Morgunblaðið - 14.02.1993, Side 43

Morgunblaðið - 14.02.1993, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. FEBRÚAR 1993 43~ ARNAÐ HEILLA Ljósmynd//Ljósmyndastofan Nærmynd HJÓNABAND. Anna Borg og Arn- ór Guðjohnsen voru gefin saman í Bessastaðakirkju á nýársdag. Prestur var sr. Pálmi Matthíasson. Ljósmynd/Ljósmyndastofa Reykjavíkur HJÓNABAND. Ósk Gunnarsdóttir og Snorri Arnfinnsson Voru- gefín saman í hjónaband í Dómkirkjunni 9. janúar sl. af séra Jakobi Hjálm- arssyni. Heimili þeirra er í Þóru- felli 18, Reykjavík. Ljósmynd/Ljósmyndastofan Nærmynd HJÓNABAND. Ágústa Kristjáns- dóttir og Gylfi Þór Rútsson voru gefín saman í Neskirkju 23. janúar sl. Prestur var sr. Halldór Gröndal. Heimili þeirraer að Spóahólum 12. Útveggir í umhverfi stórviðra og veðrunar Merktu við dagana 11.-14. mars 1993 12.30 1 3.00 1 3.10 1 3.35 14.00 14.25 14.50 15.10 15.15 15.40 19.00 12.00 13.00 13.25 13.50 14.15 14.40 15.00 16.00 16.25 16.50 17.15 1 7.30 17.40 - ráðstefna og sýning að Holiday Inn 11. -14. mars 1993 Dagskrá rábstefnunnar Fyrri dagur ráðstefnu - fímmtudagur Skráning Setning Friðrik Sophusson, fjármálaráðherra Útveggir í núverandi byggingum, Björn Marteinsson, arkitekt og verkfræðingur Staðsteyptir veggir, Guðmundur Pálmi Kristinsson, verkfræðingur Forsteyptir veggir og múrsteinsveggir, Níels lndriðason, verkfræðingur Léttir útveggir, Ólafur Sigurðsson, arkitekt Fyrirspumir Vörukynning og sýning Vörusýning opnuð, Steindór Guðmundsson, verkfræðingur Kaffíveitingar Vörukynning í ráðstefnusal, nokkur fyrirtæki kynna þær vörur sem þau hafa að bjóða í ráðstefnusal - stendur til 17.00 Vörusýningu lokað Síðari dagur ráðstefnu-fostudagur Vörasýning opnuð Hvað ræður gerð útveggja? Helgi Hjálmarsson, arkitekt Steinhús þurfa regnkápu, Jónas Kristjánsson, ritstjóri Viðgerðir á steyptum útveggjum, Ríkarður Kristjánsson, verkfræðingur Rekstur útveggja, Rögnvaldur Gíslason, verkfræðingur Fyrirspumir Kaffiveitingar Viðhorl' neytenda, Jóhanncs Gunnarsson, framkvæmdastjóri Ábyrgð hönnuða, verktaka og efnissala, Othar Örn Petersen hrl Hver verður þróun útveggja? Vífíll Oddsson, verkfræðingur. Fyrirspumir Ráðstefnu slitið, Steindór Guðmundsson, ráðstefnustjóri Ráðstefnugestum boðið til móttöku og veitinga á sýningarsvæði Vörusýning verður opin til kl. 19.00 á föstudegi og einnig frá kl. 12.00 -19.00 bæði laugardaginn 13. mars og sunnudaginn 14. mars. Á Útveggjum í stórviðram og íslenskri veðrun munu helstu sérfræðingar fíytja erindi og fjöldi fyrirtækja kynna vöra sýna og þjónustu. Hefur hönnun útveggja á íslandi á undanfömum árurn verið í samræmi við þær þarfir sem uppfylla þarf? Hver verður þróun næstu ára? Hvað er til ráða varðandi úrbætur? Þátttökugjald á ráðstefnunni er kr. 9.500 með ráðstefnugögnum. Skráning þátttakenda er hjá Þing hf. í síntum 91-628535 og 91-626100 fax 91-626905. Framkvæmdadeild Innkaupastofnunar ríkisins eftir Eltnu Pálmadóttur Gott með vondu Gefðu mér í dag mína dag- legu skoðun og fyrirgefðu þá sem ég hafði í gær. Hvernig myndast daglegar skoðanir? Að undanfömu höfum við meðtekið með blaðalestri og tekið inn um eyru og augu ómælda skammta af hrollvekjandi lýsingum á krabbameini, kreppu í efna- hagsmálum, ofbeldi, nauðgun- um, eyðni, leyndri geislavirkni, hungri í Sómalíu, mannfalli 5 Júgóslavíu, baráttu við eiturlyf, áfengisvanda, bæklanir o.s.frv. Við lifum við látlaust áreiti af miklum áföllum sem orðið hafa og útmálun væntanlegra óhappa og óáranar í framtíð- inni. Allt mjög áhugavert og raunsætt, oft gagnlegt sem víti til varnaðar. Það vekur súrsæt- an hroll svo blóðið svellur og meðaumkun framkallar kökk og jafnvel tár. En ætli svo stöð- ugt áreiti leggist ekki á sálina? Ekki er gott í efni, því sam- kvæmt kokkabókum er það eitt fréttnæmt sem er sjaldgæft, frábrugðið því sem allir upplifa. Viðtekin kenning að enga for- vitni veki ef hundur bítur mann, en „góð“ frétt ef maður bítur hund. Ekki virðist það nú ein- hlítt. Minningargreinar eru á íslandi fyrirferðarmikið blaða- efni. Þar er verið að segja 52 þúsund ókunnum kaupendum Mbl. að hvaða leyti sá látni