Morgunblaðið - 29.10.1993, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. OKTÓBER 1993
13
!****<%»&
^nZ?áS
EINSTAKT INNGÖNGUTILBOÐ í BÓKAKLÚBB BARNANNA
Bruðlað hjá ríkinu?
VELO wmi
fEVINTÝRffBfEKCIR
RDI EINNRRI
SKEMMTILEGT MIKKA MÚS-ÚR
FYLGIR MEÐ í KAUPBÆTI
Bokaklubbur barnanna
er lifandi og fjölbreyttur
bókaklúbbur fyrir börn.
Ef þú gerist felagi innan
10 daga færðu tvær vandaðar
og skemmtilegar ævintýra-
bækur frá W alt Disney
á aðeins 895 krónur .
Einmg fær barnið
skemmtilegt Mikka Mús-úr
ásamt blaði klúbbsins,
Gáska. Engar kvaðir fylgja
aðild að klúbbnum.
■*
yigjr J wMvi
Láttu barniö þitt lesa góöar og vandaöar
bækur því þannig eykst lestrarkunnátta,
ímyndunarafl og andlegur þroski barnsins.
Tryggöu barninu góöar bækur og úr aö gjöf!
Taktu ákvöröun strax í dag.
Síminn er
VAKA-HELGAFELL
Lifandi utgafa og þjonusta vio þig!
eftir Mörtu
Sigurðardóttur
í frétt Morgunblaðisins 29. sept.
þar sem fjallað vár um uppsagnir
tæplega hundrað starfsmanna á
leikskólum/skóladagheimilum Rík-
isspítala kom ýmislegt fram sem
kom undarlega fýrir sjónir.
Sem leikskólafulltrúi hef ég
umsjón með rekstri leik-
skóla/skóladagh. og langar mig að
koma eftirfarandi á framfæri.
Ég hef unnið við leikskólamál
Ríkisspítala í rúm 16 ár og hafna
alfarið að um bruðl, lúxus og tómt
rugl sé að ræða.
I símtali í byrjun september upp-
lýsti Bergur Felixson fram- Marta Sigurðardóttir
kvæmdastjóri Dagvistar barna mig
um að kostnaður við hvert barn í
heilsdagsvistun (8-9 tíma) hafi
verið 445 þús. krónur á árinu 1991.
Sambærilegur kostnaður hjá Ríkis-
spítölum árið 1991 var 502 þús.
krónur. Þarna munar 57 þús. krón-
um á barn á ári. Lággur sá munur
í því, að leikskólum Ríkisspítala er
ekki lokað í einn mánuð í sumar-
leyfum vegna starfsemi spítalans.
Þeir voru opnir 12 tíma á dag,
opið var á laugardögum, ef foreldr-
ar þurftu á því að halda. Fóstrur
tóku 2 starfsdaga í yfirvinnu á
laugardegi, því ekki var talið hægt
að loka leikskólunum á virkum
degi. Að síðustu, þá er hlutfall
fóstra af heildarstarfsmannafjöld-
anum hærra á leikskólum Ríkisspít-
ala en í sumum sveitarfélögum.
í sparnaðartillögum frá fóstrum
fyrir árið 1992 var lagt til að lokað
yrði á laugardögum og opnunar-
tíminn styttur í 11 klst. á dag.
Starfsdagar fóstra yrðu teknir á
teknir á virkum dögum og dregið
yrði úr starfsemi yfir sumarmánuð-
ina, án þess að loka.
Þá var gjald foreldra í sam-
búð/hjónabandi hækkað um nærri
sex þúsund krónur á mánuði fyrir
hvert barn. Með þessu móti töldum
við að hægt væri að spara töluvert
og minnka þjónustuna þannig að
sem fæstir fyndu verulega fyrir
því. Og það gekk eftir, með þessum
breytingum lækkaði upþhæðin sem
Ríkisspítalar greiddu með hveiju
barni í 376 þúsund krónur á ári.
Rétt er að það komi fram að
starfsmenn 27 stétta eiga börn á
leikskólum/skóladagheimilum og
Sóknarstarfsmenn hafa verið þar á
meðal.
í fréttinni er haft eftir Önnu K.
Jónsdóttur formanni stjómar Dag-
vistar barna að „okkar kerfi er
fyrir almenning en ekki fyrir sér-
hópa“. Nú er það þannig að mjög
margir foreldrar vinna 8 stunda
vinnudag, en séu þeir í sam-
búð/hjónbandi eiga þeir einungis
kost á að kaupa 4-5 eða 6 tíma
vistun á dag, 20-25 eða 30 tíma
á viku. Og það dugir ekki fyrir 8
stunda vinnudag eða 40 stunda
vinnuviku. Eru foreldrar í sam-
búð/hjónabandi sem þurfa 8 tíma
vistun á dag fyrir börn sín almenn-
ingur eða sérhópur?
Þessir foreldrar þurfa að kaupa
sér einhvern til að annast barnið
til viðbótar, t.d. dagmömmu. Hvers
vegna ekki að leyfa foreldrum í
sambúð/hjónabandi að kaupa 8
stundir á dag?
Það gefur augaleið að það er
miklu betra fyrir barnið að dveljast
á sama stað allan þann tíma sem
foreldrar eru við vinnu.
Eg held að það sé stefna stjóm-
ar Dagvistar barna að bjóða for-
eldrum í sambúð/hjónabandi alls
ekki 8 tíma vistun. Ég vona að ég
hafi rangt fyrir mér eða viti ekki
betur.
Yfir 90% foreldra sem eiga böm
á leikskólum Ríkisspítala eru í sam-
búð/hjónabandi og eiga samkvæmt
þessu alls ekki kost á 8 tíma vistun
og því er næsta spuming: þarf að
breyta vaktafyrirkomulagi sjúkra-
húsanna og hafa fjórskiptar vaktir
í 6 tíma í senn, til að það falli að
kerfí Dagvistar barna?
_ STEINAR WAAGE _
SKÓVERSLUN
Herrainniskór
„Ég held að það sé stefna
stjórnar Dagvistar barna
að bjóða foreldrum í sam-
búð/hjónabandi alls ekki
8 tíma vistun.“
Að lokum, ég veit ekki betur en
að faglært starfsfólk hjá Dagvist
barna njóti sömu fyrirgreiðslu fyrir
börn sín og starfsfólk Ríkisspítala
hefur fengið, enda á Dagvist bama
áreiðanlega erfítt með að fá fag-
lært fólk til starfa eins og sjúkra-
húsin.
Höfundur er Ieikskólafulltrúi.
Domus Medica,
Egilsgötu 3,
sími 18519
Kringlunni,
Kringlunni 8-12,
sími 689212
Toppskórinn,
Veltusundi,
sími 21212.
Verð 995,-
Litur: Svart m/gráu
Stærðir: 40 - 46
Tökum við
notuðum
skóm handa
bágstöddum.
POSTSENDUM SAMDÆGURS ■ 5% STAÐGREIÐSLUAFSLÁTTUR
© DISNEY