Morgunblaðið - 20.05.1993, Side 2
2 C
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. MAÍ 1993
[ÞRÓTTIR FYRIR ALLA
Stefnt að 15.000
félagsmönnum
MEÐAN á heilsuviku samtakanna íþróttir fyrir alla stendur
halda samtökin upp á árs afmæli sitt. Þau voru stofnuð 24.
maí 1992 að frumkvæði íþróttasambands íslands og byggð
upp sem fjöldasamtök til eflingar almenningsíþróttum og
útivist, undir kjörorðinu „Heilbrigt líf — hagur allra“.
Félagsmenn í samtökunum nú
eru um 8 þúsund, en markmið
þeirra hefur verið að virkja sem
flest samtök, stofnanir, fyrirtæki,
starfshópa og aðra hópa sem láta
sig varða hollustu og heilbrigði til
samstarfs. Er vonast til að félaga-
talan verði komin upp í 15 þúsund
í lok þessa árs.'
Gönguátakið enn í gangi
Heilsuvikan, sem samtökin
standa fyrir nú, er annað stóra
verkefnið sem þau hafa staðið fyrir
á þessu fyrsta starfsári. Fyrsta
verkefnið var svokallað „Göngu-
átak“ sem ÍFA gekkst fyrir í sam-
vinnu við Skeljung hf og Ferðafélag
íslands. Átakið hófst 22. október
sl. með göngudeginum og fór þát-
taka landsmanna fram úr björtustu
vonum aðstandenda átaksins, en
um 40% landsmanna tóku þátt í
göngudeginum. Gönguátakinu er
ekki lokið, því að það stendur yfir
í eitt ár.
Af öðrum viðburðum sem tengj-
ast almenningsíþróttum og ÍFA
hefur tengst á þessu fyrsta starfs-
ári má nefna Skautadaginn, sem
haldinn var í samvinnu við skauta-
félögin og Bauer-skautaumboðið á
Akureyri og í Reykjavík 1. desem-
ber sl., Borgargöngu í samvinnu
við Ferðafélag Islands um Reykja-
nesfólkvang, en sú ganga er farin
í ellefu áföngum. Sá fyrsti var 24.
janúar sl. og sá síðasti verður 30.
september nk. Þá átti ÍFA samvinnu
við Körfuknattleikssamband Is-
lands um aðalsmót í körfuknattleik.
Kvennahlaup í júní
í lok maí hefjast svo æfingahlaup
Heilsuhússins og Bylgjunnar í sam-
vinnu við Fijálsíþróttasamband ís-
lands, en það verða vikuleg hlaup
á hverjum miðvikudegi frá kl. 17.00
til 19.00. Næsta stórverkefnið að
lokinni heilsuvikunni verður svo í
samstarfi ÍFA og ÍSÍ, en það er
Kvennahlaupið sem haldið verður
19. júní um land allt. Stefnt er að
því að hlaupið verði á 50 stöðum
og að a.m.k. 10 þúsund konur taki
þátt í hlaupinu.
SUNDDAGURINN
Flestir syndi 200 metra
EITT af því sem íþróttir fyrir
alla standa að í heilsuvikunni er
svokallaður Sunddagur og er
það í samvinnu við Sundsamband
Islands. Dagurinn er laugardag-
urinn 22. maí og eru þá land-
menn allir hvattir til að mæta í
sína sundlaug og synda 200
metra.
Skráning þáttakenda fer fram
á sundsstöðum, en efnt er til
keppni á milli bæjarfélaga og sigr-
ar það bæjarfélag sem hefur flesta
sundkappa miðað við íbúafjölda.
Því bæjarfélagi sem sigrar verður
að lokum afhentur bikar sem varð-
veittur verður í viðkomandi sund-
laug.
Heilsuvikan í Reykjavík
Fimmtudagur 20. maí:
Kl. 10.30
Kl. 13-15
Föstudagur 21. maí:
Kl. 14
Kl. 17
Kl. 17-18.30
Kl. 18.30
Laugardagur 22. maí:
Kl. 11
Kl. 10
Kl. 11
Kl. 12
Kl. 13
Kl. 13
Kl. 14
Sunnudagur 23. maí:
Kl. 10-17
Kl. 13
Kl. 13 -
Mánudagur 24. maí:
Kl. 16
Kl. 17
Kl. 17.30
Kl. 17.30
Kl. 18
KI. 18
Kl. 18.30
Þriðjudagur 25. maí:
Kl. 16
KI. 17
Kl. 18
Kl. 20
Miðvikudagur 26. maí:
Kl. 17
Kl. 18
Göngumessur frá Bústaðakirkju, Grafarvogi og Neskirkju.
Afmælissýning Fimleikasambands íslands í Laugardalshöll. Sýningaratriði
frá fimleikafélögum.
Félag áhugafólks um íþróttir aldraðra — útivist, leikir o.fl. á gervigrasinu í
Laugardal.
