Morgunblaðið - 25.09.1993, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 25.09.1993, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 1993 Umsækjandi um stöðu forsljóra Trygg- ingastofnunar kvartar til umboðsmanns Telur ráðningu í andstöðu við lög FORMLEG kvörtun Guðmundar Vésteinssonar, eins umsækjenda um stöðu forstjóra Tryggingastofunar ríkisins, vegna málsmeð- ferðar við ráðningu í stöðuna, barst umboðsmanni Alþingis í gær. Guðmundur telur málsmeðferð tryggingaráðs og raunar málsmeðferðina alla ekki aðeins í andstöðu við lög heldur einnig í andstöðu við viðtekna venju og góða stjórnsýsluhætti. Hann óskar eftir að afgreiðslu erindisins verði hraðað eins og kostur se. Guðmundur segist hafa bent Guðmundi Árna Stefánssyni, heil-' brigðisráðherra, á að ekki ætti að ráða í stöðuna að fenginni umsögn tryggingaráðs eins og hefði verið gert heldur að tillögu ráðsins eins og lög um almannatryggingar kvæðu á um. „Ég skrifaði bréf til ráðherra og benti á að málið þyrfti nýja meðferð í tryggingaráði til þess að ekki kæmi til vefengingar á skipun í stöðuna. Þegar ég sendi bréfið lá ekkert fyrir hvað yrði gert en síðar sama morgun var skipað í starfið," sagði Guðmund- ur. Hann segir að ráðið hafí skipt þeim sem sótt hafi um starfið í Frumvarp um hert skilyrði fyrir áfrýjun og níunda dómarann til Hæstaréttar Biðtími einkamála stytt- ist úr 2 '/■’ ári í 6 mánuði hæfa og óhæfa umsækjendur. „Meirihlutinn segir að notast megi við 5 umsækjendur. Hinir ná ekki þeirri einkunn. Þannig að það fer ekkert á milli mála hvað um er að ræða með það. En ég held að það liggi fyrir, og ég hef heimildir fyr- ir því, að þessi meðhöndlun eigi sér ekkert fordæmi hjá trygginga- ráði sem þarf að gera tillögur, ekki aðeins þegar ráðinn er for- stjóri, heldur í allnokkrar stöður innan stofnunarinnar sem ráðherra veitir,“ sagði Guðmundur. Ráðningin til annarrar meðferðar í texta kvörtunarinnar segir að teljist umfjöllun, meðferð og af- greiðsla tryggingaráðs ólögmæt og/eða röng að einhveiju leyti ósk- ist gefið álit um hvort ákvörðun heilbrigðis- og tryggingamálaráð- herra, sem byggi á slíkri af- greiðslu tryggingaráðs, teljist lög- mæt stjórnvaldsákvörðun og hvort tryggingaráði sé við þess háttar aðstæður skylt að taka umsóknir um stöðuna til réttrar meðferðar og afgreiðslu á ný. Guðmundur Vésteinsson er deildarstjóri við umboð sjúkratrygginga á Akra- nesi. Helmut Schmidt til íslands Helmut Schmidt, fyrrum kanslari Vestur-Þýskalands, kom til landsins í gærkvöldi. Hann kemur á vegum Samtaka um vest- ræna samvinnu (SVS), Varðbergs og Germaníu og tók Jón Hákon Magnús- son, formaður SVS, á móti honum. Þetta er í annað sinn sem Schmidt kemur hingað til lands. Hann stýrir nú út- gáfu vikuritsins Die Zeit en ferðast auk þess mikið vegna fyrirlestrahalds. Schmidt mun ræða um efnahags- og stjórnmálaástand Evrópu á hádegis- verðarfundi Sam- taka um vestræna samvinnu í Súlnasal Hótels Sögu í dag kl. 12. Morgunblaðið/Þorkell ÞORSTEINN Pálsson dómsmálaráðherra kynnti í gær í ríkis- stjórn lagafrumvarp sem lagt verður fyrir Alþingi í haust þar sem gert er ráð fyrir því að skilyrði fyrir áfrýjun héraðsdóma bæði um einkamál og sakamál til Hæstaréttar verði hert, auk annarra ákvæða sem ætlað er að hraða málsmeðferð fyrir Hæstarétti þar sem 275 einkamál bíða nú dóms og biðtími frá áfrýjun einkamáls að dómi er um 2'/z ár. Með frumvarpinu er stefnt að því, að sögn Ara Edwalds, aðstoðarmanns dómsmála- ráðherra, að biðtíminn verði orðinn 6 mánuðir innan þriggja ára. