Morgunblaðið - 07.09.1993, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDÁGUR 7. SEPTEMBER 1993
35
Rúna frá Egg þótti bera af þeim kynbótahrossum sem fram komu
á mótinu, djásn segir Víkingur Gunnarsson og er vel hægt að taka
undir þau orð, knapi er eigandi hryssunnar Thomas Haag frá Schloss
Neubronn.
Hrefna frá Gerðum stóð fyrir sínu í dómnum en dalaði heldur á
þeim tveimur sýningum sem hún kom fram í, knapi er Hinrik Braga-
son.
því í Svíþjóð 1991 kom fram fyrir
Islands hönd Örn frá Akureyri sem
er undan honum. Bæði Léttir og
Kolskeggur höfðu hlotið í dóm í
Þýskalandi þar sem íslensk dóm-
nefnd dæmdi samkvæmt F.E.I.F.
skalanum sem er að nokkru frá-
brugðinn hinum íslenska. Sömuleið-
is hafði Hrefna frá Gerðum sem
var fulltrúi okkar í eldri flokki
hryssna verið dæmd ytra. Yngri
hryssan Eva frá Þverá var hinsveg-
ar valin eftir dóm hér heima en áður
hafði hún komið fram á fjórðungs-
mótinu á Vindheimamelum fyrr í
sumar og hlaut þar í aðaleinkunn 8,0.
Rúna og Kári í sérflokki
Tvær dómnefndir voru starfandi
á mótinu sem skipuð var fulltrúum
nokkurra aðildarþjóða F.E.I.F.
Tveir dómarar dæmdu fyrir hönd
íslands þeir Kristinn Hugason og
Víkingur Gunnarsson og voru þeir
í sitthvorri dómnefndinni. Dóm-
nefnd Kristins dæmdi eldri hryss-
urnar og yngri stóðhestana en dóm-
nefnd Víkings eldri stóðhestana og
yngri hryssurnar. Fjórir dómarar
skipuðu hvora dómnefnd og var
einn í hvorum flokki svokallaður
reiðdómari þ.e. þeir fóru á bak öll-
um hrossunum og riðu þeim á öllum
gangtegundum. Þeir Kristinn og
Víkingur voru sammála um að
þarna hefðu komið fram ágætir
toppar kynbótahrossa en einnig
mjög slök hross sem vart hefðu
komist á yfirlitssýningu á héraðs-
sýningu hér heima. Það voru eink-
um tvö hross sem vöktu athygli og
áttu þau það sameiginlegt að fá
góðar einkunnir bæði fyrir bygg-
ingu og hæfileika. Er þar fyrst að
nefna hryssuna Rúnu frá Egg í
Sviss sem hlaut fyrir byggingu 8,17
og 8,28 fyrir hæfileika, samtals
8,23. Rúna er undan Hrafn-Krabba
frá Sporz í Sviss sem var undan
Stíganda frá Kolkuósi og Stjömu
frá Hafsteinsstöðum og móðirin er
Hrönn frá Sporz sem er undan Blika
og Hörku frá Kirkjubæ. Sagði Vík-
ingur hér um að ræða djásn í röðum
kynbótahrossa og taldi víst að þessi
hryssa hefði staðið hátt á sýningu
hér heima ef hún hefði komið þar
fram. Það er rétt að taka fram að
ekki er rökrétt að bera beint saman
meðaleinkunnir úr þessum dómum
við einkunnir samkvæmt íslenska
dómskalanum þar sem vægi eru
mismunandi og svo bætist fetið við
í F.E.I.F. skalanum. Hinsvegar ætti
að vera raunhæft að berna saman
einkunnir fyrir einstök dómsatriði.
Rúna fær hæst fyrir háls og herðar
9, 8,5 fyrir höfuð, samræmi, fet,
skeið, stökk, vilja og fegurð í reið.
Fætur eru um meðallag. Rúna er
fædd Christinu Fontana en núver-
andi eigandi er Thomas Haag sem
jafnframt sýndi hryssuna. Thomas
þessi er tengdasonur Heidi Schwör-
er sem er mörgum að góðu kunn
hér á landi, þannig að gera má ráð
fyrir að Rúna verði notuð í ræktun-
inni í Schloss-Neubronn í Þýska-
landi.
Hitt hrossið er stóðhesturinn
Kári frá Aldenghoor sem er í eigu
stáldrottningarinnar Viola Hall-
mann afsprengi hrossaræktar
hennar í Aldenghoor. Kári hlaut í
einkunn 8,22 fyrir byggingu og
8,18 fyrir hæfileika. Hann fær best
fyrir 8,5 fyrir höfuð og stökk. Þá
fær hann 8,63 fyrir samræmi og
vilja en 9,0 fyrir skeið sem er mjög
gott. Hinsvegar fær hann aðeins
7,5 og lítið meira fyrir brokk sem
er rýrir tvímælalaust gildi hans sem
kynbótahests. Öll atriði byggingar
eru 8,0 eða þar yfir. Faðir Kára er
Vinur frá Víðidal sem er undan
Hrafni 802 og Toppu frá Víðidal.
