Morgunblaðið - 29.10.1993, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 29.10.1993, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. OKTÓBER 1993 Þórður Jóhann Þór- isson - Minning Fæddur 7. mai 1961 Dáinn 21. október 1993 Hann fæddist í maí. Á vordögum. Þriðja bam foreldra sinna. Á eftir honum kom litla systir. Þá voru þau orðin fjögur. Það er mikið ríkidæmi að eiga íjögur lítil ljós. Skær og fögur. Hann hlaut nöfn beggja af- anna sinna. Þórður eins og móður- afinn. Jóhann eins og föðurafinn. Hann var kallaður Þórður af eldra fólkinu. Yngra fólkið kallaði hann Tóta. Mér fannst það ekki eiga við hann. Hann var rólegur í fasi, sagði ekki margt en hugsaði því fleira. Brosti við veröldinni eins og hann vissi fleira en hann talaði um. Það er það sem ég minnist nú. Brosið hans og alúðin sem var aðall hans. Hann tók til við að rækta garðinn sinn, það gerði hann af alúð eins og allt annað. Hann bjó yfir góðum sönghæfileikum, hafði fagra bassa- rödd en því miður hlotnaðist honum ekki tími til að leggja þá rækt við hana sem hann vildi. Lífskapp- hlaupið kallar á sitt. Að mörgu er að hyggja ef vel á að byggja. Það gerði hann sér fullvel ljóst að aðra hæfíleika þurfti einnig að byggja upp. Lærður er í lyndi glaður, lof ber hann hjá þjóðum. Hinn er ei nema hálfur maður sem hafnar siðum góðum. Þessi orð H.P. koma mér nú í hug, þau eiga svo undur vel við skapgerð og lífsstíl Þórðar Jóhanns sem nú er allur. Það var á síðustu haustdögum að hann kvaddi þennan heim aðeins þijátíu og tveggja vetra. Svo stutt er stundin milli fæðingar og dauða, en hvað er dauðinn annað en ný fæðing? Eg vil hér þakka honum brosin hans þau er hann gaf mér þau alltof fáu skipti er ég hitti hann á förnum vegi. Ég bið þess að hann megi áfram stefna fram til sigurs á nýj- um vegum. Megið þið, ástvinir hans, öðlast styrk í minningunum um Fædd 25. september 1926 Dáin 20. október 1993 Elsku amma, nú ert þú farin, ég á mjög erfítt með að trúa því. Mér fannst þú alltaf dæmi um hvað ald- ur er afstætt hugtak. En ég veit þú ert komin til annarra starfa og að þú ert nú hjá litla drengnum mínum. Það var alltaf fastur punktur að heimsækja ykkur afa þegar maður kom suður. Alltaf var gott að koma til ykkar. Ég vil þakka fyrir allar stundimar sem ég fékk að vera með þér. Elsku afi, langafi, Stína, mamma, Helga, Gústi, Bugga, Gísli og fjölskyldur. Við eigum öll góðar minningar um góða konu. Guðrún Jóhanna. Mig langar að minnast hennar Gunnu frænku með fáum línum. Það er svo ótrúlegt og fjarlægt að Gunna skuli vera dáin. Síðast þegar við spjölluðum saman þurfti ég endilega að hringja í hana til að segja henni frá trúlofun frænku okkar, sem við fögnuðum saman. Við mamma eigum eftir að sakna allra símtalanna sem komu í stað stopulla heimsókna seinni árin. Þá voru rædd málefni fjölskyldunnar, jafnt gleði sem sorgir. Hún Gunna frænka var eitthvað annað og meira en bara frænka. Hún var stóri hlekkurinn í fjölskyld- unni eftir að Munda, móðir hennar, og „Salla ammá' féllu frá. Mamma og Gunna voru mjög nátengdar. Gunna missti föður sinn ung og þá dvöldust þær mæðgur góðan dreng sem var ætíð heill. Hinn mikli eilífí andi gefi ykkur sigurinn. Auður H. Ingvars. Elsku Tóti frændi, ég ætla að kveðja þig núna og það skaltu vita að það er sárt að þurfa að kveðja þig í síðasta sinn. Það var alltaf gott að hitta þig, sjá glettnina í augum þínum, brosa og hlæja með mér. Alltaf snyrtilegur, öryggið uppmálað, tilbúinn að sigra heiminn og svo heillandi. Alltaf jákvæður og laus við að dæma náungann. Ég vildi að ég gæti sýnt öllum minn- ingar um þig, þó að ekki væri nema brosið. Mig langar að segja svo margt en skortir orð. Eggert. Til grafar er í dag borinn frá