Morgunblaðið - 14.02.1993, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 14.02.1993, Blaðsíða 14
I 14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. FEBRÚAR 1993 FRAMTÍÐIN 110 ÁRA Þjálfimanniðstöð forystumanna eftir Gauto B. Eggertsson Menntaskólinn í Reykjavík er um margft merkilegur skóli. Húsið á hæðinni hefur gnæft yfir miðbæinn í hartnær 150 ár og sett töluverðan svip á bæði útlit hans og anda. Innan veggja hins gamla skóla hefur líka margt gerst á þessum langa tíma. Þar var Alþingi endurreist, hans konunglega hátign Kristján IX. gerði Hátíðarsal Menntaskólans að sérlegri einkasvítu í Is- landsheimsókn sinni og í heimsstyrjöldinni síðari lagði breska heimsveldið ekki aðeins undir sig gervallan kvenpening Reykjavík- ur heldur einnig skólahúsið. Margt breytist á löngum tíma, jafnvel Menntaskólinn í Reykjavík. En eitt stendur þó óhaggað. Framtíðin, félagsskapur nemenda, hefur starfað samfleytt frá 1883 og fagnar 110 ára afmæli sinu 15. febrúar. Útivistarferðir ÚR ÞÓRSMERKURFERÐ Framtíðarinnar síðasta sumar. Um 300 nemendur voru með í för en slíkar ferðir eru einn af fjölmörgum þáttum í starfi Framtíðarinnar. Sjaldan hafa verið fleiri meðlimir í félaginu en í ár, eða um 98% nemenda. Arin eru ekki frek- ar en peningam- ir nokkurs virði ef þau em að- eins látin hrúg- ast upp. Enda hafa Framtíðarfélagar sjaldan setið auðum höndum. Framtíðin hefur ver- ið einn helsti máttarstólpi félagslífs nemenda Menntaskólans allt til þessa dags. í fyrstu lögum Framtíðarinnar var markmið félagsins sagt vera „að efla félagsskap og samheldni meðal félagsmanna, að æfa þá í ritsmíð, rökfimi og ræðuhaldi og að efla skemmtan og fróðleik". Þessi klausa stendur óbreytt enn í dag. Þau félög eru líklega fá sem stát- að geta af jafn glæsilegu félagatali í áranna rás. Framtíðin hefur alið og stælt marga bestu syni og dætur þjóðarinnar. Nægir að nefna nokkra þá sem setið hafa í forsetastól félags- ins, forsætisráðherrana Bjama Bene- diktsson, Gunnar Thoroddsen og Stefán Jóhann Stefánsson, þrettán alþingismenn, og ekki síst forseta lýðveldisins Asgeir Ásgeirsson, og áfram mætti lengi telja. Enda varla furða. Menntaskólinn hefur löngum haft á sér það orð að vera embættis- mannaskóli og nánast sjálfgefið mál lengi vel að þeir sem þaðan braut- skráðust yrðu annað hvort prestar, læknar eða alþingismenn. Framtíðin Fyrir stofnun Framtíðarinnar voru starfandi tvö félög, Bandamannafé- lagið og Ingólfur. Ákveðin togstreita og valdabarátta var á milli félag- anna. Togstreitan rikti aðallega um eignarhald á harmonikku einni sem notuð var til dansæfínga. Valdabar- áttan var hins vegar háð um kosn- ingu á dans- og glímustjóra. Þessi ágreiningsmál áttu stóran þátt í því að loks var stofnað til allsheijar skólafélags eða „framtíðar“-félags Reykjavíkurskóla. Hlaut það nafnið Framtíðin, að því er virðist til bráða- birgða. Félagið varð strax mjög líf- vænlegt og barðist raunar af kappi fyrir því að skólahúsið yrði rifíð, „það gamla skrifli". Þessu til sönnun- ar nægir að vitna í kvæðið „Ávarp til Framtíðarinnar“ sem flutt var á fyrsta Framtíðarfundinum. Skáldið er talið hafa verið Þorsteinn Erlings- son: Stiórnxnálaskóli MEÐAL forseta Framtíðarinnar hafa verið margir helstu sljórnmálamenn landsins, þeirra á meðal Bjarni Benediktsson og Einar Olgeirsson Frelsum skólann úr framtíðar vanda, foma skriflið vjer rífum á braut; myndum bygging, sem betur má standa, búin annars er landinu þraut. Framtíðarfundur 1944 PÓLITÍSKAR umræður hafa jafnan fylgt Framtíðinni enda hefur félagið lagt þunga áherslu á málfundahald. Hafa þeir fundir oft á tíðum verið býsna fjörugir. Húsnæðisbarátta Framtíðar- manna hefur þannig verið hafín þeg- ar fyrir 110 árum og augljóslega jafn lítið orðið við kröfum þeirra þá sem nú! Snemma fór að bera á iðkun ritlist- ar í félaginu og voru allmörg blöð gefín út á fyrstu árunum. Árið 1898 var loks stofnað allsheijarblað Fram- tíðarmanna og hlaut það nafnið Skin- faxi. Fetaði fákurinn