Móðir Kára er Kempa frá Hólum
sem var undan Reyni frá Hólum
og Brúnku frá Miklaholti. Umsögn
dómnefndar um Kára er: Mjög fall-
egur stóðhestur með sérstaklega
góðu skeiði. Þess má geta að af-
kvæmi Vinar frá Víðidal voru sýnd
í sérstökum dagskrárlið ásamt af-
kvæmi Trausta frá Hall sem hefur
getið hefur sér frægð fyrir mikla
skeiðgetu og unnið marga góða
sigra á skeiðmeistaramótum undan-
farinna ára. En afkvæmi Vinar
komu vel fyrir og líklegt að hann
eigi eftir að marka djúp spor í
hrossaræktina í Hollandi sem fram
til þessa hefur ekki verið á háu
plani.
Breytileg útkoma eftir
dómskölum
Þá er að geta frammistöðu „ís-
lensku" hrossanna. Léttir stóð að
venju vel fyrir sínu kom út með
svipaða heildareinkunn og áður, en
er nú kominn með 8,75 fyrir tölt
sem hann virðist standa vel undir.
Þess er þó að geta að heimilt er
að nota 10 millimetra skeifur á
þessum vettvangi en þá verða þær
að vera bæði á fram- og afturfót-
um. Léttir var með 8,22 fyrir hæfi-
leika og fær hann 8,5 fyrir bæði
vilja og geðslag. Hæst fær hann
8,25 fyrir bak og lend en meðalein-
kunn fyrir byggingu er 7,88. Um-
sögn dómnefndar er svohljóðandi:
Samræmisgóður, sterkur stóðhest-
ur með góða yfirlínu. Gæðingur.
Léttir stóð efstur í flokki 5 og 6
vetra stóðhesta. Kolskeggur frá
Ásmundarstöðum var ekki í eins
góðu stuði og Léttir. Lækkaði hann
heldur í einkunn frá því í vor er
hann var valinn til þátttöku á mót-
inu. Hlaut hann nú slétta 8 í aðal-
einkunn. Hækkar þó heldur fyrir
byggingu, en snarlækkar fyrir
hæfileika og munar þar mestu að
einkunn fyrir skeið og vilja lækkar.
Hafði hann hlotið 9,5 fyrir skeið
en hlaut nú 8,63 og 9,0 fyrir vilja
en var nú með 8,0. Ástæðan fyrir
þessu falli var að sögn að hesturinn
hafði verið í hryssum og lítið þjálf-
aður frá forskoðun fram að móti.
En umsögn dómara var á þessa
leið: Vel byggður stóðhestur með
veika fótagerð, gangtegundir góðar
sérstaklega skeiðið.
Hrefna frá Gerðum stóð efst í
eldri flokki hryssna með 8,04 í aðal-
einkunn. Hún lækkar all nokkuð
fyrir byggingu frá því hún var sýnd
á fjórðungsmótinu ’91, hlýtur nú
7,64 í stað 7,85 þá. Hæfileikaeink-
unnir héldu sér nokkuð en hinsveg-
ar kom hryssan ekki sérlega vel
fyrir á laugardags- og sunnudags-
sýningunum og virtist hún alveg
heillum horfin nema þá á skeiðinu.
Eva frá Þverá hafnaði í fjórða sæti
í flokki hryssna 5 og 6 vetra með
7,89 í einkunn sem er nokkru lægra
en hún hafði hlotið fyrrú sumar.
Enn skal á það minnt að ekki er
um raunhæfan samanburð á meðal-
einkunnum að ræða en hinsvegar
er samanburður á einkunnum fyrir
einstök dómsatriði fyllilega raun-
hæfur. Eva kemur illa út úr F.E.I.F.
skalanum, í fyrsta lagi fær hún lé-
lega feteinkunn sem ekki er með í
íslenska skalanum. Hún hækkar
hinsvegar fyrir fjögur atriði fékk
8,63 fyrir tölt, var áður með 8,5,
fékk 8,5 fyrir brokk hafði áður
fengið 8,0, fékk 7,63 fyrir stökk
var áður með 7,5, fékk 8,5 fyrir
geðslag, var áður með 8,0. Hún
lækkar úr 8,0 í 7,5 fyrir vilja en
fær sömu einkunn 8,0 fyrir skeið
og 8,5 fyrir fegurð í reið. Á mótinu
fékk hún 8,08 fyrir hæfíleika en
hafði hlotið 8,16 hér heima. Ef ein-
kunnirnar að utan eru settar upp
samkvæmt íslenska skalanum fær
Eva 8,22 í einkunn fyrir hæfileika
þannig að þótt Eva hafi lækkað í
aðaleinkunn miðað við útkomuna
frá fjórðungsmótinu hefur hún bætt
sig að getu því ef byggingin er yfir-
færð á sama hátt yfir á íslenska
skalann fær hún talsvert lakari ein-
kunn sem dregur aðaleinkunnina
niður. En þetta dæmi sýnir glöggt
hvemig þessir tveir dómskalar skila
mismunandi niðurstöðu.
