Morgunblaðið - 29.10.1993, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 29.10.1993, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. OKTÓBER 1993 Eins og ég sá hana frá upphafi - segir Hrafn Gunnlaugsson um nýju kvikmyndina sína, sem verður frumsýnd í kvöld eftir Elínu Pálmadóttur í KVÖLD verður frumsýning á nýrri íslenskri kvikmynd, Hin helgu vé, eftir Hrafn Gunnlaugsson í Regnboganum, og verður myndin sýnd þar áfram næstu vikur. Hvolpaást er viðfangsefni myndarinn- ar. Hún segir frá 7 ára dreng, sem verður ástfanginn af tvítugri heimasætunni, en hún er lofuð pilti á næstu eyju. Hann hyggst og reynir að frelsa hana úr fjötrum með hjálp víkingsins í álagahaugn- um. Úr því verður falleg, hrífandi mynd með talsverðri spennu, tek- in á Breiðafirði og í Gróttu. Mynd fyrir fólk á öllum aldri. Myndin er byggð á minningum Hrafns frá því hann var ungur drengur sendur í sveit til Guðmund- ar í Skáleyjum á Breiðafirði. Hann segir að þrjár af fyrri myndum sín- um séu í rauninni sjálfsögulegar myndir, þ.e. Óðal feðranna, Hrafn- inn flýgur og Hin helgu vé. Óðal feðranna fjallar um það þegar hann vann á unglingsárunum í sveit ann- ars staðar á landinu. í þessum tveimur myndum kveðst hann hafa ort út frá íslenskri sveit. í Hrafninn flýgur yrki hann einnig út frá myndum sem kviknuðu í kollinum á honum þegar faðir hans og María amma hans lásu fyrir hann upp úr íslendingasögunum áður en hann var orðinn almennilega læs sjálfur. Hin helgu vé hefur átt langan aðdraganda, næstum áratug, að því er Hrafn segir: „Þegar ég var búinn með Hrafninn flýgur var frumhand- rit að þessari mynd tilbúið og ég sýndi fyrstu drögin framleiðanda Hrafnsins, Bo Jonsson. Hann taldi að ég ætti að fara í þessa mynd, sem hann kallaði þá þegar Pojkdrömmar á sænsku. Þegar svo Hrafninn flýgur fékk þann góðan byr sem varð, bæði fjárhagslega og listrænt, þá komu ijársterkir aðilar og vildu endilega að ég gerði fleiri víkingamyndir. Það urðu I skugga hrafnsins og Hvíti víkingur- inn. Þær myndir tvær voru eigin- lega hliðarspor." Af þessum sökum dróst svona lengi að Hrafn kæmist í að gera Hin helgu vé. „Þegar Nouðrlanda- þjóðimar ákváðu að vinna saman að einni mynd frá hveiju landi til sýningar í Cannes, var auglýst eftir íslenska framlaginu og skipuð dóm- nefnd til að velja úr umsóknum. Þá lagði ég handritið fram, en ís- lenska nefndin hafnaði því. Fyrir tveimur árum veitti Kvikmynda- sjóður svo til hennar 21 milljón, sem nægði til að komast í gang. Og ég var með loforð fyrir 2,4 milljónum s.kr. frá Norræna kvikmyndasjóðn- um. En þegar til átti að taka hafði framkvæmdastjórinn Bengt Fors- berg tæmt sjóðinn og það var ekki Heimasætan á bænum (Alda Sigurðardóttir) ætlar að fara að gifta sig pilti á næstu eyju. fyrr en með stuðningi menntamála- ráðuneytisins að ég fékk minni hluta þess sem mér var lofað, eina milljón sænskra króna. Þá var ég kominn með nærri þriðjung af íjár- mögnuninni, en myndin kostar um 80 milljónir. Það var til þess að ég varð að selja sýningarréttinn að gömlu myndunum mínum til menntamálaráðuneytisins, en það var síðar lagt út á versta veg af rógtæknum á þingi. Þegar ég var búinn að selja þær tókst að ljúka upptökum á myndinni í fyrrahaust. Þá var eftir að fjármagna eftir- vinnsluna og ég sótti um styrk til Kvikmyndasjóðs, sem hafnaði myndinni í annað