Morgunblaðið - 14.02.1993, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 14.02.1993, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. FEBRÚAR 1993 29 Jóhanna Jónsdótt * ir frá Neðra-Asi Fædd 6. júlí 1889 Dáin 21. janúar 1993 Jóhanna Jónsdóttir móðursystir mín lést í sjúkrahúsi Sauðárkróks fimmtudaginn 21. janúar, 103 ára að aldri. Jóhanna fæddist á Bakka í Svarfaðardal 6. júlí 1889, dóttir þeirra mætu hjóna Svanhildar Björnsdóttur frá Syðra-Garðshorni og Jóns Zophoníassonar frá Bakka. Jóhanna var næstelst átta systk- ina, tvö dóu í bemsku en eftirtalin komust til fullorðinsára: Soffía, fyrrv. húsfreyja í Neðra-Ási, maki Steinn Stefánsson bóndi þar; Björn, lést í Ameríku 25 ára; Frí- mann, verkamaður í Reykjavík, maki Guðríður Hreinsdóttir; Jór- unn, verkakona í Reykjavík; Zop- hanías, skrifstofumaður í Reykja- vík, maki Anna Theódórsdóttir; Frímann er einn á lífi þeirra systk- ina. Árið 1904 flyst fjölskyldan á Bakka vestur yfir Heljardalsheiði að Neðra-Ási í Hjaltadal. Þá jörð hafði Jón keypt 1902. Þetta var fermingarvorið hennar Jóhönnu og varð hún eftir við fermingarundir- búning hjá Vilhjálmi og Kristínu sem þá fluttust á jörðina. Daginn eftir ferminguna gengur hún frá Atlastöðum í einum áfanga vestur yfir Heljardalsheiði að Neðra-Ási í fylgd Bjöms R. Ámasonar. Alla tíð var Jóhönnu Svarfaðar- dalurinn kær og fór hún gjaman í heimsókn til frænda og vina er tækifæri gafst. Síðasta ferðin um dalinn var sú minning sem lýsti sem bjartur sólargeisli gegnum ævikvöldið. í þeirri ferð dvaldi hún nokkra daga hjá hjónum í Syðra- Garðshorni, Daníel og Onnu, frændsystkinum sínum. Þær vin- konur gengu um nágrennið þar sem bernskusporin lágu. Þá var margt spjallað og mikið hlegið. Júlíus, sonur Onnu, keyrði þær um dalinn og mun hann hafa heillast af því hvað þessar öldnu konur voru kátar og hressar. Koman til frændfólksins í Miðkoti var henni minnisstæð. Frændrækni og gest- risni fannst mér vera aðalsmerki þessarar Syðra-Garðshorns-ættar. Það var alltaf hátíð í Neðra-Ási þegar gesti bar að garði norðan yfir Heljardalsheiði. Þeir þurftu mörgum spumingum að svara frá þeim mæðgum frá Bakka. Gjarnan var tekið fram allt það besta sem til var í búrinu. Alltaf var nægilegt rúm fyrir næturgesti og farar- skjóta þeirra, meðan norðanmenn fjölmenntu til mannfagnaðar á Hólastað. Fjölskyldan frá Bakka undi vel hag sínum í nýju snjóléttara um- hverfi í öðrum dal. Mörg voru störfín sem biðu þessarar stóra og þróttmiklu íjölskyldu. Tveir hólar voru það eina sem slétt var af stóra túni, en fljótt komu sléttur inn á milli þúfnakollanna. Jóhanna, sem nú var liðtæk til allra starfa, lét ekki sitt eftir liggja við bústörfm. Þarfasti þjónninn gegndi sínu hlutverki við erfíða fénaðarferð á víðlendri jörð og einnig til allra aðdrátta. Allir vora vel hestfærir og margur fákur góður ásetu. Minntist húrí oft á það með bros á vör þegar sprett var úr spori á sunnudögum í hópi góðra vina, er farið var til kirkju heim að Hólum eða í smáútreiðartúr til skemmtun- Guðmundur Kr. Jóns son frá Dynjanda Fæddur 14. febrúar 1916 Dáinn 4. febrúar 1993 Faðir okkar Guðundur Kr. Jóns- son andaðist aðfaranótt 4. febrúar sl. og er hér flutt hinsta kveðja til ástkærs föðurs sem lokið hefur langri lífsgöngu. Mikið vatn er til sjávar rannið frá því að hann fæddist að Dynj- anda í Arnarfirði og sleit bernsku- skóm sínum þar í faðmi hárra fjalla, þar til að hann kvaddi þessa veröld eftir um 77 ára lífsgöngu. Faðir okkar ólst upp í stóram systkinahópi, þar sem lífsbaráttan var hörð og hver og einn varð að skila sínu dagsverki. Fjölskyldan að Dynjanda var stór og varð hver og einn að standa fyrir sínu og hjálpa til við búskapinn. Systkinin voru 10 talsins svo geta má nærri að þeir, sem eldri vora, urðu um leið og þeir höfðu getu til að leggja hönd á plóginn í hinu daglega striti. Faðir okkar lifði þá tíma gamla bændasamfélagsins, þegar