Morgunblaðið - 07.09.1993, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. SEPTEMBER 1993
ATVINNUAUGl YSINGAR
Bókhald
Rösk, samviskusöm kona óskast í 3 tíma á
dag að færa bókhald í Opus-Allt.
Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl.
merktar: ÓM - 12823“ fyrir 11. september.
Frá Flensborgarskólanum
Vegna forfalla vantar Flensborgarskólann
námsráðgjafa um óákveðinn tíma í starfs.
Nánari upplýsingar veita skólameistari og
aðstoðarskólameistari, sími 650400.
Skólameistari.
Lausar stöður í
Vöruhúsi KÁ
Ritfangadeild: vinnutími 9-18.
Bakarí: vinnutími 13-18.
Pantanadeild: vinntími 13-18.
Kjöt- og fiskborð: 2 stöður, vinnutími 9-18
og 13-18.
Afgreiðslukassar: 2 stöður, vinnutími 9-18.
Við gerum þær kröfur, að fólk sýni góða fram-
komu, stundvísi og snyrtimennsku.
Meðmæli skulu fylgja umsóknum. Eidri um-
sóknir skulu endurnýjaðar.
Upplýsingar gefur vöruhússstjóri á staðnum,
ekki í síma.
Vöruhús KÁ, Selfossi.
Suðuriandsbraut 50,
sími og fax 677799.
Prufa
Sunnudag 12. sept. kl. 14.00-16.00.
Verið velkomin. Þeir sem eiga bækur eða
myndir endilega koma með.
M.A.A.I.
Modeling Association Of America International.
Prufa fyrir alla þá sem vilja komast til New
York '94 og reyna fyrir sér sem fyrirsæturl!
Umboðsskrifstofur eins og:
Wilhelmina, Paulines, IMG Models, Elite
taka á móti ykkur með sínum bókurum.
Hótelstarf
Vanur starfskraftur, eldri en 30 ára, óskast
straxtil starfa við þrif á herbergjum hótelsins.
Nánari upplýsingar veitir Gylfi á staðnum
í dag og á morgun.
Bergstaðastræti 37.
Sjúkraliðar
Sjúkraliða vantar að dvalar- og hjúkrunarrými
Hornbrekku, Ólafsfirði.
Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður í
síma 96-62482.
Skriflegar umsóknir berist fyrir 15. septem-
ber nk.
Aðalbókari
Tölvuvinnsla
íslenskt Marfang hf., útflytjandi á sjávaraf-
urðum, óskar eftir að ráða nú þegar í starf
aðalbókara, sem á að hafa yfirumsjón með
bókhaldi og færslu bókhalds.
Auk þess felst í starfinu að vera þátttakandi
í endurskoðun á tölvukerfi fyrirtækisins og
aðlaga það auknum umsvifum.
Leitað er að dugmiklum einstaklingi með
góða skipulagshæfileika, fagþekkingu og
starfsreynslu.
Nánari upplýsingar veitir Björn Bragason,
fjármálastjóri fyrirtækisins, í síma 91-
680700.
Skriflegar umsóknir sendist í síðasta lagi 15.
september 1993 til undirritaðs.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnað-
armál.
ICEL4ND
MðfTERS
ÍSLENSKT MARFANG H.F.
ICELAND WATERS LTD.
HÖFÐABAKKA 9,
PÓSTHÓLF 12080,
132 REYKJAVÍK.
RAÐAUGIYSINGAR
Garðabær
4
Auglýsing um tillögu að
breytingu á deiliskipulagi
íBúðum
Samkvæmt ákvörðun bæjarstjórnar Garða-
bæjar og skipulagsstjóra ríkisins og með vís-
an til gr. 4.4.1. í skipulagsreglugerð nr.
318/1985 er hér með lýst eftir athugasema-
um við tillögu að breytingu á deiliskipulagi
lóðarinnar Holtsbúð 93. Breytingin felst í því
að heimilað er að skipta einbýlishúsi í tvíbýl-
ishús.
TilJagan liggur frammi á bæjarskrifstofunum
í Garðabæ, Sveinatungu við Vífilsstaðaveg
frá 7. september til 5. október 1993 á skrif-
stofutíma alla virka daga.
Athugasemdum við skipulagstillöguna skal
skila til undirritaðs fyrir 19. október 1993
og skulu þær vera skriflegar.
Þeir, sem ekki gera athugasemdir innan til-
skilins frests, teljast samþykkir tillögunni.
Bæjarverkfræðingurinn í Garðabæ.
KENNSLA
Megrunarkúrar-
viðhald offitu ?
Nú er rétti tíminn til að takast á við ofeldið
á skynsaman hátt, hópfræðsla, einkaráðgjöf.
Upplýsingar í síma 14126,
Guðrún Þóra Hjaltadóttir,
löggiltur næringarráðgjafi.
Enskunám
Er ekki rétt að bæta við enskukunnáttuna?
Skólinn, English 2000, School of English í
Bournemouth, býður þig velkominn til náms.
Upplýsingar gefur Páll G. Björnsson,
sími 98-75888, heimasími 98-75889.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirtöldum eignum verður háð á þeim sjálfum
sem hér segir:
Darra SH-319, þingl. eign Steinars hf. útgerðarfélags. Gerðarbeið-
endur Húsasmiðjan hf. og Jökull hf., 10. september 1993 kl. 11.00.
Sýslumaðurirm í Stykkishólmi,
6. september 1993.
Styrkir til bifreiðakaupa
Tryggingastofnun ríkisins veitir viðtöku um-
sóknum vegna styrkja, sem veittir eru hreyfi-
hömluðum til bifreiðakaupa.
Nauðsyn bifreiðar vegna hreyfihömlunar skal
vera ótvíræð.
Umsóknareyðublöð vegna úthlutunar 1994
fást hjá afgreiðsludeild og upplýsingadeild
Tryggingastofnunar ríkisins, Laugavegi 114,
og hjá umboðsmönnum hennar um land allt.
Umsóknarfrestur er til 1. október.
Tryggingastofnun ríkisins.
ATVINNUHÚSNÆÐI
Skrifstofuhúsnæði
til leigu miösvæðis í Hafnarfirði
Gæti hentað fyrir léttan iðnað.
Upplýsingar í síma 53039 frá kl. 10-16 næstu
daga.
Til sölu
M/s Ágústa Haraldsdóttir VE 108 með veiði-
heimildum 234 ÞÍG og veiðafærum.
Einnig veiðafærahús í Norðursundi 3,
Vestmannaeyjum.
Tilboð óskast send í pósthólf 122, 900 Vest-
mannaeyjum merkt:
„Ágústa Haraldsdóttir VE 108“ fyrir 24. sept.
Upplýsingar í síma 98-11864.
Aðalfundur
OMEGA FARMAHF.
Aðalfundur OMEGA FARMA HF. verður
haldinn á Kársnesbraut 108, mánudaginn
20. september 1993 kl. 20.00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Tillaga að breytingu á ákvæðum sam-
þykkta um fjölda stjórnarmanna.
3. Önnur mál.
SJÁLFSTJEOISFLOKKURINN
I É l. A (, S S T A R V
Sjávarútvegsnefnd
Sjálfstæðisflokksins
Boöaö er til fundar í sjávarútvegsnefnd Sjálfstæöisflokksins miöviku-
daginn 8. september nk. kl. 20.30 í Valhöll v/Háaleitisbraut.
Á dagskrá fundarins er aö ræða og ganga frá drögum aö ályktun
um sjávarútvegsmál fyrir komandi landsfund.
Stjðrnin.