Morgunblaðið - 12.10.1993, Síða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. OKTÓBER 1993
-fynr parket
ÍSLENSKAR
LEIÐBEININGAR
Græðandi lína
Heilsufæði húðarinnar
□ Græðandi Banana Boat ALOE VERA gel, 99,7%
hrelnt. Hreinasta og ódýrasta Aloe Vera getið á
markaðnum. 6 túpu- og brúsastærðlr frá kr.
295,-.
□ Græðandi Banana Boat E-gel. Fæst einnig hjá
Samtðkum psoriasis- og exemsjúklinga.
□ Græðandi Banana Boat BOOV LOTION með
100% Aloe Vera, A, B, D og E-vftamfni.
□ Húðstinnandi Banana Boat collagen &
elastin-gel.
□ Mýkjandi og hrukkuhindrandi Banana Boat A-gel.
□ Nærlngarkremið Banana Boat Brún-Án-Sðlar. 3
gerðln Fyrir andlit, fyrir viðkvæma og fyrir
venjulega húð.
□ Nærandi Banana Boat djúpsúlbrúnkugel fyrir
Ijúsaböð.
□ Banana Boat súlbrúnkufestir fyrir Ijðsabðð.
□ Húðnærandi og frlskandi Banana Boat sturtu- og
baúgelán sápu.
□ Naturica hrukkubaninn GLA+. 24. tlma krem.
□ Naturica kvefbanlnn Akta Propolls.
□ Naturlca Sðlbrún-lnnan-Frá Beta Karotin-hylkl.
□ C-vítamín forðatöflur frá Naturlca og GNC.
□ Alnáttúrulegi svita lyktareyðlrinn Le Crystal
Naturel kristalsteinninn.
□ Mega Acidophilus 12 slnnum sterkari en
venjulegur.
□ Vfir 20 tegundir af sjampúiog hárnæringu. M.a.
Banana Boat flækjubaninn, upplýsandi Banana
Boat hárnæring, sem lýsir hárlð á náttúrulegan
hátt, djúphreinsandi Naturade Aloe Vera sjampð,
uppbyggjandi Naturada Aloe Vera sjampð fyrir
purra og slitna hárenda og skaðað hár af völdum
hárliðunarefna eða háriitunar.
Biddu um Banana Boat, heilsufæði
húðarinnar, í apótekinu eða
snyrtivöruversluninni. Fæst líka (
ÖLLUM heilsubúðum utan
Reykjavikur, likamsræktar- og
sólbaðsstofum og hjá Samtökum
psoriasis- og exemsjúklinga (Banana
Boat E-gelið).
Heilsuval,
Barónsstíg 20, ®11275 og 626275.
Til stuðnings Hæstarétti
eftir Jón Steinar
Gunnlaugsson
Undanfarin ár hefur í reynd gilt
það fyrirkomulag um launabreyting-
ar hjá þeim embættismönnum sem
falla undir Kjaradóm, að í stofnunun-
um sjálfum sem embættismennimir
vinna við hafa verið teknar ákvarðan-
ir um aukagreiðslur til þeirra svo sem
fyrir yfirvinnu o.fl. Kjaradómur lagði
í úrskurði sínum 12. júlí 1992 (síð-
ari úrskurðinum) blessun sína yfir
siíkar ákvarðanir með því að í dómin-
um var ekki við þeim hróflað. I fram-
haldi af því tók svo Hæstiréttur
ákvörðun af sama toga um greiðslur
til hæstaréttardómara fyrir yfir-
vinnu. Með því var rétturinn að taka
sams konar ákvörðun og teknar
höfðu verið um aukagreiðslur til ann-
arra embættismanna og Kjaradómur
hafði lagt blessun yfir. Lagareglum
um þetta hafði þá ekki verið breytt.
Enginn vafi er á lögmæti þessarar
ákvörðunar réttarins.
Þjóðkunnir lýðskrumarar hafa
undanfarna daga farið hamförum
vegna þessa máls. Þá er gert út á
þá hugmyndafræði, sem raunar tröll-
reið umræðunum um kjaramál þess-
ara embættismanna eftir fyrri úr-
skurð Kjaradóms sumarið 1992, að
það væri alveg sama hvaða vitleysa
viðgengist í launakerfi þeirra, engu
mætti breyta. Þó að sýnt væri að
innbyrðis samræmi í launum milli
embættismanna væri fáránlegt, yrði
„Og menn skyldu líka
hafa í huga, að það er
alveg sama hvaða form-
breytingar verða gerð-
ar á starfsháttum
Hæstaréttar; ef launa-
kjör dómaranna eru
ekki viðunandi verður
dómstóllinn aldrei
vanda sínum vaxinn.“
vitleysan að viðgangast áfram, því
að annað samræmdist ekki þessari
hugmyndafræði fáránleikans.
