Morgunblaðið - 07.09.1993, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. SEPTEMBER 1993
25
AF INNLENDUM
VETTVANGI
FRIÐRIKINDRIÐASON
Olíufélögin gætu selt tugi
millj. lítra til erlendra skipa
J öfnunargj aldið er helsta hindr-
unin en um 740 milljónir króna
renna í jöfnunarsjóð árlega
OLÍUFÉLÖGIN gætu selt tugi milljóna lítra af olíu árlega til
erlendra fiskiskipa, sem stunda veiðar allt í kringum efnahags-
lögsögu landsins, væru þau samkeppnisfær um verð. Það sem
einkum stendur í vegi fyrir því að þessi markaður verði raunhæf-
ur möguleiki er flutningsjöfnunargjald sem lagt er á olíu og
bensín hérlendis. Sala olíufélaganna til erlendra fiskiskipa er
nú þegar orðin töluverð eftir að þessi skip fengu leyfi til að
landa í íslenskum höfnum og hefur salan numið yfir milljón lítr-
um í einstökum mánuðum.
íslensk útgerð myndi njóta
góðs af niðurfellingu jöfnunar-
gjaldsins því að um leið myndi
hver lítri af gasolíu lækka um
allt að einni krónu. Er hér um
umtalsverðar upphæðir að ræða
fyrir stærstu skipin í flotanum
■ sem lesta um 500-700.000 lítra
í einu. Og fyrir flotann í heild
er verið að ræða um upphæð sem
nemur um 200 milljónum króna.
Hægt væri að ná frekari lækkun
til íslenskra útgerða með breyt-
ingu á lögum frá 1985 sem kveða
á um sama verð á öllu landinu.
Tvö olíufélög, Skeljungur og
Olís, hafa barist fyrir því að jöfn-
unargjaldið verði fellt niður.
Kristinn Björnsson forstjóri
Skeljungs segir að það sé löngu
tímabært að leggja þetta gjald
niður. „Það hefur lengi verið bar-
áttumál hjá okkur að leggja þetta
gjald af og bera í staðinn flutn-
ingskostnaðinn sjálfir enda yrð-
um við samkeppnisfærari um
verð á olíu til skipa,“ segir Krist-
inn. Og hann nefnir einnig ýmsa
agnúa á núverandi fyrirkomulagi
þegar tekur til sölu á olíu til er-
lendra skipa. „Það er með ólík-
indum að þó við seljum nú olíu
til erlendra fiskiskipa og þar með
úr landinu er samt jöfnunargjald
á þeirri olíu,“ segir hann. „Sem
dæmi má taka að ef við vildum
senda birgðaskip norður í Bar-
entshaf þyrftum við að borga
jöfnunargjald af þeirri olíu, væri
skipið lestað hérlendis. Ef við
hins vegar leigðum skipið í Nor-
egi og lestuðum það þar og seld-
um síðan úr því til íslenskra skipa
í Barentshafi myndum við sleppa
við þetta gjald.“
Geir Magnússon forstjóri Olíu-
félagsins er ekki sammáía Kristni
um að leggja beri jöfnunargjaldið
af. „Með gjaldinu er verið að
tryggja þá hagsmuni lands-
byggðarinnar að búa við sama
olíuverð og aðrir landsmenn,"
segir Geir. „Það liggur ljóst fyrir
að ef jöfnunargjald væri ekki til
staðar myndi lítri af olíu kosta
um 12 królium meira á Ströndum
en í Reykjavik."
740 milljónir í sjóðinn
Á síðasta ári námu heildar-
greiðslur frá olíufélögunum
vegna jöfnunargjaldsins um 740
milljónum króna en þær runnu í
jöfnunarsjóð. Þaðan er þeim svo
útdeilt aftur eftir ákveðnum regl-
um til félaganna en markmiðið
er að jafna út kostnað af dreif-
ingu á olíuvörum. Jöfnunarsjóður
er opinber stofnun sem komið var
á fót fyrir um 40 árum. Þriggja
manna stjórn skipar sjóðinn og
er einn frá Samkeppnisráði, einn
frá viðskiptaráðuneyti og olíufé-
lögin skipta með sér einum
manni. Árni Olafur Lárusson er
fulltrúi olíufélaganna í stjórn
sjóðsins. Hann segir að reikna
megi með að velta sjóðsins á
þessu ári verði ívið hærri en í
fyrra eða á bilinu 760-800 millj-
ónir króna. Miðað við að ársnotk-
un íslenska fiskiskipaflotans sé
um 210 milljónir lítra er ljóst að
hlutur af gasolíusölu til skipanna
nemur ríflega fjórðungi þessarar
upphæðar eða um 200 milljónum
króna.
