Morgunblaðið - 14.02.1993, Page 27
27
________________________MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 14. FEBRÚAR 1993
Agnar Helgi Vigfús-
son - Minning
Svo er því farið:
Sá er eftir lifír
deyr þeim sem deyr
en hinn dáni lifir
í hjarta og minni
manna er hans sakna. -
Þeir eru himnamir
honum yfir.
(Hannes Pétursson.)
Nú er mikill maður í okkar huga
látinn. Þegar við hugsum aftur
sækja margar minningar að. Það
var alltaf jafn gaman að umgang-
ast Agnar frænda, föðurbróður
okkar, alltaf líf og fjör í kringum
hann. Hann var óstöðvandi, ef það
var eitthvað sem honum datt í hug
að framkvæma í dag, þá mátti það
varla bíða til morguns. Allt hálfkák
fór fyrir bijóstið á honum, hann
vildi kraft í- hlutina. Hann hafði
ákveðnar skoðanir á öllu og var
óhræddur við að tjá þær. Hann kom
sinni lífsspeki á framfæri opinskátt
og af krafti þannig að fólk hlustaði
og þannig hafði hann áhrif á okkur
sem umgengumst hann.
Agnar var mikill áhugamaður um
mat og matargerðarlist og þegar
við komum í Mávahlíðina var oftar
en ekki töfruð fram veisla, gjarnan
með mat úr Skagafirði, því að allt
sem þaðan kom var mest og best
í huga hans.
Agnar var alltaf mjög góður við
okkur systurnar, en við vorum
heimagangar hjá þeim systkinunum
í fríum okkar hjá pabba. Agnar var
mikið á millilandaskipum þegar við
vorum yngri og var alltaf spenn-
andi að sjá hvað hann kæmi með
heim, því að alltaf vildi hann gefa
öllum eitthvað sem gladdi. Kannski
er Agnari best lýst með því hvað
Góðvinur minn og frændi, Stef-
án Sigurðsson, lögfræðingur á
Hofteigi, Akranesi, lést á Sjúkra-
húsi Akraness aðfaranótt 8. febr-
úar sl. eftir stutt en alvarleg veik-
indi 72ja ára að aldri.
Stefán var fæddur á ísafirði
þann 5. október 1920, fimmta bam
foreldra sinna Stefaníu Amórs-
dóttur prests Arnasonar og Sigurð-
ar Sigurðssonar, lengst af sýslu-
manns Skagfirðinga, en Sigurður
var sonur sr. Sigurðar Stefánsson-
ar prests og alþingismanns í Vigur
og konu hans Þómnnar Bjarna-
dóttur af Kjaransstaðaætt héðan
af Akranesi.
Systkini Stefáns eru öll á lífi,
en þau em Margrét Þómnn fyrmm
borgarfulltrúi í Halsingborg í Sví-
þjóð, Sigurður listmálari, Stefanía
fyrrv. skrifst.m., Arnór fyrrv. full-
trúi á Sauðárkróki, Hrólfur listmál-
ari, Guðrún listmálari í Danmörku,
sr. Ámi prestur á Blönduósi og
Snorri skógfræðingur í Kópavogi.
Sem ungur maður stundaði Stef-
án öll venjuleg störf, bæði til lands
og sjávar, m.a. var hann háseti á
síldarvertíð með hinum vinsæla
skipstjóra Valdimar Kristmunds-
syni í Mörk hér á Akranesi. Stefán
vað stúdent frá Menntaskólanum
á Akureyri árið 1942 og cand. jur-
is frá Háskóla íslands árið 1951.
Að námi loknu gegndi Stefán stöðu
fulltrúa sýslumanns Skagfirðinga
og bæjarfógetans á Sauðárkróki,
eða frá 1952 til 1961, og varð
hann héraðsdómslögmaður árið
1958.
Árið 1952 kvæntist Stefán eftir-
lifandi konu sinni Erlu Gísladóttur,
en hún er dóttir hjónanna Gísla
útgerðarmanns Vilhjálmssonar á
Akranesi og Karenar Vilhjálmsson,
fæddri Haug í Noregi.
Þau Stefán og Erla fluttust til
Akraness árið 1961 og starfaði
Stefán um nokkurt skeið sem full-
hann var gjafmildur með afbrigð-
um, tryggur sínum og vildi hvers
manns vanda leysa. Þetta, ásamt
því hversu hressandi áhrif hann
hafði á umhverfíð, olli því, að fólk
laðaðist mikið að honum, enda var
hann mjög vinmargur maður.
