Morgunblaðið - 12.10.1993, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 12.10.1993, Blaðsíða 25
24 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. OKTOBER 1993 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. OKTÓBER 1993 25 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Ritstjórnarfulltrúi Árvakur h.f., Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Björn Vignir Sigurpálsson. Kringlan 1, 103 Reykjavík. Símar: Skiptiborð 691100. Auglýsingar: 691111. Áskriftir 691122. Áskriftargjald 1400 kr. með vsk. á mánuði innanlands. í lausasölu 125 kr. með vsk. eintakið. Að læra af Japönum Vestræn ríki hafa á undan- förnum árum orðið að mæta æ harðari samkeppni frá ríkjum Suðaustur-Asíu, ekki síst Japan. Á mörgum sviðum hafa þau orðið undir í þeirri samkeppni vegna japanskra yf- jrburða hvað varðar verð og oft einnig gæði framleiðslunnar. Á Vesturlöndum hafa menn spurt hvað geri Japönum kleift ið framleiða vörur sem eru :æknilega fullkomnari en jafn- framt ódýrari en vestrænar vör- ur þrátt fyrir að flytja þurfi þær yfir hálfan hnöttinn til þess að koma þeim á markað. Vestrænir stjórnendur hafa margir hverjir reynt að taka upp „j apanskar“ stj órnunaraðferðir við rekstur fyrirtækja sinna. Einnig hafa japönsk fyrirtæki kynnt slíkar aðferðir í Evrópu og Bandaríkjunum þar sem þau hafa fjárfest. Gott dæmi eru verksmiðjur bifreiðaframleið- endanna Nissan, Honda og Toy- ota í Bretlandi. Breskur bílaiðnaður var fyrir nokkrum árum talinn dauða- dæmdur og almennt álitið, að innan skamms myndi fjölda- framleiðsla á bílum alfarið leggjast af þar í landi. Nú er aftur á móti svo komið, að bif- reiðar framleiddar í Bretlandi veita bifreiðum framleiddum á meginlandi Evrópu alvöru sam- keppni á ný í fyrsta skipti í lang- an tíma. í Þýskalandi hafa menn verulegar áhyggjur af framtíð- inni á þessu sviði. Þýska efna- hagsstofnunin hefur komizt að þeirri niðurstöðu, að starfsmað- ur í framleiðsludeild japanskrar bifreiðaverksmiðju sé 514 sinn- um líklegri til að bera fram til- lögur um aukna hagkvæmni við framleiðsluna en þýskur starfs- bróðir hans. En japönsku áhrifin ná ekki bara til bíla, raftækja og stjórn- unaraðferða. Á fjölmörgum sviðum vestrænna lifnaðarhátta og menningar gætir aukinna japanskra áhrifa. í tísku, matar- gerð, hönnun og listum má oft greina augljósa japanska strauma. Sumir líta á þetta sem ógnun við vestræna menningu. Aðrir telja að með því að til- einka okkur jákvæða þætti í fari annarra þjóða getum við bætt eigin siði og auðgað menn- ingu okkar. Að undanförnu hefur sprottið upp mikil umræða um agaleysi í íslensku samfélagi, sem birtist á fjölmörgum sviðum ekki síst hjá yngri kynslóðum þjóðarinn- ar. í greinaflokki eftir blaða- mann Morgunblaðsins, sem ný- Iega var á ferð um Japan, var m.a. lýst kröfum sem eru gerð- ar til grunnskólanemenda á ís- landi og í Japan. I íslenskum skólum virðist oft sem litlar kröfur séu gerðar til nemenda varðandi umgengni og aga. í Japan horfa málin hins vegar öðru vísi við: „Öll þrif hér í