Morgunblaðið - 25.09.1993, Page 21
Stykkishólmi
rnslu
árum
óðinn á fundinum
Hörð gagnrýni á bauka
Þorsteinn gagnrýndi bankana harð-
lega og sagði augljóst að bönkunum
hafi orðið á í messunni. Ekki væri
ásættanlegt að bankarnir velti afleið-
ingum ógætilegrar stjórnunar yfir á
framleiðslufyrirtækin og launafóikið í
landinu. „Verðtrygging í almennum
bankaviðskiptum ætti nú að heyra
sögunni til þegar verðbólga er orðin
jafn lág og raun ber vitni,“ sagði
Þorsteinn. „Vissulega hefur verð-
tryggingin valdið bönkunum erfiðleik-
um. En hitt er alveg ljóst að lélegur
rekstur þeirra, ónóg hagræðing, of
mikil yfirbygging og gáleysisleg útlán
hafa leitt til þess að milljarða króna
þarf að setja í afskriftasjóði sem svo
aftur eru meginorsakir fyrir því
hversu háir raunvextir eru.“ Þorsteinn
benti á að á síðasta ári hefðu bankam-
ir sett 6,8 milljarða króna í afskrifta-
sjóði útlána á móti 2,5 milljörðum
árið áður. Áætlað er að vaxtamunur
banka og sparisjóða hafi numið um
10 milljörðum króna. Framlögin í af-
skriftasjóði námu því 68% af vaxta-
mun bankanna. Ætla mætti að vextir
gætu verið 3% lægri ef bankamir
þyrftu ekki að afla tekna vegna þess-
ara töpuðu útlána.
Þeir bankamenn sem Morgunblaðið
ræddi við í gærkvöldi vildu ekki tjá
sig um þessi ummæli Þorsteins.
Aðrir sem fiuttu erindi á fundinum
vom Soffanías Cecilsson sem fjallaði
um sjávarútveg við Breiðafjörð fyrr
og nú, Ásmundur Stefánsson, fram-
kvæmdastjóri Islandsbanka, fjallaði
um bankana og sjávarútveginn, Hann-
es G. Sigurðsson, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri VSÍ, fjallaði um vexti
og kjarasamninga. Sighvatur Bjama-
son, framkvæmdastjóri Vinnslustöðv-
arinnar, velti fyrir sér spumingunni
hvort fískvinnslan ætti sér framtíð,
Tryggvi Finnsson, framkvæmdastjóri
Fiskiðjusamlags Húsavíkur, fjallaði um
landvinnslu í breyttum heimi og Frið-
rik Pálsson, forstjóri SH, velti fyrir sér
spumingunni hvort samkeppni væri
ekki ömgglega alltaf til góðs. ~
MORGUNBLAÐIÐ J^UGARDAGUR 25. SEPTEMBER 1993
Iðnaður samemast
luuiguuuiauiui x'uiiw-ii
Samtök iðnaðarins stofnuð
Nýlgörin stjórn Samtaka iðnaðarins sem leysa af hólmi sex sérfélög
í greininni. í fremri röð, Gunnar Svavarsson, Haraldur Sumarliðason,
Örn Jóhannson. í aftari röð, Friðrik Andrésson, Vilmundur Jósefsson,
Ágúst Einarsson, Vilmundur Jósefsson og Skúli Jónsson.
Við undirritun stofnsamnings Samtaka iðnaðarins, Vilmundur Jósefs-
son ritar á skjalið en Örn Jóhansson réttir Haraldi Sumarliðasyni
nýkjörnum formanni plaggið til undirritunar.
Haraldur Sumarliðason nýkjörinn formaður Samtaka iðnaðarins
Þurfum að hefja nýjan
kafla í atvinnusögunni
STOFNFUNDUR Samtaka iðnaðarins var haldinn á Hallveigarstöðum
í gær. Haraldur Sumarliðason, formaður Landssambands iðnaðar-
manna var kjörinn formaður samtakanna, en framkvæmdastjóri verð-
ur Sveinn Hannesson fyrrum framkvæmdastjóri Félags íslenskra iðn-
rekenda. Sex félög í iðnaði verða lögð niður með stofnun hinna nýju
samtaka. Innan vébanda Samtaka iðnaðarins verða um 2.500 fyrir-
tæki, með um 25.000 starfsmenn, sem velta um 75 miHjörðum króna
á þessu ári. Iðnaðarráðherra og forsætisráðherra sendu fundinum
kveðjur og árnaðaróskir.
