Morgunblaðið - 14.02.1993, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. FEBRUAR 1993
KVIKMYWDIR/ Laugarásbíó sýnir nú nýjustu mynd Brians De Palmas,
Raising Cain, eða Geðklofann. Þetta er 21. kvikmynd De Palmas og í henni tekst hann
að nýju á við það sem margir telja hann gera best: sálfræðilega spennusögu
Raising Cain, sálfræðitryllir
um niargkloíinn persónuleika
Fjölskyldan
NIX hjónin eru leikin af Lolitu Davidovich og John Lithgow. Amanda Pombo leikur dóttur þeirra,
sem verður miðdepillinn í uppgjöri söguhetjanna.
LAUGARÁSBÍÓ hefur tekið
til sýninga nýjustu mynd
Brian De Palma, Raising Cain,
sem Laugarásbíó kýs að kalla
Geðklofann. Þetta er 21. kvik-
mynd De Palma og gerð til
að endurreisa orðspor hans
sem leikstjóra í fremstu röð
en það þótti bíða nokkurn
hnekki við myndina The Bonf-
ire of the Vanities.
IRaising Cain snýr De Palma
sér aftur að þeim viðfangsefn-
um sem tryggðu fyrstu mynd-
um hans velgengni; sálfræðileg-
um spennutryllum í anda Hitc-
hcocks þar sem áhorfandanum
er komið á óvart og haldið I
óvissu og spennu. Raising Cain
þykir þó nokkuð gamansöm og
ekki jafnofbeldisfull og sumar
fyrri mynda De Palma.
Uppeldið verður árátta
í aðalhlutverkum eru John
Lithgow og Lolita Davidovich.
Þau leika bamasálfræðinginn
Dr. Carter Nix og konu hans
Jenny. Þegar þeim fæðist dóttir
tekur Carter sér frí frá störfum
og ætlar sér að helga uppeldi
bamsins allan tíma sinn í fyrstu.
Carter virðist vera góður eigin-
maður og faðir og fullkomlega
eðlilegur; næstum því of góður
og eðlilegur. Eins og í öllum
myndum DePalma kemur líka í
ljós að ekki allt sem sýnist. Upp-
eldi dótturinnar verður fræðileg
árátta Carters og smám saman
verður það hans eigið uppeldi og
æska sem taka völdin og veik-
leikar í persónu Carters era af-
hjúpaðir.
Innrí maðurinn kemur í ljós
Jenny stendur ekki á sama um
þær breytinga sem orðnar era á
þessu hamingjusama hjóna-
bandi, sem nú virðist á hraðri
leið í vaskinn. Þannig standa
málin þegar hún hittir fyrir til-
viljun gamlan elskhuga sinn, sem
Steve Bauer leikur, og fer að
halda við hann. Þegar þetta
leyndarmál verður opinbert kem-
ur innri maður Carters í ljós.
Hann úthugsar djöfullegar
hefndaraðgerðir og setur á svið
bamsrán til að ná sér niðri á
Jenny og láta gruninn falla á
elskhuga hennar, sem á sér ekki
flekklausa fortíð.
Hugmyndina að Raising Cain
fékk Brian De Palma - sem er
höfundur handrits, auk þess að
leikstýra - fyrir nokkram árum.
Kveikjan var sú að hann fylgdist
með því hvemig vinur hans, sál-
fræðingur, fékk upeldi eigin
bams á heilann, hætti störfum
og tók að gera rannsóknir á
baminu og skrifa um það bók.
„Þeir heilla mig þessir sál-
fræðingar og geðlæknar sem
sitja og hlusta á fólk segja frá
því hvað það upplifði í æsku. Það
sem ég læt gerast hjá mínum
manni Carter Nix, er að hann
fær hugdettu á borð við þessa:
„Væri það ekki sniðugt að láta
vaða úr potti með heitu vatni
yfir krakkann og kanna hvort
hann verði jafntaugaveiklaður
eftir það og ég varð þegar svona
kom fyrir mig á hans aldri,““
sagði De Palma í viðtali við Fin-
ancial Times nýlega.
Eiginkonan framleiddi
myndina
Það orðspor hefur loðað við
De Palma að hann geri dýrar
myndir þar sem mikill kostnaður
éti upp of stóran hluta af hagn-
aði. Raising Cain kostaði hins
vegar ekki mikið á mælikvarða
Holywood stórmyndar, 12 millj-
ónir dala eða rúmar 700 millj.
íslenskra króna og hélst innan
áætlunar. Ef til vill er skýringin
sú að nú var það eiginkona De
Palma, Gale Anne Hurd, sem
hélt utan um verkefnið sem
framleiðandi en hún er vön slík-
um verkum og vann meðal ann-
ars við framleiðslu Terminator-
myndanna.
