Morgunblaðið - 07.09.1993, Qupperneq 16
16
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. SEPTEMBBR 1993
h
i i i « i i i i i i i i i in
1 Ail I
J j| I1
i 1 saiassál
, <
1 1 1
PLAN HVÍTT
RAÐINNRÉTTING /
Gféfóaöfó
BÆJARHRAUNI 8, HAFNARFIRÐI, SlMI 651499
STUTTUR AFGREIÐSLUTÍMI
GÓÐ GREIÐSLUKJÓR
CITIZEN
Citizen 120D+
9 nála nótuprentari
Citizen Swift 90
9 nála iitaprentari
kr. 39.900-
Citizen Swift 240
24 nála litaprentari
Tæknival
Skeifan 17, síml 681665
Umboösaöíli fyrir Citizen
prentara og rekstrarvörur
Þ.Þ0RGR(MSS0N&C0
Ármúla 29, Reykjavík, sími 38640
í hlekkjum hug’arfarsins
eftir Einar
Þorsteinsson
Nú eftir að búið er að baldera
þjóðina allrækilega og gefa henni
tækifæri til þess að fá tilfinningaút-
rás fyrir fortíðarvanda, sem skiptir
auðvitað engu máli í nútímanum, er
kominn tími til þess að huga að
þeim hlekkjum hugarfarsins, sem
gætu, ef illa færi, dregið allar tenn-
urnar úr lýðveldinu Islandí.
Eins og svo oft áður var baldering
þjóðarinnar „leyfileg" vegna þess að
hún snerti ekki stundarhagsmuni
neins, en kristallaði einungis gömul
átök um valdið, sem smám saman
færðist frá bændastéttinni til
margra annarra stétta. Sama þróun
hefur fyrir löngu átt sér stað í lang-
flestum vestrænum ríkjum en öfugt
við þau, þar sem hún hefur haft í
för með sér fjölbreyttan vaxtarbrodd
í mörgum nýjum framleiðsiugreinum
og um leið sterka atvinnumenningu,
hefur þessi valdatilfærsla ekki haft
í för með sér skapandi atvinnustarf-
semi hjá okkur. Þetta er umhugsun-
arefni.
Núverandi ástand
Á ytra borðinu sýnist menning
okkar vera hin sama og í öðrum
vestrænum löndum, þ.e. ef mælt er
í tólum og tækjum. Og því er það
ekki endilega augljóst öllum að al-
varlegir vankantar séu fyrir hendi í
afkomukerfi lýðveldisins íslands.
Með öðrum orðum, að þjóðin sé í
hlekkjum hugarfars, sem virðist á
góðri leið með að stöðva efnahags-
lega menningu hennar.
Það er ekki fyrr en nú á síðustu
árum að hugsandi fólk í mörgum
stéttum, sem er búið að fá nóg af
„vitleysunni", hefur beint umræðu
sinni og ígrundun að samsetningu
mála hér á atvinnusviðinu: Tímabili
byltingar í hráefnisöflun, öðru nafni
fiskveiðar, sem hófst fyrir u.þ.b. 90
árum, er lokið, án þess að nokkuð
annað komi í þess stað. Þess er að
vænta að hráefnisöflunin verði
áfram ein af stoðum efnahagslífsins,
ef skynsamlega er staðið að stjórnun
hennar, en sem atvinnuskapandi at-
hafnasvið bæði beint og keðjuverk-
andi, er henni lokið. Þetta tímabil
fljóttekins gróða hefur án eða átt
dijúgan þátt í því að loka fyrir þá
hugsun, að gera þyrfti ráðstafanir
til þess að annað tæki við. Nú er
vaknað upp við vondan draum.
Viðbrögð seinustu ára, t.d. lausn-
ar á vanda þjóðfélagsafkomunnar
eru allar eins konar patentlausnir.
Gælt hefur verið við álverksmiðjur,
fisk- og loðdýraeldi svo fátt eitt sé
nefnt og nú síðast rafmagnssölu um
sæstreng til markaðarins. Megin-
undirstaða þeirrar barnalegu hugs-
unar, að nóg sé að redda málunum
um stundarsakir, er svo vestræna
trúin á sífellt áframhaldandi hag-
vöxt, sem eins konar náttúrulögmál.
Mannkynssagan segir okkur allt
annað og auk þess segja okkur öll
mæltitæki hagkerfisins að vaxtar-
skeiði eftirstríðsáranna lauk í síðasta
lagi fyrir u.þ.b. tíu árum. Samdrátt-
ur er um allan heim, sem ekki sér
fyrir endánn á. Ný og afgerandi
tækni, sem vaxtarbroddur nýrrar
uppsveiflu, hefur ekki komið fram
síðan á fimmta áratugnum
(1950-60) sem var þá leisergeisla-
efni, gerfitungl og geimrannsóknir.