skólanum, sem fara fram í lok hvers skóladags, eru unnin af nemendum sjálfum. Það er hluti af heimilishagfræðinámi þeirra. Kennarar hafa eftirlit með þrif- unum, en nemendur einir ann- ast þau. Það er ekki kostað til einni krónu til þess að kaupa þrif, hvorki í þessum skóla né öðrum grunn- og framhalds- skólum,“ segir Emiko Kawaki, kennsluráðgjafi hjá mennta- málaráði Toyotaborgar í sam- tali við Morgunblaðið. Hún segir Japana líta svo á að þetta sé liður í uppeldi og þjálfun barnanna og skili sér í því að það verði þeim eðlislægt að ganga vel um. „Geri þau það ekki, þá verður einfaldlega meiri vinna fyrir þau að skila af sér hreinum skóla. Þetta skil- ar sér svo út í þjóðfélagið,“ seg- ir Kawaki og bendir á þá al- mennu snyrtimennsku sem ein- kennir allt í Japan. Þetta eru forvitnilegar að- ferðir sem þarna er lýst. Með því að kenna börnum að bera virðingu fyrir umhverfi sínu og láta þau jafnfram axla ábyrgð á því, mætti hugsanlega komast hjá þeim sóðaskap og því skeyt- ingarleysi sem einkennir um- gengni á almannafæri hér á landi. Væri til dæmis eins um- horfs í miðbæ Reykjavíkur á laugardags- og sunnudags- morgnum ef unglingum hefði frá barnæsku verið innrætt virðing fyrir umhverfinu? Þótt margt jákvætt megi finna í japönsku samfélagi er það langt frá því að vera full- komið. Hið pólitíska kerfi lands- ins hefur einkennst af mikilli spillingu og svigrúm einstakl- inga til að leita að lífshamingj- unni hefur verið mjög takmark- að. Þetta kann þó að breytast á næstu árum og er líklegt að Japanir muni helst horfa til Vesturlanda er kemur að við- horfsbreytingum á fyrrnefndum sviðum. „Japan er nú í hringiðu mikilla þjóðfélagsbreytinga, þar sem valdahlutföll eru öll að breytast. LDP hefur misst meirihluta sinn á þinginu og samsteypustjórn átta flokka hefur tekið við, þar sem yngri og í mörgum tilvikum frjáls- lyndari menn eru komnir til valda. Mín sannfæring er sú að þessi breyttu valdahlutföll og skoðanir þeirra sem um stjórn- artauminn halda, eigi eftir að leiða til mikilla breytinga í jap- önsku þjóðfélagi. Eftir tuttugu ár eða svo verður Japan ekki hið sama og það er í dag,“ seg- ir Yuji Fukuda, fræðimaður í Tókýó. Slysavarnadeild kvenna í Reykjavík leggur áherslu á öryggismál barna á heimilum Nýtt húsnæði undir fé- lagsstarf tekið í notkun SLYSAVARNADEILD kvenna í Reykjavík tók sl. laugardag í notkun nýjan sal undir félagsstarfsemi sína í Sigtúni 9 við hátíðlega athöfn og var húsnæðinu gefið nafnið Höllubúð. í tilefni af vígslu húsnæðisins afhenti slysavarnadeildin barna- deild Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur töflu um öryggisbúnað á heimilum. Húsnæði slysavarnadeildarinnar er í Sigtúni 9, sama húsi og Lions- hreyfingin, er um 150 fm og var áður skrifstofuhúsnæði. Unnið hef- ur verið að breytingum í sumar og er þar nú rúmgóður salur ásamt skrifstofu og eldhúsi. Kvennadeild- in hefur ekki haft sal til umráða síðan Tilkynningaskylda íslenskra skipa_ og stjórnstöð Slysavarnafé- lags íslands fluttu upp á efstu hæð húss Slysavarnafélagsins við Grandagarð fyrir u.