Stofnaðilar samtakanna eru Félag
íslenskra iðnrekenda, Landssamband
iðnaðarmanna, Félag íslenska prent-
iðnaðarins, Verktakasamband ís-
lands, Samband málm- og skipa-
smiðja og Meistara- og verktakasam-
band byggingamanna. Þessi félög
munu starfa fram að næstu áramót-
um, en verða þá lögð niður.
Stjórn Samtaka iðnaðarins skipa
auk formanns, Ágúst Einarsson Lýsi,
Friðrik Andrésson múrarameistari,
Gunnar Svavarsson Hampiðjunni,
Skúli Jónsson Stálsmiðjunni, Vil-
mundur Jósefsson Meistaranum, Örn
Jóhannsson Árvakri og Örn Kjær-
nested Álftarósi. Þá var einnig kjörið
í sex manna ráðgjafaráð. Nýkjörin
stjórn starfar fram til vorsins 1995
þegar kosið verður í fyrsta sinn til
stjómar almennri kosningu á aðal-
fundi.
Viljum stækka þjóðarkökuna
í ávarpi til stofnfundarins sagði
Haraldur Sumarliðason nýkjörinn
formaður, að hvati samtaka iðnaðar-
ins til að sameinast væri ekki erfið-
leikatímar í íslensku atvinnulifi held-
ur hin mörgu mikilvægu mál sem
sameinuðu þessa fylkingu fremur en
að sundra henni. Þó hefði atvinnlífið
líklega aldrei orðið að takast á við
meiri vanda en nú.
„Nýr kafli í atvinnusögunni þarf
að hefjast. Vinna þarf bug á efna-
hagslægð og afleiðingum af mistök-
um í hagstjórn til margra ára. Menn
mega ekki gleyma sér við að aðlaga
þjóðfélagið minnkandi tekjum heldur
þarf að auka tekjumar. Samtök iðn-
aðarins vilja leggja sitt af mörkum
til að stækka þá köku sem til skipta
er og munu leita samstarfs við opin-
bera aðila og aðra til að flýta fyrir
þeirri þróun,“ sagði Haraldur.
í stefnuyfirlýsingu Samtaka iðn-
aðarins er lögð áhersla á að tryggt
verði frelsi í viðskiptum íslands ið
aðrar þjóðir. Samtökin hvetja til virk-
ar þátttöku íslendinga í alþjóðlegu
samstarfí og telja brýnt að slíkt sam-
starf verði metið fordómalaust. Var-
að er við hættu á útþenslu hins opin-
bera. Samtökin hafna opinberri for-
sjá í atvinnulífi, en leggja áherslu á
samstarf við opinbera aðila um
stefnumótun og leiðsögn. „Útflutn-
ingur hefur lítið sem ekkert aukist
síðastliðin átta ár og þessari langvar-
andi stöðnun verður að ljúka sem
fyrst,“ segir í yfirlýsingunni auk þess
sem stuðningi er lýst við viðleitni til
að laða að erlenda fjárfestingu á Is-
landi.
Áhersluatriði fyrstu mánuðina
í samþykkt stofnfundarins eru
einnig sett fram áhersluatriði í starfi
samtakanna fyrstu mánuðina.
► Átak verður gert til að sýna fram
á að samkeppniShæfur iðnaður er
vopn í baráttunni við atvinnuleysi og
efnt til kynningar á greininni sem
nái til þeirra sem annast innkaup hjá
fyrirtækjum og hinu opinbera, auk
almennings.
► Samtökin munu beita sér fyrir
minni umsvifum og jöfnuði í rekstri
hins opinbera. Áhersla er lögð á raun-
hæfar aðgerðir til lækkunar vaxta,
með því að draga úr hallarekstri og
fjárþörf hins opinbera.
► Hvatt er til að frumvarp um ís-
lenska fjárfestingarbankann verði
lögfest og þar með tryggt fjármagn
til vöruþróunar- og markaðsmála.
