Morgunblaðið - 12.10.1993, Blaðsíða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. OKTÓBER 1993
Mjólk
— vildir þú
vera dn hennar? íslenskir bændur
S í:
KÚ 6ETK MLUR LPIFT ítt HB
HUMÚTM9 MMfl í KÚÚ16IKII
Mmhoiin ar ntioran ■
mTSEOLI:
Nautavorrúllur kr. 350.-
Rækjur í súrsætri sósu kr. 450.-
Svínarif m/ hoi sin sósu kr. 490.-
Djúpsteiktur kjúklingur kr. 5 t o.-
Djúpsteiktur fiskur szechuan kr. 390.-
Stór núðlusúpa með kjöti og grænmeti kr. 390.-
Kinavagninn - súpa og 6 réttir kr. 790.-
Öllum réttum fylgja hrísgrjón, súpa,
kaffi eða te
Munið kvöldverðartilboðið
1(1 k f
fréttum
MANNLÍF
Eva Brá
og sápu-
kúlurnar
Haustið hefur verið með ein-
dæmum gott um allt land
og þegar sólir brosir sínu blíðasta
tjúka börnin út í leiki á hvaða
árstíma sem er. Sigurgeir ljós-
myndari Morgunblaðsins í Vest-
mannaeyjum stóðst ekki mátið að
taka meðfylgjandi myndir af Evu
Brá, sem er tæplega sex ára, þar
sem hún var að blása sápukúlur.
Morgunblaðið/Sigurgeir
„Sjáðu bara hvað ég get,“ segir Eva Brá og sýnir stolt þrjár
kúlur fastar saman.
STJÖRNUR
Díana Ross styður Michael Jackson
Reuter
Diana Ross, sem er 49 ára, kemur til móttöku í London ásamt norsk-
um eiginmanni sínum, Arne Naess. Diana hefur verið viðriðin tón-
list undanfarin 30 ár.
VJöngkonan Diana Ross var í
London síðastliðinn föstudag
þar sem hún tók við viðurkenningu
frá EMI-hljómplötufyrirtækinu og
Heimsmetabók Guinness fyrir að
vera ein vinsælasta poppsöngkona
sem uppi hefur verið. Diana hefur
verið meira og minna á toppnum
undanfarin þijátíu ár, fyrst með
sönghópnum The Supremes en síð-
an sem sólóisti. Hún sagðist hafa
verið mjög heppin gegnum tíðina,
þrátt fyrir að auðvitað lægi einnig
mikil vinna að baki. Hún kveður
lagavalið skipta sköpum en ekki
síður þá tónlistarmenn sem hafa
unnið með henni.
Við þetta tækifæri var hún
spurð hvað henni fyndist um þær
ásakanir sem fram hafa komið á
hendur Michael Jackson. Hún kvað
sér vera ákaflega umhugað um
Michael og bætti við: „Ég vona að
þessar ásakanir eyðileggi ekki
frama hans og ég vona að þær séu
ekki sannar, því mér þykir ákaf-
lega vænt um hann. Asakanir af
þessu tagi geta eyðilagt líf hvers
sem er. Eg hef alla tíð haft áhyggj-
ur af honum vegna þess að hann
er einkar viðkvæmur maður,
sagði Diana.
Michael hittir forseta
Argentínu
Michael Jackson er enn á tónlist-
arferðalagi og er nú kominn til
Argentínu, þar sem hann hitti for-
seta landsins, Carlos Menem og
bömin hans tvö, Zulemitu og Car-
los yngri.
Miehael hefur haldið sig að
mestu inni á hótelinu frá því hann
kom til Argentínu. Hann hefur
aðeins tvisvar farið út úr hótelinu,
annað skiptið í verslunarmiðstöð
en í hitt skiptið til forsetans. Verð-
ir gættu þess vel að enginn kæm-
ist að Michael í síðara skiptið, því
þegar hann fór í verslunarmiðstöð-
ina varð hann fljótlega að snúa við
vegna þess hversu aðdáendur hans
voru aðgangsharðir.
Michael hélt þrenna tónleika í
Argentínu og höfðu um 150 þús-
und miðar selst áður en hann kom
til landsins.
1
p1
'SJ
V' '<£
m
Á Kringlukánni
færðu ódýran og góðan mat
alla daga vikunnar
Lifandi tónlist öll kvöld !
Jass öll miðvikudagskvöld
Kringlukráin er opin alla daga vikunnar,
sunnudaga til fimmtudaga frá kl. 12 til OÍ,
föstudaga og laugardaga frá kl. 12 til 03
Restaurant - Pub Borgarkringlunni
p1-
.\No
-'aj
íslenskt
ámuöl
^VNC,
JSJ
1EII