Dómkirkjunni vinur minn hann Þórður, Tóti, eins og hann var allt- af kallaður. Við kynntumst fyrir um það bil 15 árum og bjuggum þá bæði í Heimunum. Þau voru mörg kvöldin sem við Tóti sátum saman í þá daga og töluðum. Við vorum bæði rétt innan við tvítugt, hann þó árinu yngri en ég. Þetta voru því ekki umbrotaum- ræður unglinga, heldur rabb ungs manns og ungrar konu. Rætt var um framtíðardrauma, rómantík, ferðalög, aðeins var tæpt á bæði þjóðmálum og heimsmálum. En það var þó mest talað um draumana og þeir voru margir. Það að allir draumarnir hans Tóta ættu ekki eftir að rætast vissum við ekki þeg- ar við sátum bjartar sumarnætum- ar, horfðum á Esjuna og töluðum, eða á stjörnubjörtum vetrarnóttum. Kvöldin liðu svo fljótt þegar við Tóti sátum saman. Núna þegar ég sit og skrifa þetta og minnist hans leitar sú spuming á mig af hveiju hann fór héðan svona fljótt. Ég veit samt að hann lét marga af þessum draumum sínum rætast. Við Tóti töluðum ekki bara saman mikið á Linnetsstígnum í Hafnar- fírði, sem við kölluðum Linnó, hjá systrum Mundu, en Munda vann sem verkakona í Hafnarfirði á vetr- um og á Bergsstöðum í Biskups- tungum sem kaupakona á sumrin. Þá vom samskipti frænknanna og Muggs, bróður mömmu, mikil. Eftir að Munda giftist Gísla Magnússyni og þau fara að búa á Brekku dvaldist mamma þar á sumrin eða á næstu bæjum, þannig að ekki var langt á milli þeirra. Gaman var að sitja með þeim þegar þær rifjuðu upp þessa daga. Þá var mikið hlegið og gjaman reynt að tala aðeins undir rós. Þær áttu margar gleðistundir saman. Alltaf þegar Gunna kom á Linnó var drif- ið sig í heimsókn og þá fékk ég tækifæri til að vera með tvíburun- um, Helgu og Möggu. Oftast mætti Helga Muggs þar líka. Þama var lagður grannur að því að rækta tengsl nýrrar kynslóðar, sem og einnig þegar ég dvaldist á Brekku. Mér er minnisstætt þegar ég kom að Brekku í júlí 1959 og sá Gústa litla, frænda minn. Þá hitti ég Gunna, manninn hennar Gunnu, fyrst. Þau vora svo hamingjusöm með litla soninn og Helga og Magga ánægðar með bróðurinn. Gunna og Gunni fóra svo að búa á Másstöðum í Innri-Akranes- hreppi. Árin liðu og ég óx upp. Bömunum fjölgaði á Másstöðum, Guðbjörg í maí ’64 og Gísli Rúnar í desember ’66. Árið ’66 varð Gunna einnig amma, því að þá fæddust bæði Jón Gunnar og Bjarni Skúli. Bæði Magga og Helga höfðu þá á þessum áram. Það var líka gaman að skemmta sér með honum. Böllin vora ekki fá sem við fóram á með hópi af góðum vinum. Hann var svo mikill dansmaður hann Tóti. Ég var nú ekki aðal dansdaman hans, deildi ekki þessu áhugamáli með honum. En það var svo margt annað sem við áttum sameiginlegt. Hann var svo skemmtilegur og hafði svo mikinn húmor. Já, Tóti fékk stærri skammt af húmor en við hin. Húmor sem hann missti ekki þótt erfið veikindi sæktu hann heim. Árin liðu og við Tóti fluttumst bæði úr Heimunum, en alltaf höfð- um við samband. Hann fluttist til Danmerkur, en ég til Svíþjóðar. Ég skrapp nokkram sinnum yfír sundið og heimsótti hann í litlu íbúðina hans á Norrebro. Ég man hvað ég dáðist að því hvað hann talaði góða dönsku. Þegar ég sjálf fluttist til Danmerkur og fór að tala málið sem við flest höfum lært í skóla, dáðist ég enn meira af hreimnum hans Tóta. Hann var mikill málamaður. Á þessum áram kom í ljós að ekki var hann minni hæfileikamaður á sviði tónlistar og söngs, en það áhugamál átti eftir að veita honum mikla gleði og styrk. Tóti fluttist aftur heim eftir dvöl sína í Danmörku og fluttist í Miðbæinn. Að búa í Miðbænum var bara Tóti, stutt í allt og þessi gömlu hús. Það var þá að hann fékk sér kisu, eftir það urðu Tóti og kisum- ar eitt. Síðar þegar Tóti og Viggi komu hingað til Kaupmannahafnar í heimsókn til mín fyrir nokkram áram