Morgunblaðið - 20.05.1993, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGURl 20, MAÍ’ 199.3
G) 5
Skógar- (
hlíóarkriki
Sandfell
fv VC iKolhólI
^ iBúrfeiL^^ Húsfellsbruni
CJ C|Húsfell
^fcjvalubót ,
Hetgafell
Heiðmörk - Kaldársel, kl. 11:00
Um 3 klstr. ganga. fíúta frá
B.S.I. austanmegin, komið
verður við í Mörkinni 6.
Kaldarsel
Helgadalur
\ Fjölskylduganga í Valaból, kl. 13:00
Um 1-1,5 klst. ganga. fíúta frá B.S.I. austan-
megin, komið verður við íMörkinni 6, á Kópa-
vogshálsi, við kirkjugarðinn í Hafnarfirði. Einnig
er hægt að koma á eigin farartæki iKaldársel.
FRÉTTIR
Þeir sem ætla í verslunarleiðang-
ur í Heilsuvikunni eiga þess kost
að fara í morgunleikfimi í leið-
inni. Heilsuræktar-
stöðin Máttur
verður með 10 mín-
útna morgunleik-
fimi í verslunum
Hagkaups dagana
21., 24., 25. og 26 maí. Leikfimin
fer fram í eftirfarandi verslunum,
í Hólagarði og Grafarvogi kl.
09.15, í Skeifunni kl. 10.00, í
verslununum í Kringlunni kl.
10.45 og í Kjörgarði og á Setjarn-
arnesi kl. 11.30.
Máttur mun einnig kynna starf-
semi sýna í verslunum Hagkaups
meðan á heilsuvikunni stendur
og verður ekki eini aðilinn sem
gerir slíkt, því að næringarfræð-
ingur verður með kynningu í
verslununum, Sjósleðaferðir
munu kynna starfsemi sína, sem
og fshestar, en það fyrirtæki ætl-
ar á kynningunum að gefa ákveð-
inn fjölda af frímiðum fyrir þá sem
vilja fara á hestbak. Fimleika-
sambandið stendur einnig fyrir
sýningum í verslununum og sam-
tökin Komið og dansið ætla að
kynna starfsemina í verslununum,
sem og fleiri íþróttafélög.
Og enn meira af verslunum Hag-
kaups. Mikið verður um kynningar
og tilboð á ýmiskonar matvælum
og vörum meðan á
heilsuvikunni
stendur og m.a.
verður sérbakað
sérstakt hollustu-
brauð hjá Myliunni
í tilefni vikunnar. Sérstök tilboð á
ávöxtum og grænmeti verða í
Hagkaup og ýmsir framleiðendur
og innflytjendur koma til með að
kynna vörur sínar og veita sérstök
tilboð meðan á vikunni stendur.
Það eru m.a. Mjólkursamsalan, ís-
lensk-Ameríska, OJohnson og
Kaaber, Osta og smjörsalan, Slát-
urfélag Suðurlands, Isostar, Lýsi,
I. Guðmundsson og fleiri. Kynning-
ar allra þessara aðila verða í versl-
ununum í Hólagarði, Grafarvogi,
Kjörgarði, Sehjamamesi, Kringl-
unni og í Skeifunni, en að auki í
verslum í Njarðvík og á Akureyri.
Ýmis ráð og leiðbeiningar er gott
að hafa í farteskinu þegar fólk
byijar líkamsþjálfun. Svör við ýms-
—ö—-------- um spumingum
ffy sem vakna má fá í
/* ýmsum bókum og
blöðum, en t.a.m.
má benda á nokkr-
ar handhægar
bækur sem gefnar hafa verið út á
undanfömum árum. Það er bók
Iðnú, Iðnskólaútgáfunnar, sem ber
heitið Þjálfun, heilsa, vellíðan -
kennslubók í líkamsrækt og eins
Skokkarinn, sem er samin af
tveimur gamalreyndum skokkur-
um, þeim Sigurði P. Sigmundssyni
og Gunnari Páli Jóakimssyni. Þá
gaf Vaka-Helgafell út fyrir alln-
okkmm áram bók sem stendur
fyrir sínu, en það er heilsuræktar-
bók Sigrúnar Stefánsdóttur;
fréttamanns og iþróttakennara, I
fullu fjöri. Eins má benda á hand-
hæga litla bók sem líkamsræktar-
stöðin Máttur og ber heitið Offita
og hreyfing áhrif mataræðis og
líkamsþjálfunar á þyngdar- og fit-
utap. Sjálfsagt má fleira nefna, og
um að gera að spyijast fyrir í bóka-
verslunum.