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins er einnig í frum- varpinu ákvæði sem gerir kleift að fjölga dómurum Hæstarétt- ar um einn, þannig að þeir verði níu. Samkvæmt núgildandi lögum verður kröfufjárhæð í einkamáli þar sem um fjárhagslega hags- muni er að ræða að vera a.m.k. 150 þúsund krónur til þess að dómi héraðsdóms fáist áfrýjað án sér- staks leyfis en að sögn Ara Edw- alds gerir frumvarpið ráð fyrir að þau mörk verði hækkuð nokkuð. Ekki fékkst upplýst hver er lág- marks kröfufjárhæð samkvæmt frumvarpinu. Ari sagði að takmörk þau sem sett yrðu um áfrýjun refsimála tækju að talið væri til um 15% héraðsdóma í opinberum málum en ekki voru tiltækar upplýsingar um við hve þunga dóma miðað væri í frumvarpinu. Til þessa hafa ekki verið takmörk af þessu tagi fyrir áfrýjun refsidóma. Ari Edwald sagði að jafnframt væri í frumvarpinu gert ráð fyrir því að mál sem sækja þyrfti um leyfí til áfrýjunar á fengju mjög vandaða málsmeðferð og fengi Hæstiréttur sjálfur veruleg áhrif á það ferli. Fjöldi mála sem bárust Hæsta- rétti óx úr 259 árið 1985 í 433 árið 1992. Á tímabilinu fjölgaði einkamálum úr 132 í 240, opinber- um málum, refsimálum, fjölgaði úr 73 í 81, kærum vegna meðferð- ar einkamála úr 23 í 75 og kærum vegna meðferðar opinberra mála úr 30 í 37. í dag bíða að sögn Ara Edwald 275 einkamál flutnings fyrir Hæstarétti og er biðtími frá því að einkamál er tilbúið til flutn- ings fyrir Hæstarétti þar til dómur gengur um 2‘/z ár að meðaltali. Fleiri dómarar Opinber mál og kærur hafa hins vegar verið dæmdar jafnóðum og þau berast. Ari sagði að til að tak- ast megi að stytta biðtíma einka- mála hefði verið nauðsynlegt að beita sér fyrir hertum skilyrðum til afrýjunar en markmiðið væri að innan 2-3 ára tækist að vinna úr þeim málum sem biðu flutnings þannig að ekki liði þá lengri tími en 6 mánuðir frá áfrýjun til dóms. Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins er einnig að fínna í frumvarpinu ákvæði um fjölgun dómara við Hæstarétt úr 8 í 9, í því skyni að greiða fyrir skipulags- breytingum í Hæstarétti og auka skilvirkni. Morgunblaðið/Sverrir Alþjóðlegt rannsóknarskip í höfn ALÞJÓÐLEGA rannsóknarskipið Joides Resolution lagðist að bryggju í Sundahöfn í gær. Skipið kemur að sögn dr. Gunnars Ólafssonar, steingervingafræðing^, úr 2 mánaða borleiðangri um Norður-Atlants- haf og var í leiðangrinum lögð áhersla á fornhaffræði, fornveðurfræði og breytingu sjávarstrauma. Skipt verður um áhöfn skipsins hér á landi en gert er ráð fyrir að halda úr höfn til Austur-Grænlands á mánudag. Sá leiðangur tekur líka 2 mánuði og verður áhersla lögð á að kanna fast berg í hafsbotni. / dag Fjármál Eyðslu- og skuldafíklar koma sam- an 4 Kjaramál Tillaga um að segja upp samning- um hefur komið fram á þingi AI- þýðusambands Norðuriands 17 Spilling Imelda Marcos, fyrrum forsetafrú á Filippseyjum, hefur verið dæmd í 18 ára fangelsi hið minnsta fyrir spillingu 19 Leiðari Fjármál stjómmálaflokka 20 Lesbók ► Myndir Skagamálara frá síð- ustu öld í Norræna húsinu - bandaríska ljóðskáldið John Berryman - Goðgá, af kviðlingi Hjalta Skeggjasonar Menning/listir ► Eklinborgarhátíð - Brynhild- ur Þorgeirsdóttir - Jónas Bragi Jónasson - Finnsk (jóðskáld - Sigurður frá Arnarholti - Þrett- ánda krossferðin - Osmo Gk)ði selur ófrosið kjöt til Danmerkur GOÐI hf. hefur náð samningum um sölu á nýju lambakjöti í heilum skrokkum til Danmerkur og fór fyrsti kjötfarmurinn, alls 2 tonn, með flugi sl. miðvikudag til sölu í Irma-verslunarkeðjunni á Sjálandi og í Kaupmannahöfn. Var kjötið komið til sölu í verslunum i gær. Að sögn Jóhanns B. Steinssonar, aðstoðarframkvæmdastjóra hjá Goða, fæst hærra verð fyrir lamba- kjötið þegar það er selt ófrosið með þessum hætti og sagðist hann gera ráð fyrir að sendir yrðu út tveggja tonna farmar í hverri viku á meðan á sláturtíðinni stæði. Skilaverð 240 kr. á kílóið Kjötið kemur frá sláturhúsinu á Hvammstanga, sem er annað tveggja sláturhúsa á landinu sem hefur feng- ið viðurkenningu Evrópubandalags- ins. Sagði Jóhann að skilaverð til sláturleyfíshafa væri 240 kr. fyrir kílóið. Sagði hann að Goði hefði einnig þreifað fyrir sér um sambærilega sölu á kældu lambakjöti í heilum skrokkum til Lúxemborgar og Frakklands. Góðir möguleikar væru á sölu á fersku lambakjöti með flugi í verslanir í nágrannalöndunum því þjónustan hefði batnað og áætlun- arferðir væru tíðari en áður.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.