Morgunblaðið - 17.09.1993, Qupperneq 14
14 B
MORGUNBLAÐIÐ FASTEIGNIR FÖSTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1993
Enda þótt límtré eigi sér ekki
langa sögu sem byggingarefni
hér á landi, á það sér samt langa
sögu annars staðar. — Elztu heim-
ildir um Iímtré eru frá tímum pýr-
amídanna, segir
Guðmundur Os-
valdsson, fram-
kvæmdastjóri
Límtrés hf. — í
þeim merku
mannvirkjum hef-
ur fundizt límtré,
en það var límt
saman með kálfs-
blóði. Límtrésframleiðsla með þeim
hætti, sem nú þekkist, hófst hins
vegar ekki fyrir alvöru fyrr en á
sjöunda áratugnum, eftir að tiltölu-
lega ódýr og örugg lím komu á
markaðinn.
Vaxandi notkun límtrés í
Evrópu
Að sögn Guðmundar hefur notk-
un límtrés farið ört vaxandi í Evr-
ópu og er heildarframleiðslan þar
nú orðin um 700 þús. rúmmetrar,
mest í Þýzkalandi. Norðurlöndin
hafa samt haft forystu, hvað varðar
gæði límtrés. — Þar ræður senni-
lega mestu gæði hins skandinavíska
grenis og samnorrænt gæðaeftirlit,
segir Guðmundur.
Hertar umhverfiskröfur hafa leitt
til mikillar aukningar á notkun lím-
trés. — Á síðustu árum hafa komið
fram ýmsar staðreyndir varðandi
umhverfisvænleika timburs, sem
fæstir gerðu sér grein fyrir áður,
heldur Guðmundur áfram. — Við
bruna gefur timbur frá sér jafn
mikinn koltvísýring og það hefur
tekið upp á sínu vaxtarskeiði. Það
er því eitt af fáum byggingarefnum,
sem er hlutlaust að þessu leyti. Ung
tré taka hins vegar upp margfalt
meiri koltvísýring en þau gömlu.
Það er því bezti kosturinn umhverf-
isins vegna, að fella gömlu trén og
planta nýjum.
Það er raunar mjög útbreiddur
misskilningur, að skógarnir í Evr-
ópu séu að hverfa. Þvert á móti
hefur aldrei verið til eins mikill
skógur í Evrópu og einmitt nú.
Fyrir margar þjóðir eru skógarnir
jafn mikilvægir og fiskimiðin fyrir
okkur íslendinga og skógar því
ræktaðir með sömu nærgætni og
kom á akri. Þegar tré er fellt, er
þess gætt að gróðursetja að
minnsta kosti eitt í staðinn. Á Norð-
urlöndum er t. d. ræktaður upp
miklu meiri skógur á hverju ári en
sá, sem felldur er.
Stundum eru notaðar rangar full-
yrðingar í auglýsingaskyni til fólks
um að nota önnur efni eins og plast
eða ál undir því yfirskyni að bjarga
skógunum. Framleiðsla slíkra efna
er samt ótrúlega orkufrek og meng-
andi.
Við framleiðslu á límtré eru timb-
urborðin þurrkuð og síðan fingur-
skeytt eins og kallað er, það er í
þau er skorið snið og þau skeytt
saman. Síðan eru borðin hefluð og
límd saman með veður- og suðu-
heldu lími. Þaðan kemur nafnið lím-
tré. Með þessu eru ýmsir eiginleikar
timburs béettir og notagildið þannig
aukið verulega. Límtré er t. d. mun
sterkar en venjulegt timbur. Það
vindur sig síður við rakabreytingar
og það er hægt að nota stærri þver-
snið og lengri bita. Límtré hefur
ennfremur mikið eldþol.
— Hjá Límtré er notað styrk-
leikaflokkað greni, sem flutt er inn
frá Noregi, segir Guðmundur. —
Helztu kostir grenis fram yfir furu,
eru þeir, að grenið heldur lengur
ljósum lit sínum og er ekki eins
viðkvæmt fyrir rakabreytingum.
