Morgunblaðið - 07.09.1993, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. SEPTEMBER 1993
11
Frá æfingn hluta þeirra 60 tónlistarmanna sem þátt taka í óperunni. Morgunbiaðið/Knstinn
Orfeo flutt í Langholtskirkju
eftir Gunnstein
*
Olason
Goðsögnin um Orfeus og Evridísi
hefur lengi verið skáldum og lista-
mönnum yrkisefni. Tónskáldið
Claudio Monteverdi gerði sér mat
úr henni fyrir tæpum 400 árum í
óperunni Orfeo sem flutt verður á
tónleikum í Langholtskirkju næsta
fimmtudag og laugardag, 9. og 11.
september. Flytjendur verða Bac-
hsveitin í Skálholti, svissneska blás-
arasveitin Cometti con crema,
sönghópamir Hljómeyki og Voces
Thules og tólf einsöngvarar. Alls
taka um sextíu manns þátt í flutn-
ingnum.
Aðalhlutverkið syngur ungur
þýskur tenórsöngvari, Hans Jörg
Mammel, en hann kom nýlega fram
á Monteverdi-hátíðinni í Utrecht í
Hollandi. Þá syngja m.a. Rannveig
Sif Sigurðardóttir, Þórunn Guð-
mundsdóttir, Tómas Tómasson,
Ragnar Davíðsson, Erna Guð-
mundsdóttir og Guðlaugur Viktors-
son. Stjórnandi tónleikanna verður
Gunnsteinn Ólafsson.
Á tónleikunum í Langholtskirkju
verður aðeins leikið á upprunaleg
hljóðfæri, þ.e. hljóðfæri frá 16. og
17. öld. Áuk íslenskra tónlistar-
manna koma ellefu erlendir hljóð-
færaleikarar til landsins og leika á
hljóðfæri sem flest eru ekki til hér
á landi. Lútuleikarar koma frá Hol-
landi og Þýskalandi, barokkbásúnu-
og zinkleikarar frá Sviss og barokk-
hörpuleikari kemur frá Italíu. Þá
hljómar á tónleikunum í fyrsta
skipti hér á landi tunguraddorgel
(regal) en slíkt hljóðfæri er ómiss-
andi í undirheimaatriðum óperunn-
ar.
Um þessar mundir eru liðin 350
ár frá andláti tónskáldsins. Af þessu
tilefni hafa óperuhús víða um heim
tekið óperur hans til sýninga, ekki
síst á Italíu. í Bologna var síðasta
ópera Montverdis, Krýning Poppeu,
sýnd í upphafi þessa árs. Gunn-
steinn Ólafsson, stjórnandinn í
Orfeo, fylgdist með á æfingum þar
og kynntist jafnframt enskum tón-
listarmönnum og kennurum sem
fræddu hann um tónlist Montverd-
is, en hún er mjög frábrugðin þeirri
tónlist sem við eigum að venjast.
Óperur Montverdis eru yfirleitt að-
eins skrifaðar í tveimur línum, önn-
ur er laglína söngvarans en hin er
bassalínan. Undirleikshljóðfærin
eru ákveðin hveiju sinni af stjórn-
anda óperunnar en hljóðfæraleikar-
_________Tónlist_____________
Jón Ásgeirsson
Tenórsöngvarinn Gunnar Guð-
björnsson og Jónas Ingimundarson
píanóleikari héldu tónleika í ís-
lensku óperunni sl. sunnudag. Á
efnisskránni voru söngverk eftir
Emil Thoroddsen, Jóhann Strauss,
Lehár, Peterson-Berger, Verdi,
Bizet, Massenet og Cilea.
Tónleikarnir hófust á lögum eft-
ir Emil Thoroddsen og þar gat að
heyra gama vini eins og I fögrum
dal, Smalastúlkan, Litfríð og ljós-
hærð, Til skýsins, mikið meistara-
verk, sem Gunnar söng afburða vel
og tvö lög, Sáuð þið hana systur
mína og Kveðja, sem eru minna
þekkt. Auðheyrt ér af tveimur síð-
ast nefndu lögunum, að Emil reyn-
ir að ryðja sér leið út úr rómantík-
inni. Þessi lög eru mjög sérkennileg
og er Kveðja upphaflega samið við
þýskan texta. Öll lög Emils voru
arnir sjá um að útfæra undirleikinn
samkvæmt bassalínunni. í prentaðri
útgáfu Orfeos getur Montverdi þess
þó hvaða hljóðfæri hafi verið notuð
við flutning óperunnar og farið er
eftir þeirri hljóðfæraskipan á tón-
leikunum í Langholtskirkju.
