Morgunblaðið - 12.10.1993, Page 1

Morgunblaðið - 12.10.1993, Page 1
56 SIÐUR B 231. tbl. 81. árg. ÞRIÐJUDAGUR 12. OKTÓBER 1993 Prentsmiðja Morgunblaðsins Búist við litlu af Japansför Borís Jeltsíns Moskvu, Tókíó. Daily Telegraph. Reuter. BORÍS Jeltsín Rússlandsforseti kom í gær í opinbera heim- sókn til Japans aðeins viku eftir að hafa barið niður upp- reisn harðlínumanna í Moskvu. Hann sagði það aldrei hafa vafist fyrir sér livort hann ætti að fara þar sem fjandmenn hans sætu nú á bak við lás og slá í „rammgerðu virki“. Greiðslu- stöðvun hjá Fossbanka í Færeyjum Þórshöfn. Frá Grækaris Djurhuus Magn- ussen, fréttaritara Morgunblaðsins. EFNAHAGSHRUNIÐ heldur áfram á Færeyjum. Klukkan sex í gærmorgun var bankastjóra minnsta banka Færeyja, einka- bankans Fossbanka, tilkynnt um að bankinn yrði að fara í greiðslustöðvun. Það var danska bankaeftirlitið sem tók ákvörðun um greiðslu- stöðvunina. í fréttatilkynningu frá bankaeftirlitinu segir að eiginfjár- staða bankans standist ekki kröfur þær sem settar eru í bankalögum og muni ekki standast þær. Til að standa vörð um hagsmuni þeirra, sem eiga innistæður í bankanum, hafi bankaeftirlitið því tekið ákvörðun um greiðslustöðv- un. í kjölfarið tók stjórn bankans ákvörðun um að honum yrði lokað í ótilgreindan tíma. Ekki liggur fyrir hvenær og jafnvel hvort Foss- banki verði opnaður á ný. Hjá bank- anum starfa 25 manns. Hlupu út ágöturaf skelfingu Tókíó. Reuter. ÖFLUGUR jarðskjálfti skók byggingar og mann- virki I Tókíó 55 mínútum eftir miðnætti að staðar- tíma í gær. Ein kona dó og nokkrir menn slösuð- ust af völdum skjálftans. Skjálftinn mældist 7,1 stig á richter-kvarða. Upptök hans voru 400 km á hafi úti frá Tókíó og þungamiðja á 390 km dýpi. Nokkur hræðsla greip um sig og hlupu margir á götur út er skjálftinn reið yfir. Eink- um varð fólk sem hrökk upp af værum blundi skelkað. Jeltsín sagði við brottförina frá Moskvu að hann vonaðist til að gestgjafar hans myndu hlífa sér við því að hefja máls á deilunni um Kúrileyjar sem Jeltsín Japanir hafa gert tilkall til frá því Sovétmenn hertóku þær í lok seinna stríðsins. Það væri einungis til þess fallið að eyðileggja ferðina. Japanskir embættismenn sök- uðu Jeltsín um ókurteisi og gáfu til kynna að ekki væra að búast við miklum árangri af heimsókn forsetans. Rússar hafa sóst eftir japanskri efnahagsaðstoð og jap- önskum fjárfestingum í Rússlandi. Japanir hafa ítrekað látið í ljós að þeir vilji fyrst sjá stefnubreytingu af hálfu Rússa varðandi Kúrileyjar. Stefnubreyting Jeltsín gaf í gær út tilskipun þar sem hann boðaði kosningar til Sambandsráðsins í desember og er tilgangur þeirra að uppræta völd afturhaldsafla í héruðunum. Ætlun Jeltsíns er að Sambandsráð- ið verði efri deild væntanlegs lög- gjafarþings, sem einnig verður kosið til í desember. Er það stefnu- breyting því hann hafði áður kynnt hugmyndir um að efri þingdeildin yrði skipuð leiðtogum 88 héraðs- stjórna og sjálfstjórnarsvæða. Útgefanda „Söngva Satans“ í Noregi sýnt banatilræði iReuter Hættulegt samstarf WILLIAM Nygaard, útgefandi „Söngva Satans“ í Noregi ásamt Salman Rushdie höfundi bókarinnar í fyrra. Skotið var á Nygaard fyrir utan heimili hans í gær, að talið er vegna útgáfu bókarinnar. Grunur beinist að isl- ömskum öfgamönnum Ósló. Frá Jan Gunnar Furuly, fréttaritara Morgunblaðsins. Reuter. WILLIAM Nygaard, norskur