Morgunblaðið - 12.10.1993, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. OKTÓBER 1993
9
Franskar útskriftardragtir
frá stærö 34, verð frá kr. 22.000,-
TESS
v Nt
NEÐST VIÐ
DUNHAGA,
S. 622230.
Opið virka daga
kl. 9-18,
laugardaga
kl. 10-14.
Fjölbreytt úrval af
hinum heimsþekktu
sígildu leikföngum.
Barbie
-bestu vinir barnanna!
Fást í nsestu
leikfangaverslun_
I. GUÐMUNDSSON & Co. hf.
UMBOÐS OG HEtLOVERSLUN
SÍMI 91-24020 FAX 91-623145
HF-210 85 x 69,5 X 72
HF-320 85 x 69,5 X 102
HF-234 85 x 69,5 X 80
HF-348 85 x 69,5 X 110
HF-462 85 x 69,5 X 140
210 1 stk. 38.990,-
320 1 stk. 43.990,-
234 2 stk. 42.990,-
348 3 stk. 48.990,-
462 4 stk. 56.990,-
Hraðfrystihólf, hraðfrystistilling, körfur sem má stafla,
barnaöryggi á hitastillihnappi, öryggisljós við of hátt
hitastig, frárennslisloki fyrir affrystingu og hitamælir.
<MJFtAM FRYSTIKISTA - EIN MEÐ ÖLLU.
o
r?
VISA og EURO raðgreiðslur til,allt að 18
mán. án útborgunar. MUNALÁN með 25%
útb. og eftirstöðvar 3.000 kr. á mánuði.
/rOniX
HÁTÚN 6A - SÍMI (91)24420
...ÞIN VEGNA!
RELTOR
0?
Vinnuvernd
í verki
Skeifan 3h - Sími 81 26 70 - FAX 68 04 70
stjórnmAlaviohorhð
ELDHUSDfiQSUMRftÐUR fi fiLDIHQI
Jón Baldvin Hannibalsson
ALLT AFLAVERÐMÆTI ÚR
SJO FER í AFBORGANIR
- af erlendum lánum, segir formaður Alþýðuflokksins
Þjóð í skuldafjötrum
Morgunblaðið birti stefnuræðu Davíðs Oddssonar forsætisráð-
herra síðastliðinn fimmtudag. Staksteinar staldra í dag við fá-
eina punkta úr ræðu Jóns Baldvins Hannibalssonar, formanns
Alþýðuflokksins. Hann hélt því m.a. fram að afborganir og vext-
ir af erlendum skuldum okkar 1994 verði meir en fimmtíu þúsund-
ir milljóna króna — eða samsvarandi fjárhæð og „aflaverðmæti
á íslandsmiðum upp úr sjó, miðað við hráefnisverð, sem eru
tæplega 50 milljarðar“.
Níðþung
greiðslubyrði
Hér fara á eftír fáeinir
punktar úr ræðu Jóns
Baldvins Hannibalssonar,
formanns Alþýðuflokks-
ins, í umræðu um stefnu-
ræðu Daviðs Oddssonar
forsætisráðherra:
„En þegar við skundum
á Þingvöll 17. júní 1994
þá er því miður öðruvísu
um að litast í okkar þjóð-
arbúskap [en í Noregi,
sem verður skuldlaus við
umheiminn 1994]. Þá er
því spáð að erlendar
skuldir okkar til langs
tima fari að nálgast 70%
af landsframleiðslu okkar
og að greiðslubyrðin
verði einhvers staðar á
bilinu 30-40% [af útflutn-
ingstekjum]. Því er spáð
með öðrum orðum að
langtímaskuldir okkar
verði um 265 milljarðar
... Það er svona svipað
og fasteignamat allra
fasteigna i Reykjavikur-
borg ...
Greiðslubyi'ðin, það
sem við þurfum að borga
í vextí og afborganir ...
verður á næsta ári um 51
milljarður króna ... Til
samanburðar mætti
nefna að heildaraflaverð-
mætí af íslandsmiðum
upp úr sjó, miðað við hrá-
efnisverð, er metið á tæpa
50 milljarða. Utgjöld okk-
ar tíl heilbrigðisráðuneyt-
isins, veigamesta þáttar
velferðarkerfisins, eru
metin upp á 47,7 milljarða
á verðlagi fjárlagafrum-
varpsins.“
Tíu milljarða
spamaður
„Staðreyndiraar eru
þessar að ef við tökum
ríkisútgjöld og færum
þau upp til verðlags fjár-
lagafrumvarpsins þá
voru þau 122 milljarðar
1991. Þið sem eruð búin
að lesa fjárlagafrumvarp-
ið [1994], sjáið að þar er
gert ráð fyrir útgjöldum
upp á 112 milljarða; með
öðrum orðum sparaaður
að raungildi upp á um 10
milljarða án þess að
hækka skatta.