Þegar við vorum litlar brölluðum
við Agnar margt saman, en uppá-
haldsleikurinn var Lilli klifurmús
og Mikki refur. Vildi hann oftast
endilega fá að vera Lilli klifurmús
af því hann var svo oft kallaður
Lilli. Það eru einmitt svona svip-
myndir í lífi manns sem gefa því
giídi. Við þökkum Agnari fyrir allar
svipmyndirnar sem hann var þátt-
takandi í. Minningin um hann mun
lifa í hjörtum okkar. Við viljum
ljúka þessum fáu orðum með stuttu
ljóði í lauslegri þýðingu.
Þú ert einstakur
“Einstakur" er orð
sem notað er þegar lýsa á
því sem engu öðru er líkt
faðmlagi
eða sólarlagi
eða manni sem veitir ástúð
með brosi eða vinsemd.
„Einstakur" lýsir fólki
sem stjómast af rödd hjarta síns
og hefiir í huga hjörtu annarra.
„Einstakur" á við þá
sem eru dáðir og dýrmætir
og skarð þeirra veiður aldrei fyllt.
„Einstakur" er orðið sem best lýsir þér.
(Teri Femandez)
Ása og Harpa.
Af eilífðarljósi bjarma ber,
sem brautina þungu greiðir.
Vort líf, sem svo stutt og stopult er,
það stefnir á æðri leiðir.
trú bæjarfógetans hér á Akranesi.
Fljótlega setti hann þó á stofn lög-
mannsstofu, sem hann rak óslitið
til dauðadags.
Ég kynntist þeim hjónum fljót-
lega eftir að þau komu til Akra-
ness, enda átti ég til skyldleika að
telja við þau bæði; og átti ég með
þeim margar góðar stundir, sumar
í blíðu, aðrar { stríðu, eins og geng-
ur og gerist í lífsins ólgusjó.
Stefán var eftirminnilegur per-
sónuleiki og var á honum slíkur
bragur að ekki fór framhjá neinum
sem til sá að þar var höfðingi á
ferð.
Ég varð þeirrar gæfu aðnjótandi
að fá að starfa með Stefáni á lög-
fræðistofu hans á árunum 1975
til 1976. Þó sá tími væri stuttur
var hann mér ógleymanlegur fyrir
margra hluta sakir, og vil ég þakka
Stefáni vini mínum og raunar báð-
um þeim hjónum fyrir þann góða
tíma sem ég átti með þeim þau
árin, og raunar alla tíð.
Stefán hefði e.t.v. notið sín bet-
ur á öðrum sviðum og við önnur
störf en lögmannsstörfín, og var
hann þó fjölhæfur lögfræðingur
og átti jafnan auðvelt með að leysa
hin ólíkustu mál sem fyrir hann
voru lögð. Stefán var eiginlega
meira náttúrubam; hann unni dýr-
um og jurtum mjög og kunni skil
á hvorutveggja, svo að undrum
sætti. Var það mikil unun að hlusta
á hann flytja einræður um hina
ólíklegustu hluti í ríki náttúrunnar,
þegar hvíld var frá lögfræðistörf-
unum. Hann var einnig óvenu
hjartahlýr og óeigingjarn með af-
brigðum, og átti lítilmagninn sér
öruggan stuðningsmann í Stefáni,
hvort heldur það voru menn eða
málleysingjar. Stefán gekk ekki
götu þjóðarsálarinnar og ekkert
var honum fjær skapi en að láta
glepjast af stundarhagsmunum al-
menningsálitsins, og studdi hann
Og upphiminn fegri en auga sér
mót öllum oss faðminn breiðir.
(Einar Benediktsson.)
Agnar vinur minn hefur verið
hrifínn á braut í blóma lífsins. Hann
kvaddi þegar vorið er i nánd og
myrkrið að víkja fyrir birtunni.
Eftir standa minningar um góðan
dreng sem jafnan bar með sér
hressileika og jákvætt viðhorf til
þeirra sem hann umgekkst.
Það eru nú liðin rúmlega 20 ár
síðan við Agnar kynntumst, en þá
vorum við Agnes systir hans saman
{ skóla. Agnar var þá í millilanda-
siglingum sem hann stundaði oft á
vetrum, en þegar voraði hvarf hann
norður í Skagafjörð þar sem hann
starfaði flest sumur, lengst af á
skurðgröfu hjá Ræktunarsambandi
Skagfirðinga. Eins og farfuglarnir
fylgdi hann vorinu norður til æsku-
stöðvanna, en þegar aftur haustaði
togaði útþráin og hafíð hann til sín.
