Morgunblaðið - 07.09.1993, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. SEPTEMBER 1993
Fulltrúi Framsóknarflokks í stjórn Innkaupastofnunar Reykjavíkurborgar
Borgarráð markí skýra
stefnu varðandi útboð
STJÓRN Innkaupastofnunar Reykjavíkurborgar hefur sam-
þykkt,, að fresta afgreiðslu á tillögn gatnamálastjóra um heim-
ild fyrir lokuðu útboði á byggingu dælu- og hreinsistöð fyrir
skólp við Ánanaust í Reykjavík. Fulltrúi Framsóknarflokks í
stjórninni vill að borgarráð marki skýra stefnu varðandi verk-
taka og á meðan verði hafnfirskum verktökuin ekki boðin
þátttaka í útboðum á vegum borgarinnar.
í tillögu gatnamálastjóra er
gert ráð fyrir að fjórum fyrirtækj-
um, Alftárósi hf., Ármannsfelli
hf., Byggðaverki hf. og ístaki
hf., verði gefinn kostur á að bjóða
í verkið.
Hafnfirskir hagsmunir
Alfreð Þorsteinsson, fulltrúi
Framsóknarflokks í stjórn Inn-
kaupastofnunar Reykjavíkur-
borgar, lagði fram bókun þar sem
vakin er athygli borgarráðs á
þeirri ákvörðun bæjaryfirvalda í
Hafnarfirði að úthluta fyrirtæk-
inu Hagvirki-Kletti hf. án útboðs
verkefni við holræsagerð, sem
samkvæmt áætlun nemur á þriðja
hundrað milljónum króna, með
þeim rökstuðningi að verið sé að
gæta hagsmuna hafnfirskra laun-
þega.
Sami markaður
Þá segir: „Þar sem Innkaupa-
stofnun Reykjavíkurborgar hefur
litið á svonefnt stór-Reykjavíkur-
svæði sem sameiginlegan vinnu-
markað, tel ég, að þessi vinnu-
brögð meirihluta bæjarstjórnar
Hafnarfjarðar hljóti að vekja
borgarráð til umhugsunar um
stefnu borgaryfirvalda gagnvart
hafnfirskum verktakafyrirtækj-
um.
Ég tel rétt, að borgarráð marki
Innkaupastofnun skýra stefnu
vegna þessara breyttu aðstæðna
og að á meðan verði frestað að
bjóða hafnfirskum verktakafyrir-
tækjum aðgang að verkefnum
fyrir Reykjavíkurborg.“
McDonald’s innheimtir
ekki gjöld til stéttarfélaga
Lögsókn og aðrar aðgerðir til umræðu á formannafundi ASÍ
LÖGSÓKN og fleiri hugsanlegar aðgerðir gegn Lyst hf., leyfishafa
McDonald’s á Islandi, verða til umræðu á fundi formanna landssam-
banda Alþýðusambands Islands, sem kallaður hefur verið saman i
dag vegna þess að Lyst hf. hyggst ekki gera kjarasamninga við
verkalýðsfélög. Fyrirtækið hyggst ekki halda eftir gjöldum til stéttar-
félaga af launum starfsmanna sinna og telur Alþýðusambandið það
lögbrot. Forsvarsmenn McDonald’s-veitingahússins segja hins vegar
að fyrirtækið sé ekki aðili að samtökum vinnuveitenda og þurfi því
ekki að sjá um „skrifstofustörf" fyrir verkalýðsfélögin.
Fulltrúar Alþýðusambandsins, leiðrétta þau strax. Það er heldur
Félags starfsfólks í veitingahúsum
og Lystar hf. áttu með sér fund í
gær. Að sögn Ingvars Ásgeirsson-
ar, ráðningarstjóra Lystar, var
fundurinn gagnlegur og afstaða
beggja aðila skýrðist. „Við erum
að fara yfir skilgreiningar okkar á
starfskjörum og ef við finnum ein-
hver mistök hjá okkur munum við
ekki ætlun okkar að bijóta á okkar
fólki,“ sagði hann. „Ef þessi ágrein-
ingur verður ósættanlegur, vona ég
að hægt verði að leysa hann á frið-
samlegan hátt fyrir dómstólum."
I 6. grein starfskjaralaga frá
1980 segir: „Öllum atvinnurekend-
um er skylt að greiða í sjúkrasjóði
og orlofssjóði viðkomandi stéttarfé-
Yfirlýsing McDonald’s
VEGNA fréttaflutnings undanfarna daga í blaða- og ljósvakamiðlum
af málefnum McDonald’s á íslandi vill Lyst hf. taka eftirfarandi fram:
Eitt af höfuðeinkennum McDon-
ald’s staðanna um allan heim er
góður starfsandi. Á hann leggjum
við mikla áherslu og gerum okkar
ýtrasta til að svo sé. Starfsfólk ger-
ir sér einnig ljóst að hjá okkur nýtur
viðskiptavinurinn forgangs. Hraði
þjónustunnar er viðhafður til þess
að svara kröfum viðskiptavinarins
um snögga og hnökralausa af-
greiðslu og að maturinn sé fyrsta
flokks.
