Morgunblaðið - 12.10.1993, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. OKTÓBER 1993
35
Signrbjörn Sig-
urðsson — Minning
Fæddur II. desember 1975
Dáinn 5. september 1993
Svo örstutt er bil milli blíðu og éls
og brugðist getur lánið frá morgni til kvölds.
(M. Joch.)
Þetta vers kemur í huga mér
þegar ég minnist dóttursonar okk-
ar Sigurbjamar Sigurðssonar, eða
Sibba eins og við kölluðum hann
alltaf, og þannig mun hann lifa í
minningu okkar sem sakna hans.
Barnalega einlæga brosið hans
hlýjaði okkur þegar við hittumst.
Við vorum farin að hlakka til að
hann kæmi í heimsókn á bílnum
sínum eins og hann var búinn að
ráðgera. En það átti ekki að verða,
hann var kallaður héðan úr heimi
til æðri heima.
Sár söknuður fyllir hjörtu okkar
og spurningar koma í hugann sem
aldrei fæst svar við. Þessi efnilegi
ungi piltur sem var hvers manns
hugljúfi er honum kynntist og var
svo gaman að ræða við um ýmis
málefni sem hann virtist svo fróð-
ur um og langt á undan sinni samt-
íð.
Þeir sem guðirnir elska deyja
ungir, en minning hans mun lifa
í hjörtum okkar og allar ánægju-
stundir sem við áttum saman
munu gefa okkur þrek til að deyfa
sárasta söknuðinn og hjálpa okkur
til að líta björtum augum til fram-
tíðar.
Nú ertu horfínn hjartans vinur minn
til himins sala langt frá trega slóðum,
þig leiði ávallt ljúfur lausnarinn,
leiktu þér með englabömum góðum.
■ HÚSEIGENDAFELAGIÐ
vekur athygli á nýrri og aukinni
þjónustu sem félagsmönnum stend-
ur til boða. Innanhússarkitektinn
Finnur Fróðason mun eftirleiðis
verða til viðtals um innanhússhönn-
un á miðvikudögum eftir hádegi í
fyrsta sinn þann 13. október nk.
Þá mun Hannes Siggason raf-
tæknifræðingur vera til viðtals um
lýsingu, öryggiskerfi, þjófavarna-
kerfi, brunavarnir og orkusparnað
á fimmtudögum eftir hádegi í fyrsta
sinn 14. október nk. Ráðgjafarnir
munu einnig verða til viðtals í síma
og vonar félagið að sem flestir fé-
lagsmenn sjái sér fært að nýta
þessa þjónustu. Viðtölin fara fram
á skrifstofu félagsins í Síðumúla
29. Munið að panta verður tíma
fyrirfram.
■ EFTIRFARANDI bókun var
gerð á fundi bæjarráðs Egils-
staðabæjar 7. okt. sl.: „Bæjarráð
Egilsstaðabæjar mótmælir harðlega
virðisaukaskatti á flugfargjöld og
ferðaþjónustu sem lagður verður á
frá og með næstu áramótum. Auk
þess að vera íþyngjandi fyrir þjón-
ustuaðila og neytendur þessarar
þjónustu er þessi skattur óréttlátur
gagnvart þeim sem vegna búsetu
sinnar þurfa að nota flug meira en
t.d. íbúar suðvesturhomsins.“
Eríidrylikjur
Glæsileg kaffi-
hlaðborð Megir
salirogmjög
góð þjónusta
Dpplysingar
ísíma22322
FLUCLEIDIR
HÓTEL LOFTLEIDIE
Þú veittir ávallt ljósi á okkar leið,
þitt ljúfa bros og bamsins hlýja kætti,
ástúð og blíða allt þitt stutta skeið
var einatt það sem vinum þínum mætti.
Þú réttir að oss hlýja vinarhönd
hugljúft er að minnast brosa þinna
traust og ástúð öll þau tryggðarbönd
er okkar styrkur ást þína að finna.
Hvíldu í friði faðmi drottins í,
fijáls þú hneigst að Jesú helga armi,
í stjarnabliki birtast bros þín hlý
og blærinn strýkur sorgartár af hvarmi.
(María Konráðs)
Amma og afi Skagaströnd.
+
Ástkær eiginkona, móðir okkar og
tengdamóðir,
SIGRÍÐUR JÓIMSDÓTTIR
organisti,
lést á Grensásdeild Borgarspítalans
föstudaginn 8. október.