I máli Áma kemur fram að
um síðustu áramót hafi verið 55
milljóna króna inneign í sjóðnum
og að sú inneign hafi síðan farið
vaxandi frameftir árinu upp í um
90 milljónir kr. Sökum þessa var
flutningsgjaldið á gasolíu lækkað
úr 1,20 kr. niður í 95 aura 1.
apríl sl. Sala á olíu til erlendra
fiskiskipa skýrir að hluta inn-
eignina þar sem sú sala hefur
ekki í för með sér dreifingar-
kostnað innanlands.
Sem dæmi um hve niðurfelling
jöfnunargjaldsins myndi breyta
samkeppnisstöðu olíufélaganna
við olíusölu til erlendra fiskiskipa
í höfnum hérlendis segir Kristinn
að líta megi á algengt skipagasol-
íuverð hér heima og i Noregi.
Hér er það nú 15,14 krónur fyr-
ir lítrann en 11,50 krónur í Nor-
egi. Niðurfelling jöfnunargjalds-
ins myndi lækka verðið strax um
allt að einni krónu. „Síðan mætti
ná enn hagstæðara verði til ís-
lenskra útgerða ef felld yrðu úr
gildi lög frá 1985 um að sama
verð skuli vera á öllu landinu.
Nú þurfum við að selja olíu á
sama verði hvort sem hún fer
hundrað metra frá tönkunum í
Örfirisey til Granda eða nokkur
hundruð kílómetra leið norður á
Melrakkasléttu," segir Kristinn.
Markaðurinn þegar til staðar
Markaður fyrir olíusölu til er-
lendra fiskiskipa er þegar til stað-
ar í vaxandi mæli hérlendis eftir
að opnað var fyrir landanir skip-
anna í íslenskum höfnum. Má þar
nefna sem dæmi að grænlenskir
rækjutogarar hafa lestað hér
olíu, einnig þýsku togararnir sem
UA á hlut í og þeir rússnesku
togarar sem landað hafa hér afla
úr Barentshafi.
Reikna má með að fjöldi er-
lendra fiskiskipa í grennd við
efnahagslögsögu íslands skipti
tugum að jafnaði en sveiflur eru
í þessum fjölda eftir árstíðum og
fiskigöngum. Að sögn Landhelg-
isgæslunnar er ætíð slangur af
skipum við miðlinurnar milli ís-
lands og Grænlands og milli ís-
lands og Færeyja en síðan má
nefna skipin sem stunda úthafs-
karfaveiðar suður á Reykjanes-
hrygg og árstíðabundna flota
eins og rækju- og loðnuskip
Norðmanna suður af Jan Mayen.
Það eru ekki bara olíufélögin
sem hefðu hag af því ef þessi
skip lestuðu olíu í höfnum hér-
lendis því reikna má með ýmsum
öðrum viðskiptum í kjölfarið eins
og kaupum á kosti og viðhalds-
verkefnum.
Aðrir möguleikar í stöðunni
eru ef íslensk skip fara að stunda
reglulega veiðar í Barentshafi.
Kristinn Björnsson segir að fari
svo væri kominn möguleiki á að
halda úti birgðaskipi á því haf-
svæði, annaðhvort þannig að eitt-
hvert olíufélagið gerði slíkt á eig-
in spýtur eða þau öll þijú myndu
sameinast um eitt skip. Geir
Magnússon telur fulla ástæðu til
að taka birgðaskipshugmyndina
til athugunar ef af áframhald-
andi veiðum íslendinga verður í
Barentshafi. „Þá væri einfaldlega
um það að ræða að við værum
að þjóna viðskiptavinum okkar,“
segir Geir.