lét Tóti þann draum rætast að eignast tvo persneska ketti, sem ég hjálpaði þeim með að fá senda heim. Það varð til þess að ég fékk mér einn líka. Eftir það fóram við Tóti að tala það sem við köliuðum „kisumáT*. Það var fastur liður að fara í heimsókn til Tóta og Vigga í Miðbæinn í hverri íslandsferð og helst sem oftast. Þá var talað um kisur og kattarækt fram og til baka. Einn af draumum okkar Tóta frá því í gamla daga var nú orðinn að veraleika og okkar sameiginlega áhugamál. í sumar komu þeir svo aftur að heimsækja mig og Tommy sambýl- ismann minn. Þá höfðu margir hlut- gifst og hafíð búskap á Akranesi. Alltaf fannst mér Gunna jafn kát og hress. Hvemig sem á stóð var stutt í hláturinn. Hún átti líka ynd- islegan mann, sem gat hlegið með henni. Það var svo sannarlega mik- ill hjónasvipur með þeim. Mér er minnisstætt þegar ég var í tilhugalífinu og brá mér á sveita- ball að Ölveri. Þar var mikið fjör og fyrsta fólkið sem við hittum vora Gunna og Gunni. Þarna skemmtum við okkur alveg ljóm- andi vel saman. í dag er þetta orð- ið bundnara við kynslóðirnar þannig að mínar dætur hafa ekki hitt Helgu og Möggu, dætur Gunnu, á sveita- böllunum, bara syni þeirra. Tíminn leið og ný kynslóð leit dagsins Ijós. Gunna varð langamma og ég amma. Og auðvitað varð ég að drífa mig með barnabarnið til Gunnu og þó að þau kynni yrðu ekki löng þá verður dótturdótturinni vafalaust sagt frá þessari skemmti- legu frænku á myndinni, sem tekin var í heimsókninni. Lífið heldur áfram og ég bið Guð að gefa Gunna og fjölskyldunni allri styrk til að ylja sér við allar góð minningarnar þegar fram líða stundir. Með þökk fyrir allt og allt. Helga Einarsdóttir. Einstök augnablik virðast lengi i en önnur, það er eins og tíminn standi í stað og fortíð og nútíð mætist á afar merkjanlegan hátt. Öll skilningarvit vakna og skerpast. Eitt slíkt augnablik upplifði ég, þegar síminn hringdi hjá mér fyrir nokkrum dögum og móðir mín sagi mér, að hún Gunna frænka mín á Másstöðum væri dáin. Kannski er það ekki síst vegna þess hversu brátt dauða hennar bar að að mig langaði mest til að mót- mæla fréttinni í veikri von um að slík mótmæli gætu einhveiju um ir breyst frá fyrri heimsókn. En þrátt fyrir að skuggi veikinda hans hvíldi yfír okkur, voram við ákveðin í því að fá það mesta út úr samver- unni. Þessar stuttu fjórar vikur sem þeir dvöldu hjá mér urðu þær síð- ustu í samfylgd okkar Tóta á þess- ari jörðu. Minnist ég þessa tíma með mikilli gleði og áttum við sam- an yndislegar stundir. Tóti var held- ur ekki lengi að vinna sig inn í hug og hjörtu allra þeirra sem hann hitti hér. Ég var beðin um að senda þér, Tóti, þeirra hinstu kveðju og votte þér, Viggi minn, samúð. Ég kveð þig nú vinur minn í þeirri vissu um að þú hafí það gott þar sem þú ert núna. Þakka þér fyrir öll góðu árin og þær yndislegu minningar sem ég á um þig. Foreldram Þórðar og systkinum votta ég mína innilegustu samúð. Hugur minn er hjá þér í dag, Viggi minn, þú veist svo alltaf hvar mig er að fínna. Gunnhildur. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. (V. Briem.) Tóti er dáinn. Minningamar streyma fram í hugann og þá sér- breytt. Nei, ekki Gunna, þessi lífs- glaða og umhyggjusama frænka mín sem ég einmitt hafði haft orð á skömmu fyrr að mig langaði svo til að hitta í þessari stuttu Islands- heimsókn minni. Ég vissi að hún samgladdist mér vegna breyttra fjölskylduaðstæðna og vildi því svo gjaman fá tækifæri til að sitja með henni uppi á Másstöðum og rabba við hana. En slíkt tækifæri gefst ekki og þess í stað mun ég enda Islandsvera mína að þessu sinni með því að taka þátt í hinstu kveðju- stund frænku minnar. Gunna á Másstöðum var hún allt- af kölluð okkar á milli í fjölskyldu