Morgunblaðið - 20.05.1993, Síða 6
6 C
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. MAÍ 1993
4-
■
'Jjwmflh
INTERNATIONAL
Mikið úrval af fallegum og
vönduðum sundbolum,
bikini og skýlum ó börn
og fullorðna.
Einnig sundbolir
í yfir stærðum.
Fóst í öllum helstu
sportvöruverslunum landsins.
Heildsöludreifing
sími 688085.
Seinkum ellinni með
hreyfingu og þjáHun
„ÞAÐ SKIPTIR höfuðmáli fyrir aldraða að hreyfa sig því á þann
hátt getum við best seinkað ellinni, þetta er forvörn gegn sjúkdóm-
um og elli og það er aldrei of seint að byrja,“ segir Guðrún Nielsen
íþróttakennari og formaður Félags áhugafólks um íþróttir aldraðra.
Hún leggur áherslu á síðustu orðin sem eru einkunnarorð félagsins,
sem var stofnað 1885 og hefur á stefnuskránni að vinna að uppbygg-
ingu og útbreiðslu íþróttaiðkunnar aldraðra.
Segir Guðrún að í stað þess að
láta hreyfingarleysi og aldur
vinna óhindrað að niðurbroti líkam-
ans eigi menn að viðhalda í senn
líkamlegum þrótti og andlegri reisn
með því að stunda hreyfingu, svo
sem göngur, sund, létta leikfimi,
dans og fleira.“
„Síðustu árin hefur orðið heilmik-
il vakning á sviði almennrar íþrótta-
iðkunar bæði hér á landi sem ann-
ars staðar og augu manna hafa
opnast fyrir gildi hollustu á öllum
sviðum og betra lífernis," segir
Guðrún en hún hefur verið formaður
félagsins frá upphafi og var meðal
60 stofnenda. Nú eru félagsmenn
nokkuð á annað hundrað og geta
allir orðið félagsmenn sem áhuga
hafa á íþróttum aldraðra og er
starfssvæðið alt landi. En hver er
aðal starfsemi þess?
„Við höfum staðið annað hvert
ár fyrir námskeiðum fyrir kennara
og leiðbeinendur sem vilja taka að
sér þjálfun og leikfimi fyrir aldraða
en við leggjum mikla áherslu á að
menn sérhæfi sig til þessa starfs
því þörf er á að gæta varúðar og
vinna ávallt út frá þeirri grundvall-
arreglu að íþróttaiðkun aldraðra er
innlegg í heilsuvernd. Alls hafa um
200 manns sótt þessi námskeið okk-
ar frá 40 stöðum víðs vegar af land-
inu.
Við höfum síðustu árin staðið
fyrir sumardvöl að Laugarvatni þar
sem menn stunda leikfimi, sund,
gönguferðir, dans og annað
skemmtilegt félagslíf og á hveiju
ári stöndum við fyrir sérstökum
útivistardögum.
í ár verða þeir þrír, hinn fyrsti
21. maí á gervigrasvellinum í Laug-
NYTT!
UNGLINGA-AEROBIC
12-16 ARA
Aerobic-kennarar
World Class:
Maggi
Bjargey
Gústi
Dísa
Jóna
Birna
Ágústa
Kennt þrisvar í viku. Verð fyrir einn mánuá: 3.000 kr.
Innritun er hafin í símum 30000 og 35000
Námskeiðið hefst 26. maí.
-frábær leið til bættrar heilsu og betra lífs!
ardal, sunddagur aldraðra verður
26. maí og 5. júní verður ratleikur
í Grasagarðinum í Laugardal. Ernst
Backman stjómar sundinu en Þor-
steinn Einarsson fyrrum íþróttafull-
trúi hinum tveimur liðunum. En al-
mennt má segja um starfsemi fé-
lagsins að hún miði að því að efla
og ýta undir hvers konar íþróttaiðk-
un og hreyfingu aldraðra."