Góðar gönguleiðir
HVAÐ ER betra hægt að hugsa sér á björtu sumarkvöldi en að vera
á gangi úti í náttúrunni og njóta í senn góðrar hreyfingar, útiveru
og landsins? En það þarf ekki að leita langt út fyrir þéttbýlið til að
finna skemmtilegar gönguleiðir, eins og þær sem hér eru nefndar,
fengnar úr ritröð Einars Þ. Guðjohnsens, Gönguleiðir á íslandi.
Álftanes
Fjörugöngur á vestanverðu Alfta-
nesinu eru áhugaverðar og ekki leiði-
gjarnar, þótt farið sé aftur og aftur.
Eftir mikil brim er stundum hægt
að tína öðuskeljar á Hrakhólum, og
oft eru þar selir að forvitnast um
vegfarandann. Álftanes er þekkt
fyrir fjölskrúðugt fulgalíf, og á vori
og hausti er þar Ijöldinn allur af
farfuglum á leið til og frá varpstöðv-
um á norðlægari slóðum, svo sem
margæsir og helsingjar, sem eru
þama árvissir gestir.
Nefna má tvær ágætar hringgöt-
ur á nesinu. Önnur leiðin er frá
Bessastöðum, og má ganga þar fyr-
ir neðan garð og út á Bessastaðanes
eftir ökuslóð. Vestast á Bessastaða-
nesi komum við að rústum Skans-
ins, sem þar var gerður á 17. öld
til varnar gegn sjóræningjum. Þar
getum við rifjað upp danskvæðið um
Ola skans, sem bjó á Skansinum í
lok síðustu aldar.
Við höldum áfram með Seilunni,
víkinni við Skansinn, og fylgjum svo
ströndinni vestan við Breiðabólstað
og Akrakot.
Hinn hringurinn getur hafist við
Kasthúsatjörn og má fylgja þaðan
ströndinni til suðurs alveg að Mel-
húsum eða jafnvel Hliði. Til baka
má svo ganga eftir veginum kring-
um kjarna byggðarinnar eða gegn-
um byggðina að Kasthúsatjöm.
Gálgahraun
Gangan hefst við Álftanesveginn.
Við göngum fyrst þvert norður yfir
hraunið, sem þama er vel gróið og
með ótal Iautum og bollum. Norður
úr hrauninu skerst mjótt nes, Eski-
nes, og er ágætt að stefna þangað.
Síðan göngum við vestur með Lamb-
húsatjöm, sem einhvern tíma hefur
sjálfsagt verið réttnefni en er nú
opinn til austurs og tengist þannig
Skerjafirði. Jarðvegur er sem óðast
að eyðast af Eskinesi og sjór gengur
nú inn á hraunið.
í hraunbrúninni eru tveir háir
klettar, Gálgakiettar. Þar voru saka-
menn hengdir fyrr á tímum, en
valdsmenn gátu horft á heiman frá
Bessastöðum og þurftu ekki að óm-
aka sig á staðinn. Frá Gálgaklettum
fylgjum við svo hraunbrúninni til
vesturs og suður á veg.