Óperur Montverdis lágu svo til
ósnertar eftir hans dag og fram á
þessa öld. Á sjöunda áratugnum
kom Orfeo út á hljómplötu með
upphaflegúm hljóðfærum og þegar
óperan var sett á svið í Zúrich fáum
árum síðar hófst sigurganga verka
ntverdis í óperuhúsum um allan
heim.
Höfundur er hljómsveitarstjóri.
ágætlega flutt en líklega mætti
syngja Sáuð þið hana systur mína
nokkuð hægar en þeir gerðu, félag-
arnir og fá þannig fram meiri leik-
andi glettni. Raddmunurinn, sem
kom fram í lögunum Litfríð og ljós-
hærð og Til skýsins er athyglisverð-
ur og er í raun til vitnis um radd-
möguleika Gunnars. Hann er að
sækja sér styrk en varðveitir um
leið mýktina, fallega, heilbrigða og
hreina.
Gondólasöngurinn úr Nótt í Fen-
eyjum eftir Strauss og þijú lög
eftir Lehár, eitt úr Paganini, annað
úr Der Zarewitsch og þriðja úr
Giuditta voru vel sungin en Volga-
ljóðið úr Der Zarewitsch, var ein-
staklega vel sungið, þrungið alvöru
og sterkri túlkun. Fyrir utan að
söngur Gunnars er ,að styrkjast,
hefur hann þroskast sem túlkandi
listamaður og lék auk þess oft með
margvísleg og falleg blæbrigði á
einstaklega smekklegan máta.
Glæsilegnr söngnr
Japanskur
kammerkór
________Tónlist
Ragnar Björnsson
Forvitnilegt var að kynnast
þrettán japönskum söngvurum í
Norræna húsinu sl. föstudagskvöld
og fróðlegt að kynnast meðferð
þeirra á norrænum alþýðulögum.
Þjóðtunga, hverrar þjóðar hún er,
skapar vissast söngstíl og beitingu
raddarinnar í söng. Samkvæmt
vestrænum skilningi á söngröddum
er tæplega hægt að tala um að hér
hafi verið um þjálfað söngfólk að
ræða, raddirnar hljómlitlar, tónn-
inn oft ekki hreinn né stöðugur.
Það sem einnig gerði kórnum erfitt
fyrir að mynda hreinan hljóm var
að einungis þrír karlar skiptu með
sér tenór og bassa, en til þess að
slíkt gangi upp þarf til þrautþjálfað
og gott söngfólk. Svo furðulegt
sem það er, þá hefur þessi jap-
anski hópur einbeitt sér að nor-
rænni kórtónlist og er nú á tón-
leikaferð um Norðurlönd með nor-
ræna efnisskrá í farteskinu. Þrátt
fyrir „raddleysi" og þrátt fyrir oft
óhreina hljóma og þrátt fyrir stund-
um skakkar nótur var forvitnilegt
að heyra hvem skilning þessar nær
því andfætlingar okkur lögðu í Ár
vas alda, Heyr himnasmiður, Vaar-
en, ísland farsælda frón, Brude-
færden i Hardanger, Faar jag
lámna nasgra boomor, Den första
gaang og Einki er sum summar-
kveld við strendur, sungið á viðeig-
andi tungum, sem áheyrendum
hefði eins getað heyrst japanska,
á stundum. Án þess, því miður, að
maður hafí nokkurn tíma fengið
tækifæri til að heimsækja Japan,
fékk maður á tilfínninguna að vera
staddur í japönsku tehúsi, þar sem
skórnir eru skildir eftir fyrir utan,
áður en gengið er inn og jafnvel
að hvíslið getur orðið of hávært.
Stjómandi kórsins heitir Shozo
Ohtsuka, stjórnaði með vinstri
hendinni og brá sér inn í raðir kórs-
ins á stundum og söng bassann,
en það var í þeim tilvikum þegar
hópnum var fækkað niður í 8
manns, en þannig var söngleg
frammistaða kórsins einna best.