Gott að tengja starfið
þj ónustumiðstöðvunum
Guðrún segir að Félagsmála-
stofnun Reykjavíkur hafi tekið
þennan málaflokk mjög upp á arma
sína og nú er boðið upp á þjálfun
fyrir aldraða í flestum þjónustumið-
stöðvunum. „Óskadraumur okkar
er sá að aldraðir geti sem víðast á
landinu fengið aðgang að aðstöðu
til að stunda létta leikfimi, sund og
dans og fleiri íþróttir. Það þarf ekki
annað en einfaldan sal, litla sund-
laug og leiðbeinanda og það hefur
reynst mjög gott fyrirkomulag að
tengja þetta starfi þjónustumið-
stöðva aldraðra.“
Hvað vinnst með því að aldraðir
stundi hreyfingu eða fþróttir?
„Við erum sannfærð um og það
hafa reyndar erlendar rannsóknir
sýnt að haldi menn áfram þjálfun
og hreyfingu eftir að starfsævinni
lýkur má viðhalda heilsu og starfs-
hæfni og draga þannig úr sjúkraleg-
um. Fólk sem er sæmilega á sig
komið líkamlega fær síður ýmsa
kvilla sem geta orðið erfíðir. Við
getum ekki komist framhjá ellinni
en við getum bætt heilsuna og hald-
ið reisn okkar og sjálfstæði lengur
ef við hugsum aðeins um að þjálfa
okkur andlega og líkamlega. Þetta
þarf ekki að vera flókið: Klukku-
stundar löng ganga á hverjum degi
gerir mikið, við höfum mörg aðgang
að sundstöðum, við getum kannski
komist í leikfímihóp, sundhóp eða
danshóp og þannig mætti iengi telja.
Aðalatriðið er að byija að hreyfa
sig en þeir sem eru veikir fyrir eða
hafa ekki stundað neinar íþróttir
um ævina eða fyrlt1 mjög löngu síð-
aidradra.
Aldraðir í leikfimi hjá Soffíu í Lönguhliðinni. Valdi-
mar er lengst til hægri.
an verða kannski að leita ráða hjá
lækni áður en þeir fara af stað. Það
er ekki of seint hvorki fyrir kyrr-
setumanninn eða aðra, það geta
allir verið með og það hafa allir
gott af hreyfíngunni. Norskur lækn-
ir lýsti þessu ágætlega á þennan
hátt: Við skulum vinna að því að
deyja ung - eins seint og kostur er.“
Karlarnir latir
í húsnæði aldraðra við Lönguhlíð
í Reykjavík hittum við Soffíu Stef-
ánsdóttur íþróttakennara sem þjálf-
ar þar hópa tvisvar í viku og hún
kemur reyndar víðar við en þar:
„Ég byijaði fyrir 20 árum í Norð-
urbrún þegar sú hugmynd kom fram
að bjóða öldruðum upp á skipulagða
hreyfingu eða leikfimi og það höfðu
nú ekki margir trú á því þá að þetta
yrði notað. Fyrst var einn tími í viku
en fljótlega urðu þeir fleiri og nú
er boðið upp á svona leikfimi á 13
eða 14 stöðum í Reykjavík. Það
þarf hins vegar að koma körlunum
betur af stað, þeir eru of latir og
nenna varla í leikfími en þurfa þess
þó ekkert síður en konurnar."
Hvernig fer venjulegur tími fram?
„Við byijum á léttum æfingum,
hreyfum öll liðamót frá tám og upp
í höfuð og notum mikið stólana til
að styðjast við. Þegar menn eru
orðnir vel heitir og liðugir notum
við kannski bolta, bönd eða annað
sem gerir æfingarnar kannski
skemmtilegri og stundum eigum við
til að stíga nokkur dansspor og við
notum alltaf tónlist í tímunum.
Hluti af ánægjunni er líka sá fé- .
lagsskapur sem fólkið fær hvert
með öðru og að loknum tímanum
fara allir saman í kaffi og hef ég
orðið vör við að þessi hreyfing hefur
mikla þýðingu fyrir fólkið. Sumir
hafa verið í tímum hjá mér frá upp-
hafi og eru orðnir mun liðugri og
léttari á sér þótt þeir hafi kannski
elst um 20 ár. Það sýnir bara að
hreyfíngin gerir þeim gott,“ segir
Soffía að lokum.
