Morgunblaðið - 25.09.1993, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 25.09.1993, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 1993 T Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Ritstjórnarfulltrúi Árvakur h.f., Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Björn Vignir Sigurpálsson. Kringlan 1, 103 Reykjavík. Símar: Skiptiborð 691100. Auglýsingar: 691111. Áskriftir 691122. Áskriftargjald 1400 kr. með vsk. á mánuði innanlands. í lausasölu 125 kr. með vsk. eintakið. Fjármál sljórnmála flokka Aðalfundur Samtaka fiskvinnslustöðva í! Arsverkum í fiskvii fækkað um 2500 á 6 Sjávarútvegsrádherra kynnti frumvarpið um þróunarsj Morgunblaðið/Alfons Sjávarútvegsráðherra í ræðustól SVIPMYND frá aðalfundinum. í ræðustól er Þorsteinn Pálsson sjávar- útvegsráðherra en hann gangrýndi banka harðlega í ávarpi sínu. Atta kennarar í stjórnmála- fræði og hagfræði við Háskóla íslands hafa sent frá sér áskorun til formanna stjómmálaflokkanna um að þeir geri grein fyrir fjárreiðum flokkanna. í áskorun þeirra segir m.a.: „í flestum nálægum löndum gilda skýrar reglur eða lög um fjárreiður stjórnmálaflokka. Slíkum lögum og reglum er ætlað að vernda almenning gegn afleiðingum óeðlilegra fjárhags- og hagsmunatengsla á milli fjársterkra fyrirtækja, hagsmunasamtaka og stjóm- málaflokka. Þar hefur löggjaf- arvaldinu þótt rétt að reisa skorður við tilraunum fyrir- tækja og hagsmunasamtaka til að kaupa sér áhrif á vettvangi stjómmálanna . . . Hér á ís- landi virðast á hinn bóginn ekki gilda neinar skýrar reglur eða lög um fjárreiður stjóm- málaflokkanna. Hér á landi er þó síst minni þörf fyrir slíka löggjöf en í öðmm löndum.“ Beina háskólakennararnir þeirri áskomn til formanna stjórnmálaflokkanna, að þeir geri grein fyrir því fé sem flokkamir hafa tekið við á und- anförnum ámm, þar á meðal framlögum í kosningasjóði, að þeir hlutist síðan til um að til dæmis Ríkisendurskoðun ásamt óháðum endurskoðend- um utan stjómkerfisins verði falið að kanna, hvort fjárfram- lög til flokkanna bendi til óeðli- legra íjárhags- og hagsmuna- tengsla að einhveiju leyti og loks að flokksformennirnir beiti sér fýrir því, að setja skýrar reglur eða lög um ijárframlög til flokkanna til samræmis við lög og reglur í öðrum löndum. Það er kominn tími til að fjármál stjórnmálaflokkanna verði færð í nútímalegt horf í samræmi við það sem gengur og gerist í öðrum vestrænum lýðræðisríkjum. Hins vegar er ekki tilefni til, eins og málum hefur verið háttað í þessum efnum áratugum saman, að hefja rannsókn á því, sem liðið er, heldur ber að leggja áherzlu á nýjar og skýrar reglur, sem gildi fyrir framtíðina. Það er vandasamt verk og að sama skapi viðkvæmt. Setn- ing samræmdra reglna um fjár- mál stjórnmálaflokka ætti aft- ur á móti ekki síst að vera þeim sjálfum í hag. í fijálsu samfélagi sem okkar hljóta bæði einstaklingar og fyrirtæki að hafa frelsi til að styrkja samtök, hvort sem um íþrótta- félög, líknarsamtök eða stjóm- málaflokka er að ræða, án þess að framlög þeirra verði gerð opinber. Á hinn bóginn verður auðvitað líka að gæta þess að koma í veg fyrir óeðlileg hags- munatengsl. Til að samræma þessi sjónarmið mætti vel hugsa sér að fara svipaða leið og í Bandaríkjunum og setja reglur um hámark á framlög einstakra aðila til stjómmála- flokka. Það má einnig ræða þann möguleika, að framlög yfír ákveðnu hámarki verði að tilkynna opinberlega. Starfsemi stjómmálaflokka er mjög fjárfrek og á það ekki sist við um rekstur kosninga- baráttu. Starfsemi flokkanna er hins vegar.grundvallarþáttur í lýðræðisþjóðfélögum og það er óæskilegt, að fjárskortur þurfi að hamla þeirri starfsemi um of. Til að tryggja þetta hafa verið farnar mismunandi leiðir. í mörgum ríkjum, t.d. á Norðurlöndunum og í Þýska- landi, er starfsemi stjórnmála- flokka