Þessi söngglaði og sympatíski hóp-
ur lauk söngskemmtuninni með
nokkrum aukalögum. Gjarnan
hefði maður kosið að heyra gamla
þjóðlega japanska kórtónlist,
kannske verður það næst?
Gunnar - Jónas
Fjögur sænsk söngverk, tvö eftir
Peterson-Berger og tvö þjóðlög
voru fallega sungin en þó sérstak-
lega Allt under himlens fáste.
Síðustu fimm söngverkin á efnis-
skránni voru óperuaríur; De’miei
bollenti spiriti (La Traviata) eftir
Verdi, Rómansa (Perlukafararnir)
eftir Bizet, Le Réve (Manon) eftir
Massenet, Recondita armonica
(Tosca) eftir Puccini og É la solita
storia (Stúlkan frá Arles) eftir
Cilea.
I þeim sýndi Gunnar þá miklu
breidd er hann ræður þegar yfir í
raddtækni. Hann söng rómönsuna
eftir Bizet og Drauminn eftir
Massenet mjög veikt en í Recond-
ita, eftir Puccini, lék hann sér að
sterkri dramatískri túlkun og
sömuleiðis í síðustu aríunni, É la
solita storia, eftir Cilea en þar var
söngur hans sérlega tilþrifamikill
og glæsilegur.
Raddleikni og túlkunartækni
Gunnars er þegar mikil en það er
til merkis um það hversu mikill
hæfileikamaður er hér á ferðinni,
að á leikur ekki vafi, að Gunnar á
enn eftir að vaxa sem listamaður
og þá...
Hlut að þessum frábæru tónleik-
um átti Jónas Ingimundarson
píanóleikari en hann á það til, þeg-
ar hann leikur undir söng, að leika
sig inn í sönginn og í rauninni
syngja með, eins t.d. í Vögguvís-
unni og Til skýsins, eftir Emil og
í Verdi aríunni. Þá var leikur Jónas-
ar aldeilis vel útfærður í tveimur
lögum af lögum Emils, nefnilega í
Sáuð þið hana systur mína og her-
mannakveðjunni. í rauninni er
óþarfi að tilgreina nokkuð sérstakt
því söngur Gunnars og leikur Jón-
asar var listviðburður, sem vert er
að geyma sér vel í minni.
SIEMENS
Með SIEMENS heimilistœkjum verður lífið léttara!
Traustir umboðsmenn okkar eru víðs vegar um landið!
• Akranes: Rafþjónusta Sigurdórs, Skagabraut 6.
• Borgarnes: Glitnir, Fálkakletti 13.
• Borgarfjöröur: Rafstofan Hvítárskála.
• Hellissandur: Verslunin Blómsturvellir, MunaÖarhóli 25.
• Grundarfjöröur: Guðni Hallgrímsson, Grundargötu 42.
• Stykkishólmur: Skipavfk, Hafnargötu 7.
• Búöardalur: Versl. Einars Stefánssonar, Brekkuhvammi 12.
• ísafjöröur: Póllinn hf„ Aðalstræti 9.
• Biönduós: Hjörleifur Júlíusson, Ennisbraut 1.
• Sauðárkrókur: Rafsjá hf„ Sæmundargötu 1.
• Siglufjöröur: Torgið hf„ Aðalgötu 32.
• Akureyri: Ljósgjafinn, Ráðhústorgi 7a.
Húsavík: öryggi sf„ Garðarsbraut 18a.
Þórshöfn: Norðurraf, Langholti 3.
Neskaupstaöur: Rafalda hf„ Hafnarbraut 24.
Reyöarfjöröur: Rafnet, BúÖareyri 31.
Egilsstaöir: Raftækjav. Sveins Guðmunds., Kaupvangi 1.
Breiðdalsvík: Rafvöruv. Stefáns N. Stefánss., Asvegi 13.
Höfn í Hornafirðh Kristall, Hafnarbraut 43.
Vestmannaeyjar: Tréverk hf„ Flötum 18.
Hvolsvöllur: KaHpfélag Rangæinga, Austurvegi 4.
Selfoss: Árvirkinn hf„ Eyrarvegi 29.
Garöur: Raftækjav. Sigurðar Ingvarssonar, Heiðartúni 2.
Keflavik: Ljósboginn, Hafnargötu 25.