Var eins og spýtukarl
Og það eru ekki allt unglömb í
tímunum hjá Soffíu því þarna var
til dæmis Vilhjálmur Hallgrímsson
sem er orðinn 94 ára og hafði ekki
mikið fyrir æfíngunum frekar en
aðrir í hópnum:
„Ég mæti alltaf tvisvar í viku og
tek þessar ákveðnu æfingar. Það
er reynt að hreyfa allan skrokkinn
enda er það alveg nauðsynlegt fyrir
okkur og þetta er ekkert annað en
fyrirbyggjandi starf. Ég bý nú hérna
við Lönguhlíðina og við sitjum mik-
ið og föndrum óg dundum eitthvað
þannig og hreyfum okkur ekki mik-
ið. Mér fannst ég eiginlega vera
orðinn eins og spýtukarl eftir að
hafa dvalist hérna um skeið!“
Vilhjálmur var til sjós og starfaði
síðan lengst af sem rafvirki og var
því ekki beint kyrrsetumaður: „Ævi-
starfið skiptir ekki miklu máli þegar
ellin er annars vegar því hreyfingar-
leysið leggur alla í rúmið fyrr eða
síðar og því er ekki síður nauðsyn-
legt fyrir mig en aðra að stunda
þessa leikfimi. Og mér fínnst ég
ekki lengur vera eins og spýtukarl
- nú er þetta allt annað og ég hætti
ekki í tímunum hjá Soffíu fyrr en
í fulla hnefana," segir Vilhjálmur
og var þotinn.
LANDSBANKAHLAUPIÐ
Hlaupið á 37 stöðum á landinu
LANDABANKAHLAUPIÐ hefur verið hald-
ið undanfarin ár og þátttaka farið vaxandi,
en að þessu sinni er það haldið í áttunda
sinn, sem samstarfsverkefni Landsbankans
og Frjálsíþróttasambands íslands, laugar-
daginn 22. maí.
Hlaupið verður á
37 stöðum á
landinu, þar sem
útibú bankans
eru, og hefst
hlaupið víðast
kl. 11.00. Á
liðnu ári hlupu
5380 krakkar á
34 stöðum vítt og breitt um landið, þannig að
búist er við meiri þátttöku í ár.
Rétt til þátttöku hafa allir krakkar á aldrinum
10 til 13 ára og er þeim skipt í riðla eftir aldri
og kyni. Allir þátttakendur fá viðurkenningar-
skjal og derhúfu og hressingu að loknu hlaupi,
en að auki fá þrír fyrstu hlaupararnir í hverjum
riðli verðlaunapening. Þátttakendur þurfa að
láta skrá sig í næsta Landsbankaútibúi, þar
verða afhent rásnúmer og upplýsingar um
hlaupið.
Landsbankahlaupið,
í Laugardal, Reykjavík
22. maí 1993
Annars staðar á landinu:
Gervigrasvöllur
Börn fædd
1980 og 1981
Gervigrasvöllur
Börn fædd
1982 og 1983
Seltjarnarnes
Kópavogur
Hafnarfjörður
Keflavík
Sandgerði
Grindavík
Akranes
Reykholt
Hellissandur
Ólafsvík
Grundarfjörður
Króksfjarððarnes
Patreksfjörður
Tálkafjörður
Bíldudalur
ísafjörður
Skagaströnd
Sauðárkrókur
Akureyri
Húsavík
Kópasker
Raufarhöfn
Vopnafjörður
Seyðisfjörður
Egilsstaððir
Neskaupstaður
Eskifjörður
Reyðarfjörður
Fáskrúðsfj örður
Stöðvarfjörður
Breiððdalsvík
Djúpivogur
Hornafjörður
Kirkjubæjarklaustur
Vík í Mýrdal
Hvolsvöllur
Eyrarbakki
Stokkseyri
Selfoss
Þorlákshöfn
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. MAI 1993
€~~7
Trimmhópar á höfuðborgarsvæðinu
ÞEIR SEM hafa áhuga á að njóta hollrar hreyfingar í hressum félags-
skap eiga þess kost á ýmsum svæðum, því að starfandi eru nokkrir
trimmhópar sem hittast reglulega og hlaupa, ganga eða skokka.