sinn. Formaður úthlutunarnefndar var þá líka Árni Þórarinsson. En bankar og kunn- ingjar heima og erlendis hjálpuðu mér. Jafnframt þurfti að grípa til þess að einfalda verkið. Þessvegna er tónlistin eins og hún er, unnin upp úr Kóraifantasíu Beethovens í stað þess að vera samin sérstak- lega. En það getur verið kostur Morgunblaðið/Rúnar Þór Handslökkvitækið bjargaði miklu JÖRUNDUR Traustason með handslökkvitækið sem bjargaði því að ekki fór enn verr þegar eldur kom upp í íbúð fjölskyldunnar við Grundargerði. Með honum á myndinni er Sigríður dóttir hans. Fyrirlestur Tími: Laugardagurinn 30. október kl. 14.00. Staður: Háskólinn á Akureyri við Þingvallastræti, stofa 24. Flytjandi: Dr. Steven Cronshaw, prófessor við Guelph háskólann í Kanada. Efni: Vinnuréttur og mannréttindi í Kanada. Öllum heimill aðgangur Raðhúsíbúð í Grundargerði stórskemmdist í eldi Húsráðandi óð inn í mökk- inn með handslökkvitæki „ÍBÚÐIN var full af reyk, mökkur yfir öllu og það sást ekki í neitt,“ sagði Jörundur Traustason um aðkomuna að heimili sínu I hádeginu í gær, en þar kom upp eldur sem stór- skemmdi íbúð hans og eiginkonu hans Ingveldar Jóhannesdótt- ur að Grundargerði 6i, sem er raðhúsíbúð á tveimur hæðum. Jörundur slökkti eldinn með handslökkvitæki áður en slökkvil- ið kom á vettvang. Umtalsverðar skemmdar urðu í íbúðinni. Jörundur hafði skroppið heim um kl. 11 í gærmorgun og þá var allt eins og átti að vera, en hann fór aftur út 10 til 15 mínútum síðar. Um hádegisbil komu þau Ingveldur heim og sáu í fyrstu ekkert athugavert. „Það var ekki fyrr en ég opnaði hurðina frá for- stofunni inn í íbúðina, að ég fann að eitthvað var á seyði. Það gaus þá á móti okkur ægileg reykjar- lykt og íbúðin var gjörsamlega full af reyk, það lá mökkur yfir ■ HIÐ árlega herrakvöld Þórsara verður haldið í Hamri, félagsheimili Þórs, laugardag- inn 30. október. Ræðumaður kvöldsins verður Steingrímur J. Sigfússon alþingismaður og veislustjóri verður Oddur Helgi Halldórsson. Von er á ýmsum uppákomum. Borðhald hefst kl. 20, húsið opnað kl. 19. Miðasala og upplýsingar gefnar í Hamri. öllu og sást ekki handa skil,“ sagði Jörundur. Lét vaða eins og ég mögulega gat Hann brá strax við og sótti handslökkvitæki sem geymt er í þvottahúsi við útidyrnar, stökk inn í mökkinn og paufaðist gegnum hann inn í eldhús þar sem eldurinn var og sprautaði úr tækinu þrisvar sinnum. „í þriðja skiptið sem ég dældi úr tækinu lét ég vaða eins og ég mögulega gat, en mér var farið að líða verulega illa þarna inni og hljóp því út. Ég sá ekkert til og keyrði á eitthvað, sennilega ísskápinn og var töluverðan tíma að ná áttum, en komst út að lok- um,“ sagði Jörundur. Á meðan á þessu stóð hringdi Ingveldur í slökkvilið sem kom strax á staðinn og sagði Tómas Búi Böðvarsson slökkviliðsstjóri að litlu hefði mátt muna að verr hefði farið, viðbrögð hefðu verið hárrétt. Mikill hiti hefði verið í Eldhúsið logaði ELDHÚS íbúðarinnar er illa far- ið eftir eldsvoðann. íbúðinni og allt benti til að eldur hefði verið um það bil að blossa upp. Slökkvilið Akureyrar sá um að reykræsta íbúðina, en sót og reyk- ur voru um hana alla og talið Jör- undur að hún yrði óíbúðarhæf sennilega í um vikutíma. Eldurinn kom upp í eldhúsinu, en Tómas Búi sagði í gær of snemmt að segja fyrir um eldsupptök.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.