minni, en fullu nafni hét hún Guð- rún Ágústsdóttir. Hún var fædd á Strönd í Norðfírði 25. september 1926, framburður frænku minnar Guðmundu Gísladóttur frá Seljadal í Kjós og Ágústs Guðmundssonar frá Ytri Breiðdal í Önundarfírði. staklega minningin um ljúfan og einstakan dreng, sem tekinn var frá okkur svo allt of fljótt, en ég trúi því að honum sé ætlað meira og stærra hlutverk þar sem hann er nú og ég veit að honum líður vel. Elsku Viggi og aðrir ástvinir, miss- irinn er mikill og sorgin þung, en minningin um góðan dreng lifir áfram. Megi algóður Guð styrkja okkur á þessari erfíðu stundu. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) íris og fjölskylda. Ég kynntist Tóta fyrir rúmum tveimur áram í gegnum systur mína, en mér fínnst eins og ég hafí þekkt hann alltaf, þannig var hann. Þegar ég frétti andlát hans hinn 21. október sl. var ég um dag- inn að vinna úr dómum af kattar- sýningu Kynjakatta, félags sem Tóti veitti forystu fyrstu þijú ár þess. Ræktun katta og skyld mál- efni vora honum hugleikin alveg fram í það síðasta. Ýmsar góðar stundir með Tóta koma upp í huga minn á þessari stundu. Álltaf var vel tekið á móti mér þegar ég leit inn hjá honum og Vigga í húsinu þeirra á Skóla- vörðustíg. Ég gat leitað til hans með mín vandamál og rætt við hann um þau. Hann var svo skilningsrík- ur. Á Þorláksmessu var ætíð opið hús á Skólavörðustíg fyrir vini og kunningja sem vora í jólainnkaup- um í bænum og eftir fyrsta skiptið sem ég fór fannst mér jólin ekki vera komin nema koma við þar. Tóti hafði mikinn áhuga á garð- rækt og plöntum og þegar hann frétti að ég hafði líka áhuga, þá hófst bonsai-ævintýrið okkar. Hann hafði séð auglýsingu í erlendu blaði um bonsai-tré og við pöntuðum nokkur frá Englandi. Mikil spenna ríkti á meðan plönturnar voru á leiðinni, en þær komu alveg heilar frá Englandi eftir þriggja vikna ferð. Við sátum lengi yfír þeim og pældum mikið í því, hvemig ætti að klippa þau og halda þeim í góðu Ég gumaði gjaman af því, þegar ég var yngri, að við Gunna væram tvöfaldar frænkur, því að afí minn og faðir hennar voru bræður og amma mín og móðir hennar vora systur. Ágúst, faðir Gunnu, stund- aði sjómennsku, en ekki átti hann langa lífdaga með dóttur sinni, því að 16. maí 1927 dó hann úr lungna- bólgu. Guðmunda, eða Munda eins og hún! ævinlega var kölluð, fór þá til Hafnarfjarðar með dóttur sína, en þar bjuggu faðir hennar og syst- ur og þar áttu þær mæðgur heim- ili næstu árin. Reyndar fór hún öll sumur í kaupavinnu og hafði þá dóttur sína með sér. Fyrstu árin fór hún að Ber^sstöðum í Biskupstung- um, eða allt til sumarsins 1937, þegar hún fór i kaupavinnu á Brekku á Hvalfjarðarströnd. Þar með gripu góðar vættir inn í líf þeirra mæðgna og á Brekku settust þær að. Munda giftist Gísla Magn- ússyni og þau áttu sitt heimili á Brekku upp frá því og ráku þar búskap. Gísli hefur ætíð reynst Gunnu sem hinn besti faðir. Árið 1945 kom fóstursystir Gunnu, Ág- ústa Kristín, eða Stína eins og hún hefur alltaf verið kölluð, að Brekku og ólst þar upp með Gunnu hjá Mundu og Gísla. Sumarið 1948 eignaðist Gunna tvíburadætumar Helgu og Mar- gréti, en faðir þeirar var sveitungi hennar, Gísli Búason. Þær slitu barnsskónum á Brekku hjá móður sinni og fjölskyldu hennar. Síðar var Gunna svo lánsöm að kynnast Gunnari Nikulássyni frá Sólmund- arhöfða á Akranesi. Þau giftu sig og fluttust árið 1960 að Másstöðum við Akranes, þar sem þau hófu búskap. Þegar Gunna og Gunni tóku við jörðinni á Másstöðum var hún komin í eyði, og þau hófust handa við uppbyggingu reisulegra húsakynna. Þeim hjónunum varð þriggja bama auðið, Guðmundur Guðrún Ágústs- dóttir - Minning

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.