Fyrir okkar h.önd, móður hennar, systk-
ina og annarra vandamanna,
Pétur Sigurðsson,
Hannes Pétursson,
Sigurður Pétursson, Ingibjörg Valgeirsdóttir,
Gunnar Þór Pétursson, Edda Björk Skúladóttir.
t
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og systir,
MARTA GUÐJÓNSDÓTTIR
frá Berjanesi, A-Eyjafjöllum,
til heimilis á Austurvegi 33,
Selfossi,
lést á heimili sínu að morgni
laugardagsins 9. október sl.
Matthías Andrésson, Guðjón Andrésson,
Sigurást Klara Andrésdóttir, Páll Andrésson,
Grétar Andrésson, Hilmar Andrésson,
Vigfús Andrésson, Kristín Hlíf Andrésdóttir,
Katrfn Þorbjörg Andrésdóttir,
tengdabörn, barnabörn, langömmubörn
og systur hinnar látnu.
+
Eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir og amma,
SIGURVEIG ÁSTGEIRSDÓTTIR,
Kvisthaga 8,
Reykjavík,
er lést í Landspítalanum að morgni
5. október, verður jarðsungin frá
Neskirkju miðvikudaginn 13. október
kl. 13.30.
Þorsteinn Finnbogason,
Ástgeir Þorsteinsson. Arnbjörg Sigurðardóttir,
Finnbogi J. Þorsteinsson, Sjöfn Ágústsdóttir,
Kristfn A. Þorsteinsdóttir,
Arndís Þorsteinsdóttir, Sólmundur Björgvinsson
og barnabörn.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og virðingu við andlát og útför eigin-
manns míns, föður okkar, tengdaföður
og afa,
GUÐFINNS J. BERGSSONAR,
Hvassahrauni 7,
Grindavfk.
Helga Jóhannsdóttir,
Jóhann Guðfinnsson,
Guðríður Guðfinnsdóttir,
Grétar Guðfinnsson,
Hallfríður Guðfinnsdóttir,
Þórður V. Magnússon,
tengdabörn og barnabörn.
L E GST EIN AR
HELLUHRAUNI 14 ■ 220 HAFNARFIRÐI • SlMI 652707
Sonur minn,
EINAR ÞORKELL ARNKELSSON,
Miðleiti 3,
lést 9. október.
Elín Ág. Jóhannesdóttir.
+
Elskulegur eiginmaður minn, fósturfaðir, tengdafaðir, afi og
langafi,
TORFI SIGURÐSSON,
Mánaskál,
Laxárdal,
andaðist í Landspítalanum 9. október.
Agnes Sigurðardóttir,
Guðni Agnarsson, Ágústa Hálfdánardóttir,
Agnar Guðnason,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Móðir mín, systir okkari mágkona og frænka,
STEINUNN ÞORSTEINSDÓTTIR
frá Grund f Svfnadal,
Flókagötu 7,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 13. október
kl. 13.30.
Ásta Sigfúsdóttir,
Þóra Þorsteinsdóttir,
Guðrhundur Þorsteinsson, Guðrún Sigurjónsdóttir,
Þórður Þorsteinsson, Guðrún Jakobsdóttir
og bræðrabörn hinnar látnu.
+
Eiginkona mín,
ÁSLAUG KATRÍN LÍNDAL,
lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð
mánudaginn 11. október.
Fyrir hönd aðstandenda,
Jósafat J. Líndal.
+
Eiginmaður minn og faðir okkar,
JÓNAS GÚSTAVSSON,
héraðsdómari,
lést f Landakotsspítala aðfaranótt
sunnudagsins 10. október.
Kristfn Gyða Jónsdóttir,
Guðrún Helga Jónasdóttir, Steinunn Jónasdóttir.
+
Þakka auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför móður
minnar,
SIGURBJARGAR JÓNSDÓTTUR
frá Syðri-Björgum,
Skagahreppi.
Sigurður Jónsson,
Heilisgötu 3, Hafnarfirði.
+
Þökkum innilega samúð og vinarhug við andlát og útför móður
okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
GRÉTU KRISTJÁNSDÓTTUR,
Mávahlíð 8,
Reykjavík.
Kristfn Jónasdóttir, Valdimar Örnólfsson,
Kári Jónasson, Ragnhildur Valdimarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
+
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og vinar-
hug við andlát og útför móður minnar, tengamóður, ömmu og
langömmu,
PETREU GUÐMUNDSDÓTTUR,
Víðigrund 24,
Sauðárkróki.
Bára Þ. Svavarsdóttir, Ólafur A. Jónsson,
dótturdætur og fjölskyldur þeirra.