Skákþing Islands
Helgi Olafsson meist
ari þriðja árið í röð
SKÁK
Bragi Kristjánsson
ÆSISPENNANDI lokaumferð í
landsliðsflokki á Skákþingi ís-
lands, BYKO-mótinu, var tefld á
fimmtudag. Fjórir keppendur
áttu möguleika á fyrsta sætinu
og svo einkennilega vildi til, að
þeir höfðu allir svart gegn and-
stæðingum a.f svipuðum styrk-
leika. Helgi Ólafsson og Þröstur
Þórhallsson höfðu 7'/2 v. fyrir síð-
ustu umferð, en Jóhann Iljai-tar-
son og Hannes Hlífar Stefánsson
höfðu 7. Áhorfendur voru fleiri
én áður og fylgdust spenntir með
skákunum Tómas-Helgi Ól., Jón
Garðar-Þröstur, _ Guðmundur-
Jóhann og Andri Áss-Hannes Hlíf-
ar. Hannes Illífar var fyrstur til
að vinna fjöruga skák, en fljótlega
á eftir varð þ'óst, að Helgi 01.
átti unna skák, og Jóhann vann
Guðmund.
Allra augu beindust að skák Jóns
Garðars og Þrastar. Sá síðarnefndi
varð að vinna, til þess að ná Helga
Ól. Hann flækti þess vegna taflið
sem mest hann mátti. Báðir kepp-
endur lentu í heiftarlegu tímahraki
í flókinni, opinni stöðu. Keppendur
misstu tölu á leikjunum og æsilegir
atburðir gerðust. Skákin skipti
nokkrum sinnum um eigendur og
hraðinn var svo mikill, að ekki var
hætt fyrr en teflendur höfðu leikið
10 leiki fram yfír 40 leikja mörkin.
Þá blasti við þráskák, jafntefli, og
Helgi Ólafsson var orðinn Skák-
meistari íslands 1993.
Helgi Ólafsson vann það einstæða
afrek að vinna íslandsmeistaratitil-
inn þriðja árið í röð, en hann hefur
alls fimm sinnum orðið íslandsmeist-
ari. Helgi tefldi að venju vandað og
vel. Hann tapaði aðeins einni skák,
gegn Þresti, og er vel að sigrinum
kominn. Þröstur Þórhallsson tefldi
betur á þessu móti en oftast áður.
Hann fór að vísu rólega af stað og
gerði jafntefli í tveimur fyrstu skák-
unum, eftir nokkra erfiðleika. Hann
komst í gang með sigrinum á Helga
Ól. í ijórðu umferð og fékk 4 vinn-
inga í næstu fimm skákum. Titillinn
var þá í sjónmáli, en tvö jafntefli í
lokin gáfu aðeins annað sætið. Þröst-
ur má þó vel við una, því að hann
fékk 2'A vinning gegn þremur stór-
meisturum. Jóhann Hjartarson
missti flugið nokkuð um miðbik
mótsins, eftir tap fyrir Helga Ól.,
en sigrar í þremur síðustu skákunum
lyftu honum aftur í efstu sætin.
Hannes Hlífar tapaði tveimur skák-
um fremur baráttulítið, en 8 vinning-
ar geta ekki talist léleg uppskera.
Helgi Áss Grétarsson varð í
fimmta sæti. Hann vantaði einn
vinning til þess að ná áfanga að
alþjóðlegum titli og náði sér aldrei
almennilega á strik í mótinu.
Um önnur úrslit vísast til með-
fylgjandi töflu.
Við skulum nú sjá tvær af úrslita-
skákum síðustu umferðarinnar.
Hvítt: Tómas Björnsson
Svart: Helgi Ólafsson
Sikileyjarvörn
1. e4 - c5, 2. Rf3 - e6, 3. d4 -
cxd4, 4. Rxd4 - Rf6, 5. Rc3 - d6,
6. Bg5 - Be7, 7. f4 - h6, 8. Bh4
- Rc6, 9. Dd3 - g5!? (Þekkt aðferð
til þess að tryggja e5-reitinn fyrir
riddara, en þar stendur hann eins
og klettur úr hafinu.)
10. fxg5 - Rg4, 11. Be2 - Rge5,
'12. Dd2 - Bxg5, 13. Bxg5 - Dxg5,
14. Dxg5 - hxg5 (Svartur á nú
mjög þægilegt tafl með sterkan ridd-
ara á e5, möguleika á að þrýsta á
hvíta peðið á e4 og aðgerðir á hálfop-
inni h-línu liggja í loftinu.)
15. 0-0-0 - Ke7, 16. h3 - a6, 17.