útgefandi „Söngva Satans", eftir Salman Rushdie, liggur nú þungt haldinn á sjúkrahúsi eftir skotárás fyrir utan heimili sitt í Ósló í gærmorgun. Norska lögreglan telur hugsanlegt að islamskir hryðjuverka- menn hafi staðið á bak við tilræðið. Nygaard er útgáfustjóri hjá Asc- hehoug-forlaginu, sem gaf út þýð- ingu á „Söngvum Satans“ fyrir fjór- um árum en þá hafðþ Ayatoílah Khomeini, erkiklerkur í Iran, dæmt Rushdie til dauða, svo og alla þá sem þýddu eða gæfu út bækur Rushdie. Nygaard var skotinn þrisvar sinnum í bakið og er líðan hans alvarleg. Ekki er vitað hver eða hvetjir stóðu að árásinni. Sjónar- vottar voru ekki að árásinni en lög- reglan hefur beðið bílstjóra þriggja bifreiða sem voru í nágrenni árás- arstaðarins um það leyti sem til- ræðið átti sér stað að gefa sig fram. Þó að allar likur bendi til þes's að heittrúaðir múslimar hafi verið að verki, segist norska lögreglan ekki útiloka aðra möguleika. Ráðist hefur verið á tvo þýðendur bóka Rushdies eftir að Khomeini kvaddi upp dauðadóminn og lést annar þeirra. Talsmenn Salmans Rushdie sögðu hann vera sleginn vegna árásinnar sem hann teldi að hefði verið sér ætluð. Norðmenn hafa óttast að at- hygii hryðjuverkamanna myndi beinast að landinu í kjölfar þess að Johan Jorgen Holst, utanríkis- ráðherra, miðlaði málum milli ísra- ela og Palestínumanna á þessu ári. Þegar eftir skotárásina var eftirlit hert á flugvöllum, í höfnum og við landamæri. Misjöfn viðbrögð við kosningasigri gríska sósíalistaflokksins Ottast að ráðdeild í efna- liag’sstjórn víki fyrir bruðli Aþenu, Brussel. Reuter. SIGUR grískra sósíalista í þingkosningum á sunnudag veldur áhyggjum i aðalstöðvum Evrópubandalagsins, EB, og Atlantshafs- bandalagsins, NATO. Er sósíalistar voru síðast við völd á níunda áratugnum gagnrýndi leiðtogi þeirra, Andreas Papandreou, NATO oft harðlega, hótaði að reka á brott bandaríska herliðið í Grikk- landi og dró í mörgum tilvikum taum Sovétmanna. Innan EB ótt- ast margir að sósíalistar taki á ný upp bruðl- og ríkisafskipta- stefnu sein valdið hefur geigvænlegri efnahagskreppu í landinu. Viðbrögð ráðamanna í Evrópu við sigri Papandreous voru misjöfn, spænskir sósíalistar sögðu þó að hann myndi styrkja EB. Alain Juppé, utanríkisráðherra Frakka, var ekki jafn kurteis. Hann sagði úrslitin sýna að fólk væri fljótt að gleyma. Stjórn hægrimannsins Konstant- íns Mitsotakis, er tók við 1989, reyndi að taka upp aðhaldsstefnu en kjósendur hafa nú hafnað þeirri leið. Er Papandreou var við völd var byggt upp mikið velferðarkerfi sem varð til þess að skuldir ríkissjóðs hrönnuðust upp og verðbólga fór úr böndunum. Sjálfur hefur Pap- andreou sagt að sýnt verði aðhald að þessu sinni en hætt er við að kjósendur vænti nú margir betri tíð- ar. Þótt embættismönnum hjá EB lít- ist ekki á blikuna er bent á að þar á bæ hafi menn vopn í höndunum reyni sósíalistar ekki að sýna festu í ríkisfjármálum. Bandalagið geti neitað að láta Grikki fá fé úr sérstök- um þróunarsjóði nema stjórnvöld í Aþenu reyni að uppfylla skilyrði Maastricht-samningsins um að- haldsstefnu. Grikkir eiga rétt á 300 milljörðum króna á ári. Papandreou hefur enn fremur gefið í skyn að stefnan gagnvart NATO verði vinsamlegri en síðast enda aðstæður gerbreyttar eftir lok kalda stríðsins. Sjá einnig „Aðhald varð stjórn ..." á bls. 22.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.