Morgunblaðið - 07.09.1993, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. SEPTEMBER 1993
27
Reuter
Grafhýsi fyrir Marcos
IMELDA Marcos, fyrrverandi forsetafrú á Filippseyjum, er hér að kanna grafhýsi, sem á geyma jarðneskar
leifar eiginmanns hennar, Ferdinands Marcosar. Verða þær fluttar þangað í næstu viku en grafhvelfingin er
í heimabæ þeirra hjóna, Batac, á norðurhluta eyjanna.
Frakkar teknir að ókyrrast út af GATT-samningum
Með hótanir um að
beita neitunarvaldi
París. Reuter.
Stríðsglæparétt-
arhöld imdirbúin
Chicago. The Daily Telegraph.
HÓPUR bandarískra lögfræðinga hefur tekið að sér að safna
sönnunargögnum sem þeir vona að verði til þess að réttað verði
yfir stríðsglæpamönnum í fyrrverandi Júgóslavíu. Það yrði í fyrsta
skipti sem réttarhöld yfir stríðsglæpamönnum væru haldin frá
lokum síðari heimsstyijaldar. Hópurinn fer nú í gegnum gríð-
arlega skjalabunka þar sem raktir eru stríðsglæpir en þrátt fyr-
ir að sögurnar séu hverri annarri hryllilegri, gera lögfræðingarn-
ir sér fyllilega grein fyrir að ekki er víst að þeir sem bera ábyrgð
á glæpunum verði nokkurn tíma dæmdir fyrir þá.
Hópurinn hefur nú til meðferð-
ar um 3.500 mál, sem teljast brot
á alþjóðalögum um stríðsrekstur
og mannréttindi. Skjalfest dæmi
eru um að í einum fangabúðunum
voru feður og synir látnir eiga
kynmök áður en þeir voru skotn-
ir. í öðrum búðum voru feður
neyddir til að horfa á þegar dætr-
um þeirra var nauðgað og synir
þeirra barðir til dauða. Þá eru
frásagnir af því að karlar hafi
verið látnir gelda hver annan með
því að bíta í kynfærin.
„Gæti þetta gerst hér?“
Stíðsglæpirnir virðast skiptast
í tvennt. Annars vegar eru það
dráp manna á nágrönnum sínum
en þá eru nöfn geranda í flestum
tilfellum þekkt. Hins vegar eru
það fangabúðirnar, en fangar vita
í mörgum tilfellum nöfn þeirra
fangavarða sem sekir eru um
mesta grimmd.
„Hvers vegna geta þeir ekki
bara drepið hver annan, hvers
vegna þessar limlestingar? Ég er
orðin svo þreytt á því að lesa um
hvernig augun eru stungin úr
fólki, nefin skorin af og menn
gerðir höfðinu styttri," segir Mary
Martin, ein þeirra sem rannsakað
hefur stríðsglæpina. „Ég spyr
sjálfa mig á hveijum degi, hvers
konar fólk þetta sé? Gæti þetta
gerst hér?“
Mary Martin starfar í 25 manna
hópi lögfræðinga og sjálfboðaliða
sem vinna fimmtán tíma á dag,
alla daga vikunnar við DePaul
háskólann í Chicago. Fólkið hefur
aldrei áður kynnst öðrum eins
hryllingi og það leitast nú við
sanna enda hafa margir fundið
til vanlíðunar við lestur sönnunar-
gagnanna. Lagaprófessorinn Che-
rif Bassiouni stýrir hópnum en
hann hefur fengið háskólastyrki
sem nema tæpum 30 milljónum
íslenskra króna. Ætlunin er að
réttarhöldin fari fram í Hollandi
undir forystu saksóknara Samein-
uðu þjóðanna.
Ýmislegt bendir hins vegar til
þess að hinir seku verði aldrei
dregnir fyrir rétt. Talið er nær
fullvíst að leiðtogar Serba, Króata
og Múslima muni allir krefjast
friðhelgi áður en þeir skrifi undir
friðartillögur og að þeir muni ekki
samþykkja framsal á mönnum
sínum. Þá bendir margt til þess
að Bassiouni muni eiga í erfiðleik-
um með suma fulltrúa í Öryggis-
ráðinu, sér í lagi Breta og Frakka
sem telja starf Bassiouni til lítils.