Hjá okkur er vinnutími sveigjan-
legri en gengur og gerist á veitinga-
húsum. Þess vegna starfar hjá okkur
stór hópur skólafólks og húsmæðra,
sem getur ekki unnið á venjulegum
dagvinnutíma.
Fyrirtækið hefur þá stefnu að
vera ekki í neinum samtökum at-
vinnurekenda og gera ekki kjara-
samning við verkalýðsfélög. Við ger-
um sérstakan ráðningarsamning við
hvern einstakan starfsmann, sem
fær afhenta litla bók um starfið,
starfsskyldur og vinnureglur. Þar
sitja allir við sama borð, yfirmenn
og undirmenn. Engu að síður gerir
McDonald’s á Islandi alls engar kröf-
ur til starfsmanna sinna um að þeir
séu utan verkalýðsfélaga. Það er
alfarið mál starfsmannanna.
Við viljum sérstaklega taka fram,
að fyrirtækið virðir auðvitað öll lög
og allar reglur íslenskra stjórnvalda.
Fyrirtækið greiðir laun sem eru
umtalsvert hærri en þau laun sem
skilgreind eru samkvæmt lögum.
Launin eru einnig fyllilega sam-
keppnishæf við laun, sem greidd eru
í öðrum sambærilegum fyrirtækjum.
Öll laun eru að sjálfsögðu talin fram
til skatts.
Kjör hjá okkur eru meira en iaun-
in ein. Starfsfólkið sækir á vinnu-
tíma ýmis starfsþjálfunar- og
fræðslunámskeið, sem eflir það í
starfi. Laun hækka eftir afköstum
og hæfni. Sú þjálfun og starfsmennt-
un sem starfsmenn fá hér mun nýt-
ast þeim hvar sem þeir starfa síðar
á ævinni. McDonald’s hefur á sér
gott orð hvarvetna um heiminn fyrir
mjög nútímalega þjálfun og mennt-
un starfsfólks.
Lögum samkvæmt verða allir
starfandi menn að vera félagar í iíf-
eyrissjóði viðkomandi starfsstéttar
og greiða iðgjöld til þeirra. Atvinnu-
rekendum ber að innheimta þessi
gjöld og greiða þau til lífeyrissjóðs-
ins ásamt mótframlagi sínu. Þetta
mun fyrirtækið að sjálfsögðu gera.
Við höfum mjög nána samvinnu
við starfsfólk okkar og hér verða í
hveijum mánuði samskiptafundir
undir- og yfírmanna. Öðrum hverj-
um fundi er stjórnað af einhveijum
starfsmanni eftir vali þeirra, en öðr-
um hverjum af einhveijum yfir-
manni. Á þessum fundum verða öll
ágreiningsmál tekin fyrir og vonandi
leyst.
Við viljum líka hafa gott samband
við fjölskyldur starfsmanna og á
miðvikudaginn kemur, 8. september,
verður fjölskyldunum boðið hingað
í fyrstu McDonald’s hamborgara-
veislu á íslandi.
laga iðgjöld þau, sem aðildarsamtök
vinnumarkaðarins semja um hveiju
sinni, og skv. þeim reglum, sem
kjarasamningar greina. Atvinnu-
rekanda er skylt að halda eftir af
launum starfsmanns iðgjaldi hans
til viðkomandi stéttarfélags skv.
þeim reglúm, sem kjarasamningar
greina.
Sjá ekki um innheimtu fyrir
verkalýðsf élagið
Aðspurður sagði Ingvar að Lyst
hf. hygðist ekki greiða í sjóði stétt-
arfélaga eða innheimta félagsgjöld.
„Við ætlum ekki að taka að okkur
innheimtu fyrir verkalýðsfélagið.
Við teljum okkur ekki skylt að gera
það, þar sem við erum ekki aðilar
að samtökum atvinnurekenda. Við
ítrekuðum við fólkið okkar að þrátt
fyrir að við værum ekki aðilar að
neinum hagsmunasamtökum at-
vinnurekenda, væri því fijálst að
vera í verkalýðsfélagi, þar sem á
íslandi væri félagafrelsi. Við ætluð-
um hins vegar ekki að sjá um
greiðslur í verkalýðsfélag, heldur
yrði fólkið að sjá um það sjálft. Ég
held að það standi mjög í verkalýðs-
hreyfíngunni að einhver vilji ekki
taka að sér þessi skrifstofustörf
þeirra.“
Mjótt á munum
Halldór Grönvold, skrifstofustjóri
hjá Alþýðusambandinu, sagði að
ASÍ hefði ekki beinlínis efni til að
vefengja að starfsfólki McDonald’s
yrði g^reitt samkvæmt lágmarks-
taxta. „Við höfum hins vegar undir
höndum afrit af ráðningarsamning-
um, sem gefa tilefni til að ætla að
þar geti verið gizka mjótt á munum.
Það er hins vegar erfítt að henda
reiður á því nema að sjá vaktatöfl-
ur,“ sagði Halldór.