Búrfell - Búrfellsgjá
Eitt skemmtilegasta göngusvæðið
í nágrenni Reykjavíkur og Hafnar-
fjarðar er um Búrfelisgjá og Búr-
feil. Gönguna má byija við Hjaila-
enda og fara þar yfir Heiðmerkur-
girðinguna á prílunum. Komum við
þá fljótlega að misgengisstalli. í
gjánni undir honum er vatnsból, og
er auðvelt að komast niður að vatn-
inu. Aðeins lengra komum við að
Gjárrétt, sem því miður er hranin
að hluta. Þar skammt frá er gamalt
aðhald eða náttból, sem gert hefir
verið með því að hlaða fyrir hellis-
skúta og er rétt að líta á það.
Búrfellsgjá er engin gjá í vana-
legri merkingu þess orðs, heldur
hraunrás frá þeim tíma, er Búrfell
gaus fyrir um 7.200 árum. Þama
runnu öll hraunin, sem náðu til Hafn-
arfjarðar, út á Álftanes og í Skerja-
§örð. Nokkrar sveigjur eru á gjánni
og þeim megin þar sem straumþung-
inn mæddi á eru háir íhvolfír vegg-
ir. Efst mjókkar gjáin og verður
brött upp í sjálfan gíginn. Þar má
sjá stafla af þunnum hraunlögum,
og hellisskúta.
Þama er mjög skemmtilegt að
fara um og skoða þessi náttúruund-
ur. Á einum stað við miðja gjána
verður að gæta varúðar vegna djúpr-
ar sprangu, sem þar er þvert yfir.
Einnig má ganga á Búrfell frá
Kaidárseii. Gangan hefst þá við
vatnsbólið í Kaidárbotnum og er
gengið með girðingunni yfir í
Helgadal og svo eftir dalnum í átt
að Búrfelli. Á þessari gönguleið eru
nokkrir hraunhellar. Sumir blasa
við, en til þess að komast í Hundrað-
metrahelli eða Pólverjahelli þarf að
klifra niður í gjá. Rétt fyrir sunnan
Búrfell er stór og víðáttumikil gjá
sem ber nafnið Kringlóttagjá, og er
sjálfsagt að skoða hana.
Göngur frá Hafnarfirði
Nokkrar stuttar en góðar göngur
geta hafist í sunnanverðum Hafnar-
firði. Fyrst ber að telja göngu á
Ásfjall, sem aðeins er 126 m yfir
sjó, en frábært útsynisfjall. Gangan
getur hafist við kirkjugarðinn og svo
má fara nokkuð beint af augum á
ijallið. Eftir að hafa notið útsýriis
við vörðuna má halda áfram suður
að Hvaleyrarvatni eða jafnvel alveg
suður á Stórhöfða. Þaðan sést vel
yfir Snókalöndin í Kapelluhrauninu,
sem rann kringum árið 1005, og
eins vestur yfír Almenning.
Rauðimelur - Slunkaríki
Ef gamli vegurinn er genginn
vestur frá Straumi, er fljótlega kom-
ið að malargryfjum. Áður fyrr voru
þarna tveir gjallhólar rauðir, Rauði-
melur, og telur Jón Jónsson líkleg-
ast, að þar hafi gosið í sjó einhvem
tíma áður en hraun rann frá
Hrútagjárdyngju umhverfis hólana.
Skammt suðvestur af Rauðamel
er lítið hús falið í hraunbolla. Húsið
er byggt eins og. Slunkaríki á
ísafirði, öfugt við það venjulega,
veggfóðrið utan á og bárujárnið að
innan.
Úlfarsfell
Úlfarsfell, 295 m, er eitt besta
útsýnifiallið í næsta nágrenni
Reykjavíkur. Auðveld leið er upp í
gegnum skógarreitinn í vesturhlíð-
unum. Þegar upp á brún er komið
má ganga norður eftir Hamrahlíð-
inni og líta niður yfir byggðina og
halda svo austur á hæstu þúfu fjalls-
ins. Þaðan er svo slétt leið suður af
Qallinu á veginn vestan við bæinn
Úlfarsfell.
Hafravatn - Bringur
Dijúgur hluti þessarar leiðar er
eftir Seljadal, sem er yndislegur
grænn dalur, sléttur í botninn, suð-
austan undir Mosfellssveitarfellun-
um. Gönguna má hefja við Hafra-
vatn og fara hjá Þormóðsdal og
fylgja síðan Seljadalsánni að mestu.
