Morgunblaðið - 26.09.1993, Síða 14
rÍLlP
, jVtORfiUNBLAÐIÐ FOLK I SKITEMIHOR 1 «>93
SKILNAÐARMÁL
Axl höfðar mál
gegn fyrrverandi kærustu
Myndin af Stephanie Seymour og Axl Rose var tekin árið 1991
meðan allt lék í lyndi.
Söngvari Guns N’ Roses, Axl
Rose, hefur ákveðið að höfða
mál gegn fyrrverandi kærustu
sinni, fyrirsætunni Stephanie
Seymour, vegna ofbeldis og lík-
amsárása. Auk þess vill Axl að hún
skili þeim skartgripum sem hann
gaf henni og eru að verðmæti um
sjö milljónir íslenskra króna. Meðal
skartgripa er demantshálsfesti og
trúlofunarhringurinn sem skartar
einnig demöntum. Ekki hefur Axl
þó hugsað sér að gefa annarri
stúlku skartgripina heldur vill
hann að andvirði þeirra renni til
líknarmála.
Samkvæmt ákærum Axl voru
þau Stephanie trúlofuð og allir
bjuggust við brúðkaupi þegar slitn-
aði upp úr sambandinu í febrúar
síðastliðnum. Vandamálin hófust
þó, að sögn systur Axls, um síð-
ustu jól þegar Stephanie efndi til
veislu fyrir Axl heima hjá honum.
Þau höfðu að sögn nærstaddra átt
í einhverjum eijum og Axl bað
gestina að fara um miðnæturbil,
því hann vildi vera einn. Stephanie
var ekki sammála þar sem hún var
í miklu partýstuði. Eftir að hún
hafði látið kærasta sinn fá það
óþvegið henti hún í hann stól og
slagsmálin byijuðu, samkvæmt því
sem systir Axls heldur fram.
Stephanie er hvorki sammála
þessari útgáfu sögunnar né er hún
sömu skoðunar og Axl um að þau
hafí verið trúlofuð. Hún ætlar þó
að láta skartgripina af hendi renni
andvirði þeirra til góðgerðarmála.
Stephanie var eitt sinn orðuð
við Warren Beatty en nú segir
sagan að kærasti hennar sé Peter
Brand, 45 ára pólóleikari og eig-
andi tímaritsins Interview.
GÓÐGERÐASAMKUNDA
Victoría Príncipal stal senunni
Morgunblaðið/Alfons
/ septembersól
Þessi ungi drengur kunni svo sannarlega að slappa af í septembersól-
inni enda er veðurfar með besta móti um þessar mundir og kunna
börnin vel að meta sumaraukann. Óðum styttist í að vetur konungur
taki völdin og því er best að nota tímann vel.
Suha Arafat ber mikla virðingu fyrir eiginmanni sínum, Yasser.
Nýjustu sögur herma að þau eigi von á barni.
ARauða kross-balli sem haldið
var í Mónakó til styrktar góð-
gerðarstarfí fyrir nokkru var það
að þessu sinni ekki Karólína prins-
essa sem vakti mesta athygli heldur
leikkonan Victoria Principal, sem
lék Pamelu í sjónvarpsþáttunum
Dallas. Hún hafði látið senda eftir
hinum þekkta hárgreiðslumeistara
Alexandre de Paris til að sjá um
greiðsluna. Af myndinni að dæma
leit hún alveg ljómandi vel út í
gullbrydduðum toppi.
Ballið var haldið sama dag og
Baldvin Belgíukonungur var jarðað-
ur, þannig að Rainer fursti var ekki
viðstaddur og ekkert var dansað.
Albert prins var að sjálfsögðu á
staðnum og kom hann til gleðskap-
arins ásamt tveimur dömum, Karól-
ínu systur sinni og aldraðri frænku
þeirra. Þá vakti einnig athygli að
Jean Yves Le Fur, fyrrverandi kæ-
rasti Stefaníu prinsessu, mætti til
fagnaðarins ásamt vinkonu sinni,
en Jean er góður vinur Alberts.
Undrunin var aðallega vegna þess
að aðgangseyrir var í kringum 100
þúsund krónur og sögur segja að
hann hafí ekki átt bót fyrir rassinn
á sér þegar Stefanía fór fram á að
hann greiddi trúlofunarveislu
þeirra. Breyttir tímar?
Fyrrverandi unnusti Stefaníu
kemur til veislunnar ásamt vin-
konu sinni.
