Morgunblaðið - 12.10.1993, Page 17

Morgunblaðið - 12.10.1993, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. OKTÓBER 1993 17 Davíð Oddsson á fundi Evrópuráðsins Lagði áherslu á vernd- un þjóðernisminnihluta Þú ræður engu um greind þína, en... þú ræður öllu öðru um getu þína til náms. Margfaldaðu lestr- arhraða þinn og þættu námstæknina og árangur þinn í námi mun batna verulega... með minni fyrirhöfn en áður! Ánægja af lestri góðra bóka vex einnig með auknum lestrarhraða. Viljir þú vera með á síðasta hraðlestrarnámskeiði ársins, sem hefst fimmtudaginn 28. október, skaltu skrá þig strax f síma 641091. LEIÐTOGAFUNDUR Evrópu- ráðsins hófst í Vínarborg sl. föstudag. Davíð Oddsson for- sætisráðherra ávarpaði fundinn á laugardag. í ávarpi sínu lagði hann meignáherslu á tvennt. Annars vegar á nauðsyn þess að vernda þjóðernisminnihluta og hins vegar á sérstaka áætlun Evrópuráðsins um aðgerðir gegn kynþáttahatri, útlendinga- andúð, gyðingahatri og vægðar- leysi í skoðunum. Þetta er fyrsti leiðtogafundur Evrópuráðsins. Eftir lok kalda stríðsins hafa níu Mið- og Austur- Evrópuríki fengið inngöngu í Evr- ópuráðið. Aðildarríkin eru því orð- in 32 talsins en auk þess hyggja átta Austur-Evrópuríki, sem gestaaðild eiga að ráðinu, á inn- göngu í það. Fundurinn er haldinn að tillögu Francois Mitte»rand Frakklandsforseta til að ræða framtíðarhlutverk Evrópuráðsins, nú þegar ráðið eftir lok kalda stríðsins nálgast það meginmark- mið sitt að koma á samvinnir allra Evrópuríkja. Á fundinum benti forsætisráð- herra á að Evrópuráðið hafi upp- haflega verið byggt á þeirri von að Evrópuríkin gætu, með því að bindast fastari böndum, staðið vörð um lýðræði, mannréttindi og frið í heiminum. Evrópuráðið setji jafnframt ströng skilyrði fyrir inn- göngu nýrra aðildarríkja. Þetta veiti ráðinu sérstöðu meðal evr- ópskra samtaka. Sérhvert aðildar- ríki verði að viðurkenna grundvall- arreglur réttarríkisins og að öllum einstaklingum innan vébanda þess skuli tryggð mannréttindi og grundvallarfrelsi. Forsætisráðherra sagði enn- fremur að vegna þessara ströngu skilyrða fyrir aðild að Evrópuráð- inu mætti líta á þátttöku í því sem viðurkenningu á lýðræðislegri stjórnskipun. Evrópuráðið sé í sími 622262 ALLT TIL AD ÞRÍFA BÍLINN þessum skilningi eins konar nálar- auga, sem ríki verði að komast í gegnum til þess að verða gjald- geng til fullrar þátttöku í evr- ópskri samvinnu. Sérstaklega beri að leggja áherslu á að þátttökuríki fullnægi þeim kröfum sem aðild að Evrópuráðinu geri til þeirra. í því sambandi sagðist forsætisráð- herra telja afar mikilvæga þá sam- þykkt ráðgjafarþings Evrópuráðs- ins að fylgst skuli náið með því að ný þátttökuríki virði skuldbind- ingar sínar. Eftirlit með framfylgd þeirra sé nýtt og mikilvægt verk- efni sem ráðgjafarþingið hafi tekið að sér. Þar fyrir utan sé auðvitað mikilvægust sú athugun sem Evr- ópuráðið lætur framkvæma á stjórnarháttum og lýðréttindum í löndum sem sækja um aðild að ráðinu. H RAÐLESTRARSKOLIN N ...við ábyrgjumst að þú nærð árangri! B3 1978- 1993 d s-iooo Steypustyrkur á h e i m s m æ I i k v a r ð a Rekstrarfélagið Hraun hf. í samstarfi við Rannsóknarstofnun byggingariðnaðarins hefur fyrst íslenskra steypustöðva framleitt hástyrkleikasteypu sem opnar nýja möguleika í notkun steinsteypu hérlendis og veldur þáttaskilum í gerð mannvirkja sem verða að standast mikið álag. S-1000 hástyrkleikasteypan var þróuð og notuð í fyrsta skipti við gerð á nýjum hafnarkanti í Hafnarfirði I ágúst sl. Við óskum samstarfsmönnum okkar í þessu verkefni, starfsfólki Rannsóknar- stofnunar byggingariðnaðarins, Vita- og hafnamálastofnunar ríkisins, Böðvars Sigurðssonar og hafnarstjórnar Hafnarfjarðar, til hamingju með árangurinn og þökkum þeim fyrir samstarfið og öllum öðrum sem tóku þátt í verkefninu. Við erum stoltir af að hafa tekið forystuna í þróun og framleiðslu á hástyrkleikasteypu hér á landi. Rekstrarfélagið Hraun hf Suðurhrauni 2, 2I0 Garðabæ. Sími: 65 I4 44. Fax: 65 24 73.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.