Morgunblaðið - 07.09.1993, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. SEPTEMBER 1993
43
maður sem hvað mest áhrif hafði
á íslenska vátryggingastarfsemi all-
an sinn starfstíma í tæp fjörutíu
ár og enn er starfsemin á ýmsum
sviðum í þeim farvegi sem Guð-
mundur mótaði hana.
Guðmundur var einn af hvata-
og baráttumönnum fyrir stofnun
Samsteypu íslenskra fiskiskipa-
trygginga árið 1968 og vann þar
mikið brautryðjendastarf til þess
að færa framkvæmd og ákvörðun-
artöku um kjör á tryggingum ís-
lenskra fískiskipa inn í landið, en
allt til þess tíma höfðu iðgjöld fiski-
skipatrygginga verið ákveðin í
London. Vegna einbeitni Guðmund-
ar og trausts sem hann naut á er-
lendum endurtryggingamörkuðum
tókst þetta og hafði starf Guðmund-
ar á þessu sviði ómældan sparnað
í för með sér fyrir íslenska útgerðar-
menn og þar með þjóðarbúið.
Fram að þessu voru íslensk fiski-
skip yfir 100 rúmlestir tryggð með
enskum skilmálum á sérhæfðu og
tyrfðu máli. Guðmundur beitti sér
fyrir gerð íslenskra skilmála, sem
enn í dag eru notaðir lítt breyttir
frá fyrstu gerð.
Guðmundur var fyrsti formaður
iðgjalda- og skilmálanefndar Sam-
steypunnar og gegndi formennsku
allt þar til hann lét af starfi í árs-
lok 1978.
Vegna starfa sinna að sjótrygg-
ingum sá Guðmundur fljótt nauðsyn
þess að hér væri til staðar sérhæft
björgunarskip til að fylgja fiski-
skipaflotanum og þannig auka ör-
yggi íslenskra skipa og draga úr
tjónum þeirra. Guðmundur beitti sér
fyrir því ásamt öðrum að Björgun-
arfélagið hf. var stofnað árið 1964
og var einn af hluthöfum þess.
Guðmundur studdi félagið með ráð
og dáð alla tíð.
Fyrir hönd Björgunarfélagsins
og Samsteypu íslenskra fiskiskipa-
trygginga vil ég þakka Guðmundi
öll hans ómetanlegu störf í þágu
þeirra. Guðmundur var óumdeildur
fyrir mannkosti sína og þekkingu.
Þannig menn hafa mikil áhrif á
samtíð sína og um langa framtíð.
Ég vil votta frú Arndísi og fjöl-
skyldu samúð.
Blessuð sé minning Kr. Guð-
mundar Guðmundssonar.
Gunnar Felixson.
Haustið 1941 var hafin kennsla
í viðskiptafræðum við Háskóla ís-
lands. Éin þeirra greina, sem við,
er stóðum að stofnun deildarinnar,
töldum að sjálfsögðu nauðsynlegt
að kenna, var sú grein, sem á er-
lendum málum er nefnd statistik.
Fáir íslendingar höfðu lagt sérstaka
stund á þá grein, þótt nokkur
menntun á því sviði væri auðvitað
liður í almennu hagfræðinámi, sem
ýmsir höfðu stundað erlendis. Stat-
istik var hins vegar mun meiri þátt-
ur náms í tryggingafræði, en fáir
höfðu lagt stundá þá grein.
Þegar að því kom að semja reglu-
gerð um námið í viðskiptafræðum,
var úr þeim vanda að ráða, að ekk-
ert orð hafði almennt verið notað
um fræðigreinina statistik. Niður-
staðan varð sú, að nefna hana töl-
fræði, og hefur svo verið gert síð-
an. Til kennslunnar valdist Kr.