Þetta mun í fyrsta sinn í sögu iðn-
byltingarnnar að 40 ár líði án nýs
stig tækniframþróunar allar götur
síðan 1760, já sautjánhundrað og
sextíu. Tölvur, radar, transistor og
kjarnorkan er frá árunum 1940-50.
Upplýsingu vantar
Það eru þessir þættir sem snerta
vankanta okkar eigin þjóðfélagsaf-
komu og stöðugt meiri samdrátt í
efnahag heimsbyggðarinnar, sem
þarf að gera þjóðinni ljósa, þannig
að hún hafi ráðrúm til þess að bijóta
Einar Þorsteinsson
„Tímabili byltingar í
hráefnisöflun, ööru
nafni fiskveiðar, sem
hófst fyrir u.þ.b. 90
árum, er lokið, án þess
að nokkuð annað komi
í þess stað.“
af sér hugarfarshlekkina áður en
það er um seinan. Vitaskuld er hér
ekki verið að tala um skyndilausnir
eða átaksleiðina alíslensku heldur
margra ára umþóttunarskeið. En
hvert skref í þessa átt mun skila
árangri að lokum. Það mætti orða
það þannig að öll þjóðin þurfi að
fara í meðferð hugarfarsins.
Framtíðarmöguleikar
En hvert skyldi þá stefna, eftir
að við gerðum okkur ljósar þær
ranghugmyndir sem hér eru ríkj-
andi? Lausnirnar munu örugglega
koma sjálfkrafa þegar takmarkanir
þess eigin báss, sem við höfum nú
markað okkur, era rifnar niður.
Skilningur á lögmálum tilvistarinnar
og bein notkun á þeim mun örugg-
lega ekki skaða að heldur.
Heimsmyndarlögmál
Það má styðja það með góðum
rökum, þegar þróunarsaga jarðlífs-
ins er skoðuð, að sterkasta einkenni
sérhvers þáttar hennar sé að „fram-
leiða“ sífellt háþróaðra svið efnis og
anda. Þetta virðist unnt með inn-
byggðum óstöðugleika hvers kerfis
fyrir sig. Ný þróun verður til eftir
að viss óregla kemur fram hjá eldra
þróunarskeiðinu. Óreiðan leiðir af
sér nýja reglu og síðan koll af kolli.
Þessi rökstyðjanlega heimsskoðun á
sér vissulega andmælendur í stóra-
hvells áhangendum, en lýsum frati
á þá samsuðu hér með.
Það þarf því engin þjóð að ör-
vænta, þó að í visst óefni sé komið,
svo fremi sem hún heldur sönsum
og leitar markvisst nýrra leiða, sem
byggjast á æðsta stigi þróunarkeðj-
unnar: Hugviti. Hugvitslausnum til
bjargar úr nýjum aðstæðum, sem
ógna tilveru hennar.
Hlekkir hugarfarsins
Þeir sem hér era gerðir að umtals-
efni, hafa myndast með þjóðinni af
ýmsum orsökum, sern of langt mál
er að telja hér upp. í grundvellinum
felast þeir í því að hugviti er stöð-
ugt afneitað, hvort heldur sem er
af akademískum eða svokölluðum
bijóstvitstoga. Eins og áður sagði
er þetta gert í skjóli þess sjáanlega
árangurs hinnar sögulegu iðnbylt-
ingar, sem við höfum til afnota
ásamt öðrum þjóðum: Hraðskreið
farartæki, vélvæðingu, rafvæðingu,
fjarskipti, upplýsingamiðlun og tölv-
ur.
Gleymum því ekki að þessi árang-
ur er allur afleiðing hugvits annarra
en okkar. Og það er beinlínis hættu-
legt að álykta sem svo eða venja
okkur við það, að við komumst full-
vel af án þess að nota snefil af hug-
viti. Á þann hátt vinnur þjóðin á
móti þeim lögmálum, sem hafa skap-
að nútímamenningu og slíkt mun
aðeins leiða af sér staðnað þjóðfé-
lag, sem á endanum verður stjórnað
utan frá: Mannkynsagan ber vitni
um það.
Höfundur er hönnuður.
Kennsla hefst
20. sept.
Byrjendur
frá 4ra ára.
4 Jfc Innritun
Ballettskóli ik ^ í síma 38360
Eddu frá kl. 15-19.
W\ Afhending skírteina
cneving \7J 17.ogi8.sept.
Skúlatúni 4 tlákl. 1M8.
Innritun og upplýsingar í síma 38360.
STÓRAR, SMÁAR, ÖFLUGAR,
VANDAÐAR, RYÐFRÍAR,
ALHLIÐA...
DÆLUl
# LOWARA
= HÉÐINN =
VERSLUN
SELJAVEGI 2 SÍMI 91-624260
Þú þarft ekki aðfara annað þegar
þig vantar dœlur.
i
i
»
I
i
»
1
»
I
i
»
»
Í
»
I-