Morgunblaðið - 14.02.1993, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 14.02.1993, Blaðsíða 44
KJÖRBÓK Landsbanki Islands Banki allra lartdsmanna MORGVNBLAVW, AÐALSTRÆTI 6, 101 REYKJA VÍK SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 166S / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTl 85 SUNNUDAGUR 14. FEBRÚAR 1993 VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR. Morgunblaðið/ólafur Bragason Síðasta skoðun í skýli 885 EINN af flugwkjum Flugleiða, Magnús Pálsson, vinnur við hjólabún- að á Eydísi í síðustu skoðuninni sem fram fer í herskýli 885. Æydís í aðalskoðun SKOÐANIR á þotum Flugleiða á Keflavíkurflugvelli verða væntanlega fluttar á næstunni úr herskýli 885 yfír í hið nýja flugskýli sem félag- ið hefur byggt. Síðastu aðalskoðun á Flugleiðaþotu í skýli 885 lauk í vikunni, en það var á Eydísi, einni af hinum nýju Boeing 737-vélum. Baldur Bragason yfirflugvirki segir að starfsmennirnir kveðji skýli 885 með litlum söknuði því vinnuaðstæður þar hafa oft verið fyrir neðan allar hellur, snjóað inn á mitt góif og í vetrarhörkunum nú hefur lofthitinn farið niður i mínus sjö gráður. Fundur forystumanna EG með starfsmönnum í gær Starfsemi frystihúss- ins hætt eftir helgina FORSVARSMENN Einars Guðfínnssonar hf. í Bolungarvik héldu í gærmorgun fund með starfsmönnum frystihúss EG þar sem tilkynnt var að frystihúsið hefur ekki vinnslu á nýjan leik á morgun, mánu- dag. Einar Jónatansson forstjóri EG sagði í samtali við Morgunblaðið i gær að fyrirtækið hefði í fyrrakvöld ráðstafað afla, bæði rækju og öðrum afla annað, því ekki væri kleift undir núverandi kringumstæðum að hefja vinnslu í fuystihúsinu á ný á morgun. „Við munum gera það sem í okkar valdi stendur, til að bæjaryflrvöld fái þann tíma sem þau þurfa til þess að ná samningum við Landsbankann og aðra. Stjóm fyrirtækisins ber auðvit- að mikla ábyrgð, og hún mun gera það sem í hennar valdi stendur, til að aðstoða bæjaryfirvöld við að ná markmiðum sínum,“ sagði Einar. Bærinn reynir til þrautar Ólafur Kristjánsson bæjarstjóri Bolungarvíkur sagði við Morgun- blaðið í gær að Bolungarvíkurbær viðurkenndi vanmátt sinn til þess að standa einn og sér að kaupum á Dagrúnu, Heiðrúnu og jafnvel frysti- húsi EG. „Við sjáum þó vonandi eina leið, sem er sú, miðað við þá veiku atvinnustöðu sem er allt frá Þingeyri norður til Djúps, að skynsamlegt sé að stofna útgerðarfélag sem leiti samstarfs við útgerðaraðila á norð- anverðum Vestfjörðum, með beinum eða óbeinum hætti, til þess að tryggja arðbæran rekstur og styrkja atvinnu- líf á svæðinu," sagði Ólafur. Ólafur kvaðst þegar byijaður að hringja í menn og óska eftir því að þeir kæmu til viðræðu og ræddu stofnun útgerðarfyrirtækis á svæð- inu, sem gengi út frá kaupum á Dagrúnu og Heiðrúnu, togurum EG. Aðspurður hvort bæjaryfírvöid hefðu eitthvert tilefni tl bjartsýni hvað varðar erindi bæjarins við Landsbankann, þar sem bankinn hefði hafnað svipuðu erindi frá bæn- um og EG í sameiningu, sagði Ólaf- ur: „Sýn okkar fer eflaust heim og saman við þá sýn sem Landsbankinn hefur og einnig Byggðastofnun. Ég geri mér því vonir um jákvæða niður- stöðu úr okkar viðræðum, án þess að ég ætli að segja fyrir um niður- stöðu þeirra.“ * Vó salt á 40 m hárri klettabrún á Oshlíðarvegi „Horfði beint niður í fjöru“ „BÍLLINN nánast vó salt á brúninni og ég horfði beint niður I fjöru,“ sagði Halldór Þórisson úr Bolungarvik um það þegar bíll hans fauk til á veginum um Óshlíð í rokinu á föstudagskvöld. Þar sem bíllinn stöðvaðist er 40 metra snarbrött hlíð beint niður að sjó. Halldór var einn í bfl sínum á leiðinni úr vinnu á ísafirði heim til sín í Bolungarvík og sagðist hafa ekið hægt vegna veðurs- ins. „Eg lenti í vindstreng sem liggur niður Seljadal. Bíllinn byijaði að skríða til hliðar og færðist yfír á hinn vegarhelming- inn. Ég gat lítið gert, reyndi að bremsa en hann frekar jók hraðann. Ferðin hægðist þegar bíllinn fór yfir ruðning