Morgunblaðið - 12.10.1993, Blaðsíða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. OKTÓBER 1993
STJÖRNUSPÁ
eftir Frances Drake
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Einhver misskilningur getur
komið upp í vinnunni árdeg-
is en úr rætist þegar á líð-
ur. Þú hlýtur viðurkenningu
ráðamanna.
Naut
(20. apríl - 20. maí) tfá
Astvinir eiga saman góðar
stundir og tengsl þeirra
styrkjast. Þér gengur vel í
vinnunni og framahorfur eru
góðar.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú fæ'rð góða hugmynd sem
gæti leitt til tekjuóflunar og
nýtur stuðnings vina og fé-
laga. Allt gengur þér í hag-
inn.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí) HS8
Þú átt auðvelt með að tjá
þig og koma skoðunum þín-
um á framfæri. Ættingi
veitir þér góð ráð og fjár-
hagsstuðningur stendur til
boða.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Nú er hagstætt að skrifa
undir samninga og semja við
aðra. Sumir eru að undirbúa
meiriháttar lagfæringar
heima fyrir.
Meyja
(23. ágúst - 22. septomber) J
Þér gefast tækl’færi til að
bæta afkomuna í dag og fá
óskir þínar uppfylltar. Láttu
ekki happ úr hendi sleppa.
Vog
(23. sept. - 22. október)
Trúnaðarsamtal gefur þér
góða hugmynd um tekjuöfl-
un. Þér tekst að finna hag-
stæða lausn á gömlu vanda-
máli í kvöld.
Sporödreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Þú lætur til þín taka á
mannamóti í dag og eignast
nýja vini. Þér berast bráð-
lega góðar fréttir varðandi
fjölskylduna.
Bogmaöur
(22. nóv. - 21. desember) m
Gamalt og óleyst verkefni
skýtur upp kollinum á ný.
Þú ert á réttri leið í vinn-
unni. Vinur veitir þér góðan
stuðning.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Launahækkun, stöðuhækk-
un eða nýtt starf geta staðið
til boða. Þér gefst tækifæri
til að ná góðum samningum
í dag.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar) ðh
Þátttaka í námskeiði veitir
þér aukið sjáifstraust. Nú
væri heppilegt að ræða við
starfsfélaga og skipuleggja
framtíðina.
Fiskar
(19. febrúar - 20-. mars)
Fjármálin þróast mjög þér í
hag í dag og er það þér
mikill léttir. 'Astvinir eru á
einu máli um að hveiju beri
að stefna.
Stjörnusþána á að tesa sem
dægradvöl. Sþár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum grunni
visindalegra staðreynda.
DYRAGLENS
SMÁFÓLK
PO I HAVE ANYTHIN6
TOTELLTHE CLA55?
. YE5, MA'AM..
!>
Já, kennari, ég er vak- Hef ég eitthvað til að
andi! segja bekknum? Já,
kennari.
THERE5 A 5PIPER
ON THE CEILING..
Það er kónguló á loftinu!
BRIDS
Umsjón Guðrri. Páll
Arnarson
Andstæðingarnir renna sér í 7
grönd og makker doblar. Hann er
greinilega að biðja um ákveðið út-
spil, en spurningin er: hvaða lit vill
hann? Vestur er með þessi spil:
Vestur
♦ 9843
V 86
♦ DG86
+ D105
Suður gefur; allir á hættu. Kerfi
NS er Vestur eðlilegt. Norður Austur Suður
— — — 1 lauf
Pass 2 hjörtu Pass 3 hjörtu
Pass 4 lauf Pass 4 spaðar
Pass 5 tíglar Pass 7 grönd
Pass Pass Dobl Allir pass
Norður sýnir strax sterk spil og
slemuáhuga með 2 hjörtum og suður
tekur undir litinn. Næst koma þijár
fyrirstöðusagnir, en síðan missir suð-
ur þolinmæðina og stekkur óvænt í
7 grönd.
Hvert er útspilið?
Spilið er frá Reisinger-keppninni f
Bandaríkjunum og þar valdi vestur
að koma út með hjarta eftir langa
og kvalafulla yfirlegu. Makker hans
hafði haft tækifæri til að dobla bæði
4 lauf og 5 tígla, en gerði það ekki.
Og suður færi varla að stökkva í 7
grönd ef hann ætti ekki spaðaásinn.
Þar með kom aðeins hjarta til greina,
að inati vesturs.
En það var ekki það sem austur
hafði í huga:
Norður
+ 72
V ÁKG10952
♦ -
Vestur * K643 Austur
♦ 9843 + 1065
▼ 86 II V 3
♦ DG86 ♦ Á1097532
* D105 Suður ♦ ÁKDG r D74 ♦ K4 ♦ Á982 * G7
Vestur hugsaði ekki rökrétt: Ef
makker hans er með hjartaásinn,
hlýtur hann að fá slag á hann fyrr
eða síðar, því NS hafa ekki efnivið í
13 slagi utan við hjartað. Svo hjartað
er fyrsti liturinn sem hægt er að úti-
loka. Með ofangreindum rökum má
einnig útiloka spaða, þannig að valið
stendur í raun milli þess að spila út
laufi eða tígli. Tígull myndi sennilega
flokkast undir hið eðlilega útspil og
því má færa rök fyrir því að doblið
biðji um lauf út (austur doblar ekki
4 lauf — lit suðurs — með ásinn ein-
an). Því væri ósanngjarnt að skamma
vestur fyrir laufútspil.
En stóra spurningin er kannski
þessi: Hvers vegar doblaði austur
ekki? Svarið blasir við eftir örlitla
umhugsun: Austur átti von á því að
eiga sjálfur út gegn hjartasamningi!
En vestur missti af þessari vísbend-
ingu.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á geysisterku ijögurra manna
móti á Halkidiki-skaga í Grikk-
landi í september kom þessi staða
upp í viðureign stórmeistaranna
Michaels Adams (2.630), sem
hafði hvítt og átti leik, og Vasili-
os Kotronias (2.590), Grikklandi.
Gamla góða kæfmgarmátið
hefur oft sést áður í þessum dálki,
en Adams þarf að útfæra það
rétt: 32. Hd8! (Ekki 32. Rf7+ -
Kg8, 33. Rh6+ - Kh8, 34. Dg8+??
- Rxg8) 32. - Hxd8, 33. Rf7+
og svartur gafst upp, því hann
er óverjandi mát. Lokin verða: 33.
- Kg8, 34. Rh6++ - Kh8, 35.
Dg8+! og 36. Rf7 í næsta leik er
kæfingarmátið!
Boris Gelfand sigraði á mótinu
með 4 vinninga af 6 mögulegum,
en Adams og Aleksei Shirov komu
næstir með 3Vi v. Kotronias rak
lestina með 1 v.
/