Þetta er ekki fordæm-
anlegur árangur en ég
viðurkenni að hann er
takmarkaður og við þurf-
um að gera betur og við
þurfum öll að sameinast
um að gera betur.
Það er ekki nóg að
gera hróp að sljórn sem
stendur frammi fyrir erf-
iðum ytri skilyrðum. Það
þarf líka að láta reyna á
þegnskap stjórnarand-
stöðunnar.“
• •
Ofugmælin um
atvinnulífið
„Mesta öfugmælasmíð-
in er þó sú þegar háttvirt-
ir leiðtogar stjórnarand-
stöðuimar segja að þessi
ríkisstjóm skipti sér ekki
af atvinnulífinu. Það hef-
ur engin ríkisstjóra í sögu
lýðveldisins lagt eins mik-
ið af mörkum við að
treysta atvinnulífið og
þessi. Hver era rökin fyr-
ir þessari fullyrðingu?
Þau eru ekki bara EES-
samningurinn, sem
tryggir markaðsaðgang
tollfijálsan að helztu
mörkuðum okkar. Nei.
Þessi ríkissljóm hefur
létt sköttum af atvinnulíf-
inu upp á marga milljarða
króna. Þessi ríkisstjórn
hefur ekki bara skuld-
bréytt upp á gamla mát-
ann. Hún boðar nú Þróun-
arsjóð fyrir sjávarútveg-
inn til þess að hraða þar
fjárhagslegri endurskipu-
lagningu og aukinni hag-
ræðingu. Þessi ríkisstjórn
hefur lagt fram bein
framlög tíl atvinnusköp-
unar upp á a.m.k. þijá
milljarða á árinu 1993,
sennilega á bilinu fjóra
til fimm milljarða á árun-
um 1993-94. Þannig
mættí lengur telja.“
Meginmál
þingsins og
sérhagsmun-
imir
„Við skulum láta á það
sannast á Alþingi Islend-
inga að hér eru ekki bara
í fyrirsvari sendiherrar
sérhagsmuna. Að hér eru
menn sem geta vikið
þröngri sérhagsmuna-
gæzlu tíl hliðar og sam-
einast um það þegar al-
mannaheill krefst að taka
á þessum skuldamálum
elns og lagt er til með þvi
að styrkja þetta fjárlaga-
framvarp, meginmál
þingsins, með því að
lækka frekar ríkisút-
gjöldin ...“
Nýtt útbob spariskírteina
ríkissjóbs fer fram
mibvikudaginn 13. október
Á morgun kl. 14:00 fer fram nýtt
útboð á spariskírteinum ríkissjóðs.
Um er að ræða tvo nýja flokka af
hefðbundnum verðtryggðum
spariskírteinum í eftirfarandi flokkum:
I M ''' '' HÉI Flokkur i ... d Gjaiddagi
2.fl.D 1993 2.0.D 1993 5 ár 10 ár 10. okt. 1998 10. okt. 2003
Þessir flokkar verða skráðir á Verðbréfa-
|iingi íslands og verður Seðlabanki
Islands viðskiptavaki þeirra.
Spariskírteinin verða seld með tilboðs-
fyrirkomulagi. Löggiltum verðbréfa-
fýrirtækjum, verðbréfamiðlurum,
bönkum og sparisjóöum gefst einum
kostur á að gera tilboð í spariskírteinin
samkvæmt tiltekinni ávöxtunarkröfu.
Lágmarkstilboð er kr. 5.000.000 að
nafnverði.
Aðrir sem óska eftir að gera tilboð í
spariskírteinin eru hvattir til að hafa
samband við framangreinda aðila,
sem munu annast tilboðsgerð fyrir
þá og veita nánari upplýsingar.
Öll tilboð í spariskírteinin þurfa að
hafa borist Lánasýslu ríkisins fyrir
kl. 14:00 á morgun, miðvikudaginn
13. október. Tilboðsgögn og allar
nánari upplýsingar eru veittar hjá
Lánasýslu ríkisins, Hverfisgötu 6,
í síma 62 60 40.
LÁNASÝSLA RÍKISINS
Hverfisgötu 6, 2. hæð, 150 Reykjavík, sími 91- 62 60 40.