Morgunblaðið - 25.09.1993, Page 16
16
HORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 1993
Hundrað jeppar og önnur torfærutröll á sýningu í Laugardalshöll
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Á jeppasýning-u
Um hundrað jeppar eru á sýningunni í Laugardalshöll og á mynd-
inni má sjá sýningargesti virða fyrir sér einn þeirra.
Ráðherra hjá Benna
Össur Skarphéðinsson umhverfisráðherra skoðar sig um í bás
Bílabúðar Benna á sýningunni og ræðir við forstjórann Benedikt
Eyjólfsson.
Ferðabílar og fagiui land
JEPPASÝNINGIN „Ferðabílar og fagurt land“ opnaði
í Laugardalshöllinni kl. 18 í gær. Sýningin sem er á
vegum Ferðaklúbbsins 4x4 verður opin frá kl. 10 til 22
um helgina. Aðgangseyrir er 600 krónur. Um 100 jepp-
ar eru á sýningunni og 40 fyrirtæki sýna þar margs
konar búnað sem tengist jeppasporti.
Að sögn Áma Páls Ámasonar,
formanns Ferðaklúbbsins 4x4, er
sýningin haldin í tilefni 10 ára
afmælis klúbbsins. Þetta er fimmta
sýningin sem klúbburinn efnir til
og sú veglegasta. Um hundrað
jeppar eru á sýningunni, eru 60
þeirra í einkaeign og sagði Ámi
að þar á meðal væm margir öflug-
ustu jeppar landsins og væm flest-
ir í eigu félagsmanna. Ennfremur
sýna yfir 40 fyrirtæki sem tengj-
ast jeppum og ferðamennsku nýja
jeppa, aukahluti og leiðsögu- og
fjarskipatæki.
Góð umgengni
Árni sagði akstur torfæmjeppa
væri bannaður nema á tilteknum
svæðum í nágrannalöndum okkar
og væri ísland að því einstætt
hvað varðaði jeppasport. Hann
sagði að Klúbburinn 4x4 legði
mikla áhersiu á það við félagsmenn
sína að þeir ækju ekki utna vega
og gengju vel um landið. Hann
sagði að jeppasýningin hefði vakið
athygli erlendra aðila og ætluðu 7
erlendir blaðamenn að koma á sýn-
inguna.
Sýningarsvæðið er alls um 5.000
fermetrar og skiptist jafnt í inni-
og útivistarsvæði. í áhorfenda-
stúkunni fer fram kynning á starfi
Ferðaklúbbsins 4x4 í máli og
myndum. Þar verða meðal annars
sýndar skyggnur úr starfsemi
klúbbsins og stöðugar myndbanda-
sýningar verða úr ferðum félags-
manna á meðan á sýningin er opin.
Toyota gefur neyð-
arsveit torfærujeppa
P. SAMÚELSSON hf., Toyota-umboðið á ísiandi, færði Neyðarsveit
slökkviliðs Reykjavíkur sérbúinn jeppa að gjöf í gær. I ræðu sem
Páll Samúelsson stjórnarformaður Toyota hélt þegar bíllinn var
afhentur kom fram að með gjöfinni vill Toyota-umboðið auka ör-
yggi þeirra fjölmörgu viðskiptavina fyrirtækisins sem ferðast um
landið auk þess að efla hina nýju Neyðarsveit. Að Neyðarsveitinni
standa Slökkvilið Reykjavíkur, Hjálparsveit skáta i Reykjavík og
Flugbjörnunarsveitin í Reykjavík.
Torfærubifreiðin sem Toyota-
umboðið afhenti Neyðarsveitinni í
gær er af gerðinni Toyota Land
Cruiser. Hrólfur Jónsson slökkvi-
liststjóri í Reykjavík tók við lyklum
að bifreiðinni.
