Morgunblaðið - 07.09.1993, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. SEPTEMBER 1993
39'*'
Heimsókn Peresar
eftir Snorra G.
Bergsson
Fátt var meira umtalað um
miðjan ágústmánuð en heimsókn
Shimonar Peres og sitt sýndist
hveijum. Félagið fsland-Palestína,
launþegasamtök og stjórnarand-
staðan mótmæltu harðlega og
stöðugur áróður þeirra í fjölmiðl-
um gerði það að verkum að ís-
lenskur almenningur fékk þá hug-
mynd að þessi maðurværi þess
óverðugur að fá að stíga fæti á
heilaga íslenska jörð, enda hryðju-
verkamaður. Sannanir fyrir slíku
hafa ekki fundist, frekar en sann-
anir fyrir meintum stríðsglæpum
Eðvalds Hinrikssonar. Að mínum
dómi teljast þeir því báðir saklaus-
ir, því sekt hvorugs þeirra hefur
verið nægjanlega sönnuð. Eigi að
síður ijúka ísléndingar upp til
handa og fóta og veija sakleysi
Eðvalds, á meðan Peres er dæmd-
ur sekur fyrir orð hlutdrægra
meðlima Félagsins Ísland-Palest-
ína.
Það sem helst vekur athygli er
framganga Félagsins ísland-
Palestína, sérstaklega forystu-
manna þeirra, Elíasar Davíðssonar
og Sveins R. Haukssonar, sem
báðir vændu Peres um hryðjuverk,
án þess þó að koma fram með
haldbærar sannanir. Gekk þó Elías
sýnu lengra og í dagblaðinu Tím-
anum bauð hann 250.000 krónur
þeim sem gæti „haft hendur í
hári hans“, eins og Tíminn orðaði
það, sem ég er viss um að ísraelsk-
ir hárskerar myndu fegnir með-
taka. Kjarni málsins er að þeta
gijótkast þeirra félaga kemur úr
glerhúsi. í fréttablaði félagsskapar
þeirra frá síðasta ári var verið að
velta sér upp úr hugsanlegri komu
Yasser Arafats til íslands, sem
vonað var að af gæti orðið. Þá
spyr ég: Er Arafat ekki hryðju-
verkamaður? Hið sanna er að í
samanburði við Arafat ser Peres
eins og messudrengur, en augljós-
lega er ekki sama hver er, Jón eða
séra Jón. Þeir hefðu því brosað
framan í þessa arabískklæddu eft-
irlíkingu af Ringo Starr, tekið í
hönd hans og boðið hann velkom-
inn til íslands, væntanlega í sam-
fylgd með Steingrími Hermanns-
syni, sem vekur upp aðrar spurn-
ingar.
Steingrímur Hermannsson neit-
aði, sem og aðrir leiðtogar stjórn-
arandstöðunnar, að svo mikið sem
sitja til borðs með Peres, á meðan
hann var til í að gera slíkt með
Arafat, til þess eins að láta Arafat
gera sig af fífli fyrir alþjóð með
peningnum margfræga. Afstaða
Steingríms er í besta falli hræsni,
í versta falli ókurteisi af grófustu
gerð og léleg pólitík. Sömu sögu
má segja um Olaf Ragnar Gríms-
son, en hann hafði á flökkuárum
sínum í pólitík setið til borðs með
stjórnendum ríkja sem ekki hafa
verið þekktir fyrir að virða mann-
réttindi og í raun kúga þjóðir sín-
ar og þjóðarbrot af mikilli hörku.
Annað dæmi um hræsni, eða
kannski „skítlegt eðli“, svo hans
eigin orð séu notuð. Afstaða
Kvennalistans byggðist hins vegar
að mestu leyti á þeirri skoðun
þeirra að ísraelar væru hinir örg-
ustu morðingjar smábama og al-
Snorri G. Bergsson
„Á arabískum landa-
kortum, nema egypsk-
um, er Israelsríki ekki
til, aðeins Palestína.
Það er einnig framtíð-
arsýn þeirra, það sál-
sjúka hatur sem músl-
imar bera gagnvart
ísrael hefur einnig bor-
ist til íslands og smitað
marga.“
gjörir fantar í heild sinni, og stríði
því gegn hinni mjúku stefnu
þeirra.
Um þetta mál er mér ljúft að
ræða. Það unga fólk sem lætur
lífið á Vesturbakkanum gerir það
að afloknum óeirðum og lögbrot-
um. Það er sent fram á vígvöllinn
til að mæta vopnuðum hermönn-
um, ekki til að ná árangri, heldur
til að espa hermenn til átaka sem
aðeins geta endað á einn veg.