Agnar var fæddur á Hólum í
þá skoðanir sínar með miklum
sannfæringarkrafti og eldmóð, svo
að unun var að fylgjast með. Eins
var um skoðanir hans á þjóðmál-
um, og má segja að þess vegna
hafí hann ávallt rekist illa í flokki.
Hjónaband þeirra Erlu var far-
sælt og ástríkt og báru þau mikla
virðingu hvort fyrir öðru svo að
eftir var tekið. Þau voru barna-
laus, en lengst af héldu þau ein-
hver dýr á heimili sínu. Oft var
gestkvæmt á Hofteigi, og áttu
unglingar og börn öruggt athvarf
hjá Stefáni, og báru flest börn sem
kynntust honum sérstakan hlýhug
til hans. Hann Iagði sig sérstaklega
eftir að innprenta unga fólkinu
rétt talað mál og ekki síður að
rækta með sér heiðarleika og góð-
vild til annarra.
Ég endurtek þakkir mínar til
Stefáns, þakka honum góða við-
kynningu og margar ánægjustund-
ir. Jafnframt votta ég eiginkonu
hans og öðrum aðstandendum og
vinum mína dýpstu samúð.
Ásmundur Ólafsson.
Hann Stebbi föðurbróðir okkar
er látinn. Á slíkum stundum reikar
hugurinn oft aftur til liðinna ára
Hjaltadal næstelstur sjö systkina
sem upp komust. Elstur er Guð-
mundur Hákon, Ása (lést 1969),
Hörður Birgir, Þórhildur, Agnes og
Baldur Jón. 011 eru þau búsett í
Reykjavík nema Þórhildur sem býr
í Fellabæ.
Eftirlifandi móðir hans er Elín
Helga Helgadóttir sem býr í
Reykjavík en faðir hans, Vigfús
Helgason, lést árið 1967. Elín Helga
er fædd á Núpum í Fljótshverfí í
V-Skaftafellssýslu, en Vigfús var
fæddur á Hóli i Hörðudal í Dala-
sýslu. Um fjörutíu ára skeið var
Vigfús kennari við bændaskólann á
Hólum og i Skagafírði eru öll systk-
inin fædd.
Margmennið í kringum bænda-
skólann átti vel við Agnar og þar
undi hann vel uppvaxtarárin og
kynntist fjölda af ungu fólki og
minntist hann oft þess tíma.
Agnar var búfræðingur frá
bændaskólanum á Hólum. Einnig
útskrifaðist hann úr Garðyrkjuskóla
ríkisins í Hveragerði og var öll
ræktun honum hugleikin.
Fyrir 15 árum keyptu þau systk-
inin, Agnar og Agnes, sér íbúð í
Mávahlið 19 í Reykjavík þar sem
þau héldu heimili saman. Þangað
var ætið gott að koma og njóta
gestrisni þeirra sem var einstök.
Má segja að sérhvert sinn sem þar
var barið að dyrum væri boðið til
veislu og hlýlegt viðmót, glaðværð
og góður hugur gerði hvern þann
ríkari sem frá þeim fór.
Hann giftist ekki né eignaðist
böm, en böm hændust að honum.
Hann fylgdist vel með systkina-
bömum sínum og bömum vina
sinna sem mörg hver voru dugleg
að heimsækja hann.
Agnari var ekki tamt að láta frá
sér fara ill orð um nokkurn mann
og leiddi hjá sér slíkt umtal. Heiðar-
leiki og hreinskilni voru eðliskostir
sem hann mat mikils, enda vora
það aðaleigindir hans. Gleðimaður
var hann og naut sín vel í vina-
og minningamar hrannast upp.
Okkur systur langar nú til að minn-
ast hans með nokkrum orðum.
Stebbi ólst upp í foreldrahúsum
á Sauðárkróki ásamt átta systkin-
um en foreldrar hans voru þau
Guðríður Stefanía Arnórsdóttir og
Sigurður Sigurðsson sýslumaður.
Eins og gefur að skilja hefur oft
verið fjörugt á svo barnmörgu
heimili og sögur af uppátækjum
þeirra systkina hafa oft yljað okkur
eftirkomendum um hjartarætur.
