Morgunblaðið - 07.09.1993, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. SEPTEMBER 1993
23
Heimili opnað fyrir vegalaus börn að Geldingalæk á Rangárvöllum á laugardag
Frumvarp um um-
boðsmann barna
Hellu.
HEIMILI fyrir vegalaus börn var formlega tekið í notkun sl. laugar
á Geldingalæk á Rangárvöllum. Við það tækifæri tók Jóhanna Sigurð-
ardóttir félagsmálaráðherra formlega við heimilinu fyrir hönd ríkis-
ins en samtökin Barnaheill stóðu fyrir byggingu þess fyrir gjafafé
er safnaðist við landssöfnun Barnaheilla 20. mars 1992. í máli Jó-
hönnu kom fram að hún hyggst leggja fram á komandi þingi frum-
varp til laga um umboðsmann barna.
Að sögn Arthurs Morthens, for-
manns Barnaheilla, var mikil þörf
á að taka heimilið í notkun nú í
haust þrátt fyrir að endurbótum á
gamla húsinu að Geldingalæk sé
ekki að fullu lokið. Þá mætti reikna
með að viðbygging við húsið yrði
tilbúin um næstu áramót og yrði
þá heimilið alls um 570 fm að
stærð. Af þessum sökum væri að-
eins unnt að taka tvö börn inn nú
i haust, önnur tvö um áramót og
tvö í vor, en heimilið væri byggt
fyrir sex börn og tvær fjölskyldur
sem starfa við heimilið. Þegar
hefðu verið ráðin tvenn hjón til
starfa, þar af er einn sérkennari,
einn félagsráðgjafi með kennara-
menntun, fóstra og smiður. Auk
þess væri síðar gert ráð fyrir sál-
fræðingi í hlutastarfi. Á heimilinu
munu dvelja 6-12 ára börn sem
koma til með að fá kennslu á staðn-
um fyrst um sinn.
Séra Sigurður Jónsson sóknar-
prestur fór með bænarorð og bless-
aði húsið. Þá tók Arthur Morthens
við nýrri Volkswagen Golf bifreið
sem Hekla hf. gaf til heimilisins.
Að því loknu þáðu gestir veitingar
í boði Kvenfélagsins Unnar á Rang-
árvöllum.
Hönnuður hússins er Kristinn
Ragnarsson arkitekt, burðarvirki
og lagnir hannaði Bjarni Árnason
byggingatæknifræðingur, en raf-
lagnir Sigurður H. Oddsson raf-
magnstæknifræðingur. Aðalverk-
taki við byggingu hússins er tré-
smiðjan Rangá hf. á Hellu.
- A.H.
Morgunblaðið/Aðalheiður Högnadóttir
Starfsfólkið
Þegar hafa verið ráðin tvenn
hjón til að starfa á heimili vega-
lausra barna á Geldingalæk.
F.h. hjónin Yngvi Hagalínsson
og Sólveig Viktorsdóttir. Fyrir
miðju Ingibjörg Jónasdóttir
með foreldrum sínum Jónasi
Jónassyni og Sigríði Hermanns-
dóttur. Lengst t.v. er Arthur
Morthens, formaður Barna-
heilla.
Vistarverurnar
Vistleg herbergi bíða barna
sem dvelja munu á Geldinga-
læk.
Heinekenflöskur með
flísum í umferð hér?
26 KASSAR með bjórfjöskum sem huganlega innihéldu gleragnir
hafa verið seldir hjá Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins í sumar.
Heinekenfyrirtækið hefur innkallað Heineken export bjór í grænum
33 cl flöskum með tilteknu númeri. Ekki er ljóst hversu skaðleg
glerbrotin geta verið heilsu fólks.
Að sögn Höskuldar Jónssonar, for-
stjóra Afengis- og tóbaksverslunar
ríksins, er ljóst að 26 bjórkassar með
flöskum, sem hugsanlegt er að
gleragnir hafi leynst í, fóru í dreifíngu
hér á landi í sumar. Hann taldi hins
vegar engar líkur á að þessir kassar
væru í verslun ÁTVR núna því þeir
væru löngu seldir. Hann sagði að
sjálfsagt væri Heinekenfyrirtækið að
auglýsa innköllun vegna þess að ótt-
ast væri um eftirköst af neyslunni.
Flöskurnar innkallaðar
Gleragnir fundust í nokkrum flösk-
um úr tiltekinni framleiðsluhrinu hjá
Heineken í sumar en hún var þegar
farin í dreifingu þegar gleragnirnar
fundust. Er framleiðsluhrinan auð-
kennd með fjögurra stafa númeri í
vinstra horni á miða aftan á flösk-
unni og er númerið 3202. Sé þetta
númer á flöskunni ber ekki að opna
hana og ekki skal drekka bjórinn,
heldur skila flöskunni gegn endur-
greiðslu. Þetta kemur fram í auglýs-
ingu frá fyrirtækinu sem birtist í
Morgunblaðinu sl. laugardag. Hösk-
uldur sagðist ekki vita hversu skað-
legar gleragnirnar væru eða hvort
þær hafí leitt til heilsutjóns. Hann
sagði tiltölulega litlar líkur á að
gleragnir hafí verið í þeim flöskum
sem hér voru seldar.
-----♦--------
Skákmót í Grikklandi
Islendingar í
11.-24. sæti
HANNES Hlífar Stefánsson, Jón
L. Árnason og Margeir Péturs-
son urðu í 11.-24. sæti á opnu
skákmóti í Grikklandi. Mótið var
það síðara í grísku bikarkeppn-
inni og varð Margeir í 4.-8. sæti
samanlagt en hann vann fyrra
mótið.
Islendingarnir þrír fengu 6‘/2
vinning af 9 mögulegum en Þröstur
Þórhallsson hlaut 6 vinninga. Sigur-
vegari varð Hertneck frá Þýska-
landi með 8 vinninga en 9 skák-
menn fengu 7 vinninga.
, ,Réttu
dælurnar
SJAVARUTVEGUR
FISKIMJÖLSIÐNAÐUR
slógdælur - þvottadælur -
þrýstiaukadælur
FRAVEITUR
I hverju dæluverkefni er
mikilvægast að nota réttu
dæluna. Við bjóðum fjölbreytt
úrval afdælum, faglega ráðgjöf
og varahlutaþjónustu.
Leggðu óskir þínar og þarfirfyrir
sölumenn okkar og þeir leysa
dælumál þín á hagkvæman hátt.
EFNAIÐNAÐUR
| málningardælur -
olíudælur o.fl.
BYGGINGARIÐNAÐUR
brunndælur - jarðvatnsdælur
= HÉÐINN =
V E R S L U N
SELJAVEGI 2 SÍMI 624260
Skólaostur
R U M L E G A
15%
LÆKKUN!
VERÐ NU:
599 kr.
kílóið.
VERÐ ÁÐUR: ^GS^ KX. kílóið.
110 kr
ÞU SPARAR:
á hvert kíló.
OSTA OG
SMIÖRSALAN SF