Lítum á nokkur þýðingarmikil at-
riði er varða launakjör hæstarétt-
ardómara:
• 1. Um er að ræða þýðingarmestu
dómstörf með þjóðinni. Mikil ábyrgð
fylgir þessum störfum. Það er vel-
ferðarmál fyrir landslýð að vel takist
til við þessi störf. Þau verða því að
vera eftirsóknarverð fyrir hæfustu
lögfræðinga þjóðarinnar.
2. Gríðarlegt vinnuálag er í rétt-
inum. Starfsannir dómara þar eru
miklu meiri en við önnur dómaraemb-
ætti. Samt er biðtími eftir dómsnið-
urstöðum í málum, sem þangað er
skotið, allt of langur. Það er því við-
varandi þörf á að auka afköst dóms-
ins. Það hlýtur að krefjast aukins
vinnuframlags dómaranna.
3. Launakjör dómaranna hafa ver-
Jón Steinar Gunnlaugsson
ið miklu lakari en forsvaranlegt er.
Þá er sama hvort miðað er við kjör
ýmissa annarra embættismanna í
þjónustu ríkisins eða kjör manna í
ábyrgðarstöðum annars staðar í
þjóðfélaginu. M.a. hefur verið sýnt
fram á að ýmsir dómarar á héraðs-
dómsstigi hafa notið betri kjara en
hæstaréttardómarar. Hér verða
menn líka að hafa í huga, að hæsta-
réttardómarar hafa mjög takmark-
aða möguleika á að drýgja tekjur
sínar með öðrum störfum. Leiðir það
af eðli starfa þeirra.
4. Það er til þess fallið að styrkja
sjálfstæði dómaranna að þeim séu
greidd sæmileg laun og þar sé svo
tryggilega um hnútana búið, að þeir
þurfí ekki að sækja laun sín um bón-
arveg til handhafa framkvæmda-
valds. Það var því sjálfsögð af-
greiðsla forsætisráðherra að skipta
sér ekki af ákvörðun Hæstaréttar
um yfirvinnugreiðslur. Jafnframt er
nauðsynlegt að tryggja þá fram-
kvæmd hinna nýju laga um Kjara-
dóm, að viðunandi launakjör hæsta-
réttardómaranna verði tryggð, án
þess að þeir sjálfir þurfi að verða
fyrir atgangi fjölmiðla vegna þeirra.
Allir íslendingar ættu að leiða
hugann að því, að þeir kunna sjálfir
einhvern tíma að þurfa að prófa dóm-
skerfið á sjálfum sér. Þá kann að
verða tekist á um hagsmuni sem við-
komandi telur öðrum hagsmunum
meiri. Við slíkar aðstæður kunna
menn að vilja gera kröfuna um sterka
og sjálfstæða dómstóla. Það kann
þá að vera orðið of seint ef undaii
málflutningi lýðskrumara er ávallt
látið. Og menn skyldu líka hafa í
huga, að það-er alveg sama hvaða
formbreytingar verða gerðar á
starfsháttum Hæstaréttar; ef launa-
kjör dómaranna eru ekki viðunandi
verður dómstóllinn aldrei vanda sín-
um vaxinn. '
Höfundur er hæstaréttar■
lögmaður.
Bömin fyrir barð-
inu á ráðherra
eftirÞórunni
Kjartansdóttur
Eftir enn eina, að því er virðist
„sí svona“ ákvörðun heilbrigðisráð-
herra, þ.e. þá um lokun leikskóla
Ríkisspítalanna, furða ég mig á sið-
ferði háttvirts ráðherra. Sú forræð-
ishyggja sem einkennir vinnubrögð
hans ætti betur við í einræðisríki en
vestrænu _ lýðræðisríki. Þrátt fyrir
sérstöðu íslands, hvað varðar land-
fræðilega og félagslega stöðu, hélt
ég að við hefðum þroskast upp úr
„ smákónga" -þj óðfélaginu.
