Morgunblaðið - 29.10.1993, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 29.10.1993, Blaðsíða 21
Landsátak um velferð barna í umferðinni MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. OKTÓBER 1993 21 Látum ljós okkar skína UNDANFARIN þrjú ár hefur Bandalag íslenskra skáta staðið fyrir landsátakinu: Látum ljós okkar skína, til að auka öryggi barna í umferðinni. Endurskinsborðar og merki eru einföld öryggistæki í umferðinni og skv. athugun sést gangandi vegfar- andi allt að fimm sinnum fyrr en sá sem ekki hefur endurskinsmerki. í lok októbermánaðar síðustu þrjú ár hafa skátar dreift á öll heim- ili barna á landinu, á ákveðnum aldri öryggistækjum eins og end- urskinsmerkjum og endurskins- borðum sem ná yfir axlirnar, jafn- framt fengu fjölskyldur þessara barna rit þar sem bent var á þær hættur sem leynast í umferðinni, heima og heiman. í framhaldi af þessu gengu skátar í bekki í skólum landsins og vöktu athygli á umferð- inni og hættum þeim sem þar eru. Til að fjármagna þetta átak hafa skátar selt happdrættismiða. .■» Ráðstefna Félags fóta- aðgerða- fræðinga RÁÐSTEFNA verður haldín á vegum Félags fótaaðgerða- fræðinga um fótamein fyrir fótaaðgerðafræðinga og aðrar heilbrigðisstéttir sem áhuga hafa á málefninu laugardaginn 30. október á Hótel Lind kl. 14. Robert van Lith, forseti alþjóðlegra samtaka fótaað- gerðafræðinga, FIP (Federation Internationale Des Podologues) sem Félag fótaað- gerðafræðinga, FFF, er aðili að, Robert van Lith mun halda fyrir- lestur um fótamein og meðhöndlun þeirra hjá fótaaðgerðafræðingum. Allir innan heilbrigðisstétta sem áhuga hafa á málefninu eru vel- komnir á meðan húsrúm leyfir. . --------» ♦ ♦---------- ■ ÞJÓNUSTUÍBÚÐIR aldraðra, Dalbraut 27, Reykjavík halda sinn árlega basar, laugardaginn 30. októ- ber kl. 13.30. I fréttatilkynningu segir að venju sé margt góðra muna, þar á meðal smáhlutir, renndir úr íslensku birki, rokkar, orf og hrífur, hesputré, þvottabretti og balar, klif- berar, hljólbörur, taurullur og margt fleira. Leikföng saumuð og pijónuð, mottur, teppi, svuntur, vettlingar og sokkar, körfur, brúðurúm með rúm- fötum. ■ FRÆÐSL UFUNDUR verður á vegum Fuglaverndarfélags Islands mánudaginn 1. nóvember í Odda, húsi hugvísindadeildar Háskólans. Fyrirlesari er Kristín Ólafsdóttir, lyfjafræðingur. Erindi Kristínar ber titilinn Tilvist stöðugra lífrænna eit- urefna í íslenskum fálkum. Þrír af aðalleikurum myndarinnar í hlutverkum sínum, Mary Stuart Masterson, Johnny Depp og Aidan Quinn. Kvikmyndin Benny og Joon í Háskólabíói HÁSKÓLABÍÓ hefur tekið til sýninga kvikmyndina Benny og Joon með Johnny Depp, Mary Stuart Masterson og Áidan Quinn í aðalhlut- verkum. Myndin er liugljúf ástarsaga um tvær litlar manneskjur sem verða ástfangnar. Leikstjóri er Jeremiah Chechik. Joon (Masterson) hefur búið lengi í vernduðu umhverfi Benny bróður síns (Quinn). Hún er falleg og gáf- uð, gædd listrænum hæfileikum, en á við geðræn vandamál að stríða. Benny er bifvélavirki sem leggur allt kapp á að verja hana fyrir umheimin- um. Inn í líf þeirra systkina kemur óvænt Sam (Johnny Depp), aldeilis furðulegur náungi sem er ekki eins og fólk er flest. Hann hefur mikið dálæti á meisturum þöglu myndanna og þá sérstaklega Chaplin og Buster Keaton. Hann