Morgunblaðið - 07.09.1993, Blaðsíða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. SEPTEMBER 1993
Kynningarfundur
DALE
CARNEGIE
Þjálfun
Fimmtudagskvöld kl.
20.30 að Sogavegi 69
Námskeiðið
41 Eykur hæfni og árangur einstaklingsins
Hi Byggir upp leiðtogahæfnina
41 Bætir minni þitt og einbeitingarkraftinn
41 Skapar sjálfstraust og þor
■ Árangursríkari tjáning
-■ Beislarstreitu og óþarfa áhyggjur
41 Eykur eldmóðinn og gerir þig hæfari í
daglegu lífi
Fjárfesting í menntun skilar þér aröi ævilangt.
Innritun og upplýsingar í síma: 812411
ZSb [ HL)
STJÓRNUNARSKÓLINN
Konráð Adolphsson. Einkaumboó fyrir Dale Carnegie® námskeióin.
4
Það er leikur einn að íöndra með Tesa límum.
Þau eru sterk og auðvelt er að bera þau á límílötinn.
Límin eru án uppleysieína oghægt er að þvo þau
úr íötum með köldu vatni.
Tesa íöndurlímin eru þægileg lím á góðu verði
íyrir skólafólk og aðra þá sem fást við föndurvinnu.
í J. S. Helgason hí Draghálsi 4. Sími: 91- 68 51 52
fX/
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
Tvær fjögra manna dómnefndir störfuðu á mótinu en þær skipuðu frá vinstri talið Bo Hansen Dan-
mörku, Per Kolnes Noregi, Bruno Podlech Þýskalandi, Marsell Joenser Sviss, Erik Christiansen Dan-
mörku, Víkingur Gunnarsson íslandi, Anne Marie Quarles Hollandi en hún hafði yfirumsjón með kyn-
bótadómunum af hálfu mótsstjórnar, Kristinn Hugason íslandi og Marianne Timmermann Hollandi
Kynbótahross á HM í Hollandi
Frá úrvalshrossum
til slakra miðlunga
Eva frá Þverá lækkaði í einkunn en hækkaði eigi að síður, knapi
er Ólafur Ásgeirsson.
Mörg hross úr ræktun Violu Hallmann komu fram á mótinu og sýndi
hún meðal annars stóðhestinn Blett frá Aldenghoor sem er undan
Skarða frá Skörðugili og Báru frá Hrepphólum.
_________Hestar____________
Valdimar Kristinsson
NÚ í fimmta sinn voru kynbóta-
hross sýnd og metin á heims-
meistaramóti. Islendingar létu
sér margir hverjir fátt um
finnast þegar bryddað var upp á
þessu fyrst, töldu sem svo að
þarna vildu keppinautar okkar í
hrossaræktinni og félagar innan
F.E.I.F. nota HM-mótin til að
auglýsa ræktun sína. Sýnt þótti
að þessi vettvangur myndi ekki
henta okkur þar sem ljóst var
að eigendur kynbótahrossa hér-
lendis myndu ekki offra bestu
kynbótahrossunum til einnar
sýningar og fá ekki að koma með
þau heim aftur. í fyrstu skipti
ekki máli í hvaða landi hrossin
voru fædd en síðar var því breytt
á þann veg að þjóðum var ein-
ungis heimilt að tefla fram hross-
um fæddum í viðkomandi landi
og þannig er þetta í dag.
Með þessum hætti leit þetta
snöggtum betur út fyrir okkur
íslendinga enda hafði raunin ver-
ið sú að lang flest hrossin sem
komu fram á fyrstu sýningunni
í Svíþjóð 1985 voru fædd á ís-
landi. Eðlilegt þótti að á þessum
vettvangi kæmi fram hverju við-
komandi þjóð hefði skilað í rækt-
un en ekki hvað hefði verið keypt
á íslandi til að byggja ræktunina
á. Útkoma íslendinga úr þessum
þætti heimsmeistaramótanna
hefur yfirleitt verið all góð og
ekki síður ef tillit er til þess tek-
ið að þarna hafa ekki komið fram
hæst dæmdu kynbótahross lands-
ins hverju sinni. Má segja að við
höfum alltaf eða oftast sent B
eða C lið kynbótahrossa á mótin.
Enn og aftur Hraunarssonur
Hverju Iandi er heimilt að senda
eitt hross í hvern flokk en það eru
tveir flokkar stóðhesta fimm og sex
vetra og svo sjö vetra og eldri og
sama aldursskipting í hryssuflokk-
unum. Að þessu sinni var mætt
með tvo stóðhesta sem seldir höfðu
verið utan, þá Létti frá Grundar-
firði sem er undan Viðari frá Við-
vík og Sunnu frá Fáskrúðarbakka.
Léttir var uppalinn á stóðhestastöð-
inni og verið dæmdur þar en einnig
hlotið dóm á fjórðungsmóti á Kald-
ármelum. Hafði hann hlotið hér
heima 8,19 fyrir hæfileika og 7,98
fyrir byggingu eða 8,08 í aðaleink-
unn. Léttir þótti drjúg góður hestur
en svo virtist sem hlutskipti hans
hér á landi yrði að falla alltaf í
skuggann fyrir öðrum hestum og
líklegt að vinsældir hans yrðu tak-
markaðar. Eldri hesturinn var Kol-
skeggur frá Ásmundarstöðum und-
an Hraunari frá Sauðárkróki og
Stjörnu frá Kjarnholtum. Það er
skemmtileg tilviljun að þetta mun
í annað skipti sem Islendingar
senda hest undan Hraunari á HM,