Börnum er því fórnað í áróðurs-
stríðinu gegn ísrael, sem ekki er
í samræmi við stefnu Kvennalist-
ans. Það sem fæstir íslendingar
vita, er að börn og unglingar sem
neitað hafa að taka þátt í þessum
mótmælum, hafa verið myrt í stór-
um stíl af erindrekum PLO eða
Hamas, eða í besta falli rekin úr
skóla. Til að fá aðgang að æðri
menntun, t.d. að menntaskólum,
þurfa arabískir unglingar að vera
þátttakendur í skæruliðahreyfingu
eða í shabiba, skráningu og þjálfun
unglinga til þátttöku í óeirðum.
Slík mannréttindabrot samrýmast
ekki stefnu Kvennalistans, né ann-
arra íslenskra andófsmanna.
Síðan Intifada hófst hafa rúm-
lega 1.900 Palestínuarabar látið
lífíð, þar af meira en helmingur
fallið fyrir hendi annarra Palest-
ínuaraba. Hvers vegna? Jú, vegna
hófsamra skoðana, friðarvilja, fyr-
ir að neita að taka þátt í mótmæl-
um, fyrir að vera kristnir, fyrir
að tilheyra óvinveittri fjölskyldu
og vegna gruns um að vinna með
ísrael.
Sú viðleitni að gera Palestínu-
araba að englum er fáránleg, þeir
hafa ekkert breyst frá því á síð-
asta áratug. Þessa dagana stendur
yfír þjóðernishreinsun í Súdan, þar
sem múslimskar hersveitir hafa
rekið á aðra milljón kristinna
manna á flótta og drepið þá sem
náðst hefur í, t.d. með því að kross-
festa þá yfir hægum eldi. Þessar
hersveitir voru þjálfaðar af PLO;
mönnum Arafats, borðfélaga og
persónulegs vinar Steingríms.
Einnig hafa komið í umræðuna
samþykktir Sameinuðu þjóðanna
og ísrael ásakað um að vilja aldr-
ei hlíta slíkum. Skoðum það nán-
ar. Vandamál Palestínuaraba or-
sakaðist af því að þeir neituðu að
hlíta samþykktum SÞ nr. 181 frá
1947 um skiptingu Palestínu. Á
árunum 1951-1956 ályktuðu
Sameinuðu þjóðirnar ítrekað um
viðkomandi deilumál, sem arabar
hundsuðu í hvert skipti. Árið 1956
ályktuðu SÞ um brotthvarf heija
ísraela, Breta og Frakka frá Sínaí.
Henni var hlýtt, en þáttur Egypta
var hundsaður af Nasser, eins og
1967. Samþykkt 242, frá_ árinu
1967, var um brotthvarf ísraels
frá hernumdu svæðunum, viður-
kenningu araba á tilverurétti ísra-
els, tryggingu landamæra og
stöðvun stríðsátaka. ísraelsstjórn
var fús að samþykkja slíkt, með
því skilyrði að arabar myndu sam-
þykkja sinn hluta, sem þeir neit-
uðu (no negotiations, no recogniti-
on, no peace) og ekki í síðasta
sinn, eins og sagan sýnir.
Þá er komið að Benedikts þætti
Davíðssonar, þess manns sem hef:
ur á skömmum tíma breytt ASÍ
úr launþegasamtökum í pólitískan
þrýstihóp. Hann vildi að ísraelar
myndu ekki gera öðrum það sem
þeir vildu ekki að aðrir gerðu þeim.
I aldirnar hafa gyðingar snúið
hinni kinninni að ofsækjendum
sínum, en án árangurs, sem einnig
hefur átt við í Landinu helga. Ég
er undrandi á að Benedikt tekur
ekki með í reikninginn að múslim-
ar hafa myrt gyðinga í Palestínu
í hundruðir ára, sem hámarki náði
á okkar öld. Leiðtogi Palestínu-
araba frá 1920-1964, Amin el-
Husseini, frændi Arafats, starfaði
með Hitler í framkvæmd Loka:
lausnar gyðingavandamálsins. í
gegnum persónulegan vinskap við
Adolf Eichmann lét hann senda á
fimmta hundrað þúsund gyðinga
til gasklefa Póllands, sem Eic-
hmann sagði að gert hefði verið
vegna eindreginna óska Husseinis.
Allt sem þér viljið ekki gildir víst
aðeins um gyðinga.
