Morgunblaðið - 20.05.1993, Qupperneq 12
12 C
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. MAÍ 1993
HEILSUVIKAN
Þorlákshöfn
Weetabix i
Þorlákshafnarbúar ætla ekki að láta sitt eftir liggja meðan á heilsu-
vikunni stendur og á Ungmennafélagið Þór í samstarfi við IFA um
þau mál. Einnig hefur hreppsnefnd Olfushrepps ákveðið að styrkja
framtakið.
Dagskráin er eftirfarandi:
Fimmtudaginn 20 maí er
sundleikfimi kl. 19.30 og kl. 20.15
verður farin gönguferð
frá_ íþróttamiðstöðinni.
Á föstudag, sem er
hjólreiðadagur fjöl-
skyldunnar verður farin
hjólreiðaferð frá íþrótt-
amiðstöðinni kl. 20.00.
Einnig verður boðið upp
á göngu og skokk.
Á laugardag hefst
Landsbankahlaupið kl.
10.00 og í framhaldi af
því eru allir hvattir til að mæta í
sundlaugina og synda 200 metrana.
Á sunnudag fer fram áheitasund
Þórs. Á mánudag verður skokk og
ganga frá íþróttamiðstöðinni kl.
20.00. Einnig hópleikfimi, sem fer
fram innan dyra eða utan eftir veðri.
Þriðjudaginn 25. maí
verður í sundlauginni
boðið upp á kennslu og
tilsögn í sundi fyrir þá
sem þess óska og laugin
lokuð fyrir aðra gesti á
meðan, eða frá kl. 21.00.
Einnig verður boðið upp
á tilsögn í lyftingatækj-
um kl. 20.00 og í bad-
minton á sama tíma.
Á lokadegi heilsuvi-
kunnar verður svo ganga, skokk,
sund og þrektækni, auk þess sem
víðavangshiaup Þórs verður þá hald-
ið kl. 20.00.
Seltjamames
ÞEIR ÍBÚAR Selijarnarness sem hafa hug á hollri hreyfingu geta stund-
að slíkt með ýmsu móti á heilsuvikunni, en aðaldagskráin þar er á
þremur dögum.
Föstudaginn 21. maí verður morg-
unleikfimi í íþróttamiðstöð Sel-
tjarnamess kl. 7.00-8.00 og vatns-
leikfimi í Sundlaug Seltjarnarness á
milli kl. 14.30 og 15.15. Á Eiðistorgi
mun svo starfsfólks Heilsugæslu-
stöðvarinnar, auk fulltrúa frá
íþróttahópum, vera með kynningu
og ráðgjöf á milli kl. 16.00 og 18.00
í Hagkaup.
Laugardaginn 22. maí, hefst
Neshlaup TKS og Gróttu kl. 12.00.
KI. 13.00 verður synt í Sundlaug
Seltjamarness.
Mánudaginn 24. maí fara trimm-
og gönguhópar frá Sundlaug Sel-
tjamamess kl. 17.30 og verður kom-
ið aftur um kl. 19.00. Gönguhópurinn
Göngugarpar leggur svo af stað frá
sundlauginni kl. 19.00 í klukkutíma
göngu, en kl. 20.00 verður vatnsleik-
fimi í sundlauginni og stendur til kl.
20.30.
Loks verður morgunleikfimi í
íþróttamiðstöð Seltjarnarness á
þriðjudagsmorgun frá kl. 7.10 - 8.00.
Úrval af RUNWAY jogging- og æfingagöllum
á börn og fullorðna. Polyamid gallar og
vindheldir og vatnsfráhrindandi Microfiber
gallar, sem „anda“, á góðu verði.
RUNWAY•
Útsölustaðir: Útilíf, Glæsibæ Sportbúð Óskars, Keflavík
Sportval, Kringlunni Akrasport, Akranesi
Hummelbúðin, Ármúla 40 Sporthúsið, Akureyri
Heildsöludreifing
gquaAspopt
sími 688085.
Háir sem lágir, mjóir sem breiðir, ungir sem aldnir
þurfa Weetabix til að halda athygli sinni og
starfsgleði í erli dagsins.
ÞÚ KEMST LANGT Á EINNI KÖKU.
TREFJARIKT
ORKURIKT
FITUSNAUTT
HOLLT OG GOTT
( EINNIG Á SUNNUDÖGUM )
ÖRKIN 1012-