Skutu úr
loftbyssu á
hús og bíla
FJÓRIR 17-19 ára piltar óku um
Árbæjar- og Seláshverfi á föstu-
dagskvöld og skutu úr loftbyssu á
hús, bíla og tvo strætisvagna, ann-
an fullan af farþegum. Engin
meiðsli hlutust af en þegar pilt-
arnir voru handteknir voru þeir
búnir að skjóta gat á framrúðu
og mælaborð bilsins sem þeir óku
á og einn þeirra átti.
Fyrst var kvartað undan loftbyssu-
skothríð í hverfinu klukkan rúmlega
hálfsex á föstudag en þá hafði stræt-
isvagnastjóri heyrt hvell og séð eina
rúðu í bíl sínum springa þegar hann
beið á rauðu ljósi á mótum Höfða-
bakka og Bæjarháls. Á tíunda tíman-
um um kvöldið var rauðum Skoda-
bíl ekið inn í Lækjarás í Selashverfi
og snúið við í enda götunnar og ekið
á brott um leið og skotið var á rúðu
í húsi við götuna. Ytra byrði rúðunn-
ar brotnaði. Um svipað leyti bárust
tilkynningar um að skotið hefði verið
á strætisvagn við Rofabæ, fullan af
farþegum. Rúða hafði splundrast
aftast í vagninum þar sem enginn
sat.
Skömu eftir að lýsing var fengin
á ökutæki byssumannanna fundust
þeir í Árbæjarhverfi og kom þá í Ijos
að þeirra eigin bíll var skemmdur
eftir loftbyssuskot. Að auki er talið
að þeir hafi brotið rúður í þremur
öðrum bílum í hverfinu.
Piltarnir eru 17-19 ára og hafa
nokkrir þeirra áður komið við sögu
lögreglu, sem lagði hald á byssuna
og færði þá tii yfirheyrslu.
Músíkleikfimi
Kennarar: Elísabet Guðmundsdóttir og
Hafdís Árnadóttir.
Leikfimi fyrir bakveika
Kennari: Harpa Helgadóttir, sjúkraþjátfari.
Tai-chi
Kennari: Guðný Helgadóttir.
Kripalujóga
Kennarar: Jenný Guðmundsdóttir og Kristín
Norland.
Afró
Kennari: Orville Pennant, dansari frá Jamaica.
Kalypso
Kennari: Orville Pennant.
Argentínskur tangó
Kennari: Hany Hadaya, dansari.
Dans - leikir - spuni. 4-7 ára
Kennarar: Vigdís Gunnarsdóttir, leikari, og Lilja
ÍVarsdóttir, dansari.
Tónlist - spuni. 4-7 ára.
Kennarar: Soffía Vagnsdóttir og Elfa Lilja
Gísladóttir, tónmenntakennarar.
Leiklist. 7-9 ára, 10-12 ára og 13-15 ára.
Kennarar: Þórey Sigþórsdóttir, Harpa Arnardóttir
og Gunnar Gunnsteinsson, leikarar.
Myndlist - leiklist. 7-9 ára.
Kennari: ArnaValsdóttir, myndlistarmaður.
Djass. 7-9 ára.
Kennari: Katrín Káradöttir, danskennari.
Hip-hopfyrir 10-12 áraog 12-15 ára
Kennari: Orville Pennant, dansari.
Sími 15103 og 17860
Leiksmiðja - öðruvísi leikhús
Spuni - rödd - líkamsbeiting - áræði
Kennarar: Árni Pétur og Anna Borg, leikarar,
og fleiri.
„Leyndir draumar“
Leiklistarnámskeið fyrir 25 ára og eldri.
Persónusköpún, textameðferð og spuni út
frá leikbókmenntum.
Kennarar: Hlín Agnarsdóttir, leikstjóri, og
Anna Borg, leikari.
Danssmiðja
Fyrir þá, serti vilja kanna nýjar leiðir í dansi.
Kennari: Ólöf Ingólfsdóttir, nýkomin frá
dansnámi í Hollandi.
Söngsmiðja
Raddbeiting - söngur - nótnalestur - spuni.
Kennari: Jóhanna Þórhallsdóttir, söngkona.