Morgunblaðið - 20.05.1993, Qupperneq 1
Heilsimkan
erhafin
Hollusta og
hreyfing, heil-
brigði og betri
líðan. Þetta
eru markmið-
in sem flest
okkar stefn-
um að - með
þó misjöfnum
dugnaði og
mismiklum árangri. En frá og
með deginum í dag gefst lands-
mönnum gott tækifæri til að
taka sig á í þeim efnum sem
varða hollustu og heilbrigði.
Heilsuvikan hefst í dag, 20. maí
og stendur til miðvikudagsins
26. maí.
Heilsuvikan
er skipulögð
af samtökun-
um íþróttir
fyrir alla,
með stuðn-
ingi Skelj-
ungs hf.,
Landsbank-
ans og Sjóvá-AImennra og í
samstarfi við fjölmarga aðila
sem Iáta sér íþróttir og holl-
ustumál varða. Alla vikuna
verður skipulögð dagskrá í
gangi og ættu flestir að finna
sér eitthvað þar við hæfi.
í vikulokin verða Islendingar
í fyrsta sinn þátttakendur í
Hversdagsleikunum, sem 20
milljónir manna kepptu í á sl.
ári víðsvegar um heim. Þá
keppir Reykjavík við hérað í
Skotlandi og Akureyri við bæ
í ísrael og vinnst keppnin á því
einu að sem flestir taki þátt í
henni.
Víst yrðu það sætir sigrar,
en stærstu sigrarnir vinnast
með því að sem flestir noti
stuðninginn og hvatninguna á
Heilsuvikunni til að huga að
hollri hreyfingu og leggja þann-
ig grunninn að heilbrigðu líf-
erni fyrir sig sjálfa. Og ekki til
lítils að vinna.
I þessu blaði er að finna gott
yfirlit yfir það sem í boði er á
Heilsuvikunni, auk gagnlegra
ráða fyrir þá sem ætla að taka
þátt í henni, með hveiju því
móti sem þeir kjósa.