Vormót Fimleikasambands íslands í Laugardalshöll. Hópakeppni í trompfim-
leikum.
Gallerí sport með kynningu i Kringlunni á júdó, tae kwon do og akito.
Hlaupafélag Vesturbæjar. Hlaupið er frá og að Sundlaug Vesturbæjar, vega-
lengdir 3, 5, 7 og 10 km.
Landsbankahlaup í Laugardalnum. Mætingkl. 10.
Hlaupahópur Grafarvogs fer í Heiðmörk og hleypur þar.
Gallerí sport með kynningu á karate og kimi wasa.
Stúdíó Ágústu og Hrafns með kynningu á pallaleikfími.
Kynning á KR-hlaupahópnum í félagsheimili KR við Frostaskjól.
Afmælismót Fimleikasambands íslands í Laugardalshöll. Keppni og sýningar-
atriði. Andreas Weeker, margfaldur meistari frá Þýskalandi, verður með fím-
leikasambandinu í Laugardalshöll þessa þijá daga. Bein útsending í RUV.
Körfuknattleikssamband íslands með kynningu í Kringlunni, þar verður hjóla-
stólakörfubolti, skotið á körfu og spilað 2/2. *
Badmintonsamband íslands í TBR-húsinu í Laugardal. Opið fyrir alla. Leið-
beinendur verða á staðnum og hluti af unglingalandsliðinu í badminton.
Göngudagur fjölskyldunnar á vegum Ferðafélags íslands.
Hjóladagur. G.Á. Pétursson. Hjólað verður frá félagsmiðstöðvunum Frosta-
skjóli, Árseli, Hólmaseli, Fjörgyn og Fellahelli í lögreglufylgd að Laugardal.
Þar verður dagskrá, þrautakeppnir o.fl.
Frítt hjá líkamsræktarstöðvum: Máttur, Líkamsræktin Kjörgarði, Gym 80,
Ræktin, World Class, Stúdíó Ágústu og Hrafns, Dansstúdíó Sóleyjar, Ár-
mann Júdó Gym, Gallerí sport, Veggsport.
Kynning á jóga í Kringlunni
Kynning á taichi í Kringlunni
Hlaupahópur Grafarvogs frá Hamraskóla. 1-8 km.
Hlaupahópur Breiðholts, frá Gerðubergi, 3-6,5 km.
Kynning á „Komið og dansið" í Kringlunni.
Trimmklúbbur KR
Hlaupafélag Vesturbæjar, hlaupið frá og að Sundlaug Vesturbæjar.
Hress með kynningu á sinni starfsemi í Kringlunni.
Ástbjörg Gunnarsdóttir, leikfimihópur, kynning á starfsemi í Kringlunni.
Dansráð íslands í Kringlunni.
Hverfagöngur með leiðsögumönnum. Ferðafélagíslands. Öskjuhlíð, Laugar-
dalur, Elliðaárdalur.
Blindrabolti íþróttasambands fatlaðra í Kringlunni.
Þjóðdansafélagið, kynning í Kringlunni.
Hversdagsleikarnir.
Heilsutilboð íheilsuviku
TILBOÐSPAKKI A HElLDSOLUVERÐI
Verð aðeins kr.
Pakki með hollum, ljúffengum matvörum,
sem einfalt er að bæta inn í venjulegt mataræði.
Heilbrigður lífsstíll með hæfilegri hreyfíngu og
hollu fæði bætir heilsuna og eykur vellíðan.
Heilbrigður lífsstíll í dag
>/„/»- stuðlar að betra lífi síðar á ævinni.
Éh
Bcett heilsa —betri líðan
Fagleg ráðgjöf
eilsuhúsið
Kringlunni sími 689266 Skólavörðustíg sími 22966 ’
HEILSUVIKAN
Rennibrautarkeppni
skokk og heilsurækt
Í TILEFNI heilsuvikunnar verður í dag, fimmtudaginn 20. maí, hald-
in sérstök rennibrautarkeppni í sundlaug Kópavogs. Keppt verður
í þremur aldursflokkum og þrjú fyrstu sætin verðlaunuð, en hver
keppandi fer tvær ferðir og verður betri tímatakan látin ráða.
IGarðabæ fer á sunnudag, 23. Stjörnunnar verður einnig með
maí, fram skokknámskeið und- kynningu á starfseminni og eru
ir stjórn Sigurðar P. Sigurðssonar nánari upplýsingar veittar í
og eru upplýsingar gefnar í síma íþróttahúsinu Ásgarði.
657635, en skráning á námskeiðið Líkamsræktarstöðin Hress á
er einnig í þessum síma. í Garðabæ Bæjarhrauni í Hafnarfírði verður
eru einnig haldnar æfíngar fyrir með dagskrá vegna heilsuvikunnar
hlaup sumarsins á laugardögum mánudaginn 24. maí oger þá öllum
kl. 10.00 og á þriðjudögum kl. sem vilja boðið að koma í ókeypis
18.10. Líkams- og heilsurækt heilsurækt.