Morgunblaðið - 07.09.1993, Blaðsíða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. SEPEEMBER 1993
fólk í
fréttum
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
Fyrst var sú frísneska látin leggjast og sá hollenski kallaði í Forr-
est-merina sem lét nú bíða eftir sér drykklanga stund meðan hún
fékk sér smátuggu.
HROSS
Hestakúnst-
ir á heims-
meistaramóti
Engin takmörk virðast fyrir því
hvað hægt er ganga langt í
tamningu hrossa. Það fengu móts-
gestir á nýafstöðnu heimsmeistara-
móti í Hollandi að sjá og reyna. Á
bak við eina af áhorfendastúkunum
var maður á miðjum aldri með tvær
hryssur, aðra af New Forrest kyni
og hina frísneska sem hann lét
framkvæma hinar ótrúlegustu
kúnstir. Frekar lítið fór fyrir þess-
um sýningum og víst að margir
mótsgesta höfðu ekki hugmynd um
hvað þama fór fram. Höfðu hryss-
umar greinilega lært sitt af hveiju
af húsbónda sínum en myndirnar
tala sínu máli.
Bo Derek gaf félögum sínum
í Planet Hollywood bikinið.
GJAFIR
Enn
bætist í
í safnið
Heilmikið safn ýmissa hluta
sem tengjast kvikmynd-
um er uppi um alla veggi í veit-
ingahúsakeðjunni Planet Holly-
wood, sem er m.a. í eigu leikar-
anna Sylvester Stallones, Bmce
Willis og Arnolds Schwarzen-
eggers. Þarna er að finna
dansskóna sem Patrick Swayze
notaði i kvikmyndinni „Dirty
Dancing", eyrnalokka sem Ma-
donna notaði í myndinni „Dick
Tracy“ og jakki Johns Waynes
úr kvikmyndinni „The Cow-
boys“. Nú hefur leikkonan Bo
Derek bætt um betur, því ný-
lega afhenti hún þeim félögum
bikinið sem hún notaði í kvik-
myndinni „10“, en fyrir leik
sinn í þeirri mynd — eða
kannski ætti frekar að segja
líkama sinn — varð hún fræg
á svipstundu.
: ý
„Svona Slappaðu af maður ég er að koma, hugsar sú stutta og slítur
sig frá grasinu.
Er það hér sem ég á að standa? gæti Forrest-hryssan spurt og af
svip húsbóndans má ráða að þetta sé einmitt það sem hann ætlaðist til.
Gjörðu svo vel að fá þér sæti góða, segir húsbóndinn og réttir þeirri
frísnesku mola að launum.
Að síðustu var Forrest-hryssan látin taka stöng í kjaftinn og bera
þannig einn hring ...
-
__og endaði með því að færa húsbóndanum stöngina eftir skipun
hans. Svo kalla sumir þetta skynlausar skepnur!