Gott hráefni er grundvöllur góðrar
framleiðslu, en á þessu ári var verk-
smiðja okkar önnur af tveimur verk-
smiðjum á Norðurlöndum, sem
stóðst fyllilega gæðakröfur Nor-
rænu límtrésnefndarinnar.
Límtré hefur reynzt mjög heppi-
legt sem burðargrind í húsum. Þeg-
ar sökkullinn hefur verið steyptur,
er límtrésgrindin sett upp en að því
búnu er húsið klætt að utan. Allar
klæðingar koma þar til greina.
Notkun svokallaðra yfírbita á veggi
hefur líka færzt í vöxt hér á landi.
Þá eru veggir steyptir eða hlaðnir
upp að efri brún glugga eða
veggopa og límtrésbitar síðan festir
ofan á. Á þennan hátt eru ýmsar
útfærslur. ofan glugga og þá sér-
staklega við þak, leystar á einfaldan
og hagkvæman hátt.
Límtréð er framleitt í mismun-
andi þykktum og lengdum, allt eft-
ir pöntunum hvetju sinni. Fram-
leiðslan er allt frá litlum bitum upp
í grindur í heil hús.
Auk þess framleiðir fyrirtækið
fingurskeytt sperruefni í hvaða
lengdum sem er. Styrkur samsetn-
ingarinnar er sá sami og heiltrés.
Lengdir eru ótakmarkaðar. Það
eina sem takmarkar þær eru fiutn-
ingsmöguleikar.
Öflugt gæðaeftirlit
— Við leggjum mikla áherzlu á
öflugt gæðaeftirlit og höfum í þeim
tilgangi komið upp fullkomnum
búnaði til þess að álagsprófa allar
samsetningar áður en þær eru af-
hentar, segir Guðmundur. — Á sl.
ári tókum við í notkun nýja aðferð
við samsetningar á límtrésbitum.
Aðferðin byggist á því að gera rauf-
ar í þá bita, sem setja á saman og
líma í þær stálplötur. Notað er sér-
stakt lím, sem nær fullkominni
bindingu við hvort tveggja, stál og
timbur. Þetta var þýðingarmikill
áfangi, sem náðist með samstarfi
nokkurra límtrésframleiðenda og
tæknistofnanna á Norðurlöndum.
Slíkir bitar með límdum hornum
geta komið í stað bogadreginna
ramma í flestar byggingar. í stærri
byggingum verða bogamir eftir
sem áður notaðir, enda eru þeir
mjög hagskvæmt burðarform. Með
límdu hornunum hafa opnazt mögu-
leikar á að framleiða flytjanleg ein-
býlishús, sem þýðir, að fólk getur
flutt húsin milli landshluta, ef að-
stæður þess breytast. Helztu kostir
límdu homanna em þeir, að í þeim
næst mjög góð spennunýting,
brunaþol er mikið, því að timbrið
einangrar stálplötuna og samsetn-
ingin er einfaldari og hagkvæmari
en flóknar boltasamsetningar. Síð-
ast en ekki sízt er áferðin fallegri,
því að engar stálfestingar eru sýni-
legar.
Límtré hf. tók til starfa á árinu
1983 og er því tíu ára um þessar
mundir. Eigendur fyrirtækisins em
um 230, bæði einstaklingar, fyrir-
tæki og sveitarfélög í uppsveitum
Árnessýslu. Límtréð hlaut strax
góðar móttökur hjá arkitektum og
öðmm hönnuðum og burðarvirki
úr límtré má finna í fjölda bygg-
inga. Af þekktum byggingum má
nefna Kringluna, Borgarleikhúsið,
Ráðhúsið, Flugstöðina, hús Ingvars
Helgasonar hf., Húsasmiðjuna.
Sorpu og Eiðistorg.
Reksturinn hefur gengið bæri-
Aflagrandi - endaraðhús
Hús á tveimur hæðum um 190 fm ásamt innbyggðum
bílsk. Húsið afh. tilb. að utan og tilb. u. trév. að innan.
Teikningar á skrifst. Verð 12,9 millj. 2523.
Opið virka daga f rá kl. 9-12 og 13-18.