Háfleygar einkunnir Þjóðverja
Fyrir kynbótadómana var haldin
ráðstefna um kynbótadóma þar sem
meðal annars var kynntur íslenski
stigunarkvarðinn og notkun hans.
Þeir félagar Kristinn og Víkingur
sátu þessa ráðstefnu og sögðu þeir
að mikill tími hafi farið í rökræður
við Þjóðveija sem taldir eru gefa
hærri einkunnir en önnur aðildar-
lönd F.E.I.F. Snerist umræðan
einnig nokkuð um grundvallaratriði
eins og hvort dæma eigi hvernig
hrossið kemur fyrir á dómsdegi eða
hvort gefa eigi einkunn eins og-
dómarar halda að það muni geta
orðið með tíð ög tíma. Sagði Krist-
inn í samtali við umsjónarmann
Hesta að ekki væri laust við að
Þjóðveijar væru að einangrast í
þessum efnum því megin þorri kyn-
bótadómara innan F.E.I.F. vildi
taka tillit til íslenska kvarðans.
Taldi hann að Þjóðveija skorti fag-
legan styrk til að ná sér niður í
einkunnagjöfum og líklegt að hags-
munaöflin hafi ráðið of miklu í þró-
un mála. Sagði Kristinn ennfremur
að í ljós hefði komið að hross hafi
verið of hátt dæmd þar í landi og'
nefndi hann í því sambandi stóð-
hestinn Einar frá Roetgen í Þýska-
landi. Taldi Kristinn að ráðstefna
þessi hafi verið gott framhald af
ráðstefnu sem haldin var í Dan-
mörku sl. haust en þar mættu Þjóð-
veijar ekki og því kannski eðlilegt
að svo mikill tími hafi farið í rök-
ræður við Þjóðveijana að þessu
sinni. Víkingur sagði að komið hefði
skemmtilega á óvart hversu margir
góðir dómarar væru til ytra og
greinilegt að búið væri að ná nokk-
uð góðu samræmi milli flestra
þeirra. Sagði hann að ef eitthvað
mætti að finna væri það helst að
þá skorti á stundum kjark til að
taka á alvarlegum göllum og fara
niður skalann.
7 BEKKJA ÆFINGAKERFIÐ
Hentar öllunt
Reynslan hefur sýnt að þetta æfingakerfi hentar
sérlega vel fólki á öllum aldri, sem ekki hefur
stundað einhverja líkamsþjálfun í langan tíma.
Æfingakerfið er einnig gott fyrir fólk, sem ekki
stundar almenna leikfimi vegna stífra vöðva o.fl.
7 bekkja æfingakerfið liðkar, styrkir og eykur blóð-
streymi til vöðva, þannig að ummál þeirra minnk-
ar. Einnig gefur það gott nudd og slökun.
Þuríður Sigurðardóttir:
Ég hef þjáðst af bakverkjum
í mörg ár, en síðan ég fór að
stunda æfingabekkina held
ég mér alveg góðri og þol
mitt hefur aukist og finn ég
þar mikinn mun.
Vilhelmína Biering:
Ég er eldir borgari og hef verið hjá Sigrúnu í æfingabekkjum
í 3 ár og hlakka til í hvert sinn. Mér finnst þetta ómetanleg
hreyfing fyrir alla vöðva og finnst mér ég ekki mega missa
úr einn tíma, enda finnst mér að eldri borgarar eigi að njóta
þess að vera í æfingum til þess að halda góðri heilsu og
njóta þess um leið að hafa eigin tíma.
aldurshópum
Getur eldra fólk notið góðs
af þessum bekkjum?
Já, þessi leið við að hreyfa líkamann er þægileg,
liðkar og gefur góða slökun. Og er þess vegna
kjörin fyrir eldra fólk.
Sólrún Bjarnadóttir:
Ég hef stundað æfingabekkina
í 10 mánuði og sé ég stórkost-
legan mun á vextinum um leið
og þolið hefur aukist til muna
og ekki hvað síst hafa bakverk-
ir algjörlega horfið. Þetta er
það besta sem ég hef reynt.
Helga Einarsdóttir:
Ég hef í mörg ár þjáðst af verkjum í mjöðmum
og fótum, en síðan ég fór að stunda æfinga-
bekkina hef ég ekki fundið fyrir því svo að ég
mæli eindregið með þessum æfingum.
Erum með þrekstiga og þrekhjól
★
★
★
★
Ert þú með lærapoka? ★
Ert þú búin að reyna allt, án árangurs?
Hjá okkur nærðu árangri. ★
Prófaðu og þú kemst að því að sentimetrun- ★
um fækkar ótrúlega fljótt. ★
Eru vöðvabólgur að hrjá þig í baki, öxlum
eða handleggjum?
Stirðleiki í mjöðmum og þreyta í fótum?
Vantar þig aukið blóðstreymi, þol og slökun?
Þá hentar æfingakerfið okkar vel.
ÆFINGABEKKIR
HREYFINGAR
Leiðbeinendur:
Sigrún Jónatansdóttir
Dagmar Maríusdóttir
Opió fró kl. 9-12 og 15-20.
Frír kynningartími.
Ármúla 24 - sími 680677