þ.b. sex árum. Ingibjörg Sveinsdóttir, formaður deildarinnar, sagði í samtali við Morgunblaðið að afhending töfl- unnar um öryggisbúnað fyrir heim- ili væri fyrsti liður í átakinu „Gerum bæinn betri fyrir börn“ sem væri í gangi á vegum slysavarnafélag- anna víða um land. „Um 90% allra slysa á börnum verða í heimahúsum eða við heimili og viljum við vekja athygli foreldra á ýmsum leiðum til að bæta öryggi barna á heimil- um. Á töflunni eru sýnishorn af smáhlutum sem bæta öryggi barna og myndir af stærri hlutum. Taflan er mjög vegleg og við stefnum að því að gefa öllum heilsugæslustöðv- um í Reykjavík svona töflur," sagði Ingibjörg. Reynt að ná til yngri kvenna Slysavarnadeild kvenna í Reykjavík var stofnuð árið 1930 og eru félagskonur á fimmta hundrað tals- ins. Að sögn Ingibjargar eru þær á öllum aldri en nú sé sérstaklega reynt að ná til yngri kvenna og mæðra vegna átaksins Vörn fyrir börn. Upphaflega hafi félagskonur flestar verið sjómannskonur og starfið eingöngu snúist um að auka öryggi sjómanna. Nú sé hins vegar tiltölulega vel að þeim búið, þótt alltaf megi reyndar gera betur, og þá beinist athyglin að því að bæta öryggi fleiri hópa. Athugasemd frá formanni Kjaradóms Morgunblaðinu hefur borist eftirfarandi athugasemd frá for- manni Kjaradóms: Hinn 9. október sl. birtist í Morg- unblaðinu grein eftir Valtý Sigurðs- son héraðsdómara og formann Dómarafélags íslands undir fyrir- sögninni „Dómstólarnir og launa- kjör dómara“. Þótt óljúft sé, verður ekki undan því vikist að gera stutta athuga- semd við gagnrýni sem þar kemur fram á Kjaradóm. Gagnrýni greinarhöfundar var tvíþætt. í fyrsta lagi gagnrýnir hann þá afstöðu formanns Kjara- dóms, sem hann taldi að ráða mætti af viðtali við hann í sjón- varpi fyrir nokkrum dögum. Tilefni þess viðtals var sú um- fjöllun sem launakjör hæstaréttar- dómara hafa sætt undanfarna daga. Beindust spurningar frétta- manns sérstaklega að atbeina Kjaradóms að eftirvinnugreiðslum til hæstaréttardómara, auk nokk- urra spurninga um störf dómsins almennt. í lok viðtalsins sagði fréttamaður að ekki væri að vænta úrskurðar frá Kjaradómi á næstunni, án þess að undirritaður telji sig hafa með svörum sínum gefið nokkurt tilefni til ályktunar um það hvenær úr- skurðar væri að vænta. Formaður Dómarafélagsins telur helst mega ráða af svörum undirrit- aðs í nefndu viðtali að Kjaradómur telji ekki unnt að ákveðna laun þeirra, sem honum þó beri, vegna þess að málið sé svo viðkvæmt að varla verði á því tekið. „Þessi af- staða formanns Kjaradóms er ekki ásættanleg,“ segir greinarhöfund- ur. Ég leyfi mér að fullyrða að álykt- anir formanns Dómarafélagsins eru alrangar, enda þótt undirritaður hafi í nefndu sjónvarpsviðtali ekki dregið dul á það, að verkefni Kjara- dóms væri allt annað en auðvelt. í öðru lagi kýs ég að leiða hja mér frýjunarorð greinarhöfundar varðandi kjark Kjaradóms til þess að sinna lagaskyldu sinni, að öðru leyti en því að ég lýsi þau með öllu ómakleg og lítt sæmandi formanni Þorsteinn Júlíusson