Morgunblaðið - 29.10.1993, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 29.10.1993, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. OKTÓBER 1993 Bókaflóðið að hefjast Utgáfubækur Almenna bókafél- agsins o g Máls og menningar ALMENNA bókafélagið og Mál og menning gefa út fjölbreytt úrval bóka, jafnt skáldverk sem fræðirit. Nokkrar þeirra bóka sem hér er getið hefa komið út fyrr á árinu. Almenna bókafélagið Þijár íslenskar skáldsögur koma út hjá Almenna bókafélaginu. Þær eru Englar alheimsins eftir Einar Má Guðmundsson, Bamið mitt, bamið eftir Illuga Jökulsson og Kvennagaldur eftir Björgúlf Ólafs- son. Húsin og göturnar eftir Kristján Þórð Hrafnsson er eina nýja ljóða- bókin hjá Almenna bókafélaginu. Fagra veröld eftir Tómas Guð- mundsson verður endurútgefín í tilefni þess að sextíu ár eru liðin frá frumútgáfu hennar. Útgáfuaf- mælinu tengist einnig mynd- skreytt útgáfa Fjallgöngu og geisladiskur með lögum við ljóð Tómasar. Ein ævisaga er meðal útgáfu- bóka. Jóhanna Kristjónsdóttir skrifar um Jökul Jakobsson í bók- inni Perlur og steinar. Þýddar skáldsögur eru Blóð- fjötrar eftir A.J. Quinnel, Franskur leikur eftir Vigdis Hjorth, Vinar- þel ókunnugra eftir Ian McEwan, Banvæn kvöð eftir Friedrich Dúrrenmatt og Hver myrti Mol- eró? eftir Mario Vargas Llosa. Viðreisnarárin eftir Gylfa Þ. Gíslason er komin út. Uppkomin börn alkóhólista nefnist bók eftir Árna Hilmarsson. Pólanna á milli er ferðasaga eftir Michael Palin. Sjáðu barnið! er eftir Desmond Morris. Hver er sinnar gæfu smiður, handbók Ep- iktets, hefur verið endurútgefin og einnig Ferskeytlan með vísum sem Kári Tryggvason tók saman. Komnar eru út á árinu þijár bæk- ur eftir Einar Þ. Guðjohnsen í handbókaflokknum Gönguleiðir. Bókin Fluguveiði er væntanleg. Hundakexið nefnist barnabók eftir Einar Má Guðmundsson. Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson sendir frá sér Álagaeld. Þótt des- ember sé dimmur er bók eftir Herdísi Egilsdóttur. Iðunn Steins- dóttir er höfundur Jólasveinanna. Draumur eða veruleiki eftir Sigurð Björnsson er barnabók með heim- spekilegu ívafi. Torfi Hjartarson skrifar krossgátubókina Þrauta- kóng. Adda og litli bróðir eftir Jennu og Hreiðar Stefánsson er önnur Öddubókin í endurútgáfu Almenna bókafélagsins. Meðal þýddra barnabóka eru þijár um Ándra og Eddu eftir Tor Áge Bringsværd og Anne Holt. Mál og menning Norðurleið nefnist ljóðabók eftir Óskar Árna Óskarsson. Eftir Finn Torfa Hjörleifsson eru Bernsku- myndir. Safnborg er nýjasta ljóða- bók Geirlaugs Magnússonar. Sveinn Yngvi Egilsson kveður sér Borgarafundur Húseigendafélagsins á Hótel Sögu 30. október klukkan 13.30 spyr: Eru fasteignir á Islandi trygg eign? Tólf framsögumenn leitast við að svara þessari spurn- ingu. Þeir eru: Magnús Axelsson, formaður Húseigendafélagsins. Jóhanna Sigurðardóttir, félagsmólaróðherra. Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður. Sigurður E. Guðmundsson, forstjóri Húsnæðisstofnunar. Magnús Ólafsson, forstjóri Fasteignamats ríkisins. Björn Líndal, aðstoðarbankastjóri. Þórhallur Jósefsson, form. húsnæðisnefndar Sjólfstfl. Þórður Friðjónsson, forstj. Þjóðhagsstofnunar. Ingi R. Helgason, stjórnarform. VIS. Jón Guðmundsson, form. Félags fasteignasala. Dr. Pétur Blöndal, tryggingastærðfræðingur. Jónas Kristjónsson, ritstjóri. Fundarstjóri: Sigurður G. Tómasson, dagskrórstjóri. Húseigendafélagið hvetur félagsmenn sína til að fjöl- menna á fundinn og býður jafnframt alla velkomna. V____________________________________________________________________/ Breyttur tími MÓTTÖKUSTÖÐ OG EFNAMÓTTAKA SOfíPU í Gufunesi verður opin frá 1. nóvember kl. 7:30-16:15 S©RPA SORPEYÐING HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS bs Gufunesi, sími 67 66 77 hljóðs með ljóðabókinni Aðflutt landslag. Þerna á gömlu veitinga- húsi er ljóðabók eftir Kristínu Ómarsdóttur. Ljóðmæli er heiti á ljóðasafni Hrólfs Sveinssonar. Þor- steinn Gylfason kallar ljóðaþýðingar eftir sig Sprek af reka. Álfrún Gunnlaugsdóttir sendir frá sér skáldsöguna Hvatt að rún- um. Tvær grímur er skáldsaga eftir Valgeir Guðjónsson. Ljósin blakta er önnur skáldsaga Hannesar Sigfússonar. Björn Th. Bjömsson .hefur samið heimilda- skáldsöguna Falsarann. Framlag Gyrðis Elíassonar er að þessu sinni smásagnasafnið Tregahornið. Borg nefnist fyrsta skáldsaga Rögnu Sigurðardóttur. Tabúlarasa er prósaverk eftir Sigurð Guð- mundsson. Guðlaugur Arason tek- ur aftur upp þráðinn með skáld- sögunni Hjartasalti. Meðal bóka almenns efnis eru New York, New York eftir Stefán Jón Hafstein. Kría siglir um Suðurhöf er framhald Kjölfars kríunnar eftir Þorbjörn Magnús- son og Unni Jökulsdóttur. Eftir Svein Skorra Höskuldsson er ævi- sagan Benedikt frá Auðnum - ís- lenskur endurreisnarmaður. Vetr- arvirki nefnist afmælisrit Björns Th. Björnssonar. Myndlistarbækur eru um Mat- isse og Hrein Friðfinnsson. Fyrr á árinu kom Sálfræðibókin. Saga daganna er nýkomin út. Annað bindi íslenskrar bók- menntasögu er væntanlegt. Einar Thoroddsen hefur samið handbókina Vínin í ríkinu. Karla- fræðirinn er verk K. Purvis. í vor kom út íslandsbók á ensku eftir þau hjón, Esbjörn og Rakel Rosenblad. Á vegum háskólafor- lagsins Heimskringlu kemur Hag- lýsing íslands eftir Sigurð Snæv- arr. Hugtök og heiti í norrænni goðafræði eftir R. Simek er líka Heimskringlubók. Stórbók með verkum Ólafs Jó- hanns Sigurðssonar kemur út. Á slóðum Vilhjálms eru sögur eftir leikritum Shakespeares skráðar af Helga Hálfdanarsyni. Ýmsar gjafabækur og endurprentanir eru áætlaðar. Kóraninn kemur út í þýðingu Helga Hálfdanarsonar. Ódysseifur II er framhald þýðingar Sigurðar A. Magnússonar á skáldsögu Ja- mes Joyce. Erlingur E. Halldórs- son hefur þýtt Gargantúa og Pantagrúl eftir F. Rabelais. Bókin um hlátur og gleymsku eftir Milan Kundera er þýdd af Friðrik Rafns- syni eins og fleiri bækur höfundar- ins. Nadine Gordimer er höfundur smásagnasafnsins Ferð allra ferða í þýðingu Ólafar Eldjárn. Lítinn heim eftir David Lodge þýðir Sverrir Hólmarsson. Ingibjörg Haraldsdóttir þýðir Ódauðlega ást eftir L. Petrúshevskaju. Fimm fíngra mandlan er smásagnasafn eftir Torgny Lindgren í þýðingu Hannesar Sigfússonar. Mál og menning gefur út fjölda bóka fyrir börn og unglinga. Him- inninn er allsstaðar er saga um sjö ára telpu eftir Sólveigu Trau- stadóttur. Markús Árelíus flytur suður er þriðja saga Helga Guð- mundssonar um seinheppinn kött. Klukkan Kasslópeia og