Frásagnagáfa var honum Stebba
frænda í blóð borin og því kom það
okkur ekki á óvart þegar hann nú
í haust, þá orðinn mikið veikur,
létti bæði sér og okkur stundir með
skemmtisögum að norðan. Hann
hafði einstakt lag á að hrífa huga
manns til söguslóða því frásögn
hans var svo seiðandi og persónur
allar svo magnaðar og töfram
gæddar. Aldrei talaði hann þó illa
um nokkurn mann. Stebbi var
glæsilegur maður, fjölfróður, gjaf-
mildur og hugmyndaríkur. Þeir sem
hafa átt því láni að fagna að eiga
við hann samræður um hin ýmsu
málefni hafa áreiðanlega aldrei
komið þar að kofanum tómum.
Þegar við systur komum til sögunn-
ar hafði Stebbi þegar fest ráð sitt
og kvænst eftirlifandi eiginkonu
sinni, Erlu Gísladóttur. Saman hafa
þau síðan tekist á við lífíð og lengst-
um búið á Akranesi. Þó að sam-
verustundir okkar með þeim sóma-
hjónum hafi verið allt of fáar hin
síðari ár hefur hugurinn þeim mun
oftar reikað til þeirra upp á Skaga.
Og alltaf hafa þau sýnt það og
hópi, en ekki síður átti það vel við
eðli hans að una einn með stöngina
við skagfirska veiðiá þegar dagur
og nótt rannu saman í eitt og mið-
nætursólin merlaði á bárafaldi. Þá
átti hann sín ævintýr. Döggvað
gras, mófugl á næturrölti, lágur
seiðandi niður árinnar og sporðkast
á lygnu. Þetta vora hans bestu
stundir, hans lífssynfónía. Og Agn-
ar hefði öragglega verið sammála
Stephani G. Stephanssyni í eftirfar-
andi ljóðlínum:
Ég ann þér, Qalls og fjarða hnoss,
með flaum og grunnstraum tærum,
sem jafn vel kannt að falla í foss
og fljóta í lygnum værum!
Og lykkjum þínum leiðum á
- sem leiðast sumra hugum -
ég aldrei gekk með græsku frá
né gramdist þínum bugum.
Hann var sveitamaður í eðli sínu
og ekkert jafnaðist á við að anda
að sér fersku fjallalofti og vaka
bjartar skagfirskar nætur. Hann
átti íbbúð á Sauðárkróki sem hann
bjó í þegar hann var fyrir norðan.
Þangað var gott að heimsækja
Agnar og margar voru veislurnar
þegar þangað var komið.
Veturinn er að baki, hinsti vetur
vinar míns og framundan er vorið
og sumarið, nóttlaus voraldar ver-
öld við ysta haf. Sólin mun varpa
hlýjum geislum sínum yfír skag-
firska byggð, geislum sínum yfír
menn og málleysingja sem fagna
komu hennar sem boðbera lífshvat-
ans og lausnar úr doða vetrarríkis-
ins. Eitt verður þó ekki eins og
var. Agnar mun ekki axla stöngina
á bökkum árinnar sem honum var
kærust, ekki lengur ganga troðna
slóð markaða af sporam kynslóð-
anna. En í minningunni mun hann
lifa eins og sérhvert vor er fyrir-
boði sumarkomunnar, bjartur, hlýr
og traustur.
Innilegar samúðarkveðjur sendar
ættingjum.
Arnheiður Guðlaugsdóttir.
sannað að við höfum átt þau að,
jafnt í sorg sem gleði
Síðustu ár þegar aldurinn fór að
færast yfír Stebba tók heilsu hans
einnig að hraka. Aldrei skynjuðum
við hann þó sem gamlan og sjúkan
mann, enda var hann ætið ungur
í anda og vel með á nótunum. Það
má því með sanni segja að hann
frændi okkar hafi staðið meðan
stætt var. Og með umhyggju Erlu
sem annaðist mann sinn af öllum
mætti í veikindum hans var honum
gert það kleift að dvelja á heimili
sínu nánast til dauðadags.
Nú er þessi góði maður fallinn
frá og við vottum Erlu okkar dýpstu
samúð.
Nína og Stefanía Hrólfsdætur.
Ðlóm Skreytingar Gjafavara
Kransar Krossar Kistuskreytingar
Opið alla daga frá kl. 9-22
Fákafeni 11
s. 68 91 20
íkkistuvinnustofa tijvindar Arnasonar
Vesturhlið 3 ♦ Sími: I348S ♦ Davíð Osvaldsson ♦ Heimasími: 39723
Stefán Sigurðsson,
Hofteigi á Akranesi
M&m FLÍSAR
J s itl
l'r IG in
ií: J 1
Stórhöfða 17, við Gulhnbrú,
sími 67 48 44