Hann sagði að með stofnun Neyð-
arsveitarinnar hefðu Slökkvilið
Reykjavíkur, Hjálparsveit skáta í
Reykjavík og Flugbjörgunarsveitin
í Reykjavík tekið höndum saman
um nýja neyðarþjónustu. Markmiðið
væri að stytta útkallstíma þegar
slys verða utan alfaraleiðar. Til að
ná þessu markmiði þyrfti sveit sér-
þjálfaðra manna og bíl fyrir sveitina
sem gæti komist fljótt og örugglega
á slysstað með þann björgunar- og
neyðarbúnað sem þörf væri á. Nú
þegar bíllinn væri fengin væri sveit-
in aibúin að takast á við þau verk-
efni sem að höndum bæri.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Torfærutröllið afhennt
F.v. Páll Samúelsson stjórnarformaður Toyota, Össur Skarphéð-
insson umhverfismálaráðherra og Hrólfur Jónsson slökkvilist-
stjóri.
Framkvæmdastj óri Sorpu segir ásakanir um gjaldskrárhækkanir rangar
Hækkun 11,2% fyrir þá sem
flokka vel o g nýta gjaldskrá
FULLYRÐINGAR Sveins Hannessonar í Morgunblaðinu í gær um
gjaldskrárhækkanir Sorpu eru slitnar úr samhengi og einkennast af
alhæfingum og oftúlkun smáatriða, segir Ögmundur Einarsson, fram-
kvæmdastjóri Sorpu. Hann segir gjaldskrárhækkanir frá síðustu ára-
mótum og til 1. september nema 15% umfram vísitölu byggingakostnað-
ar, en alls 60% frá því að starfsemi Sorpu hófst í maí 1991 og að
raunkostnaður almennings og fyrirtækja sem flokki sorp sitt og reyni
að nýta sér kosti gjaldskrárinnar sé aðeins um 11,2%.
Fyrirlestur
um hand-
lækningar
SÁ HÁTTUR er hafður á í
læknadeild Háskóla íslands að
nýskipaðir prófessorar flytji er-
indi fyrir almenning um efni
sem tengist fræðasviðum þeirra.
Nokkur slík erindi hafa þegar
verið flutt en næsti fyrirlestur
í þessum flokki verður fluttur
sunnudaginn 26. september kl.
15 í stofu 101 í Odda.
Þá íjallar Jónas Magnússon,
nýskipaður prófessor í handlækn-
ingum, um nýjungar í handlækn-
ingum og áhrif þessara nýjunga á
heilbrigðisþjónustuna. Fyrirlestur
Jónasar fjallar í hnotskum um þá
hröðu þróun sem orðið hefur á síð-
ustu árum í þá átt að aðgerðir, sem
áður voru sársaukafullar og tengd-
ar langri sjúkrahússdvöi og veik-
indaforföllum, eru gerðar á þann
hátt að verkir verði sem minnstir,
sjúkrahúslega og veikindaforföli
sem styst. Forsenda þessarar þró-
unar í handlækningum er alveg
ný tegund af tækjum og samteng-
ing ýmiss konar tækja, s.s mynd-
bandavéla, sjónvarpsskerma,
tölvubúnaðar o.s.frv.
Aðgerðir af þessu tagi hafa nú
þegar fest sig í sessi í nánast öllum
sérgreinum lækninga. Þetta hefur
haft í för með sér að tæki til að-
gerða hafa orðið sífellt flóknari og
einnig miklu dýrari. Þetta hefur
leitt til aukins kostnaðar við að-
gerðina en sá kostnaður hefur
sparast með styttri legu og minni
veikindum eftir á. Þegar legutími
styttist er mögulegt að minnka
sjúkradeildir en það kostar upp-
byggingu á skurðstofum. Afleið-
ingar af þessari þróun em þær að
handlækningasvið þarf að öllum
líkindum færri rúm en fullkomnari
skurðstofur. Þjóðfélagslegur
ávinningur verður þegar veikinda-
forföll sjúklinga styttast.
(Fréttatilkynning)
♦ ♦ ♦ ..
Háteigssókn
Arngrím-
urlæturaf
embætti
Dr. Orthulf
Prunner lætur af
störfum organista
VIÐ hámessu á sunnudaginn kl.
11 mun dr. Arngrímur Jónsson
sóknarprestur kveðja söfnuð
sinn eftir þrjátíu ára þjónustu
o g organistinn dr. Orthulf
Prunner Iætur af störfum eftir
fimmtán ára veru við söfnuðinn.
