Morgunblaðið - 12.10.1993, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. OKTÓBER 1993
19
Agúst Einarsson formaður bankaráðs Seðlabankans
Endumýjun og rekstur bflaflota
bankans með eðlilegum hætti
Gerir ekki ráð fyrir að hætt verði við kaup á bíl fyrir Jón
Sigurðsson, en segir að umræðan kalli á breytta skipan mála
ÁGÚST Einarsson formaður bankaráðs Seðlabankans segist fastlega
eiga von á því að sú umræða sem hefur orðið vegna kaupa á bíl
fyrir Jón Sigurðsson seðlabankastjóra verði til þess að bankaráðið
ræði breytt fyrirkomulag þessara mála í framtiðinni. „Ég held að
almennt verði að finna þessum bílamálum einhvern þannig farveg
að það ærist ekki hálf þjóðin yfir þessu. Það vill það enginn, en
Seðlabankinn hefur núna farið að þeim reglum sem eru í gildi. Það
kemur alltaf að því öðru hvoru að það verði að endurskoða þær
reglur og það er vafalítið komið að þeim tímapunkti núna.“ Aðspurð-
ur sagðist hann ekki gera ráð fyrir að hætt yrði við kaup á bílnum
fyrir Jón Sigurðsson þar sem þau samrýmdust gildandi reglum
bankaráðsins varðandi kaup á bílum fyrir bankasljóra Seðlabank-
ans. Ágúst átti fund um þessi mál með viðskiptaráðherra í gær-
kvöldi og sagði hann að um frekari viðræður þeirra um málið yrði
að ræða þar sem þeim væri báðum umhugað um að friður ríkti um
starfsemi Seðlabankans.
Ágúst sagði að tveir af níu bílum
bankans yrðu seldir í staðinn fyrir
þann bíl sem keyptur var fyrir Jón
Sigurðsson og væri hér um end-
urnýjun að ræða eins og hefur ver-
ið oft áður. „Bankaráðið er ábyrgt
fyrir launum og ráðningarkjörum
bankastjóra, og það er sex ára göm-
ul samþykkt hvernig málum er hátt-
að varðandi bílamál. Bankastjóri
getur fengið til umráða bíl í eigu
bankans sem bankinn ber allan
kostnað af, en þetta er fyrirkomu-
lag sem núverandi bankaráð erfði
og hefur ekki breytt. Kaupin sjálf
á bílum bankans annast viðkomandi
bankastjórar og rekstrarstjóri
bankans, en bankaráðið hefur ekki
afskipti af þeirri framkvæmd. Þessi
umræddi bíll sem nú er keyptur er
dýr, en bankinn hefur áður keypt
bæði dýrari og ódýrari bíla, þannig
að aðferðarfræðin er í sjálfu sér
eins og verið hefur. Við höfum ekki
sett hámark varðandi bílakaup, og
það hefur ekki gilt almennt við
svona skilyrði í ríkisbönkum eða
hjá opinberum stofnunum, en það
mun vafalítið koma til umræðu
núna.“
Ekki um launauppbót að ræða
Ágúst sagði bankaráðið telja að
endurnýjun og rekstur bílaflota
Seðlabankans hefði verið með eðli-
legum hætti, en setja mætti spurn-
ingarmerki við það kerfi að for-
stöðumenn stofnana á vegum ríkis-
ins hefðu afnot af bíl, og afleiðing-
in af núverandi umræðu yrði til
þess að fundið yrði nýtt fyrirkomu-
lag í þessum efnum. „Af þessum
bílum er greiddur fullur skattur og
bankastjórarnir greiða af þessu full-
an skatt, og þarna er því ekki um
launauppbót að ræða. Hvað launa-
kjör bankastjóra Seðlabankans
varðar þá hafa þau um 18 ára skeið
verið miðuð við laun hæstaréttar-
dómara, sem nú eru 253 þúsund
Svavar Gestsson kynnir þijú frumvörp
Alþingi staðfesti til-
nefningar í embætti
hæstaréttardómara
SVAVAR Gestsson alþingismaður kynnti á blaðamannafundi í gær
þrjú lagafrumvörp sem hann er fyrsti flutningsmaður að. Gert
er ráð fyrir verulegum breytingum á stjórnkerfinu. T.d. er kveð-
ið á um að Alþingi verði að staðfesta tillögu um nýja hæstaréttar-
dómara sem dómsmálaráðherra ákveði að leggja fyrir forseta
Islands. Onnur tillaga gerir ráð fyrir að dómnefndir fjalli um
umsóknir um forstöðu nokkurra menningarstofnana.
Tvö þessara frumvarpa, um
embætti ríkissaksóknara og um
Hæstarétt íslands, flytur Svavar
ásamt öðrum þingmönnum Al-
þýðubandalagsins. Þriðja frum-
varpið er um yfirstjórn menningar-
stofnana og stendur Svavar einn
að flutningi þess. Frumvarpið ger-
ir m.a. ráð fyrir að dómnefndir
fjalli ævinlega um skipan og ráðn-
ingu þjóðskjalavarðar, þjóðminja-
varðar og landsbókavarðar. Svav-
ar sagði þessa tillögu eiga sér hlið-
stæðu í breytingum á lögum um
Háskóla íslands sem samþykktar
voru í tíð fyrri ríkisstjórnar.
Fjölmiðlum var þessu næst
kynnt frumvarp um breytingu á
lögum um Hæstarétt íslands.