Lokun leikskólanna er breyting,
sem krefst mikils undirbúnings ef
ekki á að koma til verulegrar rösk-
unar á högum fólks. Spamaður í
heilbrigðiskerfinu er fólginn í hag-
ræðingu en ekki upplausn vinnu-
staða. Með uppsögnum starfsfólks
leikskólanna og bömum starfsmanna
ríkisstofnana, hefur ráðherra ráðist
á aðstæður bama, uppeldismögu-
leika þeirra, öryggi og félagsþroska.
í stað þess að alast upp við tillits-
semi, sjálfstraust, sjálfsvirðingu og
að bera virðingu fyrir öðrum, fá böm-
in tilskipun frá ráðherranum um að
þau séu rekin úr leikskólanum. Af
hveiju við, mamma? Hvað höfum við
gert? Hveiju svarar foreldri slíku?
Er hægt að bera virðingu fyrir ráða-
mönnum sem svífast einskis hug-
myndanna vegna? Er þetta virðing
þeirra fýrir bömum landsins? Hefði
ekki verið skynsamlegra að gefa
hlutunum aðlögunartíma, leita
lausna á rekstri leikskólanna? Var
nauðsynlegt að úthýsa bömunum og
koma á upplausn á vinnustöðum?
Háttvirtur ráðherra telur að næg-
ur tími sé til stefnu til að standa að
nauðsynlegum breytingum. Á hann
við uppsagnarfrestinn, þijá mánuði?
Starfsfólk leikskólanna getur tæp-
lega leyft sér, vegna ástandsins í
þjóðfélaginu, að sitja aðgerðarlaust
í þijá mánuði upp á von og óvon um
áframhaldandi vinnu. Það þarf vissu-
lega að tryggja sér fasta vinnu. 011
starfsemi leikskólanna lamast og
undirbúningur fyrir vetrarstarf frest-
ast.
Foreldrum er ekki sama hvar börn
þeirra dvelja daglangt. Þess vegna
eru leikskólar reknir. Það er því mik-
il árás á kjör barnanna að skapa
þvílíkt óöryggi í stað þess að standa
að þessum breytingum með þeim
hætti að hægj; sé að undirbúa alla
aðila og gera breytinguna sem mild-
asta fyrir bömin. Ef starfsfólk leik-
skólanna neyðist til að skipta um
vinnustað kemur það vitanlega niður
á bömunum. Börn þurfa aðlögun að
„Það er því mikil árás
á kjör barnanna að
skapa þvílíkt óöryggi í
stað þess að standa að
þessum breytingum
með þeim hætti að hægt
sé að undirbúa alla að-
ila og gera breytinguna
sem mildasta fyrir
börnin.“
umhverfi sem og fólki. Fóstra, sem
þekkir þarfír barns í gegnum per-
sónuleg kynni af því, getur sinnt því
á viðunandi hátt. Leikskólar veita
foreldrum það öryggi fyrir börnin
sem þarf til þess að þau geti stundað
ábyrgðarmikla vinnu. Starfsemi leik-
skólanna er aðlöguð að vinnustað
foreldranna.
Óöryggi með leikskólann, óöryggi
með áframhaldandi starf og óöryggi
með fjárhagsafkomu heimilanna hef-
ur vissulega áhrif á foreldrana ekki
síður en börnin og slíkt óöryggi smit-
ast því líka inn í fjölskyldurnar og
hefur þar einnig áhrif á börnin.
■Til þess að koma í veg fyrir frek-
Þórunn Kjartansdóttir
ari röskun á rekstri spítalanna og
leikskólanna og minnka þar með
neikvæðar afleiðingar þessara að-
gerða hvet ég ráðherra eindregið til
þess að draga uppsagnimar til baka
og setja strax á stofn vinnuhóp með
fulltrúum fóstra, foreldra og sveitar-
félaga auk ríkisins, sem vinni að
lausn þessa máls í samræmi við lög
og reglugerðir og á þann hátt að
virðing fyrir bömunum stjómi því
að sem minnst röskun verði á högum
þeirra og lífí.
Höfundur er hjúkrunarfræðingur
á Landspítala og móðir barns á
leikskóla þnr.
KALKQB
MAGNESIUM
LÍFSNAUÐSVNLEG STEINEFNI
í RÉTTUM HLUTFÖLLUM FVRIR
FÓLK Á ÖLLUM ALDRI.
Fsst m.a. í Hagkaup og Kringlusport.