nánast algjörlega fjár- mögnuð með ríkisfé. Annars staðar er reksturinn fjármagn- aður fyrst og fremst með fijáls- um framlögum einstaklinga og fyrirtækja. Óháð því hvor leiðirí farin er, gilda hins vegar í flest- um ríkjum ótvíræðar reglur um hvernig gerð skuli grein fyrir fjárreiðum flokkanna. Á Islandi hefur starfsemi stjórnmálaflokka fyrst og fremst verið fjármögnuð af einkaaðilum þó svo að þing- flokkamir fái einhver opinber framlög. Fjárreiður þeirra hafa verið einkamál flokkanna og þó fyrst og fremst forystusveit- ar þeirra. Það viðhorf er úrelt og úr takt við kröfur nútímans. Áskorun háskólakennaranna ætti að verða stjórnmálamönn- um hvatning til þess að taka þessi mál föstum tökum og setja reglur sem tryggja í senn rekstrargrundvöll stjórnmála- flokkanna, sjálfsagt upplýs- ingastreymi og bókhalds- skyldu. Það væri í samræmi við auknar kröfur, ekki bara á Is- landi heldur alls staðar í kring- um okkur, að setja almennar reglur um þessi mál. Fyrr á þessu ári tóku gildi ný stjóm- sýslulög, sem hafa það ekki síst að markmiði að tryggja skýrari og opnari stjórnsýslu- hætti. Er ekki rökrétt og tíma- bært að gera sambærilegar kröfur til stjórnmálaflokka í ljósi breyttra viðhorfa? Á AÐALFUNDI Samtaka fisk- vinnslustöðva, sem haldinn var í Stykkishólmi í gærdag, kom fram í máli Arnars Sigurmundssonar, formanns samtakana, að ársverk- um í fiskvinnshi hefur fækkað úr 9.000 niður í 6.500 á síðustu sex árum. Helstu ástæðumar eru afla- samdráttur, bónuskerfi, aukin tæknivæðing og sammni fyrir- tækja. Meðal þeirra sem ávörpuðu fundinn var Þorsteinn Pálsson sjáv- arútvegsráðherra. Þorsteinn kynnti þar frumvarpið um þróunar- sjóðinn sem flytja á strax og þing kemur saman í haust. í fmmvarp- inu verður m.a. að finna ákvæði um hækkun á styrkjum til úrelding- ar. Samhliða þessu verður lagt fram fmmvarp um að leggja niður Verðjöfnunarsjóð sjávarútvegsins. í máli Arnars Sigurmundssonar kom m.a. annars fram að hlutur inn- lendra fiskmarkaða í heildarmagni botnfísks hefur vaxið óðfluga á síð- ustu árum samhliða fjöjgun markað- anna. Árið 1990 var hlutur markað- anna 16% á móti 84% beinum viðskipt- um. Það sem af er þessu ári er hlutur markaðanna orðinn 28% og á næsta ári stefnir hann í að verða 30-33%. Ráðstöfun botnfískafla til vinnslu innanlands hefur stöðugt minnkað frá 1986 er 82% aflans fóru í vinnslu inn- anlands og niður í 68% það sem af er þessu ári. Á sama tíma hefur botn- fískafli dregist mjög saman og stöðug sókn verið í hlutdeild frystitogara í botnfískaflanum. Sú hlutdeild fór úr 3% árið 1986 og upp í 21% á síðasta ári. Erlendar skuldir jukust um 7 milljarða frá áramótum Amar fjallaði nokkuð um skulda- stöðu sjávarútvegsins og fram kom að skuldirnar hefðu aukist um 7 millj- arða frá áramótum. Samkvæmt upp- lýsingum hagdeildar Seðlabankans voru skuldimar 103 milljarðar um áramót en voru komnar í ríflega 110 milljarða í þessum mánuði. Af þeirri upphæð eru 64 milljarðar í erlendum gjaldmiðlum. Amar sagði að innlend AFKOMA sjávarútvegs hefur versnað á þessu ári miðað við síð- asta ár að mati Þjóðhagsstofnunar. Á síðasta ári var 2,3% hagnaður af veiðum og vinnslu, þar af var hagn- aður af rekstri frystitogara 9,8% af tekjum. Að mati Þjóðhagsstofn- unar er hagnaður af rekstri frysti- togara nú og áfram á næsta ári en sameiginleg afkoma veiða og vinnslu sé neikvæð um 2,2% af tekj- um nú í september. Þjóðhagsstofnun hefur lokið upp- gjöri á rekstri botnfískveiða og vinnslu fyrir síðasta. Samkvæmt því var 1,6% hagnaður af frystingu og söltun en árið 1991 var 1% tap á þessum grein- um. Taka verður þó tillit til þess að árið 1991 greiddi botnfiskvinnslan í Verðjöfnunarsjóð en á síðasta ári fékk vinnslan greitt úr sjóðnum. Þá varð 1,7% hagnaður af veiðum árið 1992. Afkoman í járnum Samkvæmt stöðumati