Frumvarpið gerir m.a. ráð fyrir
að Alþingi staðfesti tillögu um
skipan Hæstaréttardómara. Synj-
aði Alþingi staðfestingar á tillögu
krónur á mánuði. Við það bætist
síðan 17% álag hafi menn unnið í
15 ár, þannig að menn geta komist
upp í 296 þúsund og síðan bætast
við 40 þúsund krónur vegna setu
bankaráðsfunda. Þannig eru launin
336 þúsund krónur á mánuði, og
síðan bætist 13 mánuðurinn við.
Þetta eru þau launakjör sem seðla-
bankastjórar hafa, og ég fullyrði
að launa- og bílamál bankastjór-
anna eru í betra lagi og jafnvel
lægri en almennt gengur og gerist
í bankaheiminum, svo ég tali nú
ekki um á almennum markaði. En
hins vegar er það matsatriði hvort
bíll sá sem nú hefur verið keyptur
er of dýr.“
Jóhannes Nordal fær aðstöðu
til ritstarfa
Varðandi húsnæði Seðlabankans
í Einholti sagði Ágúst að verið
væri að byggja ofan á húsið meðal
annars vegna þess að þakið hefði
lengi lekið og nauðsynlegt hefði
verið að ráðast í viðgerðir á því,
en .einnig hefði verið talið hag-
kvæmt að byggja ofan á það vegna
ásóknar í sérhæft bókasafn bank-
ans varðandi peningamál í kjölfar
tengingar við tölvuskráningarkerfi
bókasafna. „Þarna er fyrst og
fremst skjalasafn bankans sem okk-
ur ber að geyma, og auk þess er
þarna myntsafn þjóðarinnar til
húsa. Þessi stækkun er því einfald-
lega vegna þessara aðstæðna, og
hún var ákveðin samhljóða með öll-
um greiddum atkvæðum í bankar-
áðinu.“
Ágúst sagði að ráðningarsamn-
ingur Jóhannesar Nordals hefði að
óbreyttu runnið út í lok næsta árs,
en fallist hefði verið á þá ósk hans
að láta af störfum um mitt þetta
ár. Bankaráðið hefði ákveðið að
fara þess á leit við hann að hann
ynni meðal annars að ritun á ýmsu
sem tengdist sögu peninga- og
efnahagsmála á íslandi, og hefði
hann orðið við þeirri ósk, en það
væru mikil verðmæti fólgin í því
að fá hann til að vinna þetta verk.
Hann fengi skrifstofuaðstöðu til
þess í húsnæði bankans í Einholti,
og bankaráðinu hefði ekki fundist
óeðlilegt að þegar hann væri að
ljúka störfum við bankann með
þessum hætti að hann fengi tíma-
bundin afnot af þeim bíl sem hann
hafði sem bankastjóri, en sá bíll
yrði síðan seldur og ekki endurnýj-
aður. Aðspurður sagði Ágúst að
ekki hefði verið samið við Jóhannes
um neinar sérstakar greiðslur fyrir
ritstörfin. Hann sagði að ekki hefði
komið til tals að Tómas Árnason,
sem lætur af störfum seðlabanka-
stjóra um næstu áramót, ynni að
neinum sérverkefnum fyrir bank-
ann þegar hann hefði lokið störfum.
Varðandi þá fullyrðingu Guðrúnar
Helgadóttur að Bera Nordal, for-
stöðumaður Listasafns ríkisins,
starfi sem sérstakur listráðunautur
við Seðlabankann sagði Ágúst að
það væri með öllu tilhæfulaust.
Hins vegar hefði hún veitt ráðlegg-
ingar varðandi uppstillingu mynda
þegar hús bankans var tekið í notk-
un á sínum tíma. Hann sagði lista-
verkakaup á vegum bankans hefðu
að öllu leyti verið innan eðlilegra
marka, en um þau væru gerð
rekstraráætlun á hveiju ári sem
bankaráðið færi yfir og fylgdist
með, en hins vegar væri reksturinn
sjálfur á ábyrgð bankastjórnarinn-
ar.
ráðherra gerði hann aðra tillögu
og þannig koll af kolli uns þing
og ráðherra hefðu náð saman.
Svavar taldi ekki að með þessu
fyrirkomulagi væri verið að skerða
sjálfstæði dómsvaldsins, þótt lög-
gjafarvaldið staðfesti tilnefningu
ráðherra. Það væri meira áhyggju-
efni að skipan hæstaréttardóinara
færi eftir pólitískum lit ráðherra
hveiju sinni.
Þriðja frumvarpið sem Svavar
flytur ásamt átta öðrum þing-
mönnum Alþýðubandalagsins
varðar saksóknara ríkisins. Gert
er ráð fyrir að forseti skipi ríkis-
saksóknara og vararíkissaksókn-
ara til fjögurra ára í senn en þó
megi skipa sama manninn tvívegis
samfellt. Svavar Gestsson sagði
það fráleitt að æviráða mann sem
hefði jafnmikið vald og ríkissak-
sóknari hefði.
í hádeginu alla virka daga:
Maisrétta
Margrétta er glæsilegt lilaðborð sem við á Aski bjóðum upp á í háóeginu.
Þú getur vaiið úr sex glæsilegum réttum eða fengið þér sitt lítið af hverjum
fyrir hlægilega lágt verð:
Aðelns 890 kr.
- verði þér að góðu!
Askur Suðulandsbiraut 4. Sími: 38550