Það eru mikil tímamót í sögu
Háteigssafnaðar um þessar mund-
ir. Tveir af máttarstólpum safnað-
arins hverfa úr starfi eftir að hafa
sett svipmót á líf safnaðarins í
áratugi. Dr. Arngrimur lætur af
embætti fyrir aldurs sakir en dr.
Orthulf tekur við nýju starfi í föð-
urlandi sínu, Austurríki, hinn 1.
október nk.
Á fundi kjörnefndar (sóknar-
nefnd og varasóknarnefnd Há-
teigssafnaðar) 22. september sl.
var sr. Helga Soffía Konráðsdóttir,
sóknarprestur Söðulholtspresta-
kalls, valin prestur safnaðarins, en
áður hafði Pavel Manásek verið
ráðinn organisti.
Sóknarprestur í Háteigspresta-
kalli er sr. Tómas Sveinsson.
(F réttatilkynning)
Ögmundur segir raunkostnað
þessara aðila endurspeglast í tekjum
Sorpu af hveiju mótteknu tonr.i, en
þær hafí hækkað um 11,2% frá upp-
hafí. Þeir sem hugsi hins vegar lítið
um hvenær og hvemig úrgangi er
skilað hafí tekið á sig þá 48,8%
hækkun sem muni á lægri og hærri
tölu gjaldskrárhækkunarinnar.
Hann telur mótttökugjald enn of
lágt og að hækka þurfí gjaldskrá
um 20-30% í náinni framtíð vegna
minnkandi úrgangs og aukins fjár-
magnskostnaðar, auk hugsanlegrar
kröfu eigenda Sorpu um arð af
hlutafé sínu.
Skelfileg dæmi um sóun og
óhagkvæmni fyrirtækja
Ögmundur segir að með breyti-
legri gjaldskrá reyni Sorpa að hafa
áhrif á markaðinn, sérstaklega varð-
andi flutninga. Hann segir kostnað
við losun úrgangs stafa annars veg-
ar af flutningum og ílátaleigu, sem
sé beinn kostnaður fyrirtækja og
nemi 75% af heildar kostnaði þeirra
við losun úrgangs, og hins vegar
eyðingargjaldi sem nemi um fjórð-
ungi af kostnaði.
„Við höfum rekist á hræðileg
dæmi um sóun og óhagkvæmni úti
á markaðinum þar sem stórir bílar
koma til Sorpu með örfá kíló. Menn
hugleiða þá ekki hvað hvert kíló
kostar í flutningi, sem er þó aðal
útgjaldaliðurinn."
Hann segir Sorpu hafa beint við-
skiptamönnum sínum á réttar braut-
ir og þá einkum með breytilegri
gjaldskrá. Þannig sé hátt gjald tekið
fyrir lítinn farm en lágt gjald fyrir
stóran farm. „í dæmi Sveins var
tekið fyrir lítið magn sem við viljum
meina að eigi að kosta mjög mikið
vegna þess óhagræðis sem fylgir,
bæði fyrir Sorpu og viðskiptavini
hennar,“ segir Ögmundur. „Þegar
magnið er orðið jafn lítið eiga menn
kost á að losa farminn á gámastöðv-
um og greiða mun lægra gjald.“
-------»■■■♦ ♦-------
■ ÚTVARP Kántríbær hljómaði
í viðtækjum Blönduósinga í fyrsta
sinn miðvikudaginn 22. september.
Það er kúreki norðursins Hallbjöm
Hjartarson sem á og rekur þessa
útvarpsstöð. í ávarpi sínu til Blöndu-
ósinga og nærsveitarmanna lagði
Hallbjörn áherslu á að þetta væri
útvarp Húnvetninga allra og sendit-
íðnin er FM 96,7 á Blönduósi og
nágrenni en 100,7 á Skagaströnd
og nágrenni. Hallbjöm Hjartarson
sagði í samtali við Morgunblaðið að
útsendingar sínar næðust upp á
miðja Holtavörðuheiði, að Brú í
Hrútafírði og víðast hvar í Austur-
Húnavatnssýslu. Jón. Sig.