Morgunblaðið - 07.09.1993, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. SEPTEMBER 1993
45
Aðalbjörg Stefánsdóttir
íKristnesi — Minning
e lonfi Kom þar sennilega tiFað
Fædd 8. febrúar 1906
Dáin 25. ágúst 1993
Eyjafjörður er fjarða fallegastur.
Þegar hann opnast í blárri heiðríkju
sumardagsins eða hvítri og kaldri
tign vetrarins, geta jafnvel sunnan-
menn, sem þarfnast víðáttu hafsins
og þess að komast burt, gleymt sér
og týnst inn í fjöll hans.
í skjóli þeirra fjalla í innanverð-
um firði, þar sem Eyjafjarðaráin
rennur þreið og lygn milli gróður-
sælla hlíða, fæddist Aðalbjörg Stef-
ánsdóttir í Kristnesi og þar ól hún
mestan sinn aldur, líkt og formæður
hennar og feður. Móðir hennar var
Rósa Helgadóttir Eiríkssonar frá
Botni og Sigurlaugar Jónasdóttur.
Faðir hennar var Stefán Jónsson
Helgasonar og Þorgerðar Ólafsdótt-
ur í Kristnesi.
Ég man að þegar ég kynntist
henni fyrst fyrir tuttugu árum, þá
fannst mér hún um margt líkjast
umhverfi sínu. Þó hún væri komin
hátt á sjötugsaldur var hún glæsileg
kona, mikið hárið, sem áður hafði
verið rautt, var sem silfur og húðin
mjólkurhvít eins og lesa má um í
ævintýrum. Stór var hún líka í snið-
um, óvenju vel gefin, stálminnug
og flest lék í höndum hennar. Fá-
brotið og snyrtilegt heimilið endur-
speglaði afstöðu hennar til lífsins,
þar var auðurinn: góður bókakostur
og orgel sem bæði hjónin léku á.
Það varð lífsstarf Aðalbjargar að
stjórna stóru sveitaheimili og ala
upp börn. Hún eignaðist fimm börn,
með eiginmanni sínum Aðalsteini
Jónssyni frá Halldórsstöðum í
Reykjadal. En varð fyrir þeim harmi
að missa fyrsta barn sitt á öðru
ári. Börn hennar sem komust á legg
voru Jón, læknir á Húsavík, Stefán,
kennari á Akureyri, Þór, bóndi í
Kristnesi, og Rósa, meinatæknir í
Reykhúsum. Af litlum efnum komu
þau hjónin börnunum til mennta
og umhyggja Aðalbjargar og rækt-
arsemi við þau og afkomendur
þeirra entist fram til síðasta dag.
Eins og allar konur var Aðalbjörg
margar konur. Hún var stórlynd,
rausnarleg, stjórnsöm og nákvæm.
Fálát gat hún verið sog stundum
hvöss í hreinskiptni sinni. En einnig
barnsleg, glettin og hlý. Þótti mér
oft, að hún hefði átt að fara fyrir
löndum og þjóðum, þannig hefðu
hæfileikar hennar nýst best. Slíkt
var henni hins vegar víðsfjarri. Hún
fylgdist að vísu ætíð vel með lands-
málum og tók afstöðu til þeirra.
Mótaðist sú afstaða af réttlætis-
kennd og sjálfsvirðingu. Kvenrétt-
indakona var hún hins vegar lítil
og að mörgu leyti fáskiptin um
þann heim, er lá utan hennar nán-
asta umhverfis. Þótti jafnvel flest
ferðalög óþörf, ef ekki hættuleg.
þar sennilega tiI7”að kornung
missti hún móður sína og síðar eins
og áður segir sitt fyrsta barn. Vildi
því helst að allt sem henni var
kærast væri samankomið og um
kyrrt á þeim stað sem hún vissi
bestan og öruggastan, Eyjafirðin-
um.
Þegar ég kveð Aðalbjörgu,
tengdamóður mína, og horfi til baka
yfir þann tíma, sem við áttum sam-
an, veit ég þó að sú kona sem lengst
mun vaka í vitund minni er hin
glaða kona. Konan sem gladdist
yfir því á vorin, að hvítir svanir
gerðu sér hreiður á tjörninni fyrir
framan bæinn hennar. Gladdist yfír
fögru tónverki, eða yfir söng barna
sinna upp úr ærbókinni og hún sjálf
lék undir. Gladdist yfir einhverju
smáu, skondnu eða fallegu í fari
annarra og í umhverfinu. Gleði
þessi var engu öðru lík, hávaða-
laus, fíngerð og einlæg. Frammi
fyrir þeirri gleði var ég ætíð gripin
svipuðum tilfinningum og frammi
fyrir firðinum hennar á bláum degi.
María Kristjánsdóttir.
Röngmynd birtist
Vegna misskilnings birtist röng
mynd með minningargreinum um
Höskuld Ottó Guðmundsson í Morg-
unblaðinu síðastliðinn laugardag,
en hér kemur rétta myndin. Hlutað-
eigendur eru innilega beðnir að af-
saka þessi leiðu mistök.
t
Eiginmaður minn og faðir okkar,
KR. GUÐMUNDUR GUÐMUNDSSON,
tryggingastærðfræðingur,
Bjarmalandi 24,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju í dag, þriðjudaginn 7. sept-
ember, kl. 13.30.