Kjarni málsins er að Palestínu-
arabar hafa hingað til ekki viljað
semja frið við ísrael og enn stend-
ur skýrum stöfum í stofnskrá PLO
krafan um eyðingu ísraels. Á
arabískum landakortum, nema
egypskum, er ísraelsríki ekki til,
aðeins Palestína. Það er einnig
framtíðarsýn þeirra, það sálsjúka
hatur sem múslimar bera gagn-
vart ísrael hefur einnig borist til
íslands og smitað marga. Kominn
er tími til að sumir Islendingar
afleggi þetta blinda hatur og gefi
friði fyrir botni Miðjarðarhafs
tækifæri. Sú ókurteisi og hræsni
sem einkenndi viðbrögð margra
Islendinga við komu Peresar eru
ekki skref í þá átt.
Höfundur er sagnfræðinemi.
VANTAR ÞIG KÆLISKÁP?
BLOMBERG
hefur réttu lausnina!
BLOMBERG skáparnir eru búnir Við bjóðum 20 gerðir af kæli-
glæsilegum innréttingum með og frystiskápum frá Blomberg,
færanlegum hillum í hurð og skáp. 55 eða 60 cm breiða.
Einn þeirra hentar þér örugglega!
Kæli/frystiskápur
KFS 270
Kælir: 190 lítrar
nettó, alsjálfvirk af-
hríming, 3 hillur, 2
grænmetisskúffur,
innbyggt Ijós.
Frystir: 52 lítrar
nettó, 3 frysti-
skúffur með
kuldahlif.Orku-
notkun á sólar-
hring: 1.6 kWh.
Mál:
H144xB60xD60 cm.
Verð kr. 69.900 eða kr. 66.400 stgr.
Kæli/frystiskápur
KFS 350
Kælir: 222 lítrar nettó,
alsjálfvirk afhriming,
4 hillur, 3 færanlegar
og ein með flöskugati,
2 grænmetisskúffur,
færanlegar hillur í
hurð, innbyggt Ijós.
Frystir: 86 lítrar nettó,
2 frystiskúffur og
1 hilla með kuldahlíf.
Mál: H184xB60xD60 cm.
Verð kr. 95.900 eða kr. 89.187 stgr.
Kæli/frystiskápur
KFS345
Kælir: 190 lítrar
nettó, alsjálfvirk af-
hríming, 3 hillur, 2
grænmetisskúffur,
innbyggt Ijós.
Frystir: 42 lítrar
nettó, 2 frystiskúffur
með kuldahlíf.
Orkunotkun á sólar-
hringUkWh.
Mál: H184xB60x
060 cm.
Verð kr. 94.900
eða kr. 88.257 stgr.
Kæli/
frystiskápur
KFS 230
Kælir: 166 lítrar
nettó, alsjálfvirk
afhríming, 3
hillur, græn-
metisskúffur,
innbyggt Ijós.
Frystir: 42 lítrar
nettó, 2 frysti-
skúffur með
kuldahlif.
Orkunotkun
ásólarhring. 1.3 Kwh.
Mál: H139.5xB55xD58 cm.
Verð kr. 62.900 eða kr. 59.755 stgr.
Kæli/frystiskápur
KFS310
Kælir: 208 litrar
nettó, 4 hillur, 2
grænmetiskúffur,
innbyggð lýsing.
Frystir: 67 litrar
nettó, 2 frysti-
skúffur og 1 hilla
með kuldahlff.
Orkunotkun á
sólarhring 1.6 kWh.
Mál: H178xB55
xD58.
Verðkr. 78.900
eða kr. 73.377 stgr.
Kynntu þér nýju, mjúku
línuna frá
Blombera
Kæli/
frystiskápur
KFS 282
Kælir: 217 lítrar
nettó, alsjálf-
virk afhríming,
5 hillur, 2 graen-
metisskúffur,
innbyggt Ijós.
Frystir: 53
lítrar netó,
1 hilla.
Orkunotkun á
sólarhring
1.65 kWh.
Mál:
H153.5xB55xD58.
Verð kr. 62.900 eða kr. 59.755 stgr.
KFS243
Samskonar skápur
Kælir: 190 lítrar nettó.
Frystir: 50 lítrar nettó.
Mál: H144xB54xD60.
Verð kr. 59.900 eða kr. 56.900 stgr.
MSMS Einar
MSM Farestveit&Co.hf.
Borgartúni 28 ® 622901 og 622900
ÚTSALA 20-60% AFSLÁTTUR
Síöustu dagar ^hummel^
SPORTBÚÐIN
iþróttashór, ibróttagallar, bolir, sundfatnaður, dúnúlpur, regnlatnaður o.tl. Ármúla 40 ■ Simi 813555 og 813655