tekur þá sér til fyrir- myndar og reynir að lifa sig inn í hlutverk þeirra. Sam kennir Joon hina ýmsu leyndardóma lífsins eins og t.d. að rista samloku með strau- járni. Þau ná fljótt vel saman og áður en langt um h'ður fer ástin að gera vart við sig. Úr verður hugljúft ævintýri sem lætur engan ósnortinn, segir í fréttatilkynningu frá bíóinu. SMURSTÖÐ ÞVOTTASTÖÐ HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA UNDIRVAGNSRYÐVÖRN S tstts Raggi Bjarna syngur og leikur af fingrum fram á flygilinn um helgar. Nýr sérrétta- og vínseðill. Njótið lífsins í heillandi umhverfi! Borðapantanir í shna 17759 Veitingahúsiá Naust — -i/arXf/y /nrr) Trúarleg stef í nútímamyndlist DR. GUNNAR Kristjánsson verður með fræðslumorgna laugardag- ana 30. okt. og 6. nóv. í Víðistaðakirkju undir yfirskriftinni Trúar- leg stef í nútímamyndlist. Fyrri morguninn, 30. okt., verður staldrað við áhrif dulúðar í myndlist samtímans en þann síðari, 6. nóv., verður sjónum beint að ýmsum Jesú- myndum nútímans sem tengjast póli- tík og baráttu gegn ranglæti í veröld- inni. Bæði er fjallað um íslenska og erlenda list. Báða morgnana verða sýndar lit- skyggnur af listaverkum og rætt um þau. Boðið er kaffi og gefinn kostur á fyrirspurnum og umræðum. Dr. Gunnar Kristjánsson er löngu landskunnur fyrir erindi og greinar um kristna trú og málefni líðandi stundar, m.a. um kirkjuna og listina. Hann fæddist árið 1945, lauk emb- ættisprófi í guðfræði frá Háskóla íslands árið 1970 og hefur stundað framhaldsnám í Þýskalandi og Bandaríkjunum. Dr. Gunnar er sókn- arprestur á Reynivöllum í Kjós. Um lifandi og áhugavert efni er að ræða og fólk er hvatt til að sækja fræðslumorgnana. - Sr. Ólafur Jóhannsson. Röð fræðsluerinda í Hafnarfjarðarkirkju DR. HJALTI Hugason, kirkju- sagnfræðingur, heldur röð fræðsluerinda sem nefnast: Þjóð og kirkja í Safnaðarathvarfi Hafn- arfjarðarkirkju, Suðurgötu 11, þijá laugardagsmorgna nú á næst- unni og fjallar í þeim um trúar- skilning og sögu þjóðariunar. Hjalti mun í skjótri hendingu líta yfir þjóðarsöguna og gæta að nokkr- um megináherslum í trúartúlkun og viðhorfum sem mótað hafa lífsbar- áttu og samfélag hér á landi og gefa einnig gaum að samtíðinni. Fræðsluerindi þessi hefjast kl. 11 og fer það fyrsta fram laugardags- morguninn 30. október og halda þau svo áfram 13. nóv. og 20. nóvem- ber. Eftir hvert fræðsluerindi býður sóknarnefnd viðstöddum upp á léttan hádegisverð. Dr. Hjalti mun einnig predika við messu 28. nóvember sem er fyrsti sunnudagur í aðventu. -----------».♦.♦----- ■ FJÖLSKYLDUSKEMMTUN verður haldin í Vinabæ, Skipholti 22, laugardaginn 30. október. Skemmtunin hefst kl. 14. Á dagskrá verður galdrakarl, tónlist, dans, lukkumiðar og margt fleira. Aðgang- ur er ókeypis. Skemmtunin er á veg- um Unglingareglunnar og Bama- blaðsins Æskunnar. Litir: Dökkgrænt og dimmrautt. Stærðir: S - M - L - XL Verð kr. 5.670,- 5% staðgreiðsluafsláttur, einnig af póstkröfum greiddum innan 7 daga. ÚTILÍFf GLÆSIB/E ■ SÍMI S12922 HS ms HUGSPIL - LEIKF0NG 0G T0WISTUNDIR Stórglæsileg sýning og frábær fjölskylduskemmtun í Perlunni dagana 27.-31. október. Opið föstudag kl. 17-22s laugard. - sunnud. kl. 13-18. Ókeypis aðgangur. P E R L A N

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.