Félagarnir eru á öllum aldri og nýliðar alltaf velkomnir, en nánari
upplýsingar um einstaka hópa máfá í samtökunum Iþróttir fyrir alla
í íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Á meðal trimmhópa eru:
Hlaupafélag Vesturbæjar
Hlaupið er kl. 18.30 á mánudögum,
miðvikudögum og föstudögum og
hefst það við sundlaug Vesturbæjar
og lýkur því á sama stað. Vega-
lengdirnar eru 3, 5, 7 og 10 km.
Umsjón hefur Ólafur Þorsteinsson.
Hlaupahópur Grafarvogs
í Grafarvoginum er hlaupið á mánu-
dögum og miðvikudögum kl. 17.30
og á laugardögum kl. 10.00. Hlaup-
ið hefst við Hamraskóla og eru
vegalengdir 1-8 km. Erla Gunnars-
dóttir hefur umsjón með hlaupa-
hópnum. Þess má geta að laugar-
daginn 22. maí ætlar Grafarvogs-
hópurinn að fara í Heiðmörk og
hlaupa þar.
Trimmklúbbur Breiðholts
Hlaupið er frá Gerðubergi á mánu-
dögum og miðvikudögum kl. 17.30,
hlaupið niður í Víðidal, aftur til
baka og farið í heita pottinn á eft-
ir. Vegalengdir eur 2, 3 og 6,5 km.
Sigríður Níelsdóttir hefur umsjón
með hópnum.
Skokkklúbbur Mosfellsbæjar
Hlaupið er á mánudögum og mið-
vikudögum kl. 19.30, föstudögum
kl.18.00 og laugardögum kl. 10.00
frá Varmárlaug. Vegalengdir eru
3-10 km. Umsjón með hópnum
hefur Anna Gísladóttir.
Trimmklúbbur við KR-heimilið
Hlaupið er á mánudögum og mið-
vikudögum kl. 18.00. í tilefni
heilsuvikunnar verður kynningar-
fundur í Félagsheimili KR við
Frostaskjól kl. 13.00 laugardaginn
22. mái. Á mánudag, 24. maí, verð-
ur göngupróf/þoipróf við heimilið
kl. 18.15 og á miðvikudaginn 26.
maí verður ganga/skokk frá KR-
heimilinu kl. 18.15. Umsjón með
hópnum hefur Páll Ólafsson.
Trimmhópur Hafnarfjarðar
Starfsemi þessa hóps er nýhafin,
en leiðbeinandi er Páll Ólafsson,
íþróttakennari. Hópurinn hittist í
Kaplakrika á þriðjudögum og
fimmtudögum kl. 18.15 og er bæði
skokkað og gengið.
Trimmklúbbur Seltjarnarness
Hlaupið er frá Sundlaug Seltjarnar-
ness á mánudögum og miðvikudög-
um kl. 17.30 og á laugardögum kl.
11.30, en til stendur að flytja laug-
ardagstímann fram til kl. 10.00.
Vegalengdir eru 3-20 km. Þess
má geta að trimmklúbbur þessi er
sá fyrsti sem fór af stað.
Sumarnámskeið
í Reykjavík '93
Foreldrar - kynnið ykkur sumarnámskeið
fyrir börn og unglinga sem í boði eru
á vegum íþrótta- og tómstundaráðs, íþróttafélaga
og samtaka í Reykjavík.
Allar upplýsingar um fjölbreytni námskeiða,
tímabil og kostnað er að finna í bæklingnum
„SUMARSTARF í REYKJAVÍK '93“ sem dreift var í
grunnskólum og leikskólum borgarinnar í vor.
Skráning er þegar hafin
á flest námskeiðana.