Victoria Principal lét
senda eftir hárgreiðslu-
meistaranum Alexandre
de Paris.
HJONABAND
stolt af Yasser
Yasser vill ekki munað
Barn í vændum?
Yasser og Suha búa í barnlausu
hjónabandi og kveðst Suha — sem
alin var upp í grísk-kaþólskri trú
en tók múhameðstrú við giftingu —
biðja til Maríu meyjar daglega um
að henni auðnist að eignast barn.
Svo virðist sem hún hafi verið bæn-
heyrð, því dagblað í Túnis skýrði
frá því fyrir nokkrum dögum að
þau eigi von á barni. Orðrómurinn
hefur þó ekki fengist staðfestur af
þeim Yasser og Suha.
Suha Arafat
Suha Arafat, eiginkona Yassers
Arafats leiðtoga PLO, Frelsis-
samtaka Palestínumanna, er ein-
ungis 29 ára og er sögð líta jafnvel
enn yngri út. Yasser er hins vegar
64 ára. Þau hafa verið gift í tvö
ár og ennþá segist Suha ekki geta
vanist öllum þeim öryggisatriðum,
sem þau hjón verða að fylgja dags
daglega. Blaðamaður Aftenposten
heimsótti Suha fyrir stuttu og færði
henni meðal annars konfektkassa,
sem öryggisverðirnir opnuðu strax
til að ganga úr skugga um að ekk-
ert væri athugavert við hann. Einn-
ig í öryggisskyni sefur Arafat á
mismunandi stöðum, þrátt fyrir að
oftast dvelji hann á heimili þeirra
hjóna í Túnis.
Þessi sífelldi ótti um að lífí þeirra
verði ógnað hefur haft þau áhrif
að Suha er með of háan blóðþrýst-
ing. Þá hafa nýliðnir sáttaatburðir
milli Jórdana og ísraela haft mikil
áhrif á hana, þrátt fyrir að hún
hafí ekki fylgt bónda sínum til
Washington, þar sem viljayfirlýs-
ingin var undirrituð. „Það varð ein-
hver að verða eftir hjá fólkinu okk-
ar,“ sagði hún þegar blaðamaðurinn
undraðist að hún hefði orðið eftir
heima.
Suha er greinilega stolt af manni
sínum því veggir vinnuherbergis
hennar eru þaktir myndum af hon-
um við hin ýmsu tækifæri. Blaða-
manninum finnst þó greinilega ein-
um of langt gengið þegar hann
kemst að því að í borðstofunni er
einnig fjöldi mynda af eiginmannin-
um og spyr hvort Yasser komi eitt-
hvað nálægt því að innrétta húsið.
„Taki hann yfir höfuð eftir því verð-
ur honum að orði: Þú veist að mun-
aður á heima í húsi föður þíns en
ekki heima hjá mér,“ svarar Suha
og hlær.
Morgunblaðið/Guðmundur Kr. Jóhannesson
Örvfættir í meirihluta
KR-ingar vörðu titilinn í eldri flokki á íslandsmótinu í knattspyrnu á
dögunum og vakti athygli að Guðjón B. Hilmarsson, fyrirliði og einvald-
ur flokksins, var með sjö örvfætta leikmenn í hópnum. Ellert B. Schram,
forseti íþróttasambands íslands, er þeirra þekktastur, hann var þó fjar-
staddur þegar myndin var tekin. Á henni má hins vegar sjá hina sex.
F.v. Sæbjöm Guðmundsson, Sigurður Pétursson, Hálfdán Örlygsson,
Erling Aðalsteinsson, Bjarni Halldórsson og Friðrik Þorbjömsson.
Guðjón taldi samsetningu liðsins einsdæmi, en sagði að árangurinn
gæfi til kynna að þetta væri ekki svo galið. Aðspurður um hvort fjöldi
örvfættra leikmanna hefði aldrei komið liðinu í koll sagði Guðjón að eftir
á að hyggja mætti hugsanlega rekja ófarimar á Pollamóti Þórs á Akur-
eyri fyrr í sumar að nokkru leyti til einhæfninnar. „Allir réttfættu menn
okkar voru meiddir eða komust ekki og þvi gátum við ekki haft neinn
á hægri kantinum. Þess vegna fór allt spilið fram vinstra megin og við
duttum út í átta liða úrslitum."
Aldrei þessu vant féll Karólína prinsessa, klædd svörtum og hvítum
kjól, í skuggann af annarri konu.