Guðmundur Guðmundsson, sem
tveim árum áður hafði lokið prófi
í tryggingafræði við Kaupmanna-
hafnarháskóla. Reyndist það hinni
nýju deild mikið happ. Hann reynd-
ist frábær kennari og lagði grund-
völl að fræðilegum tökum á mikil-
vægri kennslugrein í viðskipta- og
hagfræðideild sem óx ört og dafn-
aði og hefur orðið að einni af fjöl-
mennustu deildum Háskólans.
Kr. Guðmundur Guðmundsson
hefði auðvitað í kennslu sinni getað
stuðzt við erlenda byijendabók í
tölfræði, en af þeim var og er til
mikill fjöldi. En hann tók annan
kost. Hann samdi stutta kennslubók
handa nemendum sínum og endur-
bætti hana smám saman, er reynsla
hans sem kennara jókst og náms-
kröfur voru auknar. Þessi fjölrituðu
kennsluhefti Guðmundar tóku að
mínu viti fram þeim erlendu bókum,
sem til greina hefði komið að nota.
Svo mikils var kennsla Guðmundar
og ritstörf hans metin, að hann var
skipaður dósent við deildina haustið
1959, þótt kennslugreinin væri ekki
umfangsmikil. En Guðmundur var
kennari í tölfræði við deildina frá
upphafi til 1979, er hann náði sjö-
tugsaldri. Hann annaðist einnig
kennslu í viðskiptareikningi frá ár-
inu 1947 og þangað til kennsla í
þeirri grein var lögð niður. Til notk-
unar við þá kennslu samdi hann
einnig sérstök kennsluhefti. Fyrir
endurskoðendur samdi hann einnig
kennslubók í tölfræði og viðskipta-
reikningi. Kennsla hans og það, sem
hann skrifaði, bar vitni miklum
gáfumanni, sem hafði fullt vald á
fræðigrein sinni.
Kr. Guðmundur Guðmundsson
vann mikilvægt brautryðjendastarf
í þágu viðskipta- ög hagfræðideild-
ar Háskólans. Það verður ávallt
mikils metið. í kjölfarið hafa siglt
ungir ágætir fræðimenn, sem halda
uppi merki mikilsverðrar fræði-
greinar, sem gegnir stóru hlutverki
í þágu hagfræði og hagfræðirann-
sókna. En það var mikils virði,
hversu traustur sá hornsteinn var,
sem Kr. Guðmundur Guðmundsson
lagði við stofnun viðskipta- og hag-
fræðideildarinnar fyrir rúmlega
hálfri öld.
Gylfi Þ. Gíslason.
Kr. Guðmundur Guðmundsson,
fyrrverandi forstjóri íslenzkrar end-
urtryggingar og heiðursfélagi Sam-
bands íslenskra tryggingafélaga,
er látinn 85 ára að aldri. Með hon-
um er genginn maður, sem lagt
hefur af mörkum ómetanlegt upp-
byggingar- og þróunarstarf á sviði
vátrygginga og vátryggingarstarf-
semi hér á landi. Standa íslenskir
vátryggingarmenn í mikilli þakkar-
skuld við Kr. Guðmund Guðmunds-
son.
Þótt Guðmundur kæmi víða við
á langri starfsævi og hefði m.a.
með höndum viðamikil kennslu- og
fræðastörf við Háskóla íslands,
urðu vátryggingar sá starfsvett-
vangur, sem hann mest helgaði
starfskrafta sína.
Að loknu prófi frá Kaupmanna-
hafnarháskóla í tryggingastærð-
fræði og tölfræði árið 1939 hóf
hann störf hjá Sjóvátryggingafélagi
íslands hf. og Tryggingastofnun
ríkisins. Um þetta leyti mun hann
og hafa hafið undirbúning að lög-
gjöf um Stríðstryggingafélag ís-
lenskra skipshafna og varð hann
árið 1941 forstjóri þessfélags. Fékk
það síðar heitið íslenzk endurtrygg-
ing. Því starfi gegndi Guðmundur
til loka ársins 1978, er hann lét af
störfum fyrir aldurs sakir.