Innst í dalnum er Hrafnagil og þar
þrengist hann nokkuð og hækkar
og þar fyrir innan tekur svo Leirdal-
ur við. Þaðan er orðið stutt inn fyr-
ir austurhomið á Grimmansfelli og
niður að Bringum. Rétt hjá Bringum
er Helgufoss í Köldukvísl og sjálf-
sögðu að líta á hann í leiðinni.
REYKJAVIKURMARAÞON
MARKVISS UNDIRBUNINGUR
MEÐ WORLD CLASS
MEÐAL ANNARS:
1. Frjáls aögangur aö tækja-og þolfimisölum World Class.
■■■2. Hlaup þrisvar sinnum í viku.
■■■13. Þolpróf á hjólum í byrjun tímabilsins.
S111Í1S4. Fitumælingar og fylgst með blóöþrýstingi.
i5. Leiöbeiningar um mataræöi.
■6. Kenndar verða teygjuæfingar í byrjun timabilsins.
B9M17. Leiöbeiningar hjá reyndum hlaupurum.
18. Ráðgjöf varöandi hlaupaskó.
'19. Þrekpróf á miöju æfingatímabili.
IÍSÍ®SÍS10. Allir fá World Class bol fyrir hlaupiö.
LEIÐBEINEIMDUR:
Bjargey Aðalsteinsdóttir, íþróttafræbingur.
Dagbjört Leifsdóttir. íþróttakennari.
Gunnar Guömundsson, íþróttakennari og fjórfaldur
Islandsmeistari í 200 og 400 m spretthlaupi.
Skráning er hjá World Class í símum 30000 og 35000.
Þjálfun hefst 34. maí.
-frábærleið til bættrarheilsu og betra lífs!
YUCCA
I
I
G U L L
◄
I
◄
I
I
í
I
I
I
Ánægðir viðskiptavinir koma aftur og aftur til að
kaupa þetta einstaeða náttúrulega fæðubótarefni ...
og hvers vegna!
I mörg ár hafa farið fram rarmsóknir í Bandaríkjunum á YUCCA-plöntunni. '
Niðurstöður úr þeim rannsóknum sýna að saponin efnið íYUCCA-plöntunni
hjálpar til að brjóta niður fæðuna og halda ristlinum hreinum.
Niðurstöður margra erlendra læknaþinga undanfarin ár hafa verið á þann veg
að um 65—70% allra sjúkdóma megi rekja til óhreininda I ristli og má þar
nefna sjúkdóma eins og liðagigt, psoriasis, asma, að ónefndum ristilbólgum.
YUCCA GULL hjálpar þér að halda þessu mikilvæga líffæri hreinu.
TILVITNANIR í NEYTENDUR:
„Meltingin hefur aldrei verið eins góð og eftir að ég fór að taka inn
YUCCA GULL og öll uppþemba er horfin."
„Á þeim fimm mánuðum sem ég hef notað YUCCA GULL hef ég
getað hætt að nota gigtarlyf og magabólgurnar eru horfnar".
„Ég hef verið með meltingartruflanir alla aevi, þar til ég fór
að notaYUCCA GUL.“
VERÐIÐ ER SÉRLEGA HAGSTÆTT -
GLAS MEÐ 30 DAGA SKAMMTI
KOSTAR AÐEINS 570 KR.
Sölustaðir: i
Betro líf, Borgorkringlunni.
Heilsubúóin, Reykjavíkun/egi 62, Hofnorf.
Höndin hf., Tryggvobraut 22, Akureyri.
Snyrtistofo Þórdísor, Goróorsbraut 2, Húsov.
Stykkishólmsopótek, Stykkishólmi.
Snyrtistofon Hebo, Siglufirði.
Versl. Miðbær, Hringbrout 92, Keflovik. .
Versl. Hólmgorður, Keflovik.
I
I
I
Einkaumboð
á íslandi:
beuRÆip
Borgarkringlunni,
simi 811380.