Dómarafélagsins, sem er vel kunn- ugt að kjaramál dómara eru til sér- stakrar skoðunar hjá Kjaradómi. Þorsteinn Júlíusson hrl., formaður Kjaradóms. Morgunblaðið/Árni Sæbcrg Húsnæðisnefndin ÞESSAR konur lögðu ómælda vinnu í undirbúning og breytingar á húsnæðinu í Sigtúni 9 áður en það var vígt. Frá vinstri: Svala Eg- gertsdóttir, Guðrún S. Guðmundsdóttir og Þórdís Karelsdóttir. Aldarminning Páls ísólfssonar Hátíðardagskrá í Þjóðleikhúsinu Pálsvaka 1 Domkirkjunm HÁTÍÐARDAGSKRÁ á vegum Ríkisútvarpsins verður í Þjóðleik- húsinu í dag vegna aldarminningar Páls ísólfssonar og hefst hún kl. 17. Flutt verða ávörp og tónlist. Höggmynd af Páli ísólfssyni verður afhjúpuð en hún var gerð að tilstuðlan Tónlistarskólans í Reykjavík og Tónlistarfélagsins. Hátíðinni verður útvarpað beint. Öllum er heimill aðgangur nieðan húsrúm leyfir. Að sögn Steinunnar Birnu Ragn- arsdóttur, framkvæmdastjóra há- tíðarinnar, mun Sinfóníuhljómsveit íslands flytja Hátíðarmarsinn og Passacagliu eftir Pál ísólfsson und- ir stjórn Páls P. Pálssonar. Ólöf Kolbrún Harðardóttir syngur þjú sönglög eftir Pál við undirleik Önnu Guðnýjar Guðmundsdóttur; Vögguvísu, I dag skein sól og Frá liðnum dögum. Þorsteinn Gauti Sigurðsson leikur píanóverkið Bur- lesque úr ^Þremur píanóstykkjum“ eftir Pál Isólfsson. Jón Þórarinsson tónskáld flytur hátíðarræðu og ólafur G. Einarsson menntamálaráðherra, Markús Örn Antonsson borgarstjóri, Heimir Steinsson útvarpsstjóri og Stefán Baldursson Þjóðleikhússtjóri flytja ávörp ásamt Þuríði Pálsdóttur söngkonu og dóttur Páls ísólfsson- ar. Jón Nordal afhjúpar bijóst- mynd af Páli Isólfssyni eftir Sigur- jón Ólafsson myndhöggvara. Kynnir verður Þorkell Sigurbjörns- son. Pálsvaka Pálsvaka verður í Dómkirkjunni kl. 20 og verður henni einnig út- varpað beint. Þar verða flutt ávörp og tónlist. Fram koma Dómkórinn í Reykjavík undir stjórn Marteins H. Friðrikssonar, sem einnig leikur á orgel. Anna Guðný Guðmunds- dóttir leikur á píanó. Hátíðin er haldin á vegum Dómkirkjunnar og Dómkórsins. Dr. Páll ísólfsson eftir Kjartan Sigurjónsson Þess er minnst um þessar mundir að eitt hundrað ár eru í dag liðin frá fæðingu dr. Páls ísólfssonar. Flest- um landsmönnum mun hann kunnur svo djúp spor sem hann markaði í íslenskri menningarsögu. Páll var eitt sinn spurður að því á opinberum vettvangi hvaða starf sér þætti vænst um af sínu stóra og mikla starfssviði. Hann sagði því fljótsvarað, það væri starf orgelleik- arans í Dómkirkjunni. Hann sagðist líta á sig fyrst og fremst sem orgel- leikara þótt margskonar önnur störf hlæðust á hann. Það blandast engum hugur um það að þegar Páll hafði lokið námi í Leipzig stóðu honum ýmsar dyr opnar. Vafalaust valdi hann þá leið- ina sem erfiðust var þá, að hverfa heim á ný og hefja brautryðjenda- störfín hér, við hlið annarra frum- heija sem íslenska þjóðin stendur jafnan í þakkarskuld við. Vissulega var ekki glæsilegt um að litast í tónlistarlífinu þegar Páll hóf störf hér heima. Fátt eitt var til af hljóðfærum og fátt kunnáttu- manna til að fara