bú- skaparhættir vora án vélvæðingar og búskapurinn snerist um fæðu- öflun fyrir heimilisfólk. Fjölskyld- an að Dynjanda var samhent fólk og þrátt fyrir erfiðar aðstæður þeirra tíma reis þar myndarheim- ili, þar sem enginn þurfti að líða skort og var það frekar að veitt væri aðstoð til nágranna á þessum erfíðu tímum. Erfítt er að gera sér í hugarlund hið daglega amstur þessa tíma, samgöngur vora því sem næst engar og á veturna var einungis um að ræða samgöngur á sjó. Aðföng hafa því öll verið afar erfíð og landið erfítt til bú- skapar, lítið undirlendi en mikið af háum fjöllum og heiðum. Þarna lærðist fólki fljótt að treysat á sjálft sig og vera sjálfu sér nægt. Ungur að áram fór faðir okkar til Reykjavíkur til þess að afla tekna fyrir heimilið að Dynjanda. Örlögin höguðu því hins vegar svo að hann átti ekki þangað aftur- kvæmt með þeim hætti, sem til var stofnað. Mótaður af umhverfí sínu, þar sem fossinn Dynjandi var næsti nábúi, nábúi sem á stundum var ógnandi en þó ægifagur og oft jafnvel blíður, lagði hann land und- ir fót með veganesti, sem dugði til æviloka. í Reykjavík kynntist hann móður okkar, Kristínu Kjart- ansdóttur, gengu þau í hjónaband og stofnuðu heimili og hófu þar með sína sameiginlegu lífsgöngu. Þeim varð níu barna auði, sem öll lifa föður sinn þegar hann verður kvaddur hinstu kveðju nk. mánu- dag 15. febrúar. Hið stóra heimili, sem stofnað var til, þurfti á öllum kröftum for- eldranna að halda. Lengst af starf- aði hann við skógerð og sem iðn- verkamaður, lífsbarátta unga mannsins frá Dynjanda hélt áfram. Þannig kaus hann að lifa lífínu, umvafínn stóram bamahópi, þann- ig leið honum best. Foreldrar okk- ar slitu samvistum eftir 24 ára hjónaband. Barnhópurinn var að Klara Krístjánsdóttír frá Vestmannaeyjum Fædd 8. júlí 1917 Dáin 23. janúar 1993 Elskuleg amma okkar er horfin, laus við þjáningar og kvöl eftir langan tíma. Við barnabörnin vilj- um minnást ömmu okkar með nokkram orðum. Við munum þá tíma heima hjá henni og afa í Nik- hól. Alltaf vorum við velkomin sama hversu mörg við vorum og oft var það stór hópur. Á sunnudagsmorgnum var fast- ur liður að koma til ömmu og fá ijúkandi heitar pönnukökur áður en farið var í kirkju. Mörg danssporin tók amma við okkur og var hún dugleg að kenna okkur þau. Við verðum líka að minnast allra jólaboðanna þar sem öll bömin og barnabörnin komu saman. Þá var oft glatt á hjalla, spilað og sungið langt fram á kvöld. Oft kom það fyrir að amma passaði stóra barnahópinn. Kom hún okkur þá fyrir í svefnpokum og teppum á stofugólfínu og stund- um var ekki hægt að þverfóta þar inni fyrir börnum. Áður en við sofnuðum sagði hún oft; „Sá sem verður fyrstur að sofna fær fimm krónur á morg- un.“ Og auðvitað fengu allir fimm krónur því aldrei gerði amma upp á milli bamanna. Amma var alltaf vel til höfð. Byijaði á morgnana áður en farið var í verkin að mála sig og snyrta. Hún sagði alltaf að hún gæti ekki verið illa til höfð ef einhver rækist í kaffí sem gerðist oft, því að amma var vinamörg. Margt annað væri hægt að telja upp en yrði of langt jafnvel í heila bók því að stundirnar voru margar sem við áttum heima hjá afa og ömmu í Nikhól. Við biðjum góðan guð að styrkja afa okkar í þessari sorg, en við vitum að amma okkar er komin á góðan stað. Elsku amma, við kveðjum þig í hinsta sinn með þakklæti í hjarta fyrir þær stundir sem við áttum með þér. Minning þín lifir. Barnabörn og barna- barna börn. ar. Með gleði minntist hún kaup- staðaferða vor og haust, „lausríð- andi“ eins og kallað var. Jóhanna lærði fatasaum á Akur- eyri og einnig vann hún um tíma á saumastofu í Reykjavík. Mörg karlmannsföt var hún búin að sauma gegnum árin ásamt öðram flíkum enda var saumaskapurinn hennar ævistarf. Það var sami myndarskapurinn á öllu sem hún lét frá sér fara. Jóhanna var einn vetur hjá Jóni Þorlákssyni ráðherra og taldi að hún hefði mikið lært hjá