Arndís Bjarnadóttir,
Guðmundur Guðmundsson, Ragnheiður Guðmundsdóttir,
Ólafur Guðmundsson, Bjarni Guðmundsson,
Hólmgeir Guðmundsson.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð við
andlát og útför föður okkar, tengdaföð-
ur, afa og langafa,
AÐALSTEINS GUÐMUNDSSONAR,
frá Stakkadal í Aðalvík,
síðasttil heimilis
á Droplaugarstöðum,
Snorrabraut 58, Reykjavík.
Sigríður Aðalsteinsdóttir,
Ragnar Aðalsteinsson,
Stefán Aðalsteinsson,
Bjarnþór Aðalsteinsson,
Anna Lóa Aðalsteinsdóttir,
Kristján Guðmundsson,
Guðrún Guðmundsdóttir,
Ólöf Haraldsdóttir,
Ingibjörg Bernhöft,
Ólafur Guðmundsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda hlýju og
vinarhug við andlát og útför móður
okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
GUÐRÚNAR MAGNÚSDÓTTUR,
Skúlagötu 72,
I Reykjavík.
Hafdis Hafsteinsdóttir,
Unnur Hafsteinsdóttir,
Sigurveig Hjördís Gestsdóttir,
tengdasynir, barnabörn
og barnabarnabörn.
Birting afmælis- og
minningargreina
MORGUNBLAÐIÐ tekur afmælis- og minningargreinar til birt-
ingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á ritstjórn blaðs-
ins Kringlunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Hafnar-
stræti 85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með
góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með
greinar aðra daga.
Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru
birtar greinar um fólk sem er 70 ára eða eldra. Hins vegar
eru birtar afmælisfréttir með mynd í dagbók um fólk sem er
50 ára eða eldra.
Mikil áhersla er á það lögð að handrit séu vel frá gengin,
vélrituð og með góðu línubili.
Ákjósanlegast er að fá greinarnar sendar á disklingi.
t
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
LEIFUR ÞORBERGSSON,
skipstjóri,
Fjarðargötu 10,
Þingeyri,
verður jarðsunginn frá Þingeyrarkirkju fimmtudaginn 9. septem-
ber kl. 14.00.
Áslaug Árnadóttir,
Ásrún S. Leifsdóttir, Einar G. Gunnarsson,
Þorbergur S. Leifsson, Auðbjörg N. Ingvarsdóttir
og barnabörn.
t
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og vinar-
hug við andlát og útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa
og langafa,
JÓHANNS MAGNÚSSONAR,
Efstasundi 6.
Guð blessi ykkur öll.
Haildóra Einarsdóttir og fjölskylda.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og velvild við fráfall og útför
móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
SIGRÍÐAR MARKÚSDÓTTUR.
Karl Guðjónsson,
Sjöfn Guðjónsdóttir,
Þórarinn Guðjónsson,
Rúnar Guðjónsson,
Eygló Guðjónsdóttir,
Hrefna Guöjónsdóttir,
Sigri'ður Guðjónsdóttir, Jón Lárusson,
Garðar Guðjónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Siv Guðjónsson,
Steinar Magnússon,
Erla Jónasdóttir,
Hildur Ágústsdóttir,
Smári Steingrímsson,
+
Af öllu hjarta þökkum við samúð og hlýhug við andlát og jarðar-
för vinar, sonar, stjúpsonar og bróður okkar,
FINNBOGA GUÐBJÖRNS STEINGRÍMSSONAR,
Kópnesbraut 12,
Hólmavik.
Guð blessi ykkur öll.
Helga Guttormsdóttir,
Ásta Bjarnadóttir, Margeir Steinþórsson
og systkini.
+
Innilegar þakkir til allra þeirra sem auðsýndu okkur samúð og
vinarhug við andlát og útför mannsins míns, föður okkar, tengda-
föður og afa,
SVEINS BJÖRNSSONAR,
frá Fossi á Síðu.
Laufey Pálsdóttir,
Þórdís Sveinsdóttir, Hörður Hákonarson,
Björgvin Sveinsson, Þórunn Þórarinsdóttir,
Elsa Sveinsdóttir, John Phillips,
Gerður Sveinsdóttir,
Pálmi R. Sveinsson, Ástriður Einarsdóttir,
Vigdfs B. Sveinsdóttir
og barnabörn.
+
Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð
og vinarhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
BJARNA TÓMASSONAR,
Breiðumörk 5,
Hveragerði.
Guðrún Guðmundsdóttir,
Tómas Bjarnason, Guðmundur Bjarnason,
Kristín Bjarnadóttir, Steinunn Bjarnadóttir,
Hafsteinn Bjarnason, Birgir Bjarnason,
Hildur Bjarnadóttir, Guðrún Bjarnadóttir,
Kolbrún Bjarnadóttir, Björk Bjarnadóttir,
tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
Lokað
Skrifstofur félagsins verða lokaðar eftir hádegi í
dag, 7. september, vegna jarðarfarar
KR. GUÐMUNDAR GUÐMUNDSSONAR,
fyrrverandi forstjóra félagsins.
íslensk endurtrygging hf.