og stöðv- aðist loks á brúninni. Þar hékk hann „á lyginni" og ég horfði beint niður í fjöru. Bíllinn hallaðist svo mikið á brúninni að hægt var að handsnúa hjólunum á hliðinni sem sneri að vegin- um,“ sagði Halldór í samtali við Morgunblaðið í gær. Sat stjarfur Halldór sagðist vissulega hafa verið hræddur á meðan bfllinn fauk til og setið augnablik stjarfur í bílnum þegar hann stöðvað- ist. Hann hefði vitað af mönnum við sorpbrennslustöðina á Skarfaskeri og ákveðið að hlaupa til þeirra. Hann fékk síðan aðstoð við að draga bílinn inn á veginn aftur. Varð að gera það mjög varlega til þess að bíllinn færi ekki fram af brúninni. Morgunblaðið/Gunnar Hallsson Stóð tæpt HALLDÓR Þórisson við bfl sinn á ísafirði í gærmorgun. Litlu mátti muna að hann færi fram af Óshlíðarvegi í rokinu á föstu- dagskvöld. Viðurkenndar kröfur í þrotabú Fórnarlambsins 1.220 milljónir Krefjast kyrrsetningar í eignum Hagvirkis-Kletts VIÐURKENNDAR kröfur í þrotabú Fórnar- lambsins, áður Hagvirkis, nema tæpum 1.220 milljónum króna, auk þess sem bústjóri hefur hafnað kröfum fyrir umtalsverðar upphæðir. Eignir búsins, sem var tekið til skipta í ágúst sl., eru nær engar. Ragnar H. Hall hrl., bú- stjóri þrotabúsins, krafðist á föstudag kyrr- ^setningar i eignum Hagvirkis-Kletts fyrir “uröfum sem nema rúmum 373 milljónum króna. Þær kröfur byggjast á samningum sem Hagvirki gerði við Hagvirki-Klett, sem þá hét Hagtala, og eru að sögn bústjórans dagsettir í desember 1990. Samkvæmt þeim voru nær allar eignir sem Hagvirki átti færðar yfir til Hagvirkis-Kletts gegn yfirtöku á skuldum. Krafan var gerð á föstudag en fulltrúi sýslu- manns tók hana fyrir síðdegis í gær, laugardag. Nái kyrrsetningin fram að ganga þarf að höfða staðfestingarmál vegna hennar fyrir dómstólum. Kyrrsetning felur í sér að veðbönd eru lögð á fjármuni til bráðabirgða þar til aðfararheimild fæst, með dómi í staðfestingarmáli, til að tryggja kröfu um peningagreiðslu. Samkvæmt handbók dómsmálaráðuneytis setja lög það sem skilyrði þess að kyrrsetning fáist sett að sá sem hennar krefst sanni að verulega dragi úr líkindum á því að kröfu verði fullnægt fari kyrrsetning ekki fram. Nefnd er sem dæmi sú aðstaða að skuldari taki upp á að selja eignir eða grunur leiki á undan- skoti þeirra með einhveijum hætti. Veð kröfuhafa í eignum sem búið á ekki Meðal stærstu kröfuhafa í þrotabú Fórnar- lambsins eru að sögn bústjórans ýmsir innheimtu- menn ríkissjóðs, þar á meðal sýslumaður í Hafnar- fírði, einnig íslandsbanki, Framkvæmdasjóður og Iðnlánasjóður. íslandsbanki og sjóðirnir hafa m.a. veð í fjölmörgum þeirra eigna sem samningarnir sem kyrrsetningarkrafan byggist á tóku til og eru í dag skráðar eignir Hagvirkis-Kletts, að sögn Ragnars H. Hall. Viðurkenndar forgangskröfur í þrotabúið eru 13 milljónir króna, vegna orlofsgreiðslna og lífeyr- isiðgjalda. Veðkröfur eru flokkaðar sem almennar vegna þess að þær beinast yfirleitt að því að fá viðurkennd veð í eignum sem þeir samningar tóku til sem kyrrsetningarkrafan tók til. Ragnar H. Hall sagði að þrotabúið hefði engar íjárkröfur gert persónulega á Jóhann Bergþórsson aðaleiganda Fórnarlambsins og Hagvirkis en sam- kvæmt heimildum Morgunblaðsins er hann í umtalsverðum ábyrgðum vegna fyrirtækjanna. Nota sím- boða tíl landasölu HINIR umsvifamiklu landa- bruggarar sem lögreglan hef- ur verið að kljást við undan- farna mánuði nota símboða mikið í viðskiptum sínum, samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins. Algengast er að viðskiptavinir hringi í símboða bruggarans og stimpla þeir fyrst inn talnaboð með eigin símanúmeri. Talnaboðunum er svo lokið með tölu sem ætlað er að tákna hvað marga lítra viðkomandi ætlar að kaupa. Síðan hittast kaupandi og seljandi á fyrirfram ákveðnum stað og skiptast á landa og peningum. Aðferð þessi er að sögn lög- reglunnar keimlík þeim sem fíkniefnasalar víða um heim nota.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.