Þjóðhags- stofnunar við skilyrði um miðjan sept- ember 1993 er afkoma frystingar og söltunar í jámum ef miðað er við áætlaða framleiðslu ársins í ár. Þá er hreint tap botnfiskveiða 3% af tekjum ef miðað er við áætlaðan afla yfir- standandi árs. Þjóðhagsstofnun metur einnig af- komu veiða og vinnslu miðað við áætl- aða framleiðsli og afla á næsta ári. raunvaxtalækkun um 2-3% myndi lækka vaxtagreiðslur í sjávarútvegi um 800-1.000 milljónir á einu ári. Amar gerði þróunarsjóðinn að um- talsefni og sagði um hann m.a.: „Verði af stofnun þróunarsjóðs eins og ríkis- stjóm hefur ákveðið sem forgangs- verkefni á næsta Alþingi er nauðsyn- legt að gera veigamiklar breytingar til lækkunar á þeim skuldbindingum sem honum er ætlað að yfirtaka. Það verður nógu erfitt að ná einhverri sátt um sjóðinn innan sjávarútvegsins þó svo að hann verði ekki látinn yfír- taka skuldbindingar umfram eignir sem stofnað var til með sértækum efnahagsaðgerðum í árslok 1988. Við verðum að hafa það í huga að það tóku ekki öll sjávarútvegsfyrirtæki lán í Atvinnutryggingarsjóði á sínum tíma og verður því yfírtaka á eignum og skuldbindingum þess sjóðs að vera trúverðug." Hækkun úreldingastyrkja í ávarpi sínu til aðalfundarins kynnti Þorsteinn Pálsson sjávarútveg- Samkvæmt því mun tap frystingar og söltunar nema 0,1% af tekjum og tap botnfískveiða nema 6%. í þessum áætl- unum er gert ráð fyrir að samdráttur í afla og framleiðslu dreifist jafnt yfír öll fyrirtækin og að engin uppstokkun verði í greininni. Því verður afkoman betri ef þau fyrirtæki sem lakasta hafa afkomu hætta starfsemi og afla- kvótar og framleiðsla þeirra flyst yfír til annara fyrirtækja sem hafa betri afkomu. Þjóðhagsstofnun telur að líkur á uppstokkun ættu að aukast ráðherra frumvarp það um þróunar- sjóð sem lagt verður fram í upphafí þings. í máli hans kom m.a. fram að gert er ráð fyrir því að styrkir til úreld- ingar fískiskipa verði hækkaðir úr 30% af húftryggingarmati skipa sam- kvæmt gildandi lögum um Hagræð- ingarsjóð og í 45%. Jafnframt er gert ráð fyrir að upphæð hámarksstyrks hækki úr 50 milljónum króna í 75 milljónir króna. Síðan sagði Þorsteinn: „Ljóst er að þessi hækkun styrksins mun skipta sköpum varðandi áhuga útvegsmanna að fækka skipum, sam- eina aflaheimildir á færri skip og draga úr tilkostnaði við veiðarnar.“ Sjóðnum verður gert kleift að hag- ræða f fískvinnslu með kaupum og úreldingu á fiskvinnsluhúsum og gert er ráð fyrir að sjóðurinn geti í sam- vinnu við lánastofnanir stuðlað að fjárhagslegri endurskipulagningu við sameiningu sjávarútvegsfyrirtækja. Ennfremur á sjóðurinn að geta styrkt þá einstaklinga og fyrirtæki sem vilja afla sér verkefna í sjávarútvegi á er- lendum vettvangi. með hliðsjón af því hve afiasam- drátturinn er mikill auk þess sem uppi séu áform um stofnun Þróun- arsjóðs sjávarútvegsins. sem hafí hagræðingu í sjávarútvegi að mark- miði. Af 160 sjávarútvegsfyrirtækjum í úrtaki Þjóðhagsstofnunar voru 48 fyrirtæki, sem voru með rúmlega 20% veltunnar, með meira tap en sem nemur 10% af tekjum, en önnur 48 fyrirtæki, sem voru með 33,5% veltunnar, voru rekin með hagnaði. Hagiiaður af veiðum og vinnslu á síðasta árí Afkoma botnfiskveiða og vinnslu í hlutfalli af tekjum Rekstrarskilvrði (september 1993 1992 1993A 1993B Veiðar og vinnsla 21/2 -2 -41/2 Veiðar 11/2 -3 -6 Bátar 2 -5 -91/2 Toqarar 0 -9 -12 Frystiskip 10 9 7 Fiskvinnsla 11/2 0 0 Frysting 3 41/2 4 Söltun -1 -13 -15 ÞESSI tafla sýnir afkomu botnfiskveiða og vinnslu samkvæmt útreikning- um I*jóðhagsstofnunar. í fremsta dálknum er afkoman árið 1992. í mið- dálknum er afkoman eins og hún er áæthið nú í september. í aftasta dálknum er afkoman eins og hún er áætluð nú í september miðað við áætlaðan afla og framleiðslu ársins 1994.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.