húsið í dalnum er saga um fróðleiksfúsa krakka eftir Þórunni Sigurðardótt- ur og unnin jafnhliða útvarpsleik- riti. Reykvískir krakkar í átökum við bófa eru söguhetjur Diddu dojojong og Dúa dúfnaskíts eftir Einar Kárason. Leif Esper Andres- en íjallar um tíma galdrafárs í Brennd á báli. Astrid Lindgren á tvær sögur: Alltaf gaman í Óláta- garði og Baun í nefi Betu. Sumar- leyfissögur af Frans er fimmta bókin um Frans eftir Christine Nöstlinger. Meðal unglingabóka er Á háskaslóð, saga um ævintýralega siglingu eftir Eyvind P. Eiríksson. Við Urðarbrunn eftir Vilborgu Davíðsdóttur hermir frá ungri ambáttardóttur af fyrstu kynslóð íslendinga. Hvolpavit eftir Þor- stein Marelsson er framhald Milli vita. Úlfur, úlfur eftir Gillian Cross er saga um stúlku sem verður miðdepill í sprengjumáli á vegum IRA. Mats Wahl er höfundur Hús- bóndans, sögu um síðasta sjóræn- ingjann á Eystrasalti. Myndabækur fyrir börn eru eft- ir Áslaugu Jónsdóttur, Þóru Sig- urðardóttur; Önnu Vilborgu Gunn- arsdóttur, Árna Árnason, Halldór Baldursson, Önnu Cynthiu Lepler og Alison Claire Darke. Nokkrar fræðslubækur fyrir börn koma út og að auki handbók fyrir foreldra sem hefur hlotið heitið Leikir og leikföng fyrir börn frá fæðingu til fímm ára aldurs. Sítrónu VaniIIu Royal -uppáhaldið mitt! ROYAL skyndiréttur fyrir þá sem geta ekki beðið. Aðrar bragðtegundir: Jarðarberja Súkkulaði Njörður P. Njarðvík Kynning á verkum NjarðarP. Njarðvík BÓKMENNTAKYNNING verð- ur haldin í aðalsal Framhalds- skóla Vestfjarða á Isafirði á morgun, laugardag 30. október, kl. 16. á vegum Menningarráðs Isafjarðar, Bókaútgáfunnar Ið- unnar og framhaldsskólans. Kynningin er haldin í tilefni af þrjátíu ára rithöfundarafmæli Njarðar P. Njarðvík, dósents og rithöfundar. Á kynningunni mun Njörður sjálfur lesa upp úr nýjustu bók sinni, Hafborg, sem kemur út á morgun. Þar er um að ræða skáld- sögu sem fjallar um isfirska tog- arasjómenn. Vésteinn Ólason, pró- fessor í íslenskum bókmenntum við Háskóla íslands, flytur erindi um ritstörf Njarðar. Þá mun Guð- rún Jónsdóttir söngkona syngja nokkur lög, undirleik annast Beáta Joó. Nemendur framhaldsskólans sjá um kaffísölu í hléi. Njörður P. Njarðvík er ísfirðing- um að góðu kunnur. Hér fæddist hann 30. júní 1936. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri 1955 en kandidats- prófi í jslenskum fræðum frá Há- skóla íslands 1964 og doktors- prófí frá háskólanum í Gautaborg á sl. vori. Á árunum 1966-71 var hann lektor við háskólann í Gauta- borg. Síðan hefur hann kennt ís- lenskar bókmenntir við Háskóla íslands. Njörður hefur tekið mjög virkan þátt í félagsstörfum af ýmsu tagi, m.a. var hann í fjögur ár formaður útvarpsráðs. Fyrsta bók Njarðar, Sá svarti senuþjófur, kom út 1963, fyrir réttum þijátíu árum. Frá hans hendi hafa síðan m.a. komið skáld- sögur, ljóðabækur, fræðirit og barnabækur, alls hátt í tuttugu rit, en auk þess hefur hann þýtt mörg erlend bókmenntaverk á ís- Iehsku. Allir eru velkomnir á þessa kynningu meðan húsrúm leyfír, ísfirðingar og . nágrannar eru hvattir til að. fjölmenna. Stretsbuxur kr. 2.900 Mikið úrval af allskonar buxum Opið ó laugardögum ki. n -i6

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.