Rf3 - Bd7, 18. Hd2 - (Hvítur
græðir ekkert á 18. Rxg5, Hag8,
19. h4 - f6, 20. Rf3 - Hxg2 o.s.frv.)
18. - Rxf3, 19. Bxf3 - Had8, 20.
Hhdl- Bc8, 21. Ra4 - (Eða 21. a4
- b6, 22. b3 - Bb7, 23. Re2 -
Re5, 24. Rd4 - Hh4, 25. Hel og
hvítur er í erfiðri og óvirkri vörn.)
21. - b5, 22. Rb6 - Bb7, 23. c4 -
Re5, 24. cxb5 - axb5, 25. Hc2 -
Bc6, 26. a4 - (Svartur hótaði að
sækja riddarann með 26. - Hb8.)
26. - bxa4, 27. Hd4 - Hh4!
(Notfærir sér að hvíti hrókurinn á
d4 er óvaldaður.)
28. Rxa4 -
(Eftir 28. Rc4 - Rxf3, 29. gxf3 -
Hxh3 á svartur tvö peð yfír og unn-
ið tafl.)
28. - d5!, 29. Rc3 -
(Hvað annað?)
29. - dxe4, 30. Hxd8 - exf3!, 31.
Hg8?
(Eðlilegasti leikurinn reynist afleik-
ur, sem tapar strax. Eftir 31. Hdl
- fxg2 hefði svartur þó átt unnið
tafl.)
31. - f2!
og Tómas gafst upp, því að hann
tapar hrók eftir 32. Hxf2 - Rd3+
ásamt 33. - Rxf2.
Þegar skák Tómasar og Helga
Ól. lauk, þá var eftirfarandi staða
komin upp í skák Jóns Garðars Við-
arssonar og Þrastar Þórhallssonar.
Þröstur varð að vinna til þess að
ná Helga, og umhugsunartíminn að
verða naumur. Framhaldið varð:
22. - Re5, 23. Ddl - Rg6, 24.
hxg5 - hxg5, 25. Dh5 - Bf6, 26.
e5!? -
(Jón Garðar vill ekki bíða aðgerða-
laus eftir - Kg7 og - Hh8 o.s.frv.)
26. - Rxe5, 27. Bh7+ - Kg7, 28.
Re4 - Bxe4, 29. Bxe4 - Hh8, 30.
De2 — Hac8
(Keppendur áttu aðeins eftir um 1-2
minútur hvor til þess að ná 40 leikja
markinu, þegar hér var komið.)
31. c5!? - bxc5, 32. bxc5 - Hh6,
33. f4 -
(Ekki gengur 33. cxd6?? - Dxcl og
svartur vinnur.)
33. - Rg6, 34. fxg5 - Bxg5, 35.
Bxd6 - Dd8
(35. - Da5 hefði verið virkari og
betri leikur.)
36. Hcdl - Dh8, 37. Bxg6 - Hhl+,
38. Kf2 - Bh4+, 39. Kf3 - Bxel?
(Nauðsynlegt var að leika 39. -
Hxel.)
40. De5+? -
(Hvítur hefði náð unnu tafli með 40.
Bxe5+ - f6, 41. Hd7+ - Kxg6, 42.
Dc2+ - f5, 43. Bxh8 o.s.frv.)
40. - f6
(Tímamörkunum var náð, en kepp-
endur höfðu fyrir löngu misst tölu
á leikjunum, og þess vegna var teflt
áfram með leifturhraða.)
41. Dxe6 - Kxg6, 42. Dg4+ -
Kf7, 43. Dd7+ - Kg6, 44. Dg4+
- Kh7, 45. Df5+ - Kg7, 46. Dg4+
- Kf7, 47. Dd7+ - Kg8??, 48.
De6+ - Kg7, 49. Dg4+ - Kh7,
50. Df5+ - Kg7
(í þessari stöðu féll klukka Jóns
Garðars og þá loksins hættu kepp-
endur hraðskákinni. Þráskák og
jafntefli verður ekki umflúið.)
51. Dg4+ - Kf7, 52. Dd7+ -
Kg6, 53. Dg4+ - Kf7, 54. Dd7+
og keppendur sömdu um jafntefli,
og þar með var Helgi Ólafsson orð-
inn Skákmeistari Islands 1993.
Sannarlega æsileg lok á skemmti-
legu íslandsmóti.