Sem forstjóri íslenskrar endur-
tryggingar hafði Guðmundur
ómæld áhrif á þróun innlendrar
vátryggingarstarfsemi. Var hann
m.a. hvatamaður þess, að innlend
vátryggingarfélög mynduðu svo-
nefndar vátryggingarsamsteypur til
þess að endurtryggja einstakar
áhættur hvert hjá öðru, í stað þess
að endurtryggja þær að stærstum
hluta hjá erlendum félögum eins
og lengi hafði tíðkast. Varð þetta
til að efla íslensk vátryggingarfé-
lög, og styrkja stöðu þeirra í sam-
skiptum við erlenda endurtryggj-
endur. Gegndi Guðmundur lengi
formennsku í samsteypum, sem
komið var á fót í þessu skyni.
Guðmundur var einn helsti
hvatamaður að stofnun Sambands
íslenskra tryggingafélaga á árinu
1960 sog átti sæti í nefnd þriggja
manna, er vann að undirbúningi
stofnunar þess. Þá sat hann einnig
í undirbúningsnefnd að stofnun
Tryggingaskóla SÍT. Skólinn var
settur á laggirnar árið 1962, og
kenndi Guðmundur nokkuð við skól-
ann.
Fyrir utan öll þessi „formlegu"
störf, sem hér hafa verið nefnd og
Guðmundur sinnti af alúð, var hann
ætíð boðinn og búinn að gefa starfs-
mönnum vátryggingarfélaganna
góð ráð við úrlausn álitaefna, sem
iðulega koma upp í starfsgreininni
í dagsins önn. Notuðu vátrygging-
armenn sér þetta óspart, enda eng-
inn betur til þess fallinn að leið-
beina mönnum um einstigi og öng-
stræti vátryggingarstarfseminnar,
slík var yfirburðarþekking hans og
færni. Hafði hann jafnan ákveðnar
skoðanir á vátryggingarmálum,
sem hann lá ekki á, og rökstuddi
af festu þá tilhögun og afgreiðslu,
sem hann taldi við hæfi í hveiju
tilviki.
Fyrir mikil og farsæl störf í þágu
íslenskrar vátryggingarstarfsemi
var Guðmundur árið 1979 kjörinn
heiðursfélagi Sambands íslenskra
tryggingafélaga. Er hann annar af
aðeins tveimur, sem þá viðurkenn-
ingu hafa hlotið.
Eftir að Guðmundur lét af störf-
um hjá íslenzkri endurtryggingu
fylgdist hann afar vel með því, sem
var að gerast í vátryggingar-
rekstri. Jafnframt leitaðist hann við
ásamt ágætri konu sinni, frú Arnd-
ísi Bjarnadóttur, að viðhalda góðum
tengslum við vátryggingarmenn og
samtök þeirra. Hélt Guðmundur
ótrúlegum styrk til líkama og sálar
allt fram á dánardægur, og hafði
jáfnan gnótt viðfangsefna á áhuga-
og fræðasviðum sínum. Kom andlát
hans því okkur vátryggingarmönn-
um í opna skjöldu.
Kr. Guðmundur Guðmundsson
var vátryggingarmaður í besta
skilningi þess hugtaks. Hann réð
yfir fræðilegri þekkingu ásamt
hæfni til að takast á við og leysa
vandamál hversdagsins á affara-
sælan hátt. F.h. Sambands ís-
lenskra tryggingafélaga þakkar
undirritaður Kr. Guðmundi Guð-
mundssyni giftudijúg störf að vá-
tryggingarmálefnum og vináttu
hans og ræktarsemi við okkur vá-
tryggingarmenn. Innilegar samúð-
arkveðjur færi ég frú Arndísi, börn-
um og fjölskyldum þeirra.
Ólafur B. Thors, formaður
Sambands íslenskra
tryggingafélaga.