skaraði fram úr. Nú fer þar sívaxandi að bamabörnin og þeim nánustu fínnist þeir verða að koma því til almennings, stundum í mörgum endurtekn- ingum, að hún amma hafí verið góð við þau, alltaf gefíð þeim gott í munninn þegar þau komu til hennar. Væru það nú ekki meiri tíðindin ef hún amma hefði verið vond við barnabörn- in sín? Annað dæmi: Nú lesum við í blöðunum að 80 eða 85% íslendinga, ef ég man rétt, verði einhvern tíma á ævinni svo veikir á sálinni að þeir þurfi meðferð hjá lækni eða sálfræð- ingi. Er það þá ekki það nor- mala sem flestir upplifa? Hin 15-20 prósentin þá afbrigðileg og nógu sjaldgæf til segja frá í fjöimiðlum? Hafið þið séð í fjölmiðlaþætti fjallað um vondu ömmuna eða andlega heilbrigðu manneskjuna? Hitt þykir merki- legra til frásagnar. Svo góða gamla kenningin eða afsökun okkar fíölmiðlafólks dugir vart. Kannski mætti líka skjóta inn í hrakfallaþættina úr lífsins ólgusjó einhveiju obbolítið gleðilegra. En þá yrði maður sennilega sakaður um samúðar- leysi, heyrnardeyfu, léttúð, sljó- leikp. á mannlega eymd og skort á samstöðu eða innsýn. Hvað ætli allir meðvituðu félagamir í þeirri göfgu list blaðamenns- kunnar hugsi nú um Gáruhöf- und? Um þessar mundir er því haldið á loft að allt sé á niður- leið og verður vart neitað. En líka blasir við bjartsýni, ef gægst er um gáttir. Þama er fólk sem trúir á framtíðina, einkum þegar lengra er litið. Dæmi: Miklu fleiri börn fæðast á íslandi nú um stundir en áður, eru bókstaflega að sprengja fæðingardeildirnar. Hvað sýnir betur bjartsýni á framtíðina en að hika ekkert við að setja böm í þennan heim og taka að sér að sjá fyrir þeim, gefa þeim tíma og búa þau undir lífið f næstu áratugi. Trúa á að þau eigi sér framtíð í þessu landi? Nú á tímum vita flestir að böm detta ekki úr storkanefi í háloft- unum. Óþarfi að eiga óvelkomin böm. Bendir ekki þessi stór- aukni vilji til að eiga böm og búa þeim líf í þessu landi og , þessum heimi til bjartsýni á ' framtíðina? Trúin á að erfitt árferði í þjóðfélaginu endist kannski rétt á meðan þau eru ungböm og komi betri tíð með blóm í haga fyrir þau og þá sem bera ábyrgð á þeim? Önnur tíðindi snertu bjart- sýnistaugina, ef trúa má full- yrðingum um að mannauður sé og verði gæfa þessa lands. Samkvæmt tölum Hagstofunn- ar eru miklu fleiri vinnufúsar hendur í landinu en voru fyrir ári. Vinnandi íslendingar hafa aldrei verið fleiri. Þrátt fyrir skelfílegt atvinnuleysi, sem við þekkjum öll, þá hefur störfum fjölgað um 1% úti í þjóðfélaginu milli áranna 1991-92. Störfum hefur fjölgað fyllilega í takt við fjölgun landsmanna síðustu tvö árin. Maður er nú svo mataður á hinu að erfítt reynist að melta þessar upplýsingar. Hagstofu- stjóri segir athyglisverðast við þessa könnun hve atvinnuþátt- takan vex. Fleiri úr heildarfjöld- anum vilja vinna. Hver sem skýringin er, þá kemur fram í síðustu vinnumarkaðskönnun * að á þrem misserum fíölgaði kringum 7.900 manns áyinnu- markaði á sama tíma og íslend- ingum á vinnualdri fjölgaði að- eins í kringum 3.800. Konur juku sitt hlutfall enn meira en karlarnir á þessu ári, úr 75% í 77%! Ja, hérna! Þarna virðumst við eiga í pokahorninu afl sem er enn fúsara til að leggja sitt af mörkum í þessu landi en fyrirrennararnir. Kannski of fúsir? Verður ekki vinna fyrir alla? Þarf kannski að fara að deila vinnunni meira niður — a.m.k. meðan hart er á dalnum. Að taka kúfínn af þeim sem hafa ofgnótt af vinnu og bæta á þá sem ekkert hafa eða lítið. Mér heyrist a.m.k. formaður opin- berra starfsmanna telja jöfnuð aðalkröfuna á sínum vettvangi — jöfnuð í launum og þá vænt- anlega vinnu líka. Á svo stórum vinnumarkaði, þar sem er ein púlía sem semur við einn vinnu- veitanda, er það kannski viðráðanlegra en annars staðar. Verður fróðlegt að sjá nú í at- vinnuleysinu hvernig sú jöfnun m- tekst til. Fyrir aðra en vinnusjúka hlýtur að vera svolítið björt framtíðarsýn að skipta með sér vinnunni í styttri vinnutíma á mann, og fá góðan tíma til að ala upp og vera með öllum þeim börnum sem nú eru að fæðast. Eða hvað?

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.