FRANSKA stjórnin kynti undir deilunum um væntanlegan GATT-
samning í gær með því að hóta að beita neitunarvaldi gegn honum
verði honum ekki breytt til hagsbóta fyrir franska bændur. Er litið
svo á, að með hótuninni séu Frakkar að reyna að fá Þjóðveija til
liðs við sig í andstöðunni við lækkun útflutningsuppbóta á landbúnað-
arvörur.
„Við erum ekkert á þeim buxun-
um að gefast upp. Verði engin
breyting gerð á iýrirliggjandi samn-
ingi munum við beita neitunarvald-
inu,“ sagði embættismaður í
franska forsætisráðuneytinu í gær
og Richard Duque, talsmaður utan-
ríkisráðuneytisins, hnykkti á því og
sagði, að þótt Frakkar kærðu sig
ekkert um deilur innan Evrópu-
bandalagsins, EB, myndu þeir ekki
láta óttann við þær beygja sig.
Að allra mati eru það landbúnað-
armálin ein, sem standa í vegi fyrir
nýjum GATT-samningi, en EB og
Bandaríkjastjórn komust þó að
bráðabirgðasamkomulagi um þau í
nóvember sl. Frakkar, sem eni
næststærstir á eftir Bandaríkja-
mönnum í útflutningi landbúnaðar-
afurða, hafa þó ekki viljað fallast
á það en stjórnin í Washington seg-
ir, ,að verði hróflað við því, séu
GATT-samningarnir þar með úr
sögunni.'
Peter Sutherland, framkvæmda-
stjóri GATT, hefur ákveðið eindag-
ann fyrir nýjan samning 15. desem-
ber nk. en 20. þessa mánaðar munu
utanríkis- og landbúnaðarráðherrar
EB-ríkjanna koma saman til fundar
um þessi mál.
STEINAR WAAGE
ÞRIÐJU DACSTILBOÐ
Verð: 2«495j"
áður: 4.995,-
V^VJIVirMIV T
ol íitorn'u"*'
/
Stærð: 40—
Litur: Svart
Ath. Grófur göngusóli
P0rTSENDuM SAMOÆGURS
Domus Medica,
Egilsgötu 3,
sími 18519
Kringlunni,
Kringlunni 8-12, I
sími 689212
J
Ásdís María Franktin, 15 óra
Mílanó. Tókió
Hrund Teltsdóttlr 16 óra
Mítanó, New York
Haustið [92
fóru bessa&iórár^stúlkur ó
f flnámsfcW^BLÍ
t-.; i W0mírK %
yhja Möde||rt|fepJ|ft
mnmm
P'jifc: P
v od^my ná w
'f§W.tuk4^p|le^:prk
Suji'ariðl9|i
Starfandi fyrilsœíur íjMílanö!
Ert þu-nœst?
Etva Elriksdóttlr 15 ára
Milanó. New York
Hrönn iohansen 18 ára
Mílanó. New York
Kennsluefni!
■ Sjálfsvörn m/Gallerý Sport
■ Dans
■ Líkamsæfingar
eftir kerfi Cindy Crawford
■ Ganga
■ Posur fyrir myndatökur
■ Bætt sjálfstraust
■ Feimni
■ Myndataka í timum
Ðörn!
4-6 ára,
7-9 ára,
10-12 ára
Hreyfing, dans, feimni,
tískusýning, leikræn tjáning,
skemmtileg námskeið sem
þú býrð að!
Gestakennari frá Milanó og
bókari Ricciarda De Marzi.
Kennslutœfcni!
MARTIN SNARIC sem er
einn af færustu kennurum í
Modeltng og Posum f
U.SA I dag!
Kennslustaðir!
Reykjavík
Keflavík
Grindavík
Mosfellsbær
Hveragerði
Akranes
Innritun er hafin
sími677799, 677070
kl. 10-12, 13-17
Kvöldsími 687573.
Afhending skírteína
laugardag 18. sept.
kl. 14.00-18.00.
Verið velkomin
Model mynd er félagi í
M.A.A.I.
Suðurlartdsbraut 50