Opið laugardaga kl. 11-14.
|P S: 685009-685988
ÁRMÚLA21
i/^\rck|/^n I OAN v.s. wiium, lögfræðingur,
11 ÓLAFUR GUÐMUNDSSON, SÖLUSTJ.
—-----—---1 ARINBJÖRN SIGURGEIRSSON, SÖLUM.
liímlreO liefur sannaó
gildi silt hér á IíiimIí
— segir Guómundur Ósvaldsson, framkvæmdastjóri Límtrés hf.
LÍMTRÉ hefur verið að vinna sér sess sem burðarvirki í hús-
um hér á landi á undanförnum árum. Þetta má að verulegu
leyti þakka fyrirtækinu Límtré hf., sem rekur límtrésverk-
smiðjuna að Flúðum í Árnessýslu en söluskrifstofu að Ármúla
11 í Reykjavík. Nú eru í smíðum þrjú myndarleg hús úr lím-
tré frá þessu fyrh*tæki á höfuðborgarsvæðinu. Eitt þeirra
stendur við Malarhöfða í Elliðavogi, en þar er að verki lagna-
fyrirtækið Blikksmiðurinn. Við Grafarvog er leikfangaverk-
smiðjan Barnasmiðjan að reisa hús úr límtré og fyrir ofan
Rauðhólaer Skógaræktarfélag Reykjavíkur með límtréshús i
smíðum. En Límtré hf. hefur komið víðar við á þessu sumri.
Á Þingeyri og Súðavík er verið að Ijúka smíði íþróttahúsa,
þar sem burðarvirkið er úr límtré og í Varmahlíð í Skaga-
firði og á Raufarhöfn er verið að byrja á smíði íþróttahúsa
úr límtré.
FASTGIGNASALA
VITASTÍG 13
aeoao-^eoss
Lindarberg - Hafnarf.
Til sölu þessi glæsilegu parhús á tveimur hæðum, 214
fm sem skiptast þannig: Á jarðhæð er rúmg. bílskúr
með góðri lofthæð, forstofa, 3 rúmg. barnaherb., bað-
herb., rúmg. hol. Á efri hæð: Stofa, borðstofa, hjona-
herb., barnaherb., eldhús og baðherb. Garðstofa. Glæs-
il. útsýni yfir Hafnarfjörð. Tvennar svalir. Húsin seljast
fullb. utan, fokh. innan eða lengra komin. Teikn. á skrifst.
Viðarrimi - Grafarvogi
□ □
Höfum til sölu þessi glæsilegu raðhús á einni hæð, ca
145 fm að stærð, auk 29 fm bílsk. Húsin skiptast í
stofu, borðstofu, 2 barnaherb., hjónaherb., þvotta-
herb., vinnuherb., baðherb. auk bílskúrs. Fallegt út-
sýni. Vel staðsett. Húsin seljast fullb. að utan, fokh.
að innan. Verð 8,5-8,7 millj. Traustur byggingaraðili.
Teikn. á skrifst.
Gunnar Gunnarsson,
FASTEIGNASALA |5gfl fasteignasali, hs. 77410.
Blikksmiðurinn hf. er að byggja 800 ferm límtréshús við Malar-
höfða. Þessi mynd er tekin inni í húsinu og sýnir bæði hefðbundna
límtrésboga og nýja samsetningu af límdum hornum. Húsið er hann-
að af teiknistofunni Röðli.
Morgunblaðið/Sverrir
Guðmundur Ósvaldsson, framkvæmdastjóri Límtrés hf. í baksýn er
límtréshús, sem Skógræktarfélag Reykjavíkur er að byggja við Ell-
iðavatn. Það er á einni hæð og um 300 fermetrar. Húsið er hannað
hjá teiknstofunni Arkþing. Á sl. ári tók Límtré hf. í notkun nýja
aðferð við samsetningar á Iímtrésbitum, sem byggist á því að gera
raufar í þá bita, sem setja á saman og líma í þær stálplötur. Slíkir
bitar geta komið í stað bogadreginna ramma í flestar byggingar.
eftir Magnús
Sigurðsson