Morgunblaðið - 30.04.1993, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 30.04.1993, Qupperneq 1
HEIMILI FOSTUDA G UR 30. APRIL1993 BLAÐ Eigenda- sliipti Eigendaskipti eru lang tfðust á nýjum eignum, ef marka má teikninguna hér til vinstri. Þannig voru eigendaskipti meira en þrisvar sinnum tíðari í fyrra á einbýlishúsum, sem byggð voru á síðustu fimm árum en á fimm árum þar á undan og eigendaskipti nær helmingi tíðari á íbúðum ífjöl- býlishúsum byggðum á síðustu fimm árum en á fimm árum þar á undan. Þetta á sér ýmsar skýringar og sumar nærtækar. í fyrsta lagi reyna byggingarfyrirtækin að sjálfsögðu að selja sem fyrst þær íbúðir og einbýlishús, sem þau eru með í smíðum, þannig að þessar eignir skipta yfirleitt um eigendur mjög fljót- lega og ekki ósjaldan á meðan þær eru enn f smíðum. í öðru lagi kemur það ekki ósjaldan fyrir, að kaupendur lenda í erf- iðleikum með kaup á nýjum eignum, sem eru dýrari en þær eldri og reyna þá að losa sig úr vandanum með því að selja þær. Loks má nefna, að ís- lenzkt íbúðarhúsnæði er yfir- leitt fremur nýtt og meiri hluti þess byggður eftir 1960. Yngri eignir eru þvífleiri en þær eldri og þvf skipta fleiri yngri eignir um eigendur árlega en gamlar. Aldur íbúðarhúsnæðis í Reyhjavík við eigendaskipti 1992 skv. gerðum kaupsamningum EINBÝLISHÚS _ FJÖLB ÝLISHÚS 156 141 143 Vansldl ■búóar- eigenda OFÁAR fjölskyldur hafa átt erfitt með að standa i' skil- um með afborganir af lánum sínum á undanförnum árum. Ekki verður séð, að úr því dragi á næstunni. Þannig kemst Grét- ar J. Guðmundsson m. a. að orði í þætti sínum um mark- aðinn í dag. Skuldaðlögun er nýtt hugtak hér á iandi. Með henni getur t. d. vöxtum eða lánstíma verið breytt eða skuld strikuð út að hluta eða að fullu. Tilgangurinn er að gera skuld- urum kleift að standa undir skuldbindingum si'num og koma í veg fyrir greiðsluþrot fjöl- skyldnanna og nauðungarupp- boð á íbúðum þeirra. Þessi leið er til skoðunar hér á landi, segir Grétar. ^ 20 nyjar ■buðir I Mióbænum Anæstunni á að hefjast smíði þriggja hæða ofan á húsið Aðalstræti 9 i' Reykjavík, en það hús gengur undir heitinu Mið- bæjarmarkaðurinn. Þarna verða byggðar 20 íbúðir. í við- tölum við arkitektana Guðna Pálsson og Dagnýju Helgadótt- ur og Örn Kjærnested, fram- kvæmdastjóra Álftáróss hf., sem reisir bygginguna, erfjall- að um þessa ný- byggingu. WSKMBKmBBBSi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.