Kveðja frá Félagi íslenskra
tryggingastærðfræðinga
Heiðursfélagi Félags íslenskra
tryggingastærðfræðinga, Kr. Guð-
mundur Guðmundsson, er látinn,
85 ára að aldri. Guðmundur lauk
stúdentsprófi frá Menntaskólanum
í Reykjavík 1931 og stundaði síðan
nám við Kaupmannahafnarháskóla
í tryggingastærðfræði og tölfræði
pg lauk prófi 1939. Hann var þriðji
íslendingurinn sem lauk því prófi,
en hinn fyrsti var Brynjólfur Stef-
ánsson og annar Árni Björnsson.
Að námi loknu lá leiðin heim til
íslands og þar hóf hann störf hjá
Sjóvátryggingarfélagi íslands hf.
og Tryggingastofnun ríkisins. Sjóvá
var á þessum tíma eina innlenda
vátryggingarfélagið sem stundaði
almenna vátryggingarstarfsemi og
eigi verður annað sagt en að það
hafi haft hæfum tryggingastærð-
fræðingum á að skipa, en bæði
Brynjólfur og Árni störfuðu þar og
einnig mun dr. Ólafur Dan Daníels-
son hafa unnið þar með kennslu.
Um haustið 1939 var Stríðsslysa-
tryggingafélag íslenskra skips-
hafna stofnað, en nafni félagsins
var síðar breytt í Islenzk endur-
trygging. Réðst Guðmundur til þess
félags í hlutastarf í byijun en 1941
var hann ráðinn forstjóri þess og
gegndi hann því starfi til ársloka
1978. í starfi sínu hjá fyrirtækinu
beitti Guðmundur mjög trygginga-
stærðfræði og tölfræði við ákvarð-
anatöku í vátryggingarstarfsemi.
Það gerði hann einnig á öðrum svið-
um en hann vann t.d. mikið að
skaðabótaútreikningum vegna lík-
amstjóna á árum áður svo og var
hann tryggingastærðfræðilegur ráð-
gjafi margra lífeyrissjóða en sem slík-
ur starfaði hann fram á síðustu ár.
Guðmundur var kjörinn fyrsti
formaður Félags íslenskra trygg-
ingastærðfræðinga er það var
stofnað í ársbyijun 1968. Þá var
hann tengiliður félagsins við al-
þjóðasamtök tryggingaastærðfræð-
inga um tveggja áratuga skeið og
átti sæti í stjórn þeirra 1972-1975.
Margir hinna yngri félagsmanna
leituðu oft í smiðju til Guðmundar
og var honum ávallt ljúft að leið-
beina þeim og gefa góð ráð. Á ár-
inu 1983 var Guðmundur kjörinn
heiðursfélagi félagsins.
Félagsmenn Félags íslenskra
tryggingastærðfræðinga kveðja
fyrsta formann sinn og heiðursfé-
laga með þakklæti fyrir störf hans
í þágu félagsins og starfsgreinar-
innar og votta eiginkonu hans,
Arndísi Bjarnadóttur og fjölskyldu
þeirra samúð.
ÚTSALA
30-50% AFSLÁTTUR
af velúrgöllum, sloppum, nærfatnaði, bolum o.fl.
10% staðgreiðsluafsláttur af öðrum vörum út
þessa viku.
Gullbrá, Nóatúni 17, sími 624217.
Krossaðu við rétt svör við spurningunum hér fyrir neðan
og sendu svörin til Morgunblaðsins. Nöfn 75 vinningshafa
verða dregin úr innsendum lausnum og fá þeir allir
bíómiða fyrir tvo.
1. Hvað heitir stelpan sem ieikur
aðalhlutverkið í Áreitni ?
□ Julia Roberts
□ Sharon Stone
□ Alicia Silverstone
2. Á hvaða dögum birtist
Unglingasíða Moggans?
□ á sunnudögum
□ á miðvikudögum
□ á föstudögum
NAFN______________________________
HEIMILI______________________
KENNITALA_____________=__________
Utanáskriftin er:
Morgunblaðið - Leikur
Kringlunni 1
103 Reykjavík
Skilafrestur 13. september
Leikurinn birtist aftur þar sem það
I vantaði skilafrestinn síðastliðinn
l sunnudag