því merka fólki. Jóhanna var kona gjörvuleg og talin fríðust kvenna. Hún gekk alltaf snyrtilega til fara. Þegar hún klæddist sínu betra skarti fór þar mikil glæsikona. Minni Jóhönnu var með ágætum allt fram á síðari ár, hnyttin var hún í svörum og með kímnigáfu góða. Frá hennar fundum fóra menn jafnan léttari í lundu. Jafn- vel eftir að sjón og heyrn fór að dvína virtist hún fylgjast furðuvel með því sem gjörðist hér og þar. Jóhanna giftist Sigurbimi Björnssyni bifreiðastjóra. Þau áttu heima á Freyjugötu 32 á Sauðár- króki. Þau áttu ekki börn saman. Jóhanna átti áður eina dóttur, Birnu Sigurðardóttur. Hennar maður var Tryggvi Jóakimsson forstjóri og bjuggu þau á ísafirði. Hann andaðist árið 1974. Þau eignuðust fimm börn: Tryggva, forstjóra á ísafirði; Reyni, stýri- mann, látinn; Erling, stýrimann, ísafirði; Svanbjöm, verslunarmann á ísafirði; og Jóhönnu Margréti, við nám í Englandi. Sambýlismað- mestu uppkominn og að hluta til farinn að stofna eigin heimili. Árið 1975 gerðist sá hörmulegi atburður að faðir okkar varð fyrir vinnuslysi, sem dæmdi hann úr leik á lífsgöngunni. Hann komst aldrei til fullrar meðvitundar um veruleikann í kringum sig og varð þess því ekki aðnjótandi að sjá afkomendur sína í því ljósi, sem hann hefði kosið. Á hinni löngu sjúkragöngu, sem taldi 18 ár, var hugurinn stöðugt á æskustöðvun- um, svo djúpt vora uppeldisárin mörkuð í undirmeðvitundinni. Fyr- ir hugskotssjónum rannu upp at- burðir liðins tíma, sveipaðir nátt- úrafegurð Vestfjarða, þar sem perla íslenskra fossa, Dynjandi, gnæfði yfír. Ungi maðurinn úr Dynjandisvogi var kominn heim. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt (V. Briem.) F.h. okkar systkina, Ólafur Arnfjörð Guðmundsson ur Bimu er Halldór Pálsson og búa þau í Furabergi 15 í Hafnarfírði. Jóhanna var frændrækin og oft var gestkvæmt hjá þeim á Freyju- götunni. Eftir að hún kom á sjúkra- húsið vora margir sem litu inn, einkum á sumrin þegar frændfólk og vinir vora á ferðinni. Mikil var gleðin þegar dótturbörnin komu í heimsókn með langömmubömin. Hún fylgdist vel með þeim öllum, þó að fyarlægðin væri mikil. Oft talaði hún um Jóhönnu nöfnu sína og var mjög glöð þegar bréf komu frá henni. Alltaf var talað um Jóhönnu frá Ási þó að hún ætti heima á Sauðár- króki, enda hélt hún tryggð við það heimili og bar hag þeirra sem þar bjuggu mjög fyrir brjósti. Hvergi vildi hún annars staðar hvíla en í Hólakirkjugarði heima í dalnum sínum. Henni fannst eitt- hvað sérstakt öryggi í að vita að búið var að ganga frá fyrir mörg- um áram að þar fengi hún legstað. Nú er hin langþráða stund upp rannin. Hún er lögst til hvíldar við hlið foreldra sinna í Hólakirkju- garði. Jóhanna frænka, þakkir era þér færðar frá bömum Soffíu syst- ur þinnar, einnig frá mínum böm- um, fyrir allan þinn hlýhug í gegn- um árin. Dalirnir þínir drúpa höfði fagnandi því að nú hefur dóttir þeirra hlotið sína langþráðu hvíld. Far þú í í friði, friður guðs þig blessi. Svanhildur Steinsdóttir, Neðra-Ási. FASTEIGNA- 0G FIRNIASALA AUSTURSTRÆTI 18. 101 REYKJAVÍK Hverafold - bílskýli 56 fm íbúð á jaröhæö. Sérgaröur. Þvhús og geymsla innan íb. Verð aöeins 5,9 millj. Áhv. 3,2 millj. íb. er laus. Hrísrimi • 2ja herb. 48,4 fm íb. tilb. u. tróv. Verð 4,2 millj. • 2ja herb. 63,3 fm íb. tilb. u. trév. Verð 5,1 millj. • 3ja herb. 90,6 fm íb. tilb. u. tróv. Verð 6.350 þús. Meö stæöi í bílgeymslu 6.950 þús. Sameign skilast fullfrág., bílastæöi malbikuð. Allar stéttar frág. og lóö tyrfö. Traustur byggingaraðili. Sölum: Guðmundur Valdimarsson og óli Antonsson. Lögm.: Gunnar Jóhann Birgisson, hdl. og Sigurbjöm Magnússon, hdl. FÉLAG ITfASTEIGNASALA Sætún - Kjalarnesi. ÝMSIR MÖGULEIKAR Einbýlis- og atvinnuhúsnæði - 7 hektara land Einbýlishús: 5-6 herb. 158,7 fm auk 63,4 fm bílskúrs. Atvinnuhúsnæði: samtals u.þ.b. 788 fm. Tilboð óskast. Æ

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.