Morgunblaðið - 07.09.1993, Qupperneq 52
52
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. SEPTEMBER 1993
Með
morgunkaffinu
Við gáfum Hinrik hann í
afmælisgjöf, en hann varð
fljótt Ieiður á honum.
*
Ast er...
/0-/6
gullhjarta
TM Reg. U.S Pat Off.—all rights reserved
® 1992 Los Angeles Times Syndicate
BREF TTL BLAÐSINS
Rringlan 1 103 Reykjavík - Sími 691100 - Símbréf 691329
Hulduher Hafnfirðinga
Frá Snorra Óskarssyni:
NÚ BERAST þær fréttir úr Hafnar-
firði að þar hafi menn á að skipa
þvílíkum „hulduher" að aðrar eins
„legíónur" hafa vart sést. Meira að
segja er búið að kortleggja herbúðir
huldufólksins í hrauni, hömrum og
Hellisgerði að ég held að Albert með
sínum „her“ verði að láta sér lynda
forna frægð.
Hvers konar her er þessi „huldu-
her“?
Þar eru álfar, dvergar, jarðdverg-
ar og fleiri verur sem eru órjúfan-
lega tengdar íslenskri menningu.
Forneskjumenningin íslenska segir
um þennan her í Gylfaginningu
(Snorra-Eddu). Þar er sagt frá álf-
um og þeim skipt í ljósálfa sem búa
í Álfheimum sem er hinn þriðji him-
inn, „en dökkálfar búa niðri í jörðu,
og eru þeir ólíkir sýnum og miklu
ólíkari reyndum. Ljósálfar eru fegri
en sól sýnum, en dökkálfar svartari
biki“. (17. kafli bls. 35, Snorra-
Edda.)
Ljósálfarnir eru því ekki á jörð-
inni skv. íslensku menningunni. En
þar sem „vættatrú“_ Islendinga
breytist í álfatrú (skv. ísl. söguatlas
bls. 62) þá hættir nútímamanninum
að skilja heiðna arfinn, „íslensku
fornmenninguna“, skv. nútímaskiln-
ingi en ekki fornum.
Vættur, tröll, álfur og jólasveinn
eru mismunandi nöfn yfir eitt og
hið sama og kallast því oft óvættur.
Þessar verur voru fjandsamlegar
mannheimi og birtust illu heilli. En
þegar sagan berst að landvættunum
sem eru í íslenska skjaldarmerkinu
þá koma þar fram kristin áhrif enda
myndin tekin úr Opinberunarbók
Jóhannesar, 4. kafla og 7 versi. Þar
standa kerúbar (verndarenglar) í
kringum hásæti Guðs á himnum,
ljón, örn, griðungur og risi.
Dvergar koma fram í 14. kafla
Gylfaginningar á þennan hátt: „Þar
næst settust guðin upp í sæti sín
og réttu dóma sína og minntust,
hvaðan dvergar höfðu kviknað í
moldinni og niðri í jörðinni svo sem
maðkar í holdi. Dvergarnir höfðu
skipast fyrst og tekið kviknan í holdi
Ýmis og voru þá maðkar.“
Englar aftur á móti komu ekki
til sögunnar sem „íslensk menning"
heldur gyðingleg-kristin trúarsýn.
Engill þýðir sendiboði og þeir birtust
sem boðberar og hjálp mannanna í
hinum ólíklegustu kringumstæðum.
Oft sáu menn ekki fyrr en eftirá að
engill hafði gengið með þeim, sem
dæmi, þegar engillinn leiddi Pétur
útúr fangelsinu. Enda eru fegurstu
og glæsilegustu hugmyndir mann-
sandans tengdar Guðs kristni en
ekki heiðninni. Þar af leiðandi er
mjög villandi að taka engil og koma
honum í hulduher orma (dverga) og
dökkálfa og segja að það sé eitt og
hið sama. Svo margar kirkjur eru í
Hafnarfirði að enginn þar þyrfti að
ruglast á „hulduhernum" og englum
sem koma frá Guði almáttugum
mönnunum til hjálpar og leiðrétting-
ar.
Út frá kristinni trú og fornmenn-
ingu íslendinga er hulduherinn í
Hafnarfirði þess vegna í ætt við
orminn sem laug að Adam og Evu
og tilheyrir því hópi illra afla og
púka, öllum mönnum til ógagns. I
mannheimi hafa svona árar spillandi
áhrif á hugarfar og siðferði. Gjarnan
reyndust því heiðnu blótin hinar sið-
lausustu hátíðir og lágkúran dýrkuð
með svalli og stóðlífi. Enda sam-
þykktu heiðnir menn að taka upp
dýrkun á Kristi og afleggja blótin
sem opinberar samkomur (en menn
máttu blóta á laun). Það liggur því
í hlutarins eðli að þessi illi her nær
áhrifum sínum í gegnum klámkónga
og forvígismenn hulduheima sem ná
andlegu sambandi við dökkálfa og
ormaþý. Þeir spúa þessari Satans
eimyiju í mannshjartað með klámi
og kukli. Nær væri að klerkar Hafn-
arfjarðar tækju sér Guðmund góða
fyrir fyrirmyndar og lokuðum klett-
um og dröngum með brandi Guðs-
Orðs og rækju þennan hulduher af
höndum Hafnfirðinga í Jesú nafni.
Ó, þú hýri Hafnarfjörður,
hokra þeir hjá þér, Júdas og Mörður?
Megi þetta ormager vera rekið af
höndum þér.
Því að þessi fomi fjandi hörfar undan
sannleiks brandi!
Hafnfirðingar hafa aflað sér svo
mikilla vinsælda að þeir fá liðsinni
allra góðra manna og engla í hreins-
unarátakinu.
