Morgunblaðið - 25.09.1993, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 25.09.1993, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 1993 31 BLAÐAMAÐUR Vélritar 670 slög á mínútu Rússneski blaðamaðurinn Mihail Shestov er heimsmeistari í vélritun með 670 slög á mínútu í evrópskum stöfum, en hann getur vélritað allt að 900 slög í rússn- eskri ritun. Sá sem nær 300 slögum á mínútu er talinn allþokkalegur ritari. Árið 1991 komst Mihail í Heimsmetabók Guinnes með því að skrifa tölurnar frá einum upp í 785 á fímm mínútum. Hann vélritar einnig allt rétt og segir það vera vegna þess að í átta mánuði var hann daglega látinn vélrita skýrslur upp á 150 síður með gamaldags ritvél. „Ef ég hefði ekki skrifað villulaust hefði ég ver- ið látinn byija alveg upp á nýtt. Eg hægði því verulega á hraðanum Hinn þrítugi Mihail Shesstovs býr nú í Danmörku þar sem hann kennir vélritunaraðferð sem hann nefnir „Shestov-tæknina". meðan ég var að ná réttrituninni, en síðan jók ég hraðann mark- visst,“ sagði hann í viðtali við Poli- tiken, en Mihail hefur búið í Dan- mörku undanfarin ár. Mihail notar sérstaka aðferð til þess að ná þessum hraða. Til þess að aðrir geti fengið að njóta tækn- innar sinnir hann nú eingöngu kennslu í „Shestov-tækninni", eins og hann kallar hana. Aðferðin gengur að hluta til út á hreyfingar handanna, en fingurnir eru látnir renna með sérstökum hætti yfir lyklaborðið, þannig að baugfingur fá aukið vægi og erfiðleikar orð- anna stjórna hraðanum. Morgunblaðið/Sverrir Sigurvegarar kvöldsins, f.v. Arnfríður Kristín Arnardóttir, 17 ára, varð í öðru sæti, Hrafnhildur Hafsteinsdóttir, 17 ára, hlaut titilinn ungfrú Hawaiian Tropic og Arngerður Guðmundsdóttir, 20 ára, varð í þriðja sæti. KEPPNI LEIKARAR Alison Arngrim sinnir alnæmissj úklingnm D0ES G00D Aiison Arngrim—■-nasíy Nellíeon UttleHoase— campeigns against AIDS Alison Arngrim tekur hér þátt í „heilunarmessu" ásamt Tommy 5 ára, en hann er eitt af þeim börnum sem eru undir verndarvæng hennar. Alison Arngrim sem til ijölda ára lék hina illgjörnu Nellie í sjón- varpsþáttun- um Húsinu á Sléttunni hef- ur á undan- förnum árum sinnt alnæmi- sjúklingum og samtökum þeirra af mik- illi kostgæfni. Hún fór að beita sér af afli fyrir mál- staðinn eftir að mótleikari hennar í þátt- unum, Steve Tracy, lést af völdum eyðni árið 1986. Alison virðist ekki hafa leikara- blóðið sterkt í æðum, þrátt fyrir að foreldrar hennar, Thor og Norma MacMillan, séu bæði leikarar. Hún hefur nánast ekkert leikið síðan í Húsinu á sléttunni og helgar al- næmissjúklingunum allan sinn tima. Hún hefur að nokkru leyti tekið að sér eða aðstoðað fjögur ung börn sem eru smituð af al- næmi, auk þess sem hún ferðast á milli skóla, kirkna og fangelsa til að upplýsa um öruggt kynlíf. I3ICMIEGA vítamín og kalk fæst í apótekinu 3ja sæta sófi + 2 stólar í leðri stgr. 198.834, 3ja sæta sófi stgr. 91.884,- 2ja sæta sófi stgr. 75.330,- Stóll stgr. 53.475,- Hár stóll stgr. 61.845,- Opið laugardaga 10-16. Síðumúla 20, símar 33200 og 688799. pt0iF0wtnM$foit> Metsölubladá hverjum degi! Hrafnhildur Hafsteins- dóttir bar signr úr býtum Alison sem Nellie í þáttunum Húsinu á sléttunni ásamt Steve Tracy, en hann lést úr eyðni. Hrafnhildur Hafsteinsdóttir var kjörin ungfrú Hawaiian Tropic í sundfatakeppni sem fram fór á Hótel Sögu í gærkvöldi. Tekur hún þar af leiðandi þátt í alþjóð- legri sundfatakeppni á Daytona Beach í Flórída í mars' á næsta ári og fær ferðir og uppihald sér að kostnaðarlausu. { öðru og þriðja sæti urðu Amfríður Kristín Arnar- dóttir og Arngerður Guðmundsdótt- ir. Unnu þær sér einnig þátttöku- rétt í keppninni. Þetta er í fyrsta skipti sem keppni af þessu tagi fer fram hér á landi en þrátt fyrir það tóku þrjár íslensk- ar stúlkur þátt í keppninni í fyrra, Laufey Bjamadóttir, Nanna Guð- bergs og Árný Hlín Hilmarsdóttir. - * , GETRAUNADEILDARINNAR 0G l.DEILDAR KVENNA í KNATTSPYRNU Á HÓTEL ÍSLANDI LAUGARDAGINN 25«SEPTEMBER. ÚTNEFNING BESTU 0G EFNILEGUSTU LEIKMANNA. HÚSIÐ OPNAR KL. 10.00 FYRIR AÐRA EN MATARGESTI. I .

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.