Halldór sagði að formenn lands-
sambanda ASÍ hefðu verið kallaðir
saman til fundar í dag vegna þessa
máls. „Fyrir marga í okkar röðum
er þarna verið að takast á um
grundvallaratriði varðandi þær
samskiptareglur, sem mótaðar hafa
verið á íslenzkum vinnumarkaði og
verið hefur allvíðtæk sátt um,“
sagði Halldór.
Að sögn Halldórs telur ASÍ að
um hreinan ásetning um lögbrot sé
að ræða hjá McDonald’s. Aðspurður
til hvaða aðgerða Alþýðusambandið
kynni að grípa, sagði Halldór: „Það
gæti orðið málsókn og/eða einhveij-
ar fleiri aðgerðir. Það er lagt í vald
þess hóps, sem þarna kemur sam-
an, að meta það.“
^p Morgunblaðið/Þorkell
Dauðir ur mengun
ÞESSIR tveir voru meðal hinna stærstu úr hópi tuga silunga sem
drápust í bæjarlæknum að Laxnesi.
Silungur drapst
FJÖLMARGIR silungar drápust þegar veggur að hlandþró í haughús-
inu að Laxnesi í Mosfellssdal var brotinn af vangá þannig að hland
og keyta flæddi í bæjarlækinn á sunnudag. Að sögn Þórarins Jónasson-
ar bónda í Laxnesi drápust þeir fiskar sem voru í læknum næst bæn-
um en þeir flutu síðan fyrir straumi niður í Köldukvísl, sem lækurinn
rennur í um kílómetra neðan við bæinn að Laxnesi.
Þórarinn sagðist hafa verið að
lagfæra og hagræða í haughúsinu
hjá sér og bijóta gat til að geta
notað litla vinnuvél við að hreinsa
út úr haughúsinu. Hann og aðrir sem
að þessu unnu hefðu hins vegar
ekki verið undir það búnir að bak
við einn millivegginn leyndist gömul
hlandþró en þegar flóðgáttin opnað-
ist rann hlandið út og I lækinn.
Þórarinn, sem fengið hefur heim-
sóknir frá lögreglu og heilbrigðisfull-
trúa eftir atvikið, sagði að of mikið
hefði verið gert úr málinu og ekki
væri tiltökumál þótt atvik af þessu
tagi kæmu upp til sveita. Meðal sil-
unganna sem drápust var a.m.k.
einn urriði sem virtist rúmt pund
að stærð og sagði Þórarinn að sá
fiskur væri sá allra stærsti sem hann
hefði séð í læknum þau 27 ár sem
hann hefur búið á Laxnesi. Þórarinn
sagði að engin varanleg mengun
hefði hlotist af en hins vegar hefði
verið lítið vatn í læknum og því hefði
lækurinn ekki getað hreinsað sig af
hlandinu fyrr en það hafði runnið
um 400-800 metra frá bænum með
fyrrgreindum afleiðingum.
Sigmjón Markússon
Jónasson bóndi látinn
LÁTINN er Sigurjón Markússon
Jónasson bóndi að Syðra-Skörðu-
gili í Skagafirði. Sigurjón var
fæddur 27. ágúst 1915 að Garði í
Hegranesi. Foreldrar hans voru
Jónas Gunnarsson bóndi og Stein-
unn Siguijónsdóttir húsfreyja, og
ólst Sigurjón upp í föðurhúsum i
Hátúni i Seyluhreppi.
Siguijón varð búfræðingur frá
Bændaskólanum á Hólum 1939.
Hann flutti að Syðra-Skörðugili 1940
og bjó þar til dauðadags. Siguijón
var þekktur hestamaður og meðal
stofnenda Hestamannafélagsins
Stíganda. Hann tók mikinn þátt í
félagsmálum, bæði með Ungmenna-
félaginu Fram og samvinnuhreyfing-
unni. Siguijón var formaður sóknar-
nefndar Glaumbæjarsóknar og söng
með Karlakórnum Heimi í fjölda ára.
Eftirlifandi eiginkona Siguijóns er
Sigrún Júlíusdóttir, eignuðust þau
fjögur börn sem öll lifa föður sinn.
Hallgrímur Pétursson
fv. form. Hlífarlátinn
HALLGRÍMUR Pétursson, fyrr-
verandi formaður Verkamanna-
félagsins Hlífar í Hafnarfirði, er
látinn, á sjötugasta aldursári.
Hallgrímur fæddist 16. október
1923 í Hafnarfirði. Foreldrar hans
voru Guðrún Þorbjarnardóttir og
Pétur Pétursson. Hallgrímur stund-
aði verslunarstörf framan af og sið-
an almenna verkamannavinnu. Síð-
astliðin 30 ár var hann starfsmaður
Verkamannafélagsins Hlífar í
Hafnarfirði, þar af formaður félags-
ins í tíu ár frá árinu 1978 til ársins
1988.
Hallgrímur vann mikið að félags-
málum innan verkalýðshreyfingar-
innar og að auki ýmis trúnaðarstörf
í þágu Hafnarfjarðarbæjar.
Eftirlifandi kona Hallgríms er
Hulda Björgvinsdóttir og eignuðust
þau tvö börn.