Frá „vini Hafnarfjarðar" í Vest-
mannaeyjum,
SNORRI ÓSKARSSON
Faxastíg 2b, Vestmannaeyjum
Sértrúar-
söfnuður
eða ekki?
Frá Magnúsi Guðmundssyni:
í MORGUNÞÆTTI í útvarpinu 27.
ágúst byggði forstöðumaður hvíta-
sunnumanna í Salem á ísafirði þá
skoðun sína að hvítasunnumenn
væri ekki sértrúarsöfnuður á því
að þeir tilheyrðu heimshreyfingu
kirkna sem í væru 330 milljónir
manna svo að í samanburði við það
væri lútherska kirkjana fámenn
með aðeins 45 milljónir meðlima.
„Vörður“ í hvítasunnukirkjunni á
Akureyri var sýnu stórtækari í út-
varpsviðtali fyrr á árinu þegar hann
talaði um 500 milljónir í þessu sam-
bandi. Hér mun vera um algerar
ágiskunartölur að ræða enda líkleg-
ast að hvítasunnukirkjan í heimin-
um hafi ekki skrár yfir meðlimi sína
og því auðvelt að koma með alls
konar ágiskanir í þessu sambandi.
Með öllu er óviðeigandi að tala
um að lútherska kirkjan sé lítil í
þessum samanburði, enda mun hún
enn stærri en tölur um kirkjur í
Lútherska heimssambandinu gefa
til kynna því að lútherskir menn
sem eru utan heimssambandsins
munu skipta milljónum.
Magnús Guðmundsson
Grandavegi 47, Reykjavík
Víkverji skrifar
Víkveiji hefur verið að hugleiða
um helgina málflutning og
röksemdafærslu ýmissa þeirra
manna, sem njóta þess trúnaðar
þjóðarinnar að hafa verið kjörnir á
Alþingi íslendinga, stofnun, sem á
sér meira en þúsund ára sögu. Til-
efnið var grein eftir einn af þing-
mönnum Sjálfstæðisflokksins, Árna
Johnsen, sem birtist hér í blaðinu
sl. laugardag. Hér á eftir eru birtar
nokkrar tilvitnanir í grein þing-
mannsins, sem í þessu tilviki er að
rökræða við Þorvald Gylfason, pró-
fessor um landbúnaðarmál.
„...vill samkvæmt grein í Morg-
unblaðinu 31. ágúst sl. hreinsa
burtu bændastéttina í landinu, eins
og skít undan snyrtum nöglum fínni
rnanna."
„í hvaða útungunarvél er pró-
fessor Þorvaldur að velkjast og við
hvaða hitastig?"
„Skyldu bændur eiga sumarhús
vítt um veröld eins og þeir, sem
eiga vannýtta húsnæðið í landinu?
Það væri fróðlegt, ef prófessor Þor-
valdur færi í kafarabúninginn á
þeim vettvangi."
„Ætli það sé ekki einnig offjár-
festing að eiga svo marga mennt-
aða viðskipta- og hagfræðinga, að
þeir geta þakkað fyrir að fá vinnu,
sem benzínafgreiðslumenn."
„Ef til vill stendur það þó hag-
fræðiprófessornum næst að reikna
út hvað það kostar íslenzku þjóðina
að hafa um áratuga skeið miðað
alla grunnmenntun við beina dæl-
ingu allra námsmanna upp í há-
skóla í stað þess að leggja höfuð-
áherzlu á verkmenntun að loknum
grunnskóla með traustum mögu-
leikum jafnframt til æðstu mennt-
unar í háskóla."
„...og þannig fjallað um grund-
völl bændastéttarinnar að hyggileg-
ast sé að leiða hana í hagfræðilegt
sláturhús við fyrsta tækifæri."
„...alvarlegasti umhverfisvand-
inn er andlegs eðlis hjá mönnum,
sem hanga í kennisetningum fíla-
beinsturna og eru eins og vegprest-
arnir í óbyggðum, sem vísa þann
veg, sem þeir fara ekki sjálfir."
„Hvað segir það um sóðaskap
að varla er hægt að fara í bíó í
Reykjavík fyrir drasli, sem bíógest-
ir henda frá sér í bíósölum? Ætli
það sé ekki eitthvað fleira að?“
„í sveitum landsins er dugmikið
og traust fólk, sem hefur lagt allt
sitt undir og ekki býður íslenzkur
landbúnaður upp á hormónabúnt í
steikur eða rnjólk."
„Hættu að argast út í bændur,
prófessor góður, horfðu yfir sviðið
allt og hlustaðu á þína eigin ætt-
jörð.“
xxx
ýzka ríkisstjórnin kynnti at-
hyglisverða skýrslu um end-
urskipulagningu og þróun þýzks
samfélags á blaðamannafundi sl.
föstudag. Þar er því m.a. haldið
fram, að ef Þjóðveijir ætli að verða
samkeppnisfærir við aðrar þjóðir,
verði þeir að breyta hugsunarhætti
sínum og endurmeta lífsviðhorf.
Þeir verði að vinna meira, náms-
tíminn sé of langur og eftirlauna-
aldur of lágur.
Þetta eru athyglisverðar ábend-
ingar. Þær eiga víðar við. M.a. hér
á Islandi. Fáar þjóðir í heimi taka
sér jafn löng frí og við íslendingar
og eru öll hugsanleg tilefni notuð.
Sumarfrí eru orðin með því lengsta
sem gerist á Vesturlöndum og eru
orðin alltof löng og dýr fyrir þjóðfé-
lagið. Að auki tökum við okkur eins
marga frídaga í tengslum við stór-
hátíðir og nokkur er kostur. Við
skulum taka ábendingar þýzku rík-
isstjórnarinnar til okkar og vinda
ofan af þessari vitleysu.