De Palma er sagður sérstakur
meðal leikstjóra að því leyti - og
mun í hópi þekktustu leikstjóra
eiga það sameignlegt aðeins með
átrúnaðargoði sínu Alfred Hitc-
hcock - að hann teiknar upp
fyrirfram hvert einasta skot áður
en kvikmyndatökur hefjast. Við
undirbúning Raising Cain færði
hann sér í nyt tölvutæknina með
nýjum hætti. Ásamt leikmynda-
hönnuði sínum notaði hann hug-
búnað arkitekta til að teikna
hveija einustu sviðsmynd og
hvert einasta atriði í þrívídd inn
á tölvu þannig að búið var að
fínna einfaldar lausnir á flóknum
vandamálum með góðum fyrir-
vara.
Þú ert aldrei öruggur í bíó
Sjónræn framsemtning og
leikur að mörkum draums og
veraleika þykja sérgreinar Brian
De Palma og sérkenni mynda
hans og fáum hefur verið betur
lagið að trylla áhorfendur með
atriðum af því tagi sem sitja jafn-
vel dögum saman í fólki. Fyrri
myndir hans hafa að geyma
mörg eftirminnileg dæmi um
slíkar senur. Mörgum er til dæm-
is minnistæð lokasenan úr hroll-
vekjunni Carrie. í Raising Cain
tekst enn á blekkingar af þessu
tagi. í fyrrgreindu viðtali við
Financial Times segir hann með-
al annars: “Þegar einhvern
dreymir í bíó þá virðist það raun-
veralegt og þegar hann vaknar
og heldur að allt sé búin þá er
hann kannski enn að dreyma.
Þú ert aldrei öraggur í bíó. Það
er það dásamlega við kvikmynd-
irnar. í því liggur máttur kvik-
myndanna og aðdráttarafl."
Hitchcock
er nálægur
í þessu atriði
úr Raising Cain
segist De
Palma vera að
vitna til eftir-
minnilegs atr-
iðis í Psycho,
sögunni af Nor-
man Bates.
Umdeildur sporgöngumaður Hitchcocks
Sá umdeildi
MÖNNUM stendur yfirleitt ekki á sama um myndir Brians De Palma.
BRLAN De Palma, sem er fæddur árið
1940, var á árum áður oft settur í bás
með leikstjórunum Martin Scorsese,
Francis Ford Coppola, George Lucas og
Steven Spielberg. Hann varð þó fljótt að
eins konar svörtum sauði í hópi þessara
manna sem ungir að árum náðu miklum
áhrifum í Hollywood. Það lét lengi á sér
standa að De Palma hlyti þá miklu og ein-
róma viðurkenningu gagnrýnenda sem
Scorsese og Coppola hlutu né hefur hann
notið hann sömu fjárhagslegu velgengni
og Lucas og Spielberg.
ótt hann hafi gert nokkrar ádeilukenndar
gamanmyndir, - þar á meðal The Bonf-
ire of the Vanities, sem þótti svo misheppnuð
að De Palma var lengi að sleikja sárin - er
ekki er vafi á að í hugum flestra bíógesta
er nafn Brian De Palma tengt háspennumynd-
um, oft ofbeldisfullum sálfræðitryllum.
Margar mynda hans hafa þótt bera merki
þess að De Palma væri undir miklum áhrifum
frá meistara spennumyndanna, Alfred Hitc-
hcock, og sjálfur synjar hann ekki fyrir það
heldur gengst við hrifningu sinni af Hitc-
hcock. Hann bendir til dæmis á af fyrra bragði
í nýlegu viðtali að í Raising Cain noti hann
í einu atriði það sem hann kallar tilvísun í
Psycho eina kunnustu mynd Hitchcocks og
samanlagðrar kvikmyndasögunnar. Ein
myndanna hér á síðunni er úr því atriðis í
Raising Cain þar sem De Palma segist vitna
í eða vísa til eftirminnilegs atriðis í Psycho.
Hann harðneitar þó ásökunum sem stund-
um hafa verið settar fram um að hann steli
atriðum frá Hitchcock en játar að hafa byggt
handritshugmyndir á atriðum úr Vertigo og
Psycho eftir þann mikla meistara.
Meðal helstu mynda Brians De Palma eru:
The Phantom of Paradise, Obsession,þar sem
Hitchcoek áhrif þóttu augljós; Carrie, myndin
sem skaut Sissy Spacek á stjörnuhimininn
og áhorfendum skelk í bringu; The Fury,
Blow out, Scarface, þar sem A! Pacino lék
kúbanskan dópsala og ofbeldissegg með eftir-
minnilegum hætti; Dressed to Kill og Body
Double, en þar töldu kvennahreyfingar De
Palma gera sig sekan um kvenfyrirlitningu
,með því að upphefja ofbeldi gegn konum;
The Untouchables, þar sem Kevin Costner
og Sean Connery léku Elliott Ness og félaga
hans í baráttu við A1 Capone, leikinn af Rob-
ert De Niro. Þá má nefna Casualties of War
og loks The Bonfire of the Vanities.