með þau. Ársins 1930 verður jafnan minnst sem merkisárs í íslenskri menningarsögu en þá tóku til starfa Tónlistarskólinn og Ríkisútvarpið, en þessum stofnun- um helgaði Páll krafta sína langa hríð. Aðstæður voru slíkar að hann hlaut að dreifa kröftunum meira en hann hefði sjálfur óskað. Starf kirkjuorganista var sannar- lega ekki metið til mikilla launa þeg- ar Páll kom heim frá námi. Hann átti sér snemma þá hugsjón að ís- lenskar kirkjur eignuðust sem flestar orgel en í þá daga léku menn á harmoníum. Það hlýtur því að hafa verið stórátak þegar fátækur söfnuð- ur réðist í að kaupa orgel fyrir Frí- kirkjuna í Reykjavík árið 1926, en það orgel valdi Páll. Þetta orgel er enn í fullu gildi, var stækkað og endurnýjað árið 1985. Á þessum árum var Páll ísólfsson organisti við Fríkirkjuna í Reykjavík en að Sig- fúsi Einarssyni Íátnum réðst hann að Dómkirkjunni og gegndi því starfí meðan heilsa leyfði. Orgel það sem Páll ísólfsson lék á í Dómkirkjunni er frá árinu 1934 og var tekið niður þaðan árið 1985 og bíður nú uppsetn- ingar á ný í nýrri kirkju á stað Snor- ra Sturlusonar að Reykholti í Borg- Dr. Páll ísólfsson „í tilefni þess að liðin eru 100 ár frá fæðingu Páls ísólfssonar hefur Félag íslenskra organ- leikara ákveðið að stofna sjóð í minningu hans og verja árlega hluta tekna sinna til sjóðsins. Honum er fyrst og fremst ætlað að styrkja efnilega orgel- nemendur til náms er- lendis.“ arfirði. Við orgel Dómkirkjunnar muna flestir eftir Páli ísólfssyni við kirkjulegar athafnir og á tónleikum. Við fótskör þessa mikla meistara orgelleiksins sat svo heil kynslóð nemenda sem margir hafa getið sér góðan orðstír við orgelið. Páll ísólfs- son reyndist nemendum sínum vel og lét sér annt um þá, hafði oft milligöngu fyrir þá um framhalds- nám erlendis. Páli var það snemma ljóst að org- anistastéttin sem nú var að rísa upp, þyrfti að sameinast í félagsskap sem hefði það að markmiði að efla kirkju- tónlist og beijast fyrir mannsæm- andi launakjörum. Því var það að hann, ásamt öðrum góðum mönnum, stofnaði Félag íslenskra organleik- ara 17. júni árið 1951. Hann var að sjálfsðögðu kjörinn fyrsti formaður T félagsins og gegndi því starfi lengi. Hann mótaði starf þess -félags og kom á sambandi við hinar Norður- landaþjóðirnar sem á nokkurra ára fresti héldu norrænt kirkjutónlistar- mót til skiptis á Norðurlönduni. Hann var sjálfur glæsilegur fulltrúi íslands á slíkum mótum, enda í fremstu röð Bach-túlkenda og orgelleikara. Á fyrstu árum félagsins gengust félag- ar fyrir tónleikaröð í kirkjum sínum undir nafninu „Musica sacra“ og þótti það merkilegt framtak. Kjarabaráttan hefur löngum verið stór liður í starfi félagsins, en Páll lifði það ekki að organistastarfið teldist fullt starf, þótt svo sé orðið nú sums staðar, en það má ekki síst þakka ötulli baráttu frumheijanna með Pál ísólfsson í fararbroddi. Það er okkur sem nutum leiðsagn- ar hans og kennslu þakkarefni að hafa fengið tækifæri til að kynnast þessum mikilhæfa leiðtoga og eign- ast vináttu hans. Páll var, eins og