götu hins óbundna máls. Til gamans má geta að árið 1906 stal Ungmennafélag Reykjavíkur Skinfaxanafninu. Hóf útgáfu undir sama nafni. Vitaskuld sámaði skólapiltum þessi „tvíbrúk- un“ og kröfðust umsvifalaust að Ungmennafélagsmenn gæfu blaðinu annað nafn. Þvert á sanngimi ung- mennafélagsandans neituðu þeir og bám því við að Framtíðin gæfí sitt blað út handskrifað en þeirra væri hins vegar prentað. Uétu forkólfar Ungmennafélagsins þess þó getið að það væri sjáifsögð kurteisi að láta nafnið niður falla ef Framtíðin hæfí prentun síns Skinfaxa. Þess má loks geta að Framtíðin hefur látið prenta Skinfaxa í nokkra áratugi en Ung- mennafélagið hefur ekki enn upp- fyllt loforð sitt - þrátt fyrir áskoranir! 16 skáld í f jórða bekk Menntskælingar hafa löngum verið iðnir við yrkingar. Þar sem Skinfaxi geymdi aðeins hið óbundna mál fundu Framtíðarmenn að sjálfsögðu vettvang fyrir ljóð sín. Kverið sem gegndi því hlutverki hét lengst af Hulda. Margir telja að kveðskapur menntaskólanemenda hafí risið hvað hæst veturinn 1919. Þá þótti ákaflega móðins að vera skáld. Slógu skáldin þá mest á hina viðkvæmu strengi og nefndu kvæði sín t.d. Ég get ekki sungið og Mig langar að gráta. Hæst hljómuðu ástarkvæðin þrungin vonbrigðum og vonleysi. Þrátt fyrir þetta ömurlega hlutskipti skáldanna vildu allir vera skáld og minnist Tómas Guðmundsson þeirra tíma er hann orti um hin frægu „sextán skáld í fjórða bekk“. Þau voru víst „ekki nema“ fjórtán en sextán átti betur við stuðlanna vegna. Þá sat á forsetastóli félagsins Jóhann Jónsson skáld en auk hans vermdu skólabekki menn eins og Tómas, Guðmundur G. Hagalín, Davíð Stefánsson og Halldór Laxness. Starfsemi Framtíðarinnar á þessum tíma fólst að miklu leyti í því að félagar lásu pródúkt sinn og aðrir dæmdu. Voru menn jafnvel verðlaunaðir úr sjóðum félagsins um fáeinar krónur fyrir bestu verkin. Dómar um ljóðin voru lesnir upp á fundum og skráðir í þar til gerðar dómabækur. Var gjarnan reynt að fá að dæma verk persónulegra andstæðinga og varð útkoman stundum allskrautleg. Svo segir í einum dómnum: „„Framtíðin“ — Þessi fyrirsögn stendur efst á fyrstu blaðsíðu á síðasta tbl. ljóðabókarinnar okkar. — Höf. hefur víst haldið, að það, sem & eftir kemur, sé kvæði. En svo auðtrúa eru nú vonandi fáir aðrir. Leirburður er alltof gott nafn á þeim samsetningi. Þar er málvillum, hortittum og braglýtum hnoðað svo átakanlega saman, að flestum mundi hafa þótt ólíklegt, að nokkur væri sá maður í skólanum, sem gæti „lagt af sér“ slíkan andlegan sorphaug, skrifað þetta og lesið eða látið lesa það fyrir skólasystkini sín! Ég undrast, að hér skuli fínnast nokkur svo andlega steinblindur maður, að hann haldi, að annað eins og þetta sé hugsun og skáldskapur. Ef hann hefði haft nokkurn snefil af smekk eða viti á skáldskap, mundi hann hafa reynt acf skýla sinni andlegu nekt með því að láta ekki aðra sjá þetta. Ég býst nú við, að menn langi til, að ég sanni mál mitt með dæmum úr þessu „meistarastykkiEn mér fínnst allt hortittasafnið svo aðdáanlega jafnvitlaust og óvíða eða hvergi heila brú að fínna, að ég ætla að lesa það allt upp, þótt það sé nú hálfsóðalegt verk: ... Hefur nokkur heyrt annaðeins? Ég vil fyrir hönd skólasystkina minna mælast til þess, að þessi „garpur“ „yrki“ framvegis • eingöngu fyrir sjálfan sig, ef hann heldur áfram í líka átt, og eyði ekki pappímum í Huldu, nema hann láti einhveija þá, sem betur vita, ráða fyrir sér í þeim efnum, því að þetta „kvæði“ ber þess engan vott, að hann geti hnoðað saman vísu enn sem komið er.“ Eins og sjá má gátu menn verið harðorðir á þessum árum. Þess má geta að blaðsíðan sem var fómar- lamb skáldsins hvarf sporlaust „af óskiljanlegum ástæðum" skömmu eftir uppkvaðningu dómsins. En Framtíðarmenn leyfðu ekki aðeins hveijum öðrum að njóta skrifa sinna. Félagið stóð í líflegum bréfaskriftum við önnur skólafélög á Norðurlöndum. Til marks um stolt Framtíðarmanna af tungu sinni er 4

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.