en margir
helstu forystumenn þjóðarinnar
hafa stigið sín fyrstu spor í ræðu-
stól Framtíðarinnar./ 14
Sálfræðitryllir
►Laugarásbíó sýnir ný nýjustu
mynd Brian De Palma, Raising
Cain, eða Geðklofann. Þetta er 21.
kvikmynd De Palma og í henni
tekst hann að nýju við það sem
margir telja hann gera best: sál-
fræðilega spennusögu./16
Forystumaður fallinn
frá
►í minningú Einars Olgeirsson-
ar./18
B
w ms
SUNNUDAGUR
PROFESSORINN
MEÐ PENSILINN
► l-28
Prófessorinn með
pensilinn
►Hafliði Pétursson eðlisverkfræð-
ingur er einnaf yngstu prófessor-
um Háskóla íslands. Hann leggur
stund á málaralistina í frístundum
en hefur meiri trú á Háskólanum
sem vísindastofnum en á sjálfum
sérílistinni./l
Á siglingu með sér-
vitringi
►Óttarr Hrafnkelsson er nýlega
kominn heim úr siglingu um
Karíbahafið sem hann fór í með
milljónamæringi frá Hawaii og
sérvitringi. Sú för reyndist ekki
ánægjan ein./4
í dag
►Markverðir atburðir, sem gerst
hafa á þessum degi, 14. febrúar,
rifjaðir upp./8
Að finna hjartslátt
landsins
►Hafdís Rósa Sæmundsdóttir er
skiptinemi í landi kúrekanna./lO
Andlitslyfting á Arnar-
hóli
►Nú stendur fyrir dyrum breytt
skipulag Amarhóls./14
Geymir ómetanleg
menningarverðmæti
►Vilhjálmur Knudsen kvik-
myndagerðarmaður ræðir um
heimildarmyndir þær sem hann og
faðir hans, Ösvaldur Knudsen,
hafa unnið í 46 ár./16
FASTIR ÞÆTTIR
Fréttir 1/2/4/6/bak Dægurtónlist 13b
Leiðari 22 Fólk i fréttum 18b
Helgispjall 22 Myndasögur 20b
Reykjavikurbréf 22 Brids 20b
Minningar 24 Stjömuspá 20b
íþróttir 38 Skák 20b
Útvarp/sjónvarp 40 Bíó/dans 21b
Gárur 43 Bréf til blaðsins 24b
Mannlífsstr. 6b Velvakandi 24b
Kvikmyndir 12b Samsafnið 26b
INNLENDAR Fí ÉTTIR:
2-6-BAK
ERLENDAR FRÉTTIR:
1-4