alþjóð þekkir, tónskáld gott, samdi sönglög sem flestir landsmenn þekkja auk stærri verka, kantata, píanóverk og orgel- verka. Allt slíkt var unnið í hjáverk- um, en hefur öðlast fastan sess með þjóðinni og mun reynast merkur . minnisvarði.um stórbrotið tónskáld. Málefni tónskálda lét hann til sín taka atkvæðamikill að vanda svo sem annars staðar. Hann átti stóran þátt í mótun tón-„ listardeildar Ríkisútvarpsins, stýrði henni langa hríð og vann með því að tónlistaruppeldi heillar þjóðar. í tilefni þess að liðin eru 100 ár frá fæðingu Páls ísólfssonar hefur Félag islenskra organleikara ákveðið að stofna sjóð í minningu hans og vetja árlega hluta tekna sinna til sjóðsins. Honum er fyrst og fremst ætlað að styrkja efnilega orgelnem- endur til náms erlendis. Einnig er félagið aðili að tónleikaröð sem nem- endur Páls stóðu fyrir til að minnast lærimeistara síns. Félag íslenskra organleikara var Páli ísólfssyni hjartans mál, eitt af mörgum málum sem hann kom í framkvæmd. Því er minningin um þennan mikla listamann og fyrsta formann FÍO félaginu kær og stend- ur það jafnan í mikilli þakkarskuld við hann. Höfundur er formaður FIO. Hver á að reka leikskólana? eftir Einar K. Guðfinnsson Morgunblaðið hefur sett fram gagnrýni á vinnubrögð þeirra fyrir- ætlana að ríkið hætti rekstri dagvist- arstofnana fyrir nokkrar starfsstéttir á sjúkrahúsum í fjórum sveitarfélög- um í landinu. Það er ástæða til þess að leggja áherslu á að þetta mál ber að leysa af fullri reisn gagnvart því fólki sem notið hefur þjónustunnar á dagvistarstofnunum ríkisins. Enn eru þrír mánuðir til stefnu miðað við ásetning heilbrigðisráðherra. í því sambandi tel ég þó litlu skipta úr því sem komið er hvort þessi eðlilega og sjálfsagða breyting á rekstrarað- ild verði vikunni eða mánuðinum fyrr eða seinna og sjálfsagt að hvetja til samningslipurðar í þeim efnum. Það breytir því hins vegar ekki að öll rök hníga að sjálfsögðu að því að ríkið hætti þessum rekstri og að viðkomandi sveitarfélög annist hann eins og rekstur annarra leikskóla í landinu. Þetta var líka skoðun stjórnarand- stöðunnar ,á Alþingi. Við ræddum þessi mál á Alþingi 14. apríl í fyrra í tilefni af því að við Gunnlaugur Stefánsson alþm. höfðum flutt þing- sályktunartillögu, sem hljóðaði svo: „Alþingi ályktar að fela ríkis- stjórninni að vinna að því á grund- velli laga um verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga að viðkomandi sveitarfélög taki við rekstri dagvist- arstofnana fyrir börn sem nú eru reknar af sjúkrahúsum á kostnað ríkissjóðs". í greinargerð tillögunnar kom meðal annars fram að árið 1990 greiddu Ríkisspítalar 115 milljónir króna fyrir vistun á dagheimilum og 7,9 milljónir fyrir vistun hjá dag- mæðrum. Borgarspítalinn greiddi 68,7 milljónir fyrir vistun ádagheim- ilum og 1,2 milljónir fyrir vistun hjá dagmæðrum. Ríkisspítalar reka átta leikskóla og skóladagheimili með samtals 250 rými í Reykjavík, Borg- arspítali rekur þijá leikskóla og eitt skóladagheimili eða 130 rými og Landakotsspítali rekur þijú dagvist- arheimili með 85 rými. Heildarkostn- aður Landakotsspítala er 33 milljón- ir. Landspítali og Landakot hafa þar að auki borgað stofnkostnað dagvist- arheimila sinna að fullu. Stjórnarandstaðan fagnaði tillögunni Það er skemmst frá því að segja að þessi tillaga varð tilefni mikilla og málefnalegra umræðna á Al- þingi. Til máls tóku auk flutnings- manna fimm alþingismenn, úr öllum stjórnmálaflokkunum og listunum sem eiga fulltrúa á Alþingi og lýsti hver og einn einasti stuðningi við þessa tillögu. Um hana myndaðist Einar K. Guðfinnsson „Til máls tóku auk flutn- ingsmanna fimm alþing- ismenn, úr öllum sljórn- málaflokkunum og list- unum sem eiga fulltrúa á Alþingi og lýsti hver og einn einasti stuðningi við þessa tillögu. Um hana myndaðist það sem stundum er kallað þver- pólitísk samstaða.44 það sem stundum er kallað þverpóli- tísk samstaða. Þannig sagði til dæmis framsókn- armaðurinn Guðmundur Bjarnason fyrrverandi heilbrigðisráðherra: „Ég tel að hér sé hreyft máli sem gjarn- an hefði mátt orða fyrr í þingsöl- um ...“ Og hann greindi líka frá því að þeir Svavar Gestsson alþingis- maður Alþýðubandalagsins hefðu tekið mál þetta upp í stjórnarnefnd Ríkisspítalanna þar sem báðir sátu á þeim tíma. Afstaða stjórnmálaflokkanna, þ.m.t. stjórnarandstöðunnar, var þess vegna alveg krítarklár. Það er því alveg furðulegt að svo virðist sem stjórnarandstaðan hafi allt í einu gjörsamlega snúið við blaðinu nú, þegar hillir undir að mál, sem allir stjórnmálaflokkar höfðu fagnað, sé að komast til framkvæmda. Mætti ætla að skoðanir þessa fólks hafi farið í gegnum einhvern óskiljanleg- an pólitískan úreldingarsjóð og séu nú ekki lengur taldar góðar og gild- ar. Skortur á starfsfólki sjúkra- húsa — kennaraskortur Það er rétt að skortur er á fólki til tiltekinna starfa á spítölum. Og það er einmitt sá mælikvarði — mælikvarði framboðs og eftirspurnar eftir starfsfólki — sem hefur verið ráðandi, þegar ákveðið hefur verið hvaða starfsstéttir eigi kost á leik- skólaplássum fyrir börn sín á dag- vistarstofnunum spítalanna. Þar gildir með öðrum orðum ekki það mat sem sanngjarnast þykir annars staðar í þjóðfélaginu hvað þetta áhrærir. Það sjá auðvitað allir í hvaða óefni við erum komin. Víða úti um landið vantar kenn- ara. Og hvernig bregðast menn við því? Ætli ríkið leggi fram dagvistar- stofnanir eða önnur hlunnindi til þess að laða til sin kennara? Nei. Alls ekki. Það eru sveitarfélögin sem bregðast við með hlunnindum af ýmsu tagi sem þau borga sjálf, þó það sé skýrt og skorinort í lögum kveðið á um að ríkið eigi að greiða launakostnaðinn. Upplýsingar hef ég til dæmis um skóla á Austurlandi þar sem sveitarfélagið greiðir sér- stök húsnæðishlunnindi, sem nema allt að 30 þúsund krónum á mán- uði, til þess að tryggja eðlilega og lögbundna skólagöngu grunnskóla- barnanna. Sérstaða? Ég hef séð því haldið fram að ekki geti gilt sömu reglur um dag- vistarstofnanir spítala og annarra, þar sem starfsemi sjúkrahúsa sé svo sérhæfð og hafi svo mikla sérstöðu. Þessu er því til að svara að öll atvinnustarfsemi hefur að sjálfsögðu sérstöðu á einn eða annan hátt og það á vitaskuld líka við um starfsemi sjúkrahúsa. En ef þessi sérstaða réttlætir leikskólarekstur sjúkrahúsa á einum stað, þá hlýtur hið sama almennt að eiga við þar sem sjúkra- hús eru starfrækt á annað borð. Gildir þá einu hvort um er að ræða Reykjavík eða Akureyri, Hafnarfjörð eða ísafjörð, Akranes eða Húsavík. Og svo er það eitt í viðbót. Sjúkra- húsin í Reykjavík, Ríkisspítalar, Borgarspítali og Landakot, eru lang- stærstu vinnustaðir borgarinnar. Hjá Ríkisspítölum (en hluti þeirrar starf- semi fer að vísu fram utan Reykja- víkur) voru í fyrra 2.338 stöðugildi, 380 hjá Landakoti og 1.185 hjá Borgarspítala. Þessi sjúkrahús eru á sinn hátt máttarstólpar í atvinnulíf- inu í Reykjavík. Dettur einhveijum virkilega í hug að borgaryfirvöld séu svo skyni skroppin að þau muni ekki reyna að aðlaga rekstur dagvistarstofnana að þörfum þess starfsfólks sem vinn- ur á stærstu og mikilvægustu vinnu- otc ðum sveitarfélagsins? Getur nokkur ímyndað sér annað en að stjórnendur Reykjavíkurborgar hafi til dæmis sveigjanlegri opnunartíma en nú gildir almennt um rekstur leik- skólanna? Mér finnst svarið liggja í augum uppi. Alveg sérstaklega þeg- ar haft er í huga að i raun munar sáralitlu á opnunartíma dagvistar- stofnana sjúkrahúsanna í Reykjavík og hjá Dagvistun barna í Reykjavík og því þyrfti litlar breytingar að gera á opnunartíma á örfáum leik- skólum. Förum samningaleiðina Mig undrar það í sjálfu sér ekki að sveitarstjórnarmenn, svo sem í Reykjavík, taki því ekki vel í fyrstu að þurfa nú að kosta starfsemi sem ríkið hefur af miklum rausnarskap — en litlum efnum — greitt fyrir sveitarfélög þeirra hingað til. Og ég gæti vel trúað að starfsbræður þeirra til dæmis á Húsavík, Neskaupstað, Sauðárkróki eða ísafirði, þar sem starfrækt eru sjúkrahús án slíkra ríkisrekinna dagvistarstofnana, myndu þakka fyrir að sitja við sama borð. En um það er ekki að ræða. Að sjálfsögðu ber þar til bærum yfir- völdum að ræða þessi mál við við- komandi sveitarfélög eins og alla hlutaðeigandi aðila. En eitt verður að vera ljóst frá upphafi. Ríkið á ekki að reka dagvistarstofnanir, hvorki fyrir sjúkrahús sín né aðra. Það er á verkefnalista sveitarfélag- anna. Um útfærslu og aðferðir við þessa sjálfsögðu verkefnatilfærslu á að ræða, en sjálfri grundvallarspurn- ingunni var svarað fyrir þremur árum og engin ástæða til þess að bera hana upp að nýju núna. Ég skil vel að óhugur hafi gripið um sig meðal þess fólks sem notið hefur dagvistarþjónustu spítalanna. Þær öldur kvíða er unnt að lægja með skynsamlegum vinnubrögðum. Ég er þess fullviss að unnt er að skipa þessu máli með eðlilegum hætti í góðu samkomulagi við alla aðila, ef menn setjast niður til þess verks. Það bér að gera tafarlaust, svo að niðurstaða fáist, óvissu verði eytt og starfsemi sjúkrahúsanna í landinu verði áfram með eðlilegum hætti. Höfundur er annar þingmanna Sjálfstieðisflokksins & Vestfjönhmi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.