Morgunblaðið - 25.09.1993, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 1993
Harðlínumenn grípa til vopna í Moskvu í fyrrakvöld
Tíu handteknir eftir
misheppnaða aðgerð
Moskvu. Reuter.
LÖGREGLA handtók herskáan foringja og níu menn til viðbót-
ar í gær í kjölfar árásar vopnaðra harðlínumanna á tveimur
stöðum í Moskvu í fyrradag. Lögreglumaður og óbreyttur
borgari létust í þessum aðgerðum harðlínumanna en af hálfu
embættis Borís Jeltsíns forseta voru andstæðingar forsetans á
þingi sagðir bera ábyrgð á árásunum.
Átta menn í herklæðum réðust
á höfuðstöðvar herstjórnar Sam-
veldis sjálfstæðra ríkja við Len-
íngradskíj Prospekt í Moskvu
klukkan níu að staðartíma í fyrra-
kvöld. Voru þeir vopnaðir sjálfvirk-
um vopnum. Er þeir óku upp að
framhlið hússins gengu tveir lög-
reglumenn í átt að bifreiðinni til
að kanna hveijir þar voru'á ferð-
inni. Skutu mennirnir á lögreglu-
mennina og beið annar strax bana
en hinn særðist. Ruddust harðlínu-
mennirnir síðan inn í bygginguna
og neyddu tvo hermenn til að
leggja niður vopn en flýðu inn í
nærliggjandi verksmiðjuhús þegar
viðvörunarbjöllur fóru í gang í
byggingunni og útlit fyrir að þeim
yrði veitt meiri mótspyma. Um-
kringdi lögregla verksmiðjuna og
handtók mennina sem eru félagar
í svonefndu Foringjasambandi,
samtökum fyrrverandi foringja í
sovéska hernum.
Júrí Luzhkov borgarstjóri
Moskvu sagði að einungis þrír
árásarmannanna væru frá
Moskvu. Hann sagði að þeir hefðu
sagt við yfirheyrslur að Foringja-
sambandið hefði gefið fyrirmæli
um árásina. í gær var foringi þess,
Staníslav Terekhov, handtekinn.
Ekki kom fram hvort hann hefði
sjálfur tekið þátt í aðgerðunum.
Terekhov hefur margsinnis lýst
því opinberlega yfir að reyndi Jelts-
ín að leysa upp þingið myndi For-
ingjasambandið reyna að koma
honum á kné með „öllum tiltækum
ráðum.“
Háttsettur embættismaður í
Vilja fá að
lifa hóflegn
nautnalífi
Brussel. Reuter.
STARFSMENN heilbrigðis-
stétta sem reyna hafa vit
fyrir fólki og vilja stjórna
því hvort fólk reykir, neytir
áfengis eða drekkur kaffi
eru að reyna að eyðileggja
lystisemdir lífsins, að því
er segir í yfirlýsingu sam-
taka vísindamanna sem
hafa það fyrir stafni að
kanna gleðigjafa fólks.
í yfirlýsingu frá ráðstefnu
samtakanna segir að sam-
kvæmt könnun í fímm Evrópu-
ríkjum hafí komið í ljós þegar
fólk var spurt hvaða efna það
neytti til þess að slaka á hafí
kaffí, te, áfengi, sígarettur og
súkkulaði oftast verið nefnt.
„Við erum þeirrar skoðunar
að það sé réttur hvers og eins
að njóta þeirra lystisemda sem
hann sjálfur kýs og höfum
þungar áhyggjur af áróðri boð-
bera meinlætalífs," sagði David
Warburton, prófessor í lyfja-
fræði við Reading-háskóla í
Englandi. „Það ætti að leyfa
fólki að lifa hófsömu nautna-
lífí,“ sagði hann. Samtökin,
ARISE, vísa sérstaklega til
Evrópubandalagsins (EB) í
samþykkt sinni og segja hvergi
meiri siðvendni stundaða,
stefna bandalagsins í heilbrigð-
ismálum sé gegnsýrð af „púrit-
anisma".
rússneska varnarmálaráðuneytinu,
Jevgeníj Sevastjanov, sagði í gær
að skömmu eftir árásina á höfuð-
stöðvar samveldisheijanna hefði
verið gerð árás á stöðvar leyniþjón-
ustu hersins, GRU. Varðist hann
að öðru leyti fregna af atvikinu.
Segjast njóta stuðnings meira
en 7.000 liðsforingja
Konstantín Kobets, aðstoðar-
vamarmálaráðherra, sagði í sjón-
varpsviðtali í gær að hersveitir
hefðu fengið fyrirmæli um að beita
vopnum ef aðgerðir af þessu tagi
endurtækju sig.
Víktor Baranníkov, sem full-
trúaþingsins útnefndi vamarmála-
ráðherra eftir að Jeltsín leysti það
upp, hélt því fram á fundi í þinginu
í gær að rúmlega 7.000 liðsforingj-
ar í rússneska heraflanum væm
tilbúnir að beita valdi til stuðnings
þinginu. „Ég hef ásamt félögum
mínum fengið rúmlega 7.000 for-
ingja til liðs við okkur og þeir em
við skyldustörf í Hvíta húsinu eða
umhverfis það,“ sagði hann að 638
þingmönnum viðstöddum. Hins
vegar sáust engin merki um þenn-
an liðssafnað.
Krepptur hnefi
Reuter
RÚSSNESK kona og andstæðingur Jeltsíns kreppir hnefann ógnandi á
mótmælafundi við þinghúsið í Moskvu í gær. Hermenn hafa nú girt húsið
af og Jeltsín hefur skipað innanríkisráðuneytinu að afvopna þá, sem þar
em fýrir innan.
Viðtal við Alexander Yladímírovítsj Rútskoj í Hvíta húsinu
„Við höfum orðið okkur til
skammar enn einu sinni“
Moskvu. The Daily Telegjaph.
HERBERGI 3-110, úti í horni á þriðju hæð Hvíta hússins í
Moskvu, er varla boðlegt sem aðsetur forseta eins mesta stór-
veldis í heimi. Alexander Rútskoj og félagar hans reyna samt
að bera sig karlmannlega enda lét vinur hans og bandamað-
ur, Rúslan Khasbúlatov, hann fá besta herbergið, sem völ var
á (fyrir utan sitt eigið, auðvitað). Á veggnum við dyrnar er
skjöldur með þessari áletrun: „Alexander Vladímírovítsj
Rútskoj, forseti Rússneska sambandslýðveldisins.“
Rueter
„Hinn forsetinn“
RÚTSKOJ, forseti Rússlands samkvæmt samþykkt þingsins, á tali
við aðra þingmenn í gær. Hann hefur ákveðið að bjóða sig ekki
fram gegn Jeltsín í forsetakosningum.
Úti á ganginum standa nokkrir
verðir á stífpressuðum buxum.
„Viltu sjá forsetann,“ segir einn
þeirra og ekki laust við hann
skrolli á errinu. Þegar inn er kom-
ið leynir sér ekki, að reynt hefur
verið að gera herbergiskytrana
dálítið þjóðhöfðingjalega. Rúss-
neski fáninn hangir á stöng fyrir
aftan borðið en við það situr
Rútskoj, hokinn í herðum, við að
undirrita alls konar pappíra, um-
kringdur 10 eða 12 aðstoðarmönn-
um. Hann virðist þó hress að sjá
þrátt fyrir lítinn svefn síðustu
næturnar, óaðfinnanlega klæddur
og yfírskeggið vel snyrt að venju.
Rútskoj byijaði á að benda á,
að hann væri ekki valdasjúkur
maður. „Mitt hlutverk sem forseta
er að tryggja, að lýðræðislegar
kosningar verði haldnar," segir
hann og vill, að þær verði í febr-
úar, jafnt þingkosningamar sem
forsetakosningarnar. Rútskoj seg-
ir, að Jeltsín hafí brotið lögin og
eigi skilið að fá sína hegningu.
Annar harmleikur
„Sjáðu nú tjl, það er þetta mál-
skraf og málamiðlunarhjal, sem
er undirrótin. Það er allt þetta
„hittumst og reynum að vinna
saman“, sem hefur komið okkur
í þetta klandur," segir Rútskoj og
þrýstir á borðið með öðmm þumal-
fíngrinum. „Nú sitjum við uppi
með annan harmleik og höfum
orðið okkur til skammar enn einu
sinni. Menn verða nefnilega að
þekkja stjórnarskrána, þekkja lög-
in og fara eftir þeim, alveg sama
hver er, forseti, varaforseti, blaða-
menn, leikarar, kennarar, her-
menn.“
Jeltsín braut stjórnarskrána
sagði Rútskoj, nánar tiltekið 121.
grein hennar, og svo fór hann að
lesa hana og las hana alla. „Það
er kominn tími til, að við fömm
að lifa eins og manneskjur," sagði
hann svo að lokum. „Lög, lög og
aftur lög, þau em alls staðar kjöl-
festan.“
UmmæK Heitmanns vekja
hörð viðbrög’ð í Þýskalandi
STEFAN Heitmann, forsetaefni kristilegra demókrata í Þýskalandi,
sætir nú vaxandi gagnrýni og hafa margir orðið til að spyrja hvort í
raun sé æskilegt að bjóða hann fram. Hafa ummæli hans í blaðavið-
tali um helgina vakið upp hörð viðbrögð en þar lýsti hann yfir að
Þjóðverjar ættu að hætta að velta sér upp úr helförinni gegn gyðingum.
Heitmann hefur einnig verið með
óhefðbundnar yfirlýsingar um önnur
málefni og meðal annars þótt hallur
undir andúð á innflytjendum. Sagði
Karsten Voigt, helsti sérfræðingur
jafnaðarmanna í utanríkismálum, að
ummæli Heitmanns um helforina
væm þegar búin að skaða ímynd
Þýskalands og hagsmuni.
Miðju- og vinstrisinnuð dagblöð
hafa kallað Heitmann „bjórstofu-
frambjóðandánn" végna ummæla
hans um ýmis mál. Þá hefur forseti
samtaka gyðinga í Þýskalandi, Ign-
atz Bubis, gagnrýnt forsetaefnið.
Jafnvel íhaldssöm dagblöð á borð við
Frankfurter Allgemeine Zeitung
hafði látið í ljós efasemdir um Heit-
mann og sagði FAZ á mánudag að
hinar íhaldssömu skoðanir hans gætu
orðið til að fæla stjómarflokk fijáls-
lyndra demókrata, FDP, frá stuðn-
ingi við frambjóðanda kristilegra
demókráta. Það gæti haft mjög al-
varleg áhrif á stöðu Helmuts Kohls
kanslara nokkmm mánuðum áður
en þingkosningar fara fram í Þýska-
landi.
Klaus Kinkel, formaður FDP,
sagði á mánudag að Hans-Dietrich
Genscher, fyrrverandi utanríkisráð-
herra, hefði endanlega lýst því yfir
að hann myndi ekki bjóða sig fram
í embætti forseta og því myndi flokk-
urinn íhuga vandlega á næstunni
hvaða frambjóðanda hann myndi
styðja. Hann sagði hins vegar, að
ummæli Heitmanns um konur, hann
vill, að þær haldi sig heima